Bændablaðið - 27.01.2006, Síða 28

Bændablaðið - 27.01.2006, Síða 28
28 Þriðjudagur 31. janúar 2006 Sveppurinn Rhizoctonia solani er algengur í jarðvegi og getur hann smitað ýmsar plöntutegundir. Kynjaða stig hans nefnist Thanate- phorus cucumeris en algengt er hjá sveppum að þeir finnist á tvenns konar formi eftir því hvort þeir mynda gró með kynæxlun eða ekki. Tegundin greinist í nokkra smitstofna og nefnist sá AG 3 sem aðallega smitar kartöflur. Á ís- lensku hefur sveppurinn verið nefndur rótarflókasveppur sem er þýðing á danska heitinu „rodfilt- svamp“. Einkennin sem sveppur- inn veldur á kartöflujurtinni eru margvísleg og misskaðleg. Einkennin 1)Svartkláði (en.: „black scurf“). Þegar haustar og öldrun byrjar hjá kartöflujurtinni vex þétt mygla sveppsins á yfirborði nýju kartaflanna og dökknar hún síð- an og harðnar. Myndar hún brúna eða svarta, harða skán, 1-5 mm þykka, sem fer ekki af við þvott en hægt er að fjarlægja hana ef ýtt er við henni með nöglinni. Skán þessi verður áberandi kolsvört þegar hún blotnar. Hún er dvalarmygla sveppsins og í henni lifir svepp- urinn veturinn á plöntuleifum í jarðveginum og á kartöflum í geymslu. Ef kartöflur með svartkláða eru notaðar sem út- sæði vaxa sveppþræðir út úr dvalarmyglunni að vori og geta smitað spírur sem eru að vaxa upp að yfirborði jarðvegsins. 2)Spíruskemmdir. Það fer eftir ástandi útsæðisins og skilyrðum í jarðveginum hversu mikil hætta er á að spírurnar smitist af sveppnum. Sveppurinn getur drepið spíruendann og stöðvað þannig lengdarvöxt spírunnar en þá vex út hliðarspíra neðan við dauða toppinn. Toppur þeirrar spíru getur einnig drepist og kemur þá enn ein hliðarspíra út úr þeirri spíru o.s.frv.. Afleiðing- in verður sú að spíran kemur seint upp á yfirborðið eða alls ekki og fækkar þá stönglum í grasinu eða jafnvel að engin kemst upp frá þeirri móðurkart- öflu og myndast þá eyða í röð- ina. Blöðrukláði getur einnig haft svipuð áhrif. 3)Stöngulsár (en.: „stem canker“). Sveppurinn getur einnig smitað spíruna neðan við toppendann og veldur þá skemmd á þeim hluta stöngulsins sem er neðan- jarðar og lýsir sér sem brúnn, sokkinn og ílangur blettur. Oft er dekkri rönd í jaðri hans. Getur hann náð hringinn í kringum stöngulinn. Flutningskerfin í stönglinum eru tvö, viðaræða- kerfið sem flytur vatn og upp- leyst næringarefni úr jarðvegin- um og upp á við í plöntunni og sáldæðakerfið sem flytur fram- leiðslu grænna plöntuhluta niður til róta og nýju hnýðanna. Nýju kartöflurnar myndast á renglum út frá þeim hluta stöngulsins sem er milli móðurkartöflunnar og jarðvegsyfirborðsins. Sárin á stönglinum trufla verulega flutn- ing í sáldæðakerfinu, þ.e.a.s. á framleiðslu blaðanna niður í nýju hnýðin. Afleiðingin verður sú að viss uppsöfnun verður á kolvetnum í blöðunum, þau dökkna, þykkna, geta fengið ljósa díla og blaðjaðrar verpast upp á við. Ef skemmdin er rétt undir jarðvegsyfirborði myndast græn hnýði í yfirborðinu eða upp á stöngulinn. Ef skemmdin er neðar myndast margar, smáar, aflagaðar og ljótar kartöflur þétt upp við stöngulinn, kannski vegna þess að sveppurinn skemmir renglurnar og veldur því að þær verða stuttar og greinóttar. Brot á stöngli rétt ofan eða neðan við jarðvegsyfir- borðið eins og getur orðið í miklu roki leiðir til svipaðra ein- kenna á grasinu, smáblöð verp- ast upp og græn hnýði myndast upp á stöngulinn. 