Bændablaðið - 28.01.2009, Blaðsíða 23

Bændablaðið - 28.01.2009, Blaðsíða 23
19 Bændablaðið | miðvikudagur 28. janúar 2009 Í marsmánuði árið 2003 kom norski fósturtalningamaðurinn John Edvin Johansen fyrst hingað til lands til að telja fósturvísa í ám. Í framhaldi þess lærði vaskur hópur af fólki hér á landi þessa tækni og fékk sér tæki til að stunda þessa vinnu. Á síðustu árum hafa þannig fleiri og fleiri bændur með hverju ári farið að nota sér tæknina. Ætlunin með þessum greinarstúf er að hvetja þá bændur, sem ekki hafa enn nýtt sér þessa tækni, til að hugleiða hvort þarna sé ekki eitt- hvað að sækja. Þeir sem hafa kom- ist á bragðið virðast fljótt átta sig á ávinningnum. Ljóst er að hér á landi hafa bændur til þessa öðru fremur notað sér þessar niðurstöður í sambandi við vinnuhagræðingu og skipulag á sauðburði. Vitneskja um vænt- anlega marglembinga, sem koma þarf í fóstur um leið og fyrir liggur hvaða einlembur eru væntanlegar á líkum tíma sem geta tekið við aukalambi, er nærtækasta dæmið um slíkt, auk fjölmargra annarra skipulagsþátta við sauðburðarstörf- in. Á einstaka búum eru aðstæður einnig þannig að vel hefur reynst að setja hrút til ánna sem reynast lamblausar á þessum tíma og fá hjá þeim sumrunga sem verða góð búbót í vetrarslátrun á næsta vetri. Erlendis hafa bændur notað þessar niðurstöður mikið til að flokka féð og skipuleggja á grund- velli þess mun nákvæmari fóðr- un á mismunandi flokkum ánna á síðustu vikum meðgöngutímans. Þar er það talinn meginávinningur þessara upplýsinga. Á þann hátt er hægt að stýra miklu betur en ella væntanlegum fæðingarþunga lamb- anna og þannig draga úr vanhöldum lamba við burð. Þetta á t.d. við um fleirlembur, flokkun veturgömlu ánna í einlembur og tvílembur, sérfóðrun á einlembdum tvævetlum o.s.frv. Umfangsmikil rannsókn á vanhöldum lamba á síðasta áratug, sem verður kynnt á Fræðaþingi, sýnir glöggt að það er öðru fremur í þessum lambahópum sem ávinn- ings virðist að vænta í sambandi við að bæta lambahöld. Þá er rétt að nefna þann fóstur- dauða hjá veturgömlum ám, sem varð ljós strax í fyrstu ferð John hingað til lands. Nákvæmari skoðun sýnir að hér virðist um stórfelldara vandamál að ræða en almennt hefur verið ljóst til þessa. Niðurstöður þar um verða kynntar á Fræðaþingi í næsta mánuði. Allt bendir til að hér sé um að ræða „séríslenskt“ vandamál sem enn vantar skýringar á. Skakkaföll eru hins vegar umtals- verð í stórum hópum gemlinga sem verða fyrir slíku áhlaupi og sem því miður of margir fjárbændur hafa slæma reynslu af. Þessi skakkaföll má minnka með breyttri fóðrun lamblausu gemlinganna frá talning- ardegi í samanburði við að skaðinn verði ekki ljós fyrr en á sauðburði um vorið, þó að meginskaðanum verði því miður ekki forðað. Ávinningur af fósturtalningu á því á flestum fjárbúum að geta orðið verulegur. En líkt og við flest verk verður ávinningurinn því meiri, því betur sem menn hafa fyr- irfram gert sér grein fyrir hvernig nýta skuli niðurstöðurnar. Þeir sem ætla að nýta sér fóstur- talningar í vetur eru því hvattir til að panta þær sem allra fyrst þannig að þeir, sem þeim sinna, geti skipulagt sína vinnu á sem bestan veg. Sama reynda