Bændablaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | fimmtudagur 17. desember 2009 Innan ESB eru nú hafin átök um landbúnaðarstefnuna eftir 2013. Nýlega láku út upplýsingar um endurskoðun fjárhagsáætl- unar ESB, „Budget review“. Þar kemur fram að nauðsynlegt er að endurskoða enn frekar sam- eiginlegu landbúnaðarstefnuna, CAP, til að stuðla að umtalsverði lækkun útgjalda til landbúnað- armála til að losa um fjármagn til annarra verkefna. Í skjalinu sem lak út (31 bls) eru ekki nefndar fjárhæðir en í texta þess kemur fram að þrjú ný megináherslusvið verði vöxt- ur og atvinna, loftslag og orku- öryggi og „Global Europe“ eða Evrópuvæðing/Heildstæð Evrópa. Það að færa áhersluna yfir á þessa þætti krefst þess annaðhvort að auka útgjöld ESB eða umtals- verðrar tilfærslu fjármuna frá öðrum hefðbundnum verkefnum sambandsins (svo sem landbún- aði og tilfærslum til vel stæðra héraða). Í athugasemdum kemur fram að byggðaþróun er mikil- vægur liður í að takast á við þess- ar nýju áherslur og því koma fram tillögur um aukna fjármuni til þess hluta landbúnaðarstefnunnar sem snýr að byggðaþróun en jafn- framt er gert ljóst að draga þurfi úr fjárveitingum til fyrri stoðar landbúnaðarstefnunnar, þ.e. þess hluta sem rennur í beingreiðslur til bænda, markaðsaðgerðir o.þ.h. Þeirri hugmynd er einnig varpað fram að koma á þriðju stoð land- búnaðarstefnunnar sem takist á við loftslagsbreytingar. Þá kemur fram sú hugmynd að sameiginlega landbúnaðarstefnan verði fjár- mögnuð sameiginlega af ESB og aðildarlöndunum og að fela aðild- arlöndunum alfarið framkvæmd einhverra þátta hennar. Talið er að útgjöld til landbún- aðarmála (CAP) muni þannig falla úr 61% af heildarútgjöldum ESB árið 1988, í 32% árið 2013. Auk verkefna sem tengjast loftslags- breytingum er nefnt í skýrslunni að mæta þurfi „væntingum samfélags- ins“ um matvælagæði, líffræðilega fjölbreytni, vatnsvernd og velferð búfjár. Þá þarf landbúnaðarstefna framtíðarinnar að vera loftslags- væn (climate proof). Á grundvelli þessara mark- miða eru útlínur markaðar til fram- tíðar. Dregið verði enn frekar úr markaðsaðgerðum, s.s. kaupum á afurðum á sameiginlegan lager til að halda uppi afurðaverði, en þess í stað verði lögð enn meiri áhersla á almennar öryggisaðgerðir á grundvelli þess að aukin fram- leiðni stuðli að auknu fæðuöryggi á heimsvísu. Áfram verði byggt á eingreiðslukerfinu til að tryggja tekjur bænda en dregið verði úr greiðslum, þær tengdar enn frek- ar því að stuðla að „framleiðslu“ svokallaðra almannagæða (mat- vælaöryggis og -gæða, vörn gegn loftslagsbreytingum o.fl.) og að þær byggist ekki lengur á sögulegri framleiðslu. Einnig megi tengja beingreiðslur enn frekar frjálsum verkefnum í umhverfismálum. Lagt er til að breytingarnar verði gerðar með aðlögun en ekki of langri. Einnig er lagt til að aðild- arlöndin taki á sig aukna ábyrgð af útgjöldum t.d. eins og áður segir með því að leggja til hluta fjár- munanna. Við blasir að á næstu árum verður hart tekist á innan ESB um landbúnaðarstefnu framtíðarinn- ar. Landbúnaðarráðherrar 22 af 27 aðildarlöndum hittust nýverið að tilstuðlan Frakka en þau lönd sem hafa einkum beitt sér fyrir lækk- un útgjalda og aukinni markaðs- væðingu í landbúnaði (Bretland, Svíþjóð, Holland, Danmörk og Malta) voru ekki boðuð til fund- arins. (Þýtt og endursagt úr nóvemberhefti AGRA FOCUS) Á markaði Erna Bjarnadóttir hagfræðingur Bændasamtaka Íslands eb@bondi.is Evrópumál Yfirlit um framleiðslu og sölu ýmissa búvara Bráðabirgðatölur fyrir nóvember 2009 nóv.09 sep.09 des.08 Breyting frá fyrra tímabili, % Hlutdeild % Framleiðsla 2009 nóv.09 