Bændablaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | fimmtudagur 17. desember 2009 Ein af jólabókunum í ár er frum- raun stofnanda Bændablaðsins, Bjarna Harðarsonar bóksala á Selfossi, í skáldsögugerð. Svo skal dansa heitir bók hans en þar segir frá formæðrum Bjarna, baráttu þeirra og flakki um ver- öldina. Undirtitill bókarinnar er skáldsaga úr veruleikanum því þótt sagan sé skálduð styðst hún við veruleikann sem konurnar lifðu í, íslenskt samfélag frá síð- ari hluta nítjándu aldar langt fram eftir þeirri tuttugustu. Við fengum góðfúslegt leyfi Bjarna til að birta stuttan kafla úr bókinni og berum niður þar sem segir frá Hallberu sem rak greiðasölu í Lækarbotnum ofan við Reykjavík seint á 19. öldinni. Það má með nokkrum sanni segja að hún hafi verið upphafsmaður þess sem síðar hlaut nafnið ferðaþjón- usta bænda. En hafi amma mín kennt mér að varast syndina þá var það Hallbera sem kenndi mér að lifa við hana. Hallbera í Lækjarbotnum sem ævinlega fór sínu fram og skeytti í engu um skömm né heiður. Var samt heiðarlegust allra og virt. Dónarnir voru hræddir við hana og herramenn heilsuðu henni. Ég var komin vel á þriðja ára- tuginn, saklaus og óspillt, þegar ég réðist til hennar í vinnumennsku og það var þar sem ég ætlaði að byrja þessa sögu, ekki ólétt eða falleruð. Ég hafði ekki verið nema sum- arlangt inni í Botnum þegar reki- stefnan varð út af Hallberu-barninu sem mér var falið að gæta. Ekki að ég gætti þess ekki nógu vel. Heldur út af því hver ætti það. Hallbera hafði verið gift kona á bænum Hólmi rétt við Elliðavatn í nokkur ár og átt þar gamlan og lundleiðan mann sem hún giftist til fjár. Þegar þau áttu orðið þrjú börn tók hún saman við ungan vinnu- mann á heimilinu, Gvend greyið, sem var austanmaður og meinleys- isgufa. Og Hallbera, sem var bæði húsbóndi og húsfreyja á sínu heim- ili, fór sínu fram eins og hreppstjóri sem heldur við vinnukonu. Það var meira en Gunnlaugur bóndi gat þolað og þegar hún hafði eignast strákhnokka, sem hann aldrei vissi hvort hann sjálfur átti, flúði bónd- inn að heiman og suður í Garð. En búskapurinn blómgaðist án hans og það gerði kona hans einnig. Þegar hann hafði verið ár í burtu kom Hallbera til prests með stúlkubarn til skírnar og lýsti sem fyrr mann sinn föður að barninu. Það var skráð svo í kirkjubók en um haust- ið varð rekistefna. Þá voru þau Guðmundur farin frá Hólmi, hrökt- ust þaðan undan dómsforsetanum á Vatni og settust að í afréttarbrún- inni þar sem Bera mín lét heita í Lækjarbotnum. – Það er út af honum Gunnlaugi, stamaði hreppstjórinn Guðmundur á Reykjum framan í þessa gust- miklu uppsveitakonu. Þeir voru tveir saman, nefndarmenn báðir og mikils háttar á réttadögum og heima í sínu ríki. Hér í ríki Hallberu voru þeir allt í einu hálf- vegis brjóstumkennanlegir án þess að vita sjálfir hvernig á því stóð. – Já, hefurðu hitt hann Gunnlaug minn. Það er gott. Hann lifir þá. – Já,og hann segist ekkert eiga í barninu. – Eiga í barninu? Ég er gift kona og læt ekki bjóða mér neinn yfirgang á mínu heimili. Hvað haf- iði látið ofan í ykkur? Ég veit ekki hvernig giftar konur feðra börn þarna í neðra hjá ykkur í henni Mosfellssveit en í minni heimasveit sem er stórkristileg sveit og fögur, annað en þessi ansvítans útkjálki. Já, í minni sveit gangast eiginmenn við börnum kvenna sinna þegjandi. Það gerðu feður mínir og afar en þið megið draga þetta allt í efa en ég held að ykkur