liðið og áður mun starfa að þessu í vetur en það eru; þær stöllur Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, Ljótarstöðum í Skaftártungu (sími 487 1362) og Elín Heiða Valsdóttir, Úthlíð í Skaftártungu (sími 487 1363), Guðbrandur Þorkelsson, Skörðum í Miðdölum (sími 848 0206 eða 434 1302) og Gunnar Björnsson, Sandfelli Öxarfirði (sími 822 6108). Fósturvísatalning hjá sauðfé Síðasta útkall Mikið af skýrsluhaldi fjár- bænda vegna ársins 2008 hefur þegar skilað sér til upp- gjörs hjá BÍ. Þrátt fyrir það er enn stór hópur sem ekki hefur lokið skilum. Samkvæmt gæðastýringarreglugerð er lokaskiladagur 1. febrúar. Ef einhverjir af einhverjum ástæðum þurfa frekari frest er brýnt að þeir sæki um slíkt fyrir 1. febrúar. Jörð óskast Jörð óskast keypt eða í skiptum fyrir stórt einbýlis- hús á góðum stað á höfuðborgarsvæðinu. Rúmur afhendingartími ef þarf. Við leitum að jörð þar sem aðstæður eru góðar til t.d. kornræktar og skógræktar. Áhugasamir sendið póst á netfangið tunfotur@gmail.com eða hringið í síma 6931024. Þagmælsku heitið.” Bætt mjólkurgæði betri afkoma Kennari: Snorri Sigurðsson framkvæmdastjóri búrekstrarsviðs LbhÍ Tími: Boðið verður upp á tvö námskeið: I: 3. feb. kl. 10:00-16:30 á Hvanneyri II: 26. feb. kl. 10:00-16:30 á Möðruvöllum í Hörgárdal Verð: kr. 14.000 Skreyttu þína eigin veislu Kennari: Hjördís Reykdal Jónsdóttir stundakennari við LbhÍ Tími. 10. feb, kl. 19:30-22:30 í Reykjavík Verð: kr. 4.900 Hæfileikar hrossa - Kynbótadagur Kennarar: Jón Vilmundarson og Eyþór Einarsson kynbótadómarar Tími: 14. feb. kl. 10:00 – 17:00 í Ölfushöllinni á Suðurlandi Verð: kr. 12.000 kr fyrir félagsmenn í HS (kr. 20.000 fyrir aðra) Járninganámskeið II - verklegt Kennari: Sigurður Torfi Sigurðsson járningameistari Tími: 14. feb. kl. 10:00-17:00 á Mið-Fossum Verð: kr. 14.000 Bygging hrossa Kennarar: Jón Vilmundarson og Eyþór Einarsson kynbótadómarar Tími: 21. feb. kl. 09:00 –16:00 í Ölfushöllinni á Suðurlandi Verð:kr. 8.000 fyrir félagsmenn innan HS (kr. 14.000 fyrir aðra) Lífrænum aukaafurðum breytt í verðmæti! Kennari: Stefán Gíslason framkvæmdastjóri UMÍS ehf. Environice í Borgarnesi. Tími: 3. mars kl. 10:30-15:00 á Hvanneyri Verð: kr. 8.500 Fóðrun og uppeldi kvígna Kennarar: Grétar Hrafn Harðarson lektor við LbhÍ og Jóhannes Sveinbjörnsson dósent við LbhÍ Tími: 10. mars kl. 10:00-16:00 á Sauðárkróki í Skagafirði Verð: kr. 15.500 Grunnnámskeið í blómaskreytingum Kennari: Guðrún Brynja Bárðardóttir brautarstjóri blómaskreytingabrautar LbhÍ Tími: 19. og 20. mars, kl. 09:00- 16:00 á Reykjum, Ölfusi Verð: kr 25.900 (efni innifalið) Ræktum okkar eigin ber Kennarar: Guðríður Helgadóttir forstöðumaður LbhÍ Reykjum, Jón Kr. Arnarson verkefnisstjóri LbhÍ og Helgi Þórsson umhverfisfræðingur Tími: Boðið verður upp á tvö námskeið: I: 21. mars, kl. 09:00-15:00 á Reykjum, Ölfusi II: 28. mars, kl. 09:00-15:00 á Akureyri Verð: kr. 12.000 Allar nánari upplýsingar má finna á www.lbhi.is/namskeid Skráning fer fram á endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000 Námskeið fyrir þig! Heilbrigðir og hraustir hundar! Kennari: Helga Finnsdóttir dýralæknir Tími: 19. feb kl. 15:00-18:00 á Hvanneyri Verð: kr. 