Bændablaðið - 27.01.2006, Side 35
35Þriðjudagur 31. janúar 2006
KÁLFAMJÓLKURDUFT
Elitekalv no. 1
www.fodur.is Sími 570-9800
Ódýr og góð lausn á kálfauppeldi.
Frábær samsetning næringarefna.
Leiðbeiningar á íslensku.
Stórlækkað verð.
Útsölustaðir:
Fóðurblandan, Reykjavík.
FB Búvörur, Selfossi.
FB Búvörur, Hvolsvelli.
Bústólpi, Akureyri.
RARIK flytur í Hveragerði
RARIK hefur ákveðið að flytja
starfsemi sína frá Selfossi í Hvera-
gerði en þar hafa bæjaryfirvöld út-
hlutað fyrirtækinu lóðina við
Mánamörk 2, sem er rétt við Suð-
urlandsveginn. Áætla má að við
flutninginn komi 10-14 ný stöðu-
gildi til Hveragerðis. MHH
Skessuhorn skýrir frá því að
mikil eftirspurn sé eftir
iðnaðarlóðum í Borgarnesi sé
mikið að aukast. Á síðasta fundi
bæjarráðs Borgarbyggðar voru
teknar fyrir umsóknir þriggja
aðila um iðnaðarlóðir við
Sólbakka í Borgarnesi en þar er
eins og kunnugt er skipulagt og
byggingarhæft iðnaðarhverfi
með allmörgum lóðum.
Samþykkt var að úthluta
tveimur lóðum, en einni
afgreiðslu var frestað. Balta ehf.
fékk úthlutað lóð við Sólbakka
24 og Hildigunnur Davíðsdóttir /
Trémenn sóttu um og fengu
úthlutað lóð númer 30, en
frestað var ákvörðun um
úthlutun lóðar númer 31.
Eftirspurn eftir
iðnaðarlóðum í Borgarnesi
Íslenskir sérfræðingar hafa að
undanförnu verið að kenna Dön-
um að búa til íslenskt skyr sam-
kvæmt framleiðslusamningi fyr-
irtækisins Agrice ehf. sem er í
meirihlutaeigu MS. Skúli Böðv-
arsson, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, sagði í samtali við
Bændablaðið, nýkominn frá
Danmörku, en þangað fór hann
ásamt íslenskum tæknimönnum
til að koma framleiðslunni í
gang, að eftir sé að fínstilla ým-
islegt til þess að framleiðslan
verðir ekta íslenskt skyr.
Skúli segir að aðalmálið núna
sé að markaðssetja skyrið, þ.e. að
kenna Dönum að borða íslenskt
skyr. Markaðssetning er rétt ný-
hafin og þeir, sem henni stjórna,
eru mjög bjartsýnir því að fólk,
sem smakkað hefur íslenska skyr-
ið, tekur því mjög vel.
Íslendingar eru þarna að selja
Dönum aðferðina við að bú til skyr
og síðan mun Agrice ehf. fá pró-
sentur af hverri seldri skyrdós.
Skúli líkir þessu við hinn fræga
norska ost Jarlsberg sem í dag er
framleiddur m.a. í Bandaríkjunum
með sömu skilyrðum og íslenska
skyrið verður framleitt í Dan-
mörku.
Þróunarvinna með Dönunum
mun halda eitthvað áfram en síðan
er búist við að íslenskt skyr, fram-
leitt í Danmörku, komi í fulla sölu
í marsmánuði næstkomandi.
Kenna Dönum að
búa til íslenskt skyr