sé hollast að koma ykkur út áður en ég skvetti hér úr undan bælum ferðalanga og tek við nýju fólki. Þetta er gistihús. Einhvern veginn þannig gekk samtalið í þrasi uns hreppstjórinn og hans nótar hrökkluðust af bæ. Erindi ekki fegnir. Vafalaust hefði faðern- ismálið lent fyrir dómi ef ekki hefði komið til að anginn Elín var aftur borin til kirkju um veturnætur, nú í kistu og mátti eftir það einu gilda hver væri faðir barns sem ekki var lengur til. Stóridómur löngu dauður og frjálslyndisandar í landinu. En ferð hreppstjóranna dró samt slóða á eftir sér. Skaftfellingurinn Gvendur varð þegjandalegri en áður enda ekki þess verður að kallast faðir sinna eigin barna. Og Hallbera þoldi hann verr en áður. Dag einn stóð hún inni við þver- tréð í baðstofunni og horfði yfir á þennan hjárænulega ástmann sinn. Sjálf fór hún aldrei undir og þaðan af síður yfir raft þennan sem hélt langveggjum baðstofunnar frá því að gliðna út. Innan við tré þetta var bæði Gvendi og okkur vinnukind- um ætlað pláss. – Það er best að þú farir, Gvendur. – Fari hvert, ég fer ekkert. Ég bý hérna. Ég á þessa baðstofu. Orðin komu með hléum enda fátítt að Skaftfellingurinn okkar segði svo mörg orð saman. Gvendur var orðinn skrækróma af æsingi en Hallbera haggaðist ekki. Ég veit ekki hvað gekk meira á en var sagt að hún hefði fengið karlinn til að samþykkja að hún ætti hálfa baðstofuna og mætti gera við sinn helming hvað hún vildi. Sjálfur ætlaði hann að sitja í sínum hluta. Stundu síðar reið þessi valkyrja niður í Hólmskaupstað sem það er farið að kalla Reykjavík. Hún kom til baka undir kvöld með snikk- arann Samúel með sér og lét hann saga baðstofuna sundur á mæni. Þvertréið góða um leið í tvo jafna stubba. Við sváfum í skálanum um nótt- ina en Gvendur fór þegjandi burt af bænum. Kom aldrei aftur. Ég vissi næst af honum í Kaldárseli, fátæk- um og óhamingjusömum gömlum manni, og kenndi til. Hallbera var jafn vond við hann og sjóliðinn var seinna við mig. Það var stundum eins og hún þyrfti að hefna allra ófara okkar gagnvart karlpeningi þessa heims. Og heyja mörg stríð önnur. Hún var landnemi. Fékk svo sem aldrei leyfi til að setjast að á afréttinum en gerði það bara og var innan fárra ára farin að höndla með mat, brennivín og gistipláss fyrir austanmenn. Fáheyrt að selja næt- urgreiða en hún kærði sig kollótta. Brennivínið gerði útslagið að eng- inn maldaði í móinn eða fór annað. Hvergi annars staðar var hægt að fylla á pyttluna fyrir ullarlagð eða smjörpund og nú voru meira að segja til staup og frú Hallbera Jónsdóttir var með konunglegt veit- ingaleyfi. Staupin og leyfið voru gjöf frá kansellíráðinu á Kiðjabergi sem kom við í ferð sinni til að fylgja Jóni forseta til grafar. Hann kom hingað drukkinn og reifst við okkur stofupíkurnar að við skyldum dirf- ast að traktera hann á brennivíni í kaffibollum. Við vorum dauð- hræddar við karlinn en þá stóð Hallbera upp og sagði honum að snáfast til að drekka það sem hér væri til úr þeim koppum hér væru til og halda kjafti. – Snáfumst vér hvað, hvad for et helvede? Hvaða herkerling eruð þér? sagði sjálfur kanzi og horfði bæði opinmynntur og glaseygur upp á herfuna sem stóð fyrir fram- an hann, þessi undarlega langleiti og langdrukkni maður. – Það sem stendur hér foran lotlegt háyfirvaldið er engin önnur en Hallbera Jónsdóttir í Lækjarbotnum, náfrænka Jóns kjafts og því erum vér svo gott sem sveitungar. – Jóns kjafts, drafaði í Þorsteini sýslumanni. – Jóns kjafts, þess sem ég sendi á Brimarhólm og kom ríkur maður út til baka árið sem Hekla gaus og var þá kallaður Danski-Jón og ég varð svo að hýða aftur fyrir stuldi og þá var hann aftur kallaður Jón kjaftur? Er hann ódauður enn? – Og nei, hann er dauður og grafinn og bar aldrei sitt barr eftir seinni hýðinguna en það er ekki við yður að sakast sem hafið það óskemmtilega starf að níðast á lít- ilmagnanum enda væru varla lít- ilmagnar ef enginn tæki að sér að níðast á þeim. Blessaður mað- urinn og láteð þér mig nú fá boll- ann, hann er tómur og nú læt ég hana Imbu draga af yður þessi for- láta dönsku stígvél og svo getið þér fengið brennivín í bolla aftur í morgunsárið og mun ekki af veita. Það var eins og þessi rustalegi embættismaður yrði að leir í hönd- unum á þeim Hallberu og Imbu um kvöldið og mjæmti varla í honum. Í bakaleiðinni austur í Grímsnes færði hann sinni vinkonu og her- kerlingu veitingaleyfi með signeti frá kóngsins fógeta og silfurstaup, ennþá uppnuminn yfir að alþýðu- kona hafði rifið kjaft við hann drukkinn. Ekki einu sinni aðallinn í Víkinni þorði slíku. Svo skal dansa XZ > [ >     \ ]  Q Út er komin bókin Geislaþytur, úrval sagna og ljóða eftir Gunnar Valdimarsson frá Teigi í Vopnafirði. Útgefandi er Félag ljóðaunnenda á Austurlandi. Fremst í bókinni kynnir Þorsteinn, sonur Gunnars, ævi og ritstörf föður síns á smekkvísan hátt og býr lesandann undir þær gagnmerku frásagnir og kveðskap sem fylgja á eftir. Um tveir þriðju hlutar bókarinnar eru laust mál og þriðjungur bundið. Alls er bókin um 180 bls. að stærð. Lausamálið skiptist í 15 kafla. Hinir sjö fyrstu þeirra fjalla um lífið heima á Teigi framan af ævi Gunnars, bústörf eftir árstím- um og líf fjölskyldunnar. Svo oft sem fjallað hefur verið um lífið í sveitinni áður en tæknin hóf inn- reið sína í íslenskar sveitir þá eru þessar frásagnir jafn lifandi og ferskar fyrir það, og minna á að ekki einungis á hver einn bær sína sögu, heldur á hver sveit og hvert hérað sína sögu. Bróðir Gunnars, Þorsteinn Valdimarsson skáld, kemur einnig þarna við sögu, nokkrum árum eldri en Gunnar en auðfundið er hve náið hefur verið með þeim og að það hefur hvatt þá báða unga að árum til yrkinga. Á eftir þessum frásögnum fylgja lýsingar Gunnars á dvöl hans í Reykjavík á stríðsárunum síðari en árið 1948 fer hann til Skotlands til að útvíkka sjóndeild- arhring sinn. Sá kafli opnar les- andanum nýja sýn á stöðu Evrópu eftir síðari heimstyrjöldina. Vitað var um þær mannfórnir sem þjóðir Evrópu færðu. Hins vegar hefur minna verið haldið á lofti því hörmungarástandi sem þá ríkti í Skotlandi, sem þó slapp við bein stríðsátök. Í skosku Hálöndunum, þar sem Gunnar dvaldist, svalt allur almenningur og jafnvel betri borgarar heilu hungri á þessum tíma. Sýnilegt er að á útskerinu Íslandi átti fólk mat sinn vísari á þessum tíma. Í lok þessa kafla bókarinn- ar vindur sögunni aftur heim til Vopnafjarðar með lýsingum á daglegu lífi fólks en einn- ig óvenjulegum frásögnum úr búskapnum, svo sem um lækn- ingu á hrossasótt. Á eftir lausamálskaflanum fylgir kaflinn „Ljóð og lausavís- ur“, þar sem birt er bundið mál höfundar frá 60 ára tímabili. Þessi kafli er afar fjölbreyttur að efni og ber vitni um heilsteyptan mann, róttækan um samfélagsmál, sem finnur til með samtíð sinni. En Gunnar lyftir sér einnig upp úr amstrinu og grípur smámyndir úr umhverfi sínu til að lýsa hinu almenna, mannlega og vekja til umhugsunar um það. Um 10 bls. af þessum kafla bókarinnar eru æskukveðskapur Gunnars þar sem þeir Þorsteinn, bróðir hans, kveðast jafnframt á. Síðasti hluti ljóðakaflans nefn- ist „Tækifærisvísur og pólitík“. Þar minnist Gunnar samferð- armanna sinna á tímamótum í lífi þeirra, ekki síst fólks sem margt hvert hefur haldið sér til hlés en eignast vináttu og virðingu sveit- unga sinna og verið samfélagi sínu styrkur. Slíkur kveðskap- ur vill oft fyrnast fljótt en hér er dregið saman gott sýnishorn af honum. Árið 1971 brá Gunnar búi á Teigi, flutti með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur og stundaði í fyrstunni ýmis tilfallandi störf. Árið 1977 var honum boðið að taka við rekstri fornbókaverslun- arinnar Bókarinnar þar sem hann starfaði til ársins 1998 með Snæ Jóhannessyni. Verslunin var alla tíð samkomustaður bókaáhuga- fólks og nánast menningarstofnun í borginni. Með bókinni Geislaþyt hefur atgervis Gunnars Valdimarssonar verið minnst á verðugan hátt. Lesendur hennar, þeir sem komnir eru yfir miðjan aldur, munu finna þar margt sem tengist þeirra eigin minningum frá tíma sem nú er horfinn. Matthías Eggertsson Ritfregn Geislaþytur Út er komin ljóðabókin Bréf til næturinnar eftir Kristínu Jóns- dóttur á Hlíð í Lóni, með undir- titlinum Ástarsaga. Útgef andi bókarinnar er Félag ljóðaunn- enda á Austurlandi. Kristín er fædd og uppalin á Hlíð í Lóni en starfaði um árabil á Höfn í Hornafirði uns hún sneri heim í Hlíð með manni sínum og börnum og hefur rekið þar mynd- arlegt fjárbú síðan. Bókin Bréf til næturinnar er um 100 bls. að stærð og yfirleitt eitt ljóð með mismörgum erindum á hverri síðu. Höfundur yrkir eftir hefðbundnum íslenskum brag- reglum, stuðlum og höfuðstöfum, og málfarið er á allan hátt vand- að. Sem betur fer á hefðbundið íslenskt ljóðform sér marga þakk- láta lesendur, þótt bragreglurnar sanni hvorki né afsanni skáld- skapargildi ljóða. Ljóð Kristínar eru ort á tímabilinu 1990 til 2008 og birt í bókinni í réttri tímaröð. Meginþema bókarinnar er ástin og í ljóðunum er elskhuginn oft ávarp- aður. Jafnframt er glögg mynd af umhverfinu í ljóðunum, þó ekki þannig að Lónið sem sveit komi þar skýrt fram. Eftir því sem bókinni vindur fram og nær dregur nútímanum má merkja breytingu á „fókusi“ höf- undarins. Framan af er elskhuginn ávarpaður beint í flestum ljóðunum en eftir því sem á líður lyftir Kristin sér upp úr umhverfi sínu, jafnframt því sem myndmálið verður frum- legra og sterkara. Er þá aðeins ónefnt eitt sérkenni bókarinnar, sem rímar ekki við þá mynd sem birtist að öðru leyti af skáldinu en er e.t.v. ein aðalfor- senda þess að Kristín hefur gengið skáldskapargyðjunni á hönd. Hér er átt við það að rauður þráður í gegnum bókina er kvíði og depurð, án þess að nokkur sýnileg ástæða komi fram hvað henni valdi. Geta má sér þess til að þar sé einmitt að finna aflvaka ljóðanna og það sem gefi þeim dýpt. Vitað er að Kristján Jónsson Fjallaskáld átti við þung- lyndi að stríða og að sum kunnustu og bestu ljóð hans eru ort undir áhrifum þess. Alkunna er að það er tjáning á því sem íþyngir, sem öllu öðru fremur vísar veginn út úr vandamálinu. Bókin Bréf til næturinnar er einlæg skilaboð til lesandans, þar sem allur umbúnaður er vandaður og hófsamur og höfundi sínum til sóma. Bréf til næturinnar Úr jólabókaflóðinu

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.