Bændablaðið - 27.01.2006, Qupperneq 4
4 Þriðjudagur 31. janúar 2006
Kvennakórinn Ljósbrá í Rangár-
vallasýslu stefnir á að halda til
Salsburg í Austurríki 31. maí til 7.
júní og halda þar sjálfstæða tón-
leika en ekki á neinu kóramóti.
Kórstjóri Ljósbrár, Eyrún Jónas-
dóttir úr Ásahreppi, lærði úti í
Salsburg á sínum tíma.
Talsmaður kórsins, Íris Björk
Sigurðardóttir, sagði að kórinn hafi
verið stofnaður árið 1989. Hann nær
yfir alla Rangárvallasýslu og í kórn-
um eru einnig konur frá Selfossi og
er einn meðlimurinn frá Reykjavík.
Komurnar í kórnum eru nú orðnar
51 talsins. Æfingar hefjast í lok sept-
ember og er æft einu sinni í viku.
Starfsárinu líkur svo að yfirleitt um
mánaðamótin apríl/maí nema á
þessu ári því sem fyrr segir ætlar
kórinn til Salsburg í Austurríki.
En hefur ekki komið til greina að
kórinn gefi út hljómdisk?
,,Það er næsta verkefni. Að gefa
út plötu er mikið verk og sem stend-
ur höfum við nóg að gera við að æfa
fyrir Austurríkisferðina,“ sagði Íris
Björk. Hún sagði það væri siður að
Karlakór Rangæinga, Samkórinn og
Kvennakórinn Ljósbrá haldi sameig-
inlega jólatónleika og hefur þessi
siður haldist sl. sjö ár. ,,Aðsókn hefur
verið slík að kórarnir hafa þurft að
færa sig í stærsta samkomuhúsið á
svæðinu sem er Laugaland. Minna
hús hefur ekki dugað,“ sagði Íris
Björk. Myndina tók Eymundur
Gunnarsson.
Á fundi sveitarstjórnar Skaftár-
hrepps nýlega var eftirfarandi
ályktun samþykkt: ,,Sveitar-
stjórn lýsir áhyggjum af fyrir-
komulagi læknisþjónustu á
Kirkjubæjarklaustri. Fyrir-
komulagið felur það í sér að
læknislaust er á Kirkjubæjar-
klaustri hluta úr mánuði og er
það þvert á þá stefnu sem opin-
beruð var við sameiningu heil-
brigðisstofnana á Suðurlandi.
Sveitarstjórn skorar á stjórn og
stjórnendur Heilbrigðisstofnun-
ar Suðurlands að tryggja lækn-
isþjónustu á Kirkjubæjar-
klaustri og að viðkomandi lækn-
ir verði jafnframt búsettur í
Skaftárhreppi.“
Gunnsteinn R. Ómarsson sveit-
arstjóri Skaftárhrepps, sagði í
samtali við Bændablaðið að áður
fyrr hefði læknir alltaf verið bú-
settur á Kirkjubæjarklaustri. Síðan
gerðist það um áramótin
2004/2005 að Heilbrigðisstofnun
Suðurlands varð til og tók yfir
heilbrigðismálin á Suðurlandi. Þá
var ráðinn læknir á Klaustri en
hann hafði ekki búsetu þar.
Síðastliðið haust tóku svo tveir
læknar yfir læknisþjónustuna og
skiptast þeir á að sinna henni.
Þannig eru þeir hálfan mánuð í
senn. Þessir læknar eru báðir sér-
fræðimenntaðir.
,,Þegar skilin verða þá fer sá
sem verið hefur í tæpan hálfan
mánuð til Selfoss á fimmtudegi
eða föstudegi og vinnur þar gjarn-
an á föstudegi og laugardegi. Hinn
sem á að taka við næstu tvær vik-
urnar kemur ekki fyrr en á mánu-
degi eða jafnvel þriðjudegi ef
hann þarf að vinna á sjúkrahúsinu
á Selfossi. Á meðan er læknislaust
á Klaustri en sjúkrahúsið á Sel-
fossi nýtir sér þessa sérfræðinga,“
sagði Gunnsteinn.
Hann segir að unnið sé að því
að fá þessu breytt, hvernig sem
það muni ganga. Hann segir að
steininn hafi tekið úr um jólin en
þá var læknislaust á Kirkjubæjar-
klaustri í rúma viku og ekki einu
sinni hjúkrunarfræðingur starfandi
á heilsugæslunni á meðan. Gunn-
steinn sagði að á þessu tímabili
hefði ung manneskja veikst á
Klaustri og varð að flytja hana til
læknis í Reykjavík.
,,Ef til vill hefði þess ekki þurft
ef læknir hefði verið á svæðinu.
Auk þess komu upp veikindi hér á
þessum tíma og lyfjaþörf var mik-
il en ekki hægt að fá þau. Okkur
þykir þetta ástand því óþolandi og
vonumst eftir úrbótum,“ sagði
Gunnsteinn.
Læknislaust aðra hverja
helgi í Skaftárhreppi
Stjórnun og
ábyrgð í félögum
Nú er búið að dagsetja námskeið um „Stjórnun og ábyrgð í félög-
um“. Námskeiðin eru haldin að frumkvæði og undirlagi stjórnar
Bændasamtaka Íslands en eru á vegum endurmenntunar Landbún-
aðarháskólans á Hvanneyri (sjá auglýsingu á öðrum stað í blaðinu).