4)Aflagaðar kartöflur. Nýmynd- aðar kartöflur undir sjúku grasi eru oft afbrigðilegar. Í vægustu tilfellum geta þær náð eðlilegri stærð og lögun en ákveðið net- mynstur með dökkum blettum kemur fram, sérstaklega á þeim endanum sem er gegnt naflanum og þar vantar oft augun. Vaxtar- sprungur eru einnig algengar. 5)„Dry core“. Einkenni sem ganga undir þessu enska heiti og eru eignuð rótarflókasveppi. Blettur eða hola sést á hýðinu og getur hýðið verið heilt en innan við er holrými sem í þverskurði gæti minnt á lirfunag og er oft breiðara neðst en í opinu sjálfu. Ein skýring er sú að sveppurinn smiti inn um loftauga þegar kart- aflan er í mikilli bleytu. 6)Gráleggur. Loks skal getið um einkenni sem virðast vera sak- laus en það er gráleit slikja sem kemur neðst á stöngulinn, frá jarðvegsyfirborði og eitthvað upp á stöngulinn. Er þetta kynj- aða stig sveppsins (Thanate- phorus cucumeris) og þarna myndast kynjuð gró (basíðugró). Þessi einkenni geta verið á grös- um sem sýna engin önnur ein- kenni og eru ekki talin skaða plöntuna. Óvíst er hvaða þýð- ingu þessi sveppavöxtur hefur. Smithringrás Svartkláðinn ber með sér smitefni og því meira sem af honum er á út- sæðinu þeim mun meira verður af smiti kringum spírurnar. Ákveðin skilyrði þarf á haustin til að svartkláði myndist. Á síðustu árum er orðið algengara hér að grös séu sviðin tímanlega með efninu Regl- one og kartöflurnar síðan látnar liggja í jörðu í 1-2 vikur eða jafn- vel lengur. Þetta er talið æskilegt því þá má stöðva vöxtinn þegar heppilegri stærð á kartöflunum er náð auk þess sem komast má hjá því að garðurinn sýkist af síðbú- inni kartöflumyglu og að kartöfl- urnar smitist við upptökuna. Einn- ig styrkist og þykknar hýðið með- an kartöflurnar liggja í jörðu og þær skaddast þá minna í upptöku og það dregur úr blöðrukláða. Hins vegar bætir þessi hæga visnun, sem verður með Reglone, skilyrðin fyrir myndun svartkláða sem verð- ur ekki í sama mæli ef grös falla vegna frosta eða þegar stönglum er kippt upp. Að vissu leyti líkist sviðnunin því sem gerist þegar grös visna af sjálfu sér þegar full- um þroska er náð eins og gerist víða erlendis við lengri og betri vaxtarskilyrði. Annar sveppur sem getur notið góðs af slíkri visnun er Phoma-sveppurinn sem veldur Phoma-rotnun. Hann getur mynd- að smitefni í gróhirslum á visnandi stönglum. Spírurnar eru viðkvæmar með- an þær eru að vaxa upp á yfirborð- ið. Því lengri tíma sem það tekur því meiri hætta er á að þær sýkist af rótarflókasveppi. Þar ræður mestu hversu vel kartaflan er for- spíruð, hvernig jarðvegurinn er unninn og hve hlýr hann er orðinn. Útsæðiskartafla sem með hæfilegri forspírun er kominn á það þroska- stig þar sem tilhneiging til stöngul- vaxtar er mest, hefur spírað í góðri birtu og myndað stuttar, kröftugar og grænar spírur, er best búin undir að verjast rótarflókasveppnum. Ef slík kartafla hins vegar er sett nið- ur í kaldan og blautan jarðveg þar sem nægt smit er fyrir hendi er henni samt hætt við smitun. Þótt sveppurinn Rhizoctonia solani sé algengur í jarðvegi er tal- ið að sá smitstofn hans sem sýkir