nóv.09 nóvember '08 3 mán. 12 mán. m.v. 12 mán. Alifuglakjöt 618.002 1.877.553 7.059.066 25,6 12,8 -5,1 26,1% Hrossakjöt 202.551 367.613 1.025.743 -15,2 -8,9 7,7 3,8% Nautakjöt 346.052 980.150 3.738.258 13,9 5,4 4,1 13,8% Sauðfé 174.392 8.633.424 8.834.990 -12,1 -1,0 -1,1 32,7% Svínakjöt 513.385 1.559.281 6.380.292 -17,3 -15,8 -3,1 23,6% Samtals kjöt 1.854.382 13.418.021 27.038.349 0,0 -1,1 -1,7 Sala innanlands Alifuglakjöt 578.998 1.789.560 7.070.661 15,0 3,0 -5,2 29,0% Hrossakjöt 103.701 219.352 672.618 -11,6 -12,0 5,3 2,8% Nautakjöt 330.277 976.176 3.741.569 12,4 5,4 4,1 15,4% Kindakjöt * 397.159 2.388.466 6.524.062 19,3 8,3 -11,6 26,8% Svínakjöt 504.293 1.582.478 6.361.693 -18,5 -14,5 -3,4 26,1% Samtals kjöt 1.914.428 6.956.032 24.370.603 2,6 -0,2 -5,0 * Sala á kindakjöti per mánuð er sala frá afurðastöðum til kjötvinnsla og verslana. Fyrstu fjóra mánuði verðlagsársins 2009-2010 hafa tæplega 653 þúsund lítrar flust milli lögbýla. Meðalverð allt tímabilið er tæplega 240 kr og er ívið lægra verð á síðustu 500.000 lítrum (238,15 kr/lítra) en í heild fyrir tímabilið. EB Framleiðsla og sala á kjöti í nóvember Framleiðsla á kjöti í nóvember var 1.854 tonn, jafn mikil og í sama mánuði í fyrra. Heildarsala jókst hins vegar um 2,6% og nam 1.954 tonnum. Síðastliðna 12 mánuði hefur framleiðsla dregist saman um 1,7%. Mestur samdráttur er í framleiðslu alifuglakjöts, 5,1% og 3,1% samdráttur hefur orðið á framleiðslu svínakjöts. Sala á alifuglakjöti hefur dregist samsvarandi saman um 5,2% og um 3,4% á svínakjöti. Mestur samdráttur hefur hins vegar orðið í sölu á kinda- kjöti, 11,6% og nemur sala á 12 mánaða tímabili nú 6.524 tonnum. Mesta markaðshlutdeild hefur alifuglakjöt 29% en meðfylgjandi mynd sýnir skiptingu kjötmarkaðarins. Dagsetning gildistöku Sala á greiðslumarki ltr. Uppsafnað frá upphafi verðlagsárs, ltr. Meðalverð síðustu 500.000 l kr./l 1. september 2009 417.895 417.895 1. október 2009 16.933 434.828 1. nóvember 2009 191.439 626.267 241,19 1. desember 2009 26.361 625.628 238,15 Skipan Rúmenans Dacian Ciolos í embætti framkvæmda- stjóra landbúnaðarmála hjá Evrópusambandinu kom í sjálfu sér ekki mikið á óvart þar sem hann var sá eini sem hafði opinberlega sóst eftir því. Hins vegar eru flestir sammála um að skipan hans geti haft í för með sér nokkra stefnubreytingu í landbúnaðarmálum ESB. Eins og fram hefur komið hér í blaðinu skiptast aðildarþjóðir ESB í tvo hópa í afstöðu sinni til land- búnaðarmála. Annars vegar standa þær þjóðir sem vilja draga úr stuðningi við landbúnað og bænd- ur og aflétta sem mestum hömlum af viðskiptum með landbúnaðar- vörur. Fremstir í þeim hópi hafa farið Englendingar, Hollendingar og frændur okkar Danir. Andspænis þessum ríkjahópi er annar sem vill fara sér hægar í frjálsræðisátt. Þær þjóðir vilja styrkja landbúnað sinn með svip- uðum hætti og gert hefur verið og varna því að hann dragist verulega saman vegna harðra samkeppn- islögmála. Fyrir þessum hópi hafa Frakkar og Belgar löngum farið. Franskmenntaður Rúmeni Þessi ágreiningur hefur skerpst verulega á síðustu misserum, ekki síst vegna þeirra sveiflna sem gengið hafa yfir evrópskan land- búnað, fyrst verðhækkanir og aukin eftirspurn, svo verðhrun og nú sígandi verðhækkanir á nýjan leik. Ágreiningurinn hefur krist- allast í mjólkurstríðinu sem varð hvað heitast í haust þegar bænd- ur helltu niður mjólk í stríðum straumum til að mótmæla skorti á viðbrögðum ESB við mikl- um lækkunum á mjólkurverði til bænda. Í mjólkurstríðinu þjöppuðu fylkingarnar sér saman og þá kom í ljós að mjög hallaði á þá frjálslyndu. Nú er talað um að í