Bændablaðið - 27.01.2006, Side 36

Bændablaðið - 27.01.2006, Side 36
36 Þriðjudagur 31. janúar 2006 Póstmálin við Djúp Eins og fólk eflaust man kom upp deila milli bænda við Djúp og Íslandspósts vegna breytinga á póstþjónustu sem Íslandspóst- ur hugðist gera þar. Til stóð koma upp járnkassa eða gámi við heiðarsporð Steingríms- fjarðarheiðar þar sem í átti að setja allan póst og átti hann að vera óvarðveittur í a.m.k. hálf- an sólarhring eða lengur, eftir færð, þar til landpóstur kæmi til að sækja hann og dreifa. Af þessu varð ekki að sinni að minnsta kosti. Indriði Aðalsteinsson, bóndi á Skjaldfönn, segir í samtali við Bændablaðið, að nokkrir bændur hafi „risið upp á afturlappirnar,“ eins og hann orðar það. „Við nauðuðum í þingmönnum kjör- dæmisins og sveitarstjórnarmönn- um og létum öllum illum látum og höfðum okkar fram í eitt ár að minnsta kosti,“ segir Indriði. Póstur aðeins þrisvar í viku Djúpmenn fá póst til sín aðeins þrjá virka daga í viku en flestar aðrar bændabyggðir fá póst sinn 5 daga vikunnar. Þá segir Indriði að landpóstinum, sem kom með póst- inn frá Ísafirði, hafi verið sagt upp en hann kom líka með vörur sem bændur pöntuðu á Ísafirði eða með landpóstinum frá Hólmavík. Niðurstaða þessa máls varð sú að Þórður Halldórsson landpóstur var fenginn til að aka alla leið á Ísafjörð þrjá daga í viku til að sækja póstinn og dreifa honum svo í bakaleiðinni. Súðavíkur- hreppur fékk 2,5 milljóna króna fjárveitingu, til eins árs, til að greiða fyrir akstur með nauð- synjavörur til Djúpmanna. Sömu- leiðis er lausnin á póstburðarmál- unum líka bara til eins árs. „Nú er bara að bíða og sjá hvað verður að ári í þessu máli,“ segir Indriði Aðalsteinsson. Svar við spurningunni sem varpað er fram í titli greinarinnar hefur verulega þýðingu fyr- ir það hvernig staðið er að ræktunarstarfi í sauðfjárrækt. Sauðfjárbúskapur í Bretlandi byggir á nýtingu fjölmargra fjárkynja í skipulegri blendingsrækt þar sem upphafið er harðgert fjallakyn þar sem Svarthöfðaféð er langfyrirferðarmest. Ærnar af þessu kyni verða á næstu þrepum mæður blendingsánna sem verða undirstaða í dilka- kjötsframleiðslunni. Talið er að erfðavísar frá fjalla- kynjunum hafi veruleg áhrif hjá um 75% allra sláturlamba í landinu. K j ö t g æ ð a e i g i n l e i k a r fjallakynjanna skipta þannig verulegu máli og talsvert þykir skorta á að þeir séu nægjan- lega miklir. Eðlilega velta menn því fyrir sér hvort beint úrval fyrir auknum kjötgæðum, meiri vöðva og minni fitu, hafi neikvæð áhrif á framleiðslueiginleika ánna. Þetta skiptir ekki minna máli við ræktun eins og að er unnið hjá íslensku sauðfé. Rannsóknir sýna hátt arfgengi á fitu- og vöðvamagni Á ráðstefnunni í Noregi um kjötgæði sauð- fjár var gerð grein fyrir niðurstöðum úr rann- sóknum sem verið hafa í gangi í Skotlandi í tæpan áratug og eiga að varpa ljósi á þessa þætti. Þessar rannsóknir byggja á víðtækri notkun sneiðmyndamælinga. Á þann hátt er mögulegt að fylgjast með þróun í vefja- magni og vefjahlutföllum hjá einsökum kindum um langan tíma, í þessu tilfelli í fleiri ár. Áður byggðu slíkar tilraunir á því að slátra með ákveðnu millibili samanburð- arhópum til mælinga. Það skýrir að sárafáar eldri rann- sóknir í þessum efnum finn- ast vegna mikils kostnaðar við slíkar tilraunir. Auk þess verður ónákvæmni þeirra meiri en þessara rannsókna vegna þess að mælingar eru gerðar í mismunandi ein- staklingum í þessum eldri rannsóknum. Rannsóknir þær sem þarna var greint frá sem Lambe og samstarfsfólk hennar hafa staðið að byggja á sneiðmyndamælingum á rúmlega 300 ám af Svarthöfðafé. Ærnar