Bændablaðið - 27.01.2006, Qupperneq 24

Bændablaðið - 27.01.2006, Qupperneq 24
24 Þriðjudagur 31. janúar 2006 Í síðustu viku skunduðu bændur og búalið, vel á annað hundrað stykki í það heila, til Jótlands í þeim tilgangi að berja augum tæki og tól, kálfa og kýr og allt annað sem til sýnis var á hinni glæsilegu Agrómek landbúnaðarsýn- ingu í Herning. Tveir stórir hópar fóru frá Íslandi, fríður flokkur á vegum Landssambands kúabænda og annar ekki svo ófríður heldur frá Vélaveri. Samtals voru þetta um hundrað manns en auk þess voru ýmsir íslenskir bústólpar á sýningunni á eigin veg- um. Þetta er níunda árið í röð sem Landssamband kúabænda skipuleggur ferð á Agrómek og í öll skiptin hefur fararstjóri verið Snorri Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri sam- bandsins en núverandi forstöðumaður búrekstrar á Hvann- eyri. Hann sagði ferðirnar hafa gengið vel og mælst gífurlega vel fyrir hjá bændum og búaliði enda hafa alls um fimm hundruð manns farið á þessar sýningar undir hans farar- stjórn. Tilgangur ferðarinnar var öðru fremur að skoða Agrómek sýninguna og fyrsti dagurinn fór fyrst og fremst í forkönnun, því ógerningur var að grannskoða allt sem í boði var á fáein- um tímum. Síðan var sýningin skoðuð nánar en um helming- ur ferðarinnar á vegum LK, sem spannaði fimm daga, fór í að skoða búskapinn hjá þeim dönsku. Meðal annars var skoðað kúabú af vænni gerðinni, geitabú, afurðastöðvar o.fl. Síðan kynntu menn sér einnig óhefðbundinn búskap s.s. keilusal og ölkrár sem reyndar tilheyra dönskum landbúnaði óvéfengjanlega. Alvöru amboð Það sem kom mönnum hvað mest á óvart á Agrómek var að þarna var að finna tæki fyrir nánast hvert einasta handtak sem viðkemur búrekstri. Mikla athygli vöktu róbótar til að skafa flórristar og smúla svínastíur en hins vegar virtust ís- lensku gestirnir kunna vel að meta allt sem var líklegt til að virka og því stærri vélar því meiri hrifningu vöktu þær enda íslenskir bændur ekki þekktir fyrir smámunasemi þegar kem- ur að tækjum og tólum. Árni Eyþórsson, bóndi á Bálkastöðum í Hrútafirði, sagð- ist sem sauðfjárbóndi náttúrlega ekki eiga erindi á svona sýn- ingu enda hefðu sauðfjárbændur varla efni á amboðum af nýjustu og stærstu gerðum. Hins vegar lét hann vel af ferð- inni og sagði alltaf nauðsynlegt að víkka sjóndeildarhring- inn. Ágætis útlönd Reynir Gunnarsson, bóndi í Leirulækjarseli á Mýrum, var að fara á Agromek í fyrsta sinn og í raun var hann að fara í fyrsta sinn út fyrir landsteinana. Hann var hinn kátasti enda margt ný- stárlegt sem fyrir augu bar og leist honum vel á það sem við blasti á sýningunni. Ekki lét hann heldur síður af Danmörku og innbyggjurum þar og komst að þeirri niðurstöðu að útlönd væru ekki svo slæmur staður. Bankamenn á búnaðarsýningu Það voru ekki aðeins hefðbundnir bændur sem tóku þátt í ferð- inni á Agrómek. Með í för voru þrír fulltrúar frá KB banka. Þeirra á meðal var útibússtjóri KB banka á Sauðárkróki, Jóel Kristjánsson. Hann sagði tilganginn með utanferð bankamann- anna að kynna sér það nýjasta í lanbúnaðartækni og ekki síður að kynnast því hvaða áform og væntingar íslenskir bændur hefðu varðandi framtíðina. „Við erum að fjármagna fjárfestingar í land- búnaði í stórum stíl og til að geta sem best þjónustað viðskipta- vini okkar í þessum geira þá þurfum við að tala sama tungumál. Við höfum sótt sjávarútvegssýningar í sama tilgangi og hví ekki landbúnaðarsýningar? Bændur eru góðir viðskiptavinir og við viljum að sjálfsögðu getað þjónað þeim sem best,“ sagði Jóel. B æ nd ur í flæ ki ng Gísli Einarsson, fréttamaður, tók myndir og ritaði texta. Ætlunin var að setja nöfn undir hverja mynd en umbrotsmaður Bbl. gafst upp á því verki og ákvað frekar að fjölga myndunum....

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.