Bændablaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 33
33Þriðjudagur 31. janúar 2006
Bandaríkjamenn
vilja lífræna mjólk
Lífræn mjólk selst sem aldrei fyrr í
Bandaríkjunum. Nýjar upplýsingar
sýna að salan vex um 23% á ári og
nemur hún núna þremur prósent-
um af heildarmjólkursölu þar. Það
er fyrirtækið Datamonitor sem
fylgist með þessum viðskiptum í
bandarískum stórmörkuðum, en sí-
fellt fleiri stórmarkaðir bjóða upp
á lífrænar mjólkurafurðir.
„Það er eingöngu framboð á líf-
rænni mjólk sem takmarkar söl-
una,“ segir George Simeon, for-
stjóri mjólkurbúsins Organic Vall-
ey í Wisconsin, í viðtali við The
New York Times.
Það hefur aukið þessa sölu að
hefðbundin mjólk hefur fengið
slæma ímynd þar sem hún inni-
heldur leifar af skaðlegum efnum
sem kúnum eru gefin, að því er
haldið er fram.
Í skýrslu frá Datamonitor er því
haldið fram að aukning á sölu líf-
rænnar mjólkur stafi af notkun
hormóna og fúkkalyfja í hefðbund-
inni mjólkurframleiðslu.
Neysla Bandaríkjamanna á líf-
rænni mjólk er þó hvernig nærri
eins mikil og Dana en hlutur líf-
rænnar mjólkur í Danmörku nemur
26% af allri mjólkurneyslunni.
Danir flytja inn
mikið af matvælum
Árlegur innflutningur Dana á mat-
vörum nemur rúmlega 9.500
danskra króna á íbúa. Þessi inn-
flutningur er miklu meiri en til
flestra annarra landa ESB, sem
vekur undrun margra þar sem Dan-
ir framleiða sjálfir mikið af mat-
vælum, að sögn Klaus Jörgensens,
ráðunautar hjá Landbrugsraadet,
samstarfsráði dansks landbúnaðar.
Að áliti Klaus á þetta sér ýmsar
skýringar. Danir ferðist mikið er-
lendis og séu alþjóðlegir í hugsun-
arhætti; einnig um fæðuval. Jafn-
framt sé ljóst að erlendar matvæla-
verslanakeðjur, sem reka verslanir
í Danmörku, séu hvetjandi hvað
þetta varðar.
Fjórðungurinn innfluttur
Í stórum dráttum má segja að um
fjórðungur af matarkaupum Dana
sé innfluttur. Það er einkum fiskur,
um 9 milljarðar danskra króna;
grænmeti og ávextir, um 7 millj-
arðar og kjötum 5 milljarðar
danskra króna, sem flutt er inn.
Alls nemur matvælainnflutningur
Dana rúmlega 40 milljörðum
danskra króna á ári og hefur meira
en tvöfaldast frá árinu 1990.
Vatn, hin mikilvæga auðlind
Dagana 21. - 27. ágúst sl. var hald-
in í Stokkhólmi árleg ráðstefna um
vatn, notkun þess og verndun,
nefnd „World Water Week“.
Ráðstefnan var að þessu sinni
haldin aðeins fáum vikum fyrir
leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna
um framgang þúsaldarmarkmið-
anna sem fram fór í New York 14. -
16. september . Fyrrnefnd ráð-
stefna um notkun og verndun vatns
skilaði mörgum niðurstöðum um
mikilvægi vatnsins í baráttunni við
fátækt, hungur, sjúkdóma og um-
hverfisskaða.
Á vatnsráðstefnunni og í vinnu-
hópum hennar var jafnt fjallað um
„hörð“ tæknileg úrræði svo sem
söfnun vatnsforða til að jafna úr-
komu- og þurrkatímabil. Dæmi var
nefnt um að í Kenya gæti slík
vatnsmiðlun tryggt 5-6% árlegan
hagvöxt. Á hinn bóginn eru
svo“mjúkar“ lausnir til að ná fram
breytingum og bótum á nýtingu
vatns. Kjarninn í þeim lausnum er
að hafa það fólk, sem málið varðar,
með í ráðum við breytingar sem
gera þarf.
Reynsla frá jafnt Sir Lanka og
Niger sýnir góðan árangur af slíku
samstarfi.
Áætlað er að vatnsþörf hvers
einstaklings til heimilisnota sé um
50 lítrar á sólarhring.
Skortur á bústjórum
í dönskum landbúnaði
Danskur landbúnaður leitar skýr-
inga á því hvers vegna svo fáir
ungir menn, sem raun ber vitni,
sækjast eftir að verða bústjórar og
sjálfstæðir bændur.
Dönsku bændasamtökin, Dansk
Landbrug, samtök búnaðarskóla í
Danmörku og ungliðahreyfing
danskra bænda standa að baki
könnuninni en fyrirtækið GfK ann-
ast verkið. Stefnt er að því að nið-
urstöður liggi fyrir á næsta vori, að
sögn blaðsins Börsen.
Voðaskot í Ástralíu
Ástralskur maður, Rudolf Sladier
að nafni, hefur verið ákærður fyrir
að skjóta á konu, Carrie Tunning,
þegar hún ók fram hjá þar sem
hann ætlaði að aflífa kú, að sögn
blaðsins Sidney Morning Herald.
