Bændablaðið - 27.01.2006, Side 14

Bændablaðið - 27.01.2006, Side 14
14 Þriðjudagur 31. janúar 2006 Nú þegar hefur ráðherra lagt fram frumvarp til laga um eldi vatnafiska, frumvarp til laga um lax- og silungsveiði og frum- varp til laga um varnir gegn fisksjúkdómum. Ókomin eru frumvarp til laga um Veiðimála- stofnun og frumvarp til laga um fiskirækt. Segja má að í þessum fimm frumvörpum sé allt reglu- verkið um veiðimál í landinu. Ákvæði um allt er varðar lax- og silungsveiði, eldi vatnafiska og innflutning hrogna hefur ver- ið að finna í einum og sama lagabálknum, það er lögum frá árinu nr. 76/1970, sem að stofni til eru enn eldri. Nú er allur sá lagabálkur brotinn upp og sett- ur í fimm lagafrumvörp sem hvert um sig spanna tiltekna efnisþætti. „Breytingar á löggjöf um lax- og silungsveiði er stórt verkefni og eðlilega eru þar uppi einhver ágreiningsmál milli hagsmuna- hópa. Mörg ákvæða laganna hafa ekki verið í samræmi við aðstæður líðandi stundar. Grunnur laganna er frá því um 1930 og því þarf á endurskoðun þeirra. Þessu gerði ég mér mjög fljótt grein fyrir þeg- ar ég kom hingað í ráðuneytið og ákvað því að setja vinnu í þetta mál,“ segir Guðni, sem á árinu 2001 skipaði þriggja manna nefnd sem skyldi vinna að endurskoðun laganna. Gaukur Jörundsson, áður laga- prófessor og Umboðsmaður Al- þingis, leiddi starfið og lagði grunninn en yfirgripsmikil þekk- ing hans í lögfræði var ekki á síst á sviði eignarréttar. Gaukur, sem var bóndi í Kaldaðarnesi í Flóa og formaður Veiðifélags Árnesinga í áraraðir, lést haustið 2004 og þá kom formennska í hlut Þorgeirs Örlygssonar, sem er dómari við mannréttindadómstólinn í Strass- borg. Sjálfstjórnarréttur veiðifélaga aukinn Við smíði þessara lagafrumvarpa hefur verið höfð náin samvinna við fjölda aðila, jafnframt því sem embættismenn landbúnaðarráðu- neytisins, sem sinnt hafa þessu starfi, hafa haft samvinnu við önn- ur ráðuneyti, það er sjávarútvegs- og umhverfisráðuneyti. Þá hafa frumvarpsdrögin verið birt á Net- inu og hefur almenningur þannig getað fylgst með starfinu og gert sínar athugasemdir. Fyrir hönd landbúnaðarráðuneytisins hefur Atli Már Ingólfsson lögfræðingur sinnt ýmsum verkefnum er snúa að endurskoðun laganna um lax og silungsveiði. Atli Már leggur áherslu á að í nýjum lögum um lax og silungs- veiði gildi sömu hugtök eignar- réttar og í eldri lögum, það er hvað varðar rétt manna til að stunda veiðar. Hins vegar sé sjálfsstjórnarréttur veiðifélaga í eigin málum aukinn, veiðitími er lítið eitt styttur, en hins vegar sett inn undanþáguákvæði þannig að almennt ætti lagaumhverfi veið- anna að verða sveigjanlegra og háð ákvörðunum hvers veiðifélags fyrir sig. Þá eru lagaákvæði um matsgjörðir, bæði hvað varðar arð og í bótamálum einfölduð - það er að ekki er lengur gert ráð fyrir undir- og yfirmati líkt og áður - heldur munu bótamál í framtíðinni fara í gegnum eina vandaða máls- meðferð. Að sögn Atla Más á slíkt bæði að leiða til þess að lækka kostnað og jafnframt stytta þann tíma sem málsmeðferð tekur. Þá skerpa lögin væntanlegu mjög á allri stjórnsýslu veiðimála, sem nú er komin undir hatt hinnar nýju Landbúnaðarstofnunar, sem tók til starfa um áramótin. Netveiði í straumvatni ekki bönn- uð Á síðustu árum hafa ágreinings- efni á sviði veiðimála ekki síst snúist um hvort hætta eigi alfarið netaveiðum í ám. Ýmsir hafa haft afdráttarlausar hugmyndir um slíkt og telja jafnvel eðlilegt að Alþingi setji lög sem banni neta- veiði. Guðni Ágústsson útilokar slíkt. „Ég held að komi aldrei til að Alþingi banni alfarið netalagnir í straumvatni. Slíkt myndi snerta ákvæði stjórnarskrárinnar, svo sem eignarréttarákvæði hennar og í einhverjum tilvikum atvinnurétt- arákvæðið líka. Lagasetning um bann gæti bakað ríkinu miklar bótakröfur frá fjölda aðila. Í þessu máli er það mín póltíska sýn að veiðiréttur um þúsund lögbýla í landinu verði varðveittur sem auð- lind jarða og landsbyggðar til framtíðar,“ segir Guðni og minnir á að netaveiðin skapi bændum ekki nándar nærri sömu tekjur og var fyrir fimmtán til tuttugu árum eða eftir að fiskeldið kom til sög- unnar og varð gildur atvinnuveg- ur. „Peningalegir hagsmunir byggðanna og í mörgum tilvikum eigenda jarða hljóta því oftar en ekki að felast í því að menn snúa sér að stangaveiði og nái saman um skiptingu arðsins á vatnasvæð- um. Hinu má heldur ekki gleyma, að til eru ár og vötn sem verða alltaf hentug til netaveiða og skil- yrði til stangaveiði þar erfið.“ Landbúnaðarráðherra með fimm ný lagafrumvörp um lax- og silungsveiði Veiðimaður á bökkum Laxár í Mývatnssveit. Um þúsund lögbýli í landinu eiga veiðiréttindi og segir landbúnaðarráðherra mikilvægt að tryggja þann rétt. Á liðnu ári hefur stjórn Sam- taka eigenda sjávarjarða, SES, haldið starfi sínu áfram við að kynna málstað samtak- anna, bæði innanlands og utan, og bent á að réttur bú- jarða til sjávarins er mikið réttlætismál, ásamt því að vera eitt stærsta byggðamál síðari tíma. Mál samtakanna hafa verið kynnt fyrir Evr- ópuráðinu, sjávarútvegsráð- herra o.fl. Þótt kynningar- starfið hafi ekki borið þann árangur, sem vænst var, þá er það nauðsynlegur þáttur í því að efla skilning á málstað samtakanna. Einn liður í kynningarstarfinu er heima- síða samtakanna. Þar er ýmis- legt fræðsluefni, auk þess sem nýjum félögum gefst þar kost- ur á að skrá sig í samtökin. Á þriðja þúsund jarðir með land að sjó Samtökin hafa látið vinna skrá yfir allar jarðir á Íslandi sem liggja að sjó. Hún er nauðsynleg vegna starfsins framundan og til þess að skilgreina hversu marg- ar jarðir hér á landi eiga hlut að máli. Við gerð hennar komu oft upp álitamál um hvernig bæri að skrá jarðir, t.d. jarðir sem búið er að skipta upp. Þrátt fyrir ýmis álitamál um skráningu, þá gefur hún ótvíræða niðurstöðu um að mjög margar jarðir eiga land að sjó, eða alls um 2.240 jarðir hér á landi. Margvíslegur málarekstur Á liðnu ári gerðu samtökin at- hugasemdir við þrjú frumvörp á Alþingi. Frumvörp þessi eru: Endurskoðun laga um lax- og silungsveiði, nr. 8/2005, endur- skoðun laga um fiskeldi og end- urskoðun laga um fiskrækt. Þrátt fyrir að í ofangreindum frum- vörpum hafi verið fjallað um at- riði, sem snerta beint hagsmuni tengda sjávarjörðum, þá er þeirra hagsmuna hvergi getið hvað þá að tekið sé tillit til þeirra sjónar- miða í þessum lögum. Stjórn SES hefur margsinnis bent á að sífellt þarf að minna á rétt sjáv- arjarða, því allt of oft er réttur þeirra á ýmsum sviðum snið- genginn. Stjórn samtakanna tók þá ákvörðun á síðasta ári að styðja kæru Ragnars Aðalsteinssonar, hrl., til Mannréttindadómstóls Evrópuráðsins vegna máls Björns Guðna Guðjónssonar um grásleppuveiðar í netlögum á jörð hans. Vonir eru bundnar við að Mannréttindadómstóllinn muni taka það mál fyrir. Á aðalfundi SES árið 2003 var stjórn samtakanna veitt heimild til þess að stefna ís- lenskum stjórnvöldum og fara fram á að réttur sjávarjarða til útræðis verði virtur á ný og eign- arréttarleg hlutdeild sjávarjarða í óskiptri sjávarauðlindinni verði virt. Ragnar Aðalsteinsson hrl. hefur á síðasta ári undirbúið stefnuna og verður hún lögð fram á fyrrihluta árs 2006. Augljós réttur strandjarða til sjávarins Á aðalfundi samtakanna, sem haldinn var 29. desember sl., fjallaði Ragnar um framvindu mála og ítrekaði að í lögum allt frá þjóðveldisöld og síðar væri réttur strandjarða til sjávarins augljós að hans mati. Hann benti á að óeðlilegt væri að stjórnvöld hefðu tekið, án sérstaks dóms, eignarsvæði sjávarjarða og bann- að löglegum eigendum veiðar á sinni eign, en afhent veiðiréttinn öðrum aðilum sem engin eignar- réttindi ættu á viðkomandi svæði. Slíkt stæðist ekki lög né mannréttindasáttmála. Hann sagði að grásleppumálið á Ströndum hefði tapast vegna þess að dómstólar hefðu bundið sig eingöngu við túlkun á lögum um stjórn fiskveiða og fram- kvæmd þeirra í þrengsta skiln- ingi, en í þeim lögum væri ekk- ert tillit tekið til eignarréttar sjávarjarða í auðlindinni. Hann gagnrýndi það að í raun hefði Hæstiréttur ekki tekið efnislega afstöðu í umfjöllun sinni um það mál, heldur einfaldlega tekið, at- hugasemdalaust, undir niður- stöðu héraðsdóms án efnislegrar umfjöllunar. Hann taldi að eftir að væntanleg stefna samtakanna hefur verið lögð fram, sem verð- ur á næstu mánuðum, þá mundi það taka dómsstóla um eitt til tvö ár að komast að niðurstöðu. Hann taldi að niðurstaða Mann- réttindadómstólsins í grásleppu- málinu mundi hafa ótvíræð áhrif á málarekstur SES gegn íslenska ríkinu. Sótt að rétti landeigenda á ýmsum sviðum Aðalfundurinn 29. desember sl. var vel sóttur og urðu góðar um- ræður um verkefnin framundan. Fram kom að sótt er að rétti landeigenda á ýmsum öðrum sviðum og minnt var á að breytt viðhorf til verðmæta lands gera það enn brýnna að halda lands- réttindum á lofti. Sérstaklega þyrfti að gæta að landsréttindum þegar ný lagafrumvörp væru lögð fram og voru nefnd dæmi á því sviði. Við afgreiðslu reikninga kom fram að tekjur samtakanna eru eingöngu bundnar við árgjald fé- lagsmanna. Stjórnin lagði því áherslu á að félagsmenn skiluðu þeim fljótt og vel og minnti á að þótt um 500 félagsmenn séu í SES þá vanti dálítið upp á skil á árgjöldum. Á aðalfundinum var samþykkt að hækka árgjald til SES í kr. 3.500, en það hefur verið óbreytt frá upphafi eða kr. 3.000. Stjórn SES skipa: Ómar An- tonsson, Horni, formaður; Björn Erlendsson, Reykjavík, ritari og Sigurður Filippusson, Dverga- steini, gjaldkeri. Meðstjórnendur eru: Bjarni Jónsson, Reykjavík og Pétur Guðmundsson, Ófeigs- firði. Minna má á heimasíðu Sam- taka eigenda sjávarjarða, www.ses.is /ÁS Sjávarjarðir og réttur þeirra Stjórn SES. Frá vinstri: Björn Erlendsson, ritari, Sigurður Filippusson, gjaldkeri og Ómar Antonsson, formaður. /Bbl. ÁS

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.