Fjallað verður um stjórnun félaga, aðallega hlutafélaga. Gerð verður
grein fyrir hlutverki og ábyrgð stjórnenda (félagsstjórnar og fram-
kvæmdastjóra), samskiptum þeirra og verkaskiptingu. Einnig verða
skoðaðar reglur um viðskipti félaga við stjórnendur þeirra. Kennari verð-
ur Áslaug Björgvinsdóttir, lögfræðingur og dósent við lagadeild Háskól-
ans í Reykjavík.
Rekstrarumhverfi fyrirtækja er síbreytilegt. Sérstaklega hafa verið
miklar breytingar á síðustu árum. Það er því afar mikilvægt að stjórnar-
menn fyrirtækja séu vel meðvitaðir um ábyrgð, réttindi og skyldur, sem
fylgir stjórnarsetu. Stjórnarmenn afurðarstöðva og félaga á vegum bænda
eru því eindregið hvattir til að nýta sér þetta tækifæri og fjölmenna á
námskeiðin.
Kvennakórinn Ljósbrá með tónleika í Salsburg í vor Sameining Bún-
aðarsambanda
við Húnaflóa?
Nú eru að hefjast viðræður
milli stjórna búnaðarsamband-
anna við Húnaflóa, þ.e. Búnað-
arsambands A.-Hún., V.-Hún.
og Strandamanna, um hvort
skynsamlegt geti verið að sam-
eina þessi búnaðarsambönd, en
ályktun um slíka skoðun var
samþykkt í fyrra á aðalfundum
búnaðarsambandanna í V.-
Hún. og á Ströndum.
Frá árinu 2002 hafa þessi þrjú
búnaðarsambönd rekið sameigin-
lega leiðbeiningaþjónustu undir
merkjum „Ráðunautaþjónustu
Húnaþings og Stranda“ og hefur
sú samvinna gengið vel. Nú
finnst mönnum tímabært að
skoða hvort sameining Búnaðar-
sambandanna sé rökrétt og væn-
legt skref í þróuninni. Helst er þá
horft til þess að einfalda „stoð-
kerfið“ eins og bændur hafa lagt
ríka áherslu á á undanförnum
árum og samhliða því að ná fram
ákveðinni hagræðingu í rekstri
en jafnframt aukinni skilvirkni
með stofnun slíkra heildarsam-
taka.
Stefnt er að því að vinna mál-
ið nokuð hratt og ljúka viðræð-
um í febrúar-mars þannig að
hægt sé að leggja tillögur um
sameiningu fyrir aðalfundi bún-
aðarsambandanna í vor ef niður-
stöður viðræðna leiða í ljós að
þessi sameining sé vænlegur
kostur.
Hin nýja Landbúnaðarstofnun tók
formlega til starfa um síðustu ára-
mót með aðsetur á Selfossi. Að
sögn Jóns Gíslasonar, forstjóra
stofnunarinnar, er hún í bráða-
birgðahúsnæði þar sem Lánasjóð-
ur landbúnaðarins var áður til
húsa. Í haust flytur stofnunin síðan
í nýtt húsnæði sem Merkiland ehf.,
sem eignarhaldsfélag í eigu MS, er
að byggja við Austurveg 64 á Sel-
fossi.
Jón sagði að þegar væri farið að
ráða starfsfólk og því yrði haldið
áfram fram eftir árinu og tekur nokk-
uð mið af nýja húsnæðinu. Hann
segir að gert sé ráð fyrir því að þegar
flutt verður í nýja húsnæðið verði
starfsmenn stofnunarinnar á Selfossi
um 30 og svipaður fjöldi mun vinna
á umdæmisskrifstofum sem eru um-
dæmi héraðsdýralækna út um allt
land. Síðan verður inn og útflutn-
ingseftirlit staðsett á Stór-Reykjavík-
ursvæð-inu. Jón segir að árið 2007
verði fleira fólk ráðið til starfa og þá
fyrst og fremst á Selfossi.
Stofnuninni skipt í svið
Jón segir að Landbúnaðarstofnun
muni taka yfir ákveðin verkefni sem
Bændasamtökin hafa séð um. Þar er
um að ræða verkefni samkvæmt bú-
vörulögum og lögum um búfjárhald
ofl. s.s. að halda skrár um greiðslu-
mark, handhafa beingreiðslna og en
það er skrá yfir alla sem halda búfé í
landinu. Einnig að staðfesta hvaða
bændur standast kröfur um gæða-
stýrða sauðfjárframleiðslu.
Jón segir að verið sé að leggja
lokahönd á samkomulag við Bænda-
samtökin um að vinna hluta af þess-
um verkefnum áfram s.s. að halda
skrá um búfjáreign og fóðurforða,
taka á móti og yfirfara tilkynningar
um aðilaskipti að greiðslumarki og
tilkynningar um breytingar á hand-
höfum beingreiðslna. Allar ákvarð-
anir um rétt eða skyldur einstaklinga
eða lögaðila, sem kunna að leiða af
framkvæmd þeirra verkefna sem BÍ
eru falin verði hins vegar teknar og
tilkynntar af Landbúnaðarstofnun.
Landbúnaðarstofnun mun síðan
taka við allri framkvæmd þessara
verkefna þegar hún hefur fengið til
þess fjármagn og starfsfólk til að
sinna þessum þáttum. Auglýst verður
eftir því starfsfólki þegar þar að kem-
ur.
Skiptingu stofnunarinnar í svið
eftir viðfangsefnum verður frestað
til 1. apríl nk. Þá verður um að
ræða rekstrar- og þjónustusvið,
matvæla- og umhverfissvið, dýra-
heilbrigðissvið, stjórnsýslusvið og
umdæmisskrifstofur. Öll þessi svið
heyra undir yfirstjórn Landbúnað-
arstofnunar.
Landbúnaðarstofnun fer
í nýtt húsnæði á árinu