Bændablaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 16
16 Bændablaðið | fimmtudagur 17. desember 2009
Gleðileg jól
Óskum bændum og búaliði hagsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Sendum viðskiptavinum okkar bestu jóla- og
nýárskveðjur með þökk fyrir viðskiptina á
árinu sem er að líða.
Samtök selabænda
Gleðileg jól, gott og
farsælt komandi ár.
Gleðileg jól,
gott og farsælt komandi ár!
Svínaræktarfélag Íslands
Gleðileg jól,
gott og farsælt komandi ár!
Landssamtök sláturleyfishafa
Gleðileg jól,
óskum bændum og búaliði
hag sældar á komandi ári.
Félag eggjaframleiðenda
Gleðileg jól,
gott og farsælt komandi ár!
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
Fasteignamiðstöðin
FASTEIGNAMI‹STÖ‹IN
jardir.is
Magnús Leópoldsson, lögg. fasteignasali
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Þökkum samskiptin á árinu
Lífeyrissjóður bænda
Þó rétt sé að ganga hægt um
gleðinnar dyr yfir hátíðirnar er
alveg leyfilegt að gera vel við sig í
mat og drykk. Jól og áramót eru
víst bara einu sinni á ári. Á síð-
ustu árum hefur innlendum bjór-
framleiðendum vaxið fiskur um
hrygg og gaman hefur verið að
fylgjast með litlum brugghúsum
spretta upp um landið. Af þessu
hefur meðal annars leitt að úrval
af árstíðabundnum bjór hefur
aukist umtalsvert og er það vel.
Fyrir jólin kemur á markað
fjöldinn allur af jólabjórtegund-
um, ýmist innlendum eða er lend-
um. Bændablaðið tók sig til og
gerði örlitla könnun á jóla bjórn-
um í ár. Ástæða þótti til að ein-
beita sér að litlu brugghús unum
þremur, Ölvisholti í Fló anum,
Bruggsmiðjunni á Ár skógs sandi
og Miði brugghúsi í Stykkis-
hólmi, enda Bændablaðið sérstak-
lega áhugasamt um atvinnuupp-
byggingu á landsbyggðinni.
Hver að verða síðastur
Öll brugghúsin þrjú settu jólabjór
á markað í ár. Þó er staðan reynd-
ar sú að öll brugghúsin voru varkár
í framleiðslu sinni og samkvæmt
upplýsingum frá ÁTVR er jólabjór-
inn frá þeim uppseldur hjá birgjum
í öllum tilvikum. Þó sé enn hægt
að fá jólabjór í ýmsum verslunum
ÁTVR en magnið minnkar dag frá
degi.
Jóla-Kaldi góður með
villibráðinni
Víkjum þá að bjórunum
sjálfum. Bændablaðið
fékk hóp fólks til að
smakka á og segja álit
sitt á hverri tegund fyrir
sig. Bruggsmiðjan á
Árskógssandi setti á
markað Jóla-Kalda
og að mati álitsgjafa
Bændablaðsins er þar
um að ræða malt-
kenndan, mjúkan
bjór með góðu eft-
irbragði. „Þessi
bjór færi vel með
villibráð, rjúpu
og hreindýri,
og væri jafnvel
góður með sköt-
unni“ var ein
einkunnin sem
Jóla-Kaldi fékk.
Álitsgjafar voru
líka sammála
um að hægt
væri að drekka
Jóla-Kaldann
bæði með mat
og einan sér.
Almennt var
fólk líka á
þeirri skoðun
að þessi bjór
ynni á eftir
því sem dýpra
væri farið ofan í
flöskuna.
Ölvisholt með alvöru
metnað í bjórbruggun
Ölvisholt setti á markað jólabjórinn
Reyktan Bock. Þar er um að ræða
bjór með reykbragði og krydd-
keim og víst er að margur viskíá-
hugamaðurinn mun í honum fá eitt-
hvað fyrir sinn snúð. Miklu skiptari
skoðanir voru um Reyktan Bock en
Jóla-Kalda. Ýmist voru álitsgjafar
yfir sig hrifnir eða þá þeim fannst
bjórinn allt of afgerandi. Flestir
voru þó á því að Reyktur Bock
kallaði á að vera drukkinn með mat
eða í það minnsta einhverju
meðlæti. Nefndu ýmsir
saltaðan mat en aðrir
voru á því að Reyktur
Bock gæti jafnvel fremur
gengið á þorrablótum en
á jólum. Aðrir álitsgjafar
voru hins vegar himin-
lifandi með Reyktan
Bock og nefndi einn að
þarna skildi leiðir með
venjulegum jólabjór og
alvöru metnaði í bjór-
bruggun.
Jökull ferskur
og fínn
Mjöður brugghús
sendi frá sér Jóla-
Jökul og fór hann
vel í álitsgjafa
Bændablaðsins.
Almennt má
segja að Jóla-
Jökull hafi verið
dæmdur sem
ferskasti bjórinn
og sá sem þyrfti
síst á því að halda
að vera drukkinn
með mat. Töldu
álitsgjafar sig
finna mildan
karamellukeim
í bjórnum og
jafnvel hun-
angsbragð en
auk þess ávexti.
Varð fleiri en
einum að orði að það
vottaði fyrir mysubragði í bjórn-
um sem gerði hann léttan og
svalandi til drykkju. Þó urðu
álitsgjafar sammála um að Jóla-
Jökull væri minnst afgerandi af
tegundunum þremur, án þess að
það væri sagt honum til lasts.
„Þennan væri hægt að drekka
úti í húsum“ var einn dóm-
urinn sem Jóla-Jökull hlaut.
Minna er stund-
um meira í
umbúðum
Álitsgjafar Bændablaðsins
veltu líka fyrir sér umbúð-
unum sem að jólabjórinn
kom í. Í öllum tilvikum
er um að ræða flösku-
bjór og sýndist sitt
hverjum um merking-
arnar. Jóla-Kaldi þótti
með heldur glysgjörn-
um miða. „Það er bara
eins og Coca-Cola lest-
in sé farin af stað á mið-
anum hjá þeim“ varð
einum að orði og þótti
skotið yfir markið. Þó voru
ekki allir sammála því og
þótti einhverjum miðinn ein-
faldlega fallegur. Jóla-Jökull
þótti hins vegar með stílhrein-
an og smekklegan miða, en
kannski ekki mjög frumlegan.
„Hér fara menn öruggu leið-
ina“ voru viðbrögð eins álits-
gjafans en aðrir voru almennt
á því að um væri að ræða róm-
antíska og fallega merkingu.
Þá var komið að Reyktum Bock
og þótti miðinn á honum nokkuð
kúnstugur. Vissulega væri mið-
inn þjóðlegur en kannski væru
Ölvisholtsmenn að reyna einum of
mikið. „Þjóðlegur, en ekki sérlega
smekklegur“ var einn dómurinn
sem miðinn á Reyktum Bock
fékk. Hins vegar voru álits-
gjafar sammála um að það
bæri að hrósa Reyktum Bock
mjög fyrir flotta og fróðlega
lýsingu á bjórnum á miðanum.
Mættu hin brugghúsin taka sér
það til fyