Bændablaðið - 28.01.2009, Blaðsíða 25
21 Bændablaðið | miðvikudagur 28. janúar 2009
Júlíana Lind Guðlaugsdóttir er jákvæður og hress
nemandi í Finnbogastaðaskóla í Strandasýslu. Hún
hefur gaman af flestum hlutum, hlustar mikið á
ABBA, spilar á flautu og elskar kjötsúpu úr sveit-
inni.
Nafn: Júlíana Lind Guðlaugsdóttir.
Aldur: 11 ára, verð 12 ára 17. mars.
Stjörnumerki: Fiskur.
Búseta: Steinstún í Árneshreppi, Strandasýslu.
Skóli: Finnbogastaðaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum?
Handavinna.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Gíraffi, alveg pottþétt.
Uppáhaldsmatur: Sveitakjötsúpa.
Uppáhaldshljómsveit: ABBA.
Uppáhaldskvikmynd: Ace Ventura.
Fyrsta minningin þín? Þegar ég var að leika við
Einar, bernskuvin minn.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég spila á
flautu og langar að æfa mig á þverflautu.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í tölvu?
Finna sætar myndir á Google.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég ætla
að fara til Afríku og vinna í dýragarði við að passa
gíraffa.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Það er
nú svo margt, til dæmis að renna mér á þotu niður
snarbrattar brekkur.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Ég man
ekki eftir neinu leiðinlegu.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt í vetur? Já, leika
við Unni, bestu vinkonu mína.
ehg
Fólkið sem erfir landið
Júlíana Lind er einstaklega hress Strandastúlka sem er alveg að verða 12 ára og nýtir tíma sinn vel.
Ætlar til Afríku að passa gíraffa!
WorldFengs
Vinningshafar í nýársgetraun
Þann 5. janúar s.l. voru átta nöfn
áskrifenda dregin út úr stórum
hópi þátttakenda í nýársgetraun
Worldfengs. Þátttaka í getraun-
inni var mikil og greinilegt að
áskrifendur hafa gaman af að
spreyta sig á hinum fjölmörgu leit-
armöguleikum forritsins. Bænda-
samtök Íslands þakka þátttökuna.
Eftirtaldir vinningshafar voru
með öll svör rétt og hljóta verðlaun:
1. Árnína H. Guðjónsdóttir, 780
Höfn – HP Deskjet prentari
(D4360) – Styrktaraðili: Opin
Kerfi
2. Susanne Kottmann, Þýskalandi –
Landsmót á Hellu 2008 (mynd-
band) – Styrktaraðili: PlúsFilm
3. Annie Fagerberg, Svíþjóð –
Landsmót á Hellu 2008 (mynd-
band) – Styrktaraðili: PlúsFilm
4. Helgi Már Ólafsson, Akranesi
– Ársáskrift að WorldFeng –
Styrktaraðili: Bændasamtök
Íslands
5. Magnus Sjöberg, Svíþjóð – Árs-
áskrift að WorldFeng – Styrkt-
araðili: Bændasamtök Íslands
6. Wiebke Kramer, Þýskaland –
Stóðhestaspilið – Styrktaraðili:
www.spilaborg.is
7. Christiane Thews, Þýskaland –
Stóðhestaspilið – Styrktaraðili:
www.spilaborg.is
8. Zophonías Jónmundsson, Dal-
vík – Stóðhestaspilið – Styrktar-
aðili: www.spilaborg.is
Búið er að senda tölvupóst til
allra vinningshafa með tilkynningu
um vinning.
Styrkir til
bústofnskaupa
frumbýlinga í
sauðfjárrækt
Sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra hefur stað-
fest endurskoðaðar reglur
um bústofnskaupastyrki til
frumbýlinga í sauðfjárrækt.
Reglurnar voru fyrst settar í
janúar 2008 og auglýst eftir
umsóknum þá. Á árinu 2008
sóttu alls 42 um bústofns-
kaupastyrk og alls fengu 24
slíkan styrk en 18 umsóknum
var hafnað.
Í reglunum sem settar voru
á síðastliðnu ári var ákvæði um
að þær yrður endurskoðaðar í
árslok. Það hefur nú verið gert.
Stjórn Bændasamtakanna sam-
þykkti endurskoðaða útgáfu á
fundu sínum 10. desember sl.
og sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra hefur nú staðfest
þær eins og lög gera ráð fyrir.
Meginbreytingin er sú að
nú geta þeir sem fengu styrk í
fyrra sótt um áfram og heimilt
er að styrkja þá einnig vegna
fjölgunar í eigin stofni.
Eins og fram kemur í auglýs-
ingu hér til hliðar geta bændur
nálgast reglur um úthlutun og
umsóknareyðublöð á heimasíðu
Baændasamtakanna, bondi.is.
Umsóknarfrestur um styrki til
frumbýlinga rennur út 1. mars
nk.
Egal ehf.
lögfræðiþjónusta
Tek meðal annars að mér mál vegna
óbyggðanefndar, og önnur mál er varða
lönd og lóðir utan þéttbýlis.
Sjöfn Kristjánsdóttir, hdl.
Farsími 863-3353 - sjofn@egal.is
Hér með er auglýst eftir umsóknum
um styrki til frumbýlinga í sauðfjárrækt
samkvæmt ákvæðum gildandi
sauðfjársamnings. Reglur um úthlutun og
umsóknareyðublöð er að finna á bondi.is
en skila ber umsóknum til BÍ fyrir 1. mars
2009. Reglur eru breyttar frá síðustu
úthlutun og eru umsækjendur beðnir að
kynna sér nýja útgáfu þeirra á bondi.is.