kartöfluna fylgi kartöfluræktun og að samfelld ræktun kartaflna í sama landi auki smitmagnið í jarð- veginum. Varnir Almennt má hvetja til þess að vanda til forspírunar og láta útsæð- ið spíra í góðri birtu. Eins má hvetja til þess að vanda til jarðvinnslu á vorin og setja ekki niður fyrr en jarðvegur er orðinn vel hlýr. Sums staðar er miðað við að jarðvegshiti hafi að lágmarki náð 7-8 °C, annars staðar 10°C. Nokkurra daga spretta á haustin vegur fljótt upp það sem tapast í sprettu við að seinka niður- setningu að vori. Því dýpra sem út- sæðið er sett, því lengur er spíran að vaxa upp á yfirborðið og þeim mun hættara við smitun. Ekki ætti að setja niður útsæði sem er með áberandi miklum svartkláða því það smit skiptir miklu máli. Varðandi jarðvegssmit- ið þá eykst það eftir því sem oftar eru ræktaðar kartöflur í sama landi. Eina leiðin til að draga úr því er að hvíla landið en hætt er við að til þess þurfi minnst 3-4 ára hvíld svo það telji eitthvað, en þó hlýtur að muna um hvert ár. Það virðist skipta máli hvaða ræktun er í garðinum meðan hann er hvíldur en upplýs- ingar um það eru nokkuð misvís- andi. Það hefur lengi tíðkast erlendis að setja einhvern sveppaeyði á út- sæðið um leið og sett er niður til að verja spírurnar gegn sveppnum meðan þær eru að vaxa upp á yfir- borðið. Sveppaeyði í duftformi er þá stráð yfir útsæðið í spírunarköss- um eða í sáðvélinni og í seinni tíð er fáanlegur búnaður sem úðar fljótandi sveppaeyði eða stráir sveppadufti á útsæðið þar sem það fer á færsluböndum í sáðvélinni. Á síðustu áratugum hefur höfundur gert nokkrar tilraunir með dyftun útsæðis hjá bændum á vegum Rannsóknastofnunar landbúnaðar- ins. Ályktun af þeim tilraunum var sem hér segir: Dyftun útsæðis gat flýtt fyrir að grös kæmu upp, en einungis í kaldari árum skilaði það sér í aukinni uppskeru að hausti. Rótarflókasveppur var ekki árvisst vandamál. Algengt var að ekkert bæri á rótarflókasveppi í görðum ári eftir að þar voru áberandi ein- kenni. Það var því ekki talið réttlæt- anlegt að mæla hér með dyftun út- sæðis með sveppaeyðum að jafn- aði. Nokkuð hefur borið á tjóni af völdum rótarflókasvepps á undan- förnum árum. Vel má vera að að- stæður séu að breytast m.a. vegna betri sprettuskilyrða, minni áburð- arnotkunar og aukinnar notkunar á Reglone til sviðnunar á grösunum. Meira hefur borið á svartkláða en gerði á árum áður. Veitt hefur verið undanþága til notkunar á efninu Monceren sem inniheldur virka efnið pencycuron og geta ræktendur sem telja sig verða fyrir tjóni af völdum rótarflókasvepps notað Monceren á útsæðið til varnar sveppnum. Af öðrum efnum sem notuð hafa verið erlendis í sama til- gangi má nefna azoxystrobin, fenp- iclonil, fludioxonil, flutolanil, tolc- lofos-methyl og validamycin. Kartöflusjúkdómar Rótarflókasveppur Einkenni rótarflókasvepps á kart- öflugrasi Gráleggur. Kynjaða stig sveppsins neðst á stöngli Sár á stöngli neðanjarðar. Örvar benda á sár og dauðan renglu- enda Netmynstur og ónýt augu Svartkláði Groddalegar vaxtarsprungur Margar smáar og ljótar kartöflur undan sýktu grasi Einkenni er kallast „dry core“á er- lendum málum Sigurgeir Ólafsson, starfsmaður Landbúnaðarstofnunar

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.