Málsatvik voru þau að góður
vinur Rudolfs Sladier, Paul Tyson,
sem er bóndi, bað hann að hjálpa
sér að slátra kú. Rudolf kom með
voldugan riffil, sem hann átti, og
saman lokkuðu þeir kúna inn í
skúr. Það sem þá tók við gekk ekki
eins vel, kúlan hitti ekki kúna held-
ur fór í gegnum skúrvegginn og í
framhurðina á bíl sem átti þar leið
um og Carrie Tunning ók. Hún
lýsti atvikinu þannig að hún hefði
heyrt ógnar hávaða og séð blóð
fossa úr fæti sínum. Maður hennar
tók við akstrinum og ók henni á
næsta sjúkrahús þar sem kúlan var
fjarlægð og henni lofað að hún
muni ekki bera varanlegan skaða
af.
Ákæruvaldið beindi því til kvið-
dómsins að dæma Rudolf Sladier
sekan um vanrækslu þar sem hann
hafi ekki sýnt sjálfsagða varfærni
við aflífun kýrinnar.
Burt með villisvín
frá Danmörku!
Í Slésvík og Holtsetalandi, sunnan
við dönsku landamærin, lifa villi-
svín í skógivöxnu landi. Danir ótt-
ast að þessi svín beri með sér
svínapest og hafa áhyggjur af því
að þau komist yfir landamærin.
„Þó að smithættan sé ekki mikil þá
tökum við enga áhættu í danskri
svínarækt, sem flytur út svínakjöt
fyrir milljarða dkr. á ári,“ segir
Torben Poulsen, formaður samtaka
danskra svínabænda.
Þessi umræða hófst með því að
Danska náttúruverndarfélagið,
Danmarks Naturfredningsforening,
lýsti því yfir að leyfa eigi villisvín-
um aftur aðgang að Danmörku en
norðurþýskir veiðimenn veiddu 28
villisvín í Danmörku fyrir þremur
árum. Ekkert þeirra reyndist smit-
að af svínapest. Það voru samtök
danskra svínabænda sem stóð fyrir
þeim veiðum.
Samtök danskra sláturhúsa hafa
áætlað að útflutningsbann á svína-
kjöti vegna svínapestar gæti kostað
Danmörku 3,6 milljarða dkr.
Upprunamerking lífrænna
mjólkurvara í Danmörku
Dansk-sænska mjólkurfyrirtækið
Arla hefur sett á markað lífræna
mjólk þar sem fram kemur á um-
búðum hvaðan hún á uppruna sinn.
Yfir 150 lífræn kúabú eru með í
þessu átaki, annars vegar í Himm-
erlandi á norðanverðu Jótlandi og
hins vegar á Suður-Jótlandi.
Íbúar á Norður- og Mið-Jót-
landi fá mjólk frá Himmerland en
íbúar á Fjóni og Sjálandi auk Suð-
ur-Jóta fá mjólkina þaðan.
Það er vörumerkið Harmonie-
mjólk frá Arla sem verður þannig
upprunamerkt.
„Með þessu átaki komum við til
móts við auknar kröfur neytenda
um að fá að vita um uppruna vör-
unnar, eins og farið er að gera um
fleiri vörur, svo sem léttvín og
egg,“ segir Karsten Jeppesen,
starfsmaður Arla.
Þetta framtak er aðeins fyrsta
skrefið hjá Arla að upprunamerkja
mjólkurvörur fyrirtækisins. Með
því ætlar fyrirtækið að halda hlut
sínum á markaðnum sem hefur
fallið úr 29% í 25% á síðustu
tveimur árum vegna sóknar ódýrr-
ar þýskrar mjólkur inn á danska
mjólkurmarkaðinn. „Með því að
upprunamerkja lífrænar mjólkur-
vörur okkar vonumst við til að
auka áhuga neytenda á ekta
dönskum vörum,“ segir Karsten
Jeppesen og bætir við að á eftir
muni fylgja bæði lífrænn rjómi og
smjör.
AÐ UTAN
• Weelink - fóðurkerfi• Básamilligerðir, átgrindur og dýnur• Steinrimlar• Flórsköfukerfi• Kjarnfóðurbásar og kálfafóstrur
Stálgrindarhús frá H. Hardeman með
uretan samlokueiningum
Vekjum athygli á því að við verðum með
allar algengustu tegundir af sáðvörum í vor
á hagstæðu verði.
Ef um séróskir á sáðvörum er að ræða
hafið þá samband sem fyrst.
Opið alla virka daga frá kl. 8-18
Nýtt símanúmer er:
480 5600
Bjartmar Hannesson, bóndi,
söngvari og textahöfundur á
Norður-Reykjum í Borgarfirði,
hefur sent frá sér plötu þar sem
hann syngur eigin texta við ýmis
lög. Á plötunni leikur Haukur
Ingibergsson á gítar og syngur
bakrödd og hann annaðist líka
útsetningar. Vilhjálmur Guð-
jónsson leikur á bassa.
Platan er vel gerð sem og text-
arnir en þeir eru flestir bundnir at-
burðum í Borgarfirði eða Mýra-
sýslu en plötunni fylgir lítill pési
sem gerir grein fyrir tilurð text-
anna.
Bjartmar hefur um áratugaskeið
skemmt sveitungum sínum og
fleirum með gamanvísum. Gísli
Einarsson fréttamaður segir í inn-
gangi í pésanum sem fylgir plöt-
unni að það sem öðru fremur ein-
kenni kveðskap Bjartmars sé orð-
gnótt, hugmyndaflug og síðast en
ekki síst ómenguð íslensk fyndni.
Á diskinum eru 23 lög. Nokkur
þeirra eru eftir Bjartmar Hannes-
son og tvö eftir þá Bjartmar og
Hauk Ingibergsson. Útsetningar og
undirleikur eru afar smekkleg eins
og Hauks er von og vísa.
Hljómdiskur þessi er eigulegur,
hann er vel gerður, textarnir snjall-
ir og söngurinn ágætur sem og
undirleikurinn.
Skemmtilegar sögur úr sveitinni