6.000 Trjáfellingar og grisjun með keðjusög Kennarar: Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur LbhÍ, Böðvar Guðmundsson skógtæknir Suðurlandsskógum og Þorkell Gunnarsson skrúðgarðyrkjumeistari Lystigörðum Tími: 23. feb. kl. 09:00- 16:00, 24. og 25. feb. 09:00- 17:30 (3x) á Reykjum, Ölfusi Verð: kr. 40.000 Notkun léttitækja í garðyrkju Kennarar: Ágústa Erlingsdóttir brautarstjóri skrúðgarðyrkjubrautar LbhÍ, Ágústa Guðmarsdóttir sjúkraþjálfi hjá Heilsuvernd og Kári Aðalsteinsson garðyrkjustjóri LbhÍ Tími: 18. feb, kl. 9:00-15:00 á Reykjum, Ölfusi Verð: kr. 13.000 Útimatjurtir – grunnnámskeið fyrir byrjendur Kennari: Gunnþór K. Guðfinnsson stundarkennari við LbhÍ Tími: 28. feb, kl. 9:00-15:00 á Reykjum, Ölfusi Verð: kr. 12.000 Í dag, miðvikudaginn 28. janú- ar kl. 14:30, mun Tryggvi Sturla Stefánsson segja frá M.S.-verkefni sínu „Byggsjúkdómar á Íslandi: Tegundagreining, sýkingarhæfni og erfðafjölbreytileiki helstu sjúkdómsvalda“. Fyrirlesturinn verður haldinn í Ársal, 3. hæð í Ásgarði, aðalbyggingu Landbún- aðarháskóla Íslands, Hvanneyri. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Sýnum af sýktum byggplöntum var safnað víðsvegar að af landinu með það fyrir augum að greina teg- undafjölbreytileika sveppa á byggi. Tólf sveppategundir fundust, þar á meðal tveir vel þekktir byggsýkl- ar, R. secalis og P. teres sem valda augnbletti og byggbrúnflekki. Erfða- fjölbreytileiki R. secalis og P. teres stofnanna var skoðaður og borinn saman við aðra stofna. Niðurstöður sýndu fram á mikinn erfðafjöl- breytileika innan íslensku stofnanna og meiri aðgreiningu milli íslenskra og evrópskra stofna en gert var ráð fyrir. Sýkingarhæfni R. secalis og P. teres stofnanna var metin á völdum byggyrkjum og fannst mikill breyti- leiki hjá báðum tegundum hvað sýkingaráhættu varðaði. Ekkert af þeim byggyrkjum sem mest eru notuð á Íslandi í dag var þolið gegn blöndu íslenskra P. teres afbrigða. Niðurstöðurnar benda til þess að íslenskir R. secalis og P. teres stofn- ar búi yfir miklum breytileika og hafi þar af leiðandi umtalsverða þróunarhæfni, sem gerir þá að erf- iðum plöntusýklum. Byggt á þess- um rannsóknum er mælt með því að nota magnbundnar varnir ásamt varnargenum í yrkjablöndum og fjöllínum til að ná fram varanlegu þoli gagnvart R. secalis og P. teres á Íslandi. Prófdómari er dr. Arnar Pálsson, dósent í þróunarfræði við Háskóla Íslands. Leiðbeinandi er dr. Jón Hall- steinn Hallsson, lektor við LbhÍ. Í M.S.-nefnd eru dr. Áslaug Helga- dóttir, prófessor við LbhÍ og Jónatan Hermannsson, lektor við LbhÍ. Fyrirlestur um byggsjúkdóma á Íslandi Tryggvi Sturla Stefánsson hefur nýlokið við að verja ritgerð sína um bygg- sjúkdóma á Íslandi. Til skýrsluhaldara í nautgriparækt Við minnum á að skiladagur mjólkurskýrslna til uppgjörs er nú 10. næsta mánaðar eftir mælingu. Janúarskýrsla þarf því að vera skráð inn í HUPPU í síðasta lagi 10. febrúar næstkomani. Þeir sem ekki skrá sjálfir inn í HUPPU þurfa því að tryggja að skýrslur berist til skráningar í tíma og ættu að hafa samband við sitt bún- aðarsamband ef einhverjar spurningar vakna í því sambandi.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.