voru mældar reglulega fjórum sinnum á ári um nokkurt árabil og vefjasamsetning og magn þeirra þannig ákvarðað. Auk þess voru afurðir þeirra mældar, bæði sem frjósemi (fjöldi lamba) og þungi lambanna. Niðurstöður þeirra sýna hátt arfgengi bæði á fitu og vöðvamagni í skrokknum ( á bilinu 0,4-0,7). Fitumagn í skrokknum hefur hæst arfgengi en heldur lægra fyrir magn búkfitu og vöðvamagn. Aldursáhrif á arf- gengi þessara þátta eru þannig að arfgengið er hæst þegar ærnar eru þriggja vetra en lækkar síðan með aldri. Árstíðarsveiflur eru mestar fyrir arfgengi á fitumagni í skrokkn- um og er það hæst þegar ærnar eru feitastar á fengitíma. Greinilegt jákvætt erfðasamband var á milli vöðvamagns (sama gilti um vöðva- hlutfall) og framleiðslugetu ánna. Þetta samband virtist meira skýrast af jákvæðum áhrifum vöðvamagnsins á fjölda lamba fremur en mjólkurlagni ánna metin sem vaxtarhraði lambanna. Samband fitunnar við framleiðslueigin- leika virðist ekki jafn sterkt. Þó að það sé í flestum tilvikum jákvætt er fitumagnið háð því (eða hlutfall þess) á hvaða árstíma er að ræða og einnig er það breytilegt eftir hvort um er að ræða búkfitu eða skrokkfitu. Magn búkfitu fyrir og um fengitíma hefur þannig mest jákvæð áhrif en hins vegar hefur fitu- magnið í skrokknum meiri áhrif þegar kem- ur að tímabilinu fyrir burð hjá ánum. Þannig er greinilegt að samspil er á milli fituforða úr mismunandi vefjum eftir árstímum. Höf- undarnir benda á að þó að sterk erfðatengsl séu á milli búkfitu og fitu í skrokknum sé þar ekki um fullkomið samband að ræða þannig að fyrir hendi eru ákveðnir mögu- leikar á því að breyta þessum hlutföllum. Höfundar benda á að erfðasamband á milli fitu og vöðva sé mjög lágt þannig að möguleikar í ræktunarstarfinu til að fá fram breytingar í þá veru sem menn óska við mis- munandi aðstæður eru miklir. Þessum rannsóknum er haldið áfram. Með meiri gögnum er vonast til að renna styrkari stoðum undir niðurstöðurnar. Einn- ig eiga þær að gera mögulegt að skoða betur samband eiginleika hjá lömbunum og ánum sem tengjast vefjamagni og hlutföllum í skrokknum. Einnig eru vonir bundnar við að geta greint möguleg áhrif breytinga vegna úrvals fyrir auknum kjötgæðum á vanhöld lamba og fleiri þætti sem tengjast móðureiginleikum ánna. Skoðun höfund- anna virðist samt mjög eindregið sú að úrval fyrir auknum kjötgæðum hjá Svarthöfðafé (og öðrum fjallakynjum) á grundvelli óm- sjármælinga muni, auk meiri kjötgæða, einnig skila sér í meiri afurðaeiginleikum hjá ánum. /JVJ Hvaða áhrif hafa aukin kjötgæði á framleiðslueiginleika ánna? Jón V. Jónmundsson, ráðunautur BÍ jvj@bondi.is Stjórnun og ábyrgð í félögum Um hvað er fjallað á námskeiðinu? Fyrir hverja er þetta námskeið? Hvað er gert? Kennari Tími Stjórnun félaga, aðallega hlutafélaga. Kjörna og ráðna stjórnendur. Þeir sem sitja í stjórnum félaga og fyrirtækja á vegum bænda eru hvattir til að koma. Gerð verður grein fyrir hlutverki og ábyrgð stjórnenda (félagsstjórnar og framkvæmdastjóra), samskiptum þeirra og verkaskiptingu. Einnig verða skoðaðar reglur um viðskipti félaga við stjórnendur þeirra. Áslaug Björgvinsdóttir lögfræðingur og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Efnt verður til þriggja námskeiða sem standa í níu kennslustundir. Það fyrsta verður á Hvanneyri föstudaginn 10. febrúar kl. 10:00-17:00. Næsta námskeið verður í Eyjafirði föstudaginn 24. febrúar kl. 10:00-17:00 og það þriðja föstudaginn 3. mars, kl. 10:00-17:00 á Suðurlandi. Verð: 16.600 kr. Haldið í samstarfi við Bændasamtök Íslands

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.