þeim hópi séu aðeins fimm ríki: England, Holland, Danmörk, Svíþjóð og Malta. Á hinum vængnum hafa Þjóðverjar tekið höndum saman við Frakka, Ítali og Spánverja og svo hefur að heita má gervöll austurblokkin fylkt sér að baki þeim. Það er í þessu ljósi athyglisvert að nú skuli fulltrúi síðastnefnda hópsins vera orðinn framkvæmdastjóri land- búnaðarmála. E n g i n n dregur hæfni hins nýja fram- kvæmdastjóra, Dacian Ciolos, í efa. Hann er doktor í land- búnaðarfræð- um og hefur gegnt emb- ætti landbún- aðarráðherra í heimalandi sínu. Sem stendur er hann formaður ráðgjafarnefndar Rúmeníuforseta um landbúnaðarmál og starfar einnig fyrir framkvæmdastjórn ESB. Hann er ekki flokksbundinn og er álitinn miðjumaður í stjórn- málum, hvorki íhaldssamur né róttækur. Hann er fertugur að aldri og hefur dvalið stóran hluta ævi sinnar í Frakklandi. Þar lagði hann stund á framhaldsnám sitt, sem hann lauk með doktorsgráðu frá Rannsóknastofu landbúnaðarins í Montpellier í Suður-Frakklandi árið 2001. Danir og Bretar afundnir Það eru einmitt þessi frönsku tengsl sem valda nokkrum titringi, einkum hjá Bretum og Dönum. Á blaðamannafundi þar sem José Manuel Barroso forseti fram- kvæmdastjórnar ESB tilkynnti hverjir skipa nýju framkvæmda- stjórnina heyrðust hávær mótmæli frá breskum blaðamönnum þegar nafn Dacian Ciolos var nefnt. Í breskum blöðum var sagt að þarna hefðu Frakkar tryggt sér tvo fram- kvæmdastjóra og talið líklegt að hann myndi ganga erinda þeirra. Danskir blaðamenn eru á svip- uðum nótum því í Maskinbladet er sagt frá tilnefningu Ciolos undir fyrirsögninni: Nýr fram- kvæmdastjóri landbúnaðarmála í vasa Frakka. Í grein blaðsins segir að hann sé að heita má full- komin andstaða við hina dönsku Mariann Fischer Boel, sem gegnt hefur embættinu undanfarin ár en gaf ekki kost á sér núna. Hún hefur beitt sér mjög ákveð- ið fyrir því að aftengja stuðning við bændur framleiðslu og réð miklu um þá ákvörðun að afnema kvótakerfið í evrópskri mjólk- urframleiðslu, sem hinn armurinn vill nú taka upp aftur. Danskur Evrópuþingmaður segir við blað- ið að skipun Rúm enans muni í besta falli leiða til þess að þróunin í frjálsræðisátt stöðvist en í versta falli að undið verði ofan af henni. Smábændur fagna Skipun Ciolos hefur á hinn bóginn vakið fögnuð hjá öðrum bænda- samtökum. Til dæmis fagna sam- tökin Via Campesina, sem eru samtök smábænda, því að til valda skuli vera kominn fulltrúi ríkis sem hefur mestan fjölda smárra og meðalstórra bændabýla í landi sínu. Talið er nokkuð öruggt að Ciolos sé ekki eins spenntur fyrir því að gera róttækar breytingar á sameiginlegu landbúnaðarstefn- unni, CAP, hann sé fylgjandi því að ESB styðji áfram myndarlega við evrópskan landbúnað og að áhersla verði lögð á að styrkja stöðu fjölskyldubúa. Auk þess er búist við því að Ciolos muni beita sér fyrir auknu jafnræði milli bænda í austri og vestri hvað varðar stuðning frá ESB. Því má svo bæta við að Ciolos hefur tjáð sig með jákvæðum hætti um nýtingu erfðatækninnar í land- búnaði. Það sama á við um nýskip- aðan framkvæmdastjóra umhverf- ismála hjá ESB, Slóvenann Janez Potocnik. Stjórnmálaskýrendur í Brussel telja að bandalag þeirra tveggja gæti orðið til þess að sú varkára stefna sem ESB hefur haft gagnvart erfðabreyttum matvæl- um verði tekin til endurskoðunar. –ÞH/byggt á Maskinbladet, Landsbygdens Folk o.fl. Landbúnaðarstefna ESB eftir 2013Breytist landbúnaðarstefna ESB með nýjum framkvæmdastjóra? – Skipan Rúmenans Dacian Ciolos veldur nokkrum titringi www.bbl.is Verð á greiðslumarki verðlagsárið 2009-2010

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.