Bændablaðið - 27.01.2006, Síða 1

Bændablaðið - 27.01.2006, Síða 1
Auglýsingasíminn er 563 0300 Netfang augl@bondi.is Næsta blað kemur út 14. febrúar Upplag Bændablaðsins 14.167 Þriðjudagur 31. janúar 2006 2. tölublað 12. árgangur Blað nr. 231 Lítil vatnsföll Brunavarnir Virkjun getur malað gull! 2 25 Brunavið- vörunar- kerfi fyrir gripahús Landbúnaðarráð- herra með fimm ný lagafrumvörp um lax- og silungsveiði: Skerpt á allri stjórn- sýslu veiði- mála „Við endurskoðun á löggjöf um lax og silungsveiði hefur verið áhersluatriði af minni hálfu að þessi mikilvæga auðlind lands- byggðarinnar standi áfram sterkum fótum í löggjöfinni. Endurskoðun á lagaumhverfi hennar var jafnframt orðin brýn og þar sem málið er mjög flókið og sömuleiðis viðkvæmt þurfi að kalla til þá lögfræðinga sem best þekkja til eignarréttar og hlunnindanýtingar,“ segir Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra. Samþykkt hefur verið í ríkis- stjórn að leggja fyrir Alþingi þrjú lagafrumvörp landbúnaðarráð- herra sem snúa að lax- og silungs- veiði, en á síðustu misserum hefur nefnd á vegum ráðherrans unnið að endurskoðun á lögum um lax- og silungsveiði nr. 76/1970. Tvö önnur lagafrumvörp sem snerta þennan málaflokk verða svo væntanlega afgreidd frá ríkisstjórn alveg á næstunni, en ætlunin er að öll fimm frumvörpin verði orðin að lögum nú á vorþingi. Sjá bls. 14. Bændur vilja ekki selja Hótel Sögu og Hótel Ísland Í upphafi búnaðarþings í gær fengu þingfulltrúar margvísleg skjöl sem vörðuðu tilboðið. Baldvin Kr. Baldvinsson í Torfunesi (t.v.) og Guðmundur Jónsson á Reykjum, voru að velta vöngum yfir tilboðinu þegar myndin var tekin í gær. Fulltrúar á búnaðarþingi, sem haldið var í gær til að taka afstöðu til kauptilboðs í Hótel Sögu og Hótel Ísland, höfnuðu því að selja hótelin. Niðurstaðan var mjög afgerandi. “Nei” sögðu 36 en “já” 13. Enginn skilaði auðu. Atkvæðagreiðslan var leynileg. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, sagði að með því að kalla saman búnaðarþing til að fjalla um kauptilboðið, hefði stjórn BÍ verið að framkvæma ítrekaðan vilja búnaðarþinga. “Á búnaðarþinginu í fyrra var það mat margra þingfulltrúa að stjórn BÍ bæri að stefna ákveðið að því að selja hótelin. Þegar stjórnin fékk tilboð í eignirnar fyrir skömmu var það mat hennar að rétt væri að boða til búnaðarþings og fá fram vilja þingfulltrúa. Nú hefur komið fram að söluhugmyndirnar áttu sér ekki þann hljómgrunn sem ætla mátti.” Haraldur sagði að afgerandi afstaða búnaðarþingsfulltrúa hefði komið sér á óvart. “Nú bíður stjórnar það verkefni að ræða ítarlega þau sjónarmið sem komu fram á fundinum. Hvað sem öðru líður þá er ljóst að þessar eignir verða ekki seldar í bráð.” En hvað gerist næst? “Það kom fram í umræðum á búnaðarþinginu að það gæti væri skynsamlegt að taka þriðju hæð Hótel Sögu undir hótelrekstur, en nú eru þar höfuðstöðvar Bændasamtakanna. Rekstur hótelsins hefur gengið vel að undanförnu og þingfulltrúar töldu að með því að hótelið tæki við þessari hæð væri hægt að gera reksturinn enn arðsamari. Haraldur sagði að hann væri ánægður með það hve niðurstaða búnaðarþings var afgerandi. “Nú verður mun auðveldara fyrir stjórn BÍ að vinna áfram að þessu máli. Ekki leikur lengur vafi á vilja bænda” Hagnaður hjá Ístex í fyrsta sinn í átta ár Á aðalfundi Ístex þann 25. janú- ar sl. kom fram að hagnaður varð af rekstri fyrirtækisins á árinu 2005 og er það í fyrsta sinn síðan 1997 að það gerist. Guðjón Kristinsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði í samtali við Bændablaðið að á liðnu ári hafi hagnaður Ístex num- ið 35,5 milljónum króna eftir skatta. Hluti af þessu er söluhagn- aður, m.a. af sölu þvottastöðvar- innar í Hveragerði eftir að fyrir- tækið flutti þvottastöð sína til Blönduóss. En Guðjón tók fram að reksturinn hafi líka verið betri en í langan tíma áður vegna hærri tekna og minni tilkostnaðar. Framhald á bls. 12

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.