Bændablaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 19

Bændablaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 19
19Þriðjudagur 31. janúar 2006 Landbúnaðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til nýrra laga um landshlutabund- in skógræktarverkefni og er stefnt að afgreiðslu þeirra nú á vorþingi. Nýjum lögum er ætlað að samræma lagaumgjörð þá sem gilt hefur, jafnframt því sem ýmsir agnúar í eldri lögum verða teknir af. Meðal annars er breytt ákvæðum um endur- greiðslur bænda á framlögum ríkisins til verkefnanna. Í nú- verandi lögum er þetta endur- greiðsluhlutfall allt að 15% sem talið er allt of hátt og er þá með- al annars litið þá reynslu sem fengist hefur á Írlandi og í Skot- landi. „Reynsla síðustu ára sýnir að skógrækt hefur hvarvetna eflt byggð til sveita og á sumum stöð- um hefur hún skapað nýja bjart- sýni, trú og styrkt búsetu,“ segir Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra í samtali við Bændablaðið. „Bæði fjölgar fólki í skógræktar- héruðum og þar verða til ýmis sér- hæfð störf. Jafnframt hefur eftir- spurn eftir jörðum stóraukist og jarðarverð hækkað sem ef til vill er stærsta breytingin. Fyrir fáum árum var hlutskipti margra bænda út um land að hrekjast frá óseljan- legum jörðum sínum. Nú er sú staða gjörbreytt og landið er eftir- sótt, bæði vegna skógræktarverk- efna og annarra verkefna sem gert hafa sveitina eftirsótta til búsetu. Sveitin er í tísku nú og kemur mér ekki á óvart. Almennur efnahagur þjóðarinnar er miklu betri nú en fyrir fáum árum og fólkið sér framtíð í landinu á svo mörgum sviðum.“ 700 bændur sinna skógrækt Upphaf landshlutabundinna skóg- ræktarverkefna má rekja til stofn- unar Héraðsskóga á Austurlandi árið 1991. Jákvæður árangur starfsins eystra sást fljótt og því var ákveðið að halda áfram á sömu braut. Suðurlandsskógar og sérstök lög um þá komu 1997. Lög um landshlutabundin skógræktarverk- efni voru svo samþykkt 1999 og á grundvelli þeirra voru fern sam- bærileg verkefni annarsstaðar á landinu sett á laggirnar, það er Norðurlandsskógar, Vesturlands- skógar, Skjólskógar á Vestfjörðum og Austurlandsskógar. Nú er ætlunin til að sameina þessi lög í eina heildstæða löggjöf og nema eldri lög úr gildi. Um 700 bændur og jarðareig- endur í öllum landshlutum sinna í dag skógrækt á jörðum sínum og margir eru á biðlista Flestir eru þátttakendur á Suðurlandi. Fram- lög til málaflokksins hafa aukist jafnt og þétt á undanförnum árum: eru nú um 500 milljónir kr. á ári og verða enn meiri í fyllingu tímans, en markmiðið er að rækta skóg á 5% af láglendi landsins á næstu fjörutíu árum. Eftirtekjan meira en trjábolurinn einn Í gildandi lögum um landshluta- bundin skógræktarverkefni frá 1999 er ákvæði þess efnis að þau skyldu endurskoðuð eftir fjögurra ára gildistíma. Að sögn Níels Árna Lund skrifstofustjóra í Landbúnað- arráðuneytinu var hins vegar ákveðið að gefa lögunum nokkuð lengri líftíma, til að sjá sem best hvaða ákvæðum eða efnisþáttum í lögunum gæti sérstaklega þurft að breyta. „Inntak nýrra laga verður sama og hinna eldri, en skerpt verður á ýmsum þáttum og öll samskipti milli aðila verða gerð skýrari. Í nú- verandi lögum eru fjárframlög til skógræktar skilgreind sem styrkir til bænda og krafist hefur verið 15% endurgreiðslu af skilaverði afurða þegar og ef menn fella skóginn. Í frumvarpinu er þetta hlutfall lækkað, sem hefur verið talið svo hátt að allt eins gæti það gerst að skógarbændur sæju sér engan hag í að fella skóg,“ segir Níels Árni. Hann bætir við að eftirtekja skógræktarstarfs sé hins vegar sitt- hvað fleira en trjábolurinn einn. Þannig sé til dæmis verið að skapa nýja atvinnugrein í landinu sem hafi mikil margfeldisáhrif í ýmsum þjónustugreinum, bæti umhverfi og geri það fjölbreyttara. Þá sé samdóma álit færustu lögfræðinga að þegar kemur að því að skógur- inn fer að gefa af sér raunverulegar tekjur í formi viðar, þá sé þar til bærum yfirvöldum vandalaust að skattleggja tekjur skógareigand- anna í gegnum almenna skattkerf- ið. Atvinnugrein og auðlind Í gildandi lögum um landshluta- bundin skógræktarverkefni er ákvæði um fjögurra manna stjórn sem landbúnaðarráðherra skipi til fjögurra ára í senn. Einn stjórnar- manna skal tilnefndur af félögum skógarbænda á viðkomandi svæði, annar af Skógrækt ríkisins, sá þriðji skipaður af skógræktarfé- lögum og hinn fjórði er skipaður af ráðherra án tilnefningar og skal sá vera formaður stjórnar. Í fyrir- liggjandi lagafrumvarpi er gert ráð fyrir þriggja manna stjórn, það er að réttur fulltrúa skógræktarfélag- anna í stjórn verður afnuminn, enda um áhugamannafélög að ræða. Með óbreyttu fyrirkomulagi geti ýmsir fleiri gert réttmæta kröfu um fulltrúa í stjórn skóg- ræktarverkefna, svo sem önnur áhugamannafélög á sviði náttúru- verndar sem og sveitarfélög. „Þessi breyting og raunar frum- varpið allt ber merki þess að nú er ekki litið á skógræktarstarf bænda sem áhugamál, heldur atvinnu- grein og nýja auðlind,“ segir Níels Árni Lund. Einnig er í lagafrum- varpinu ákvæði þess efnis að ráð- herra sé heimilt að fela skógrækt- arverkefnum í einstaka tilfellum ný og aukin verkefni- og er þar meðal annars horft til verkefna eins og ræktun Hekluskóga sem nú eru áform um á Suðurlandi. - sbs Landbúnaðarráðherra með frumvarp til samræmdra laga um landshlutabundna skógrækt Ákvæði um lægri endurgreiðslu styrkja „Skógrækt hefur hvarvetna eflt byggð til sveita,“ segir Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra. „Ekki litið á skógræktarstarf bænda sem áhugastarf,“ segir Níels Árni Lund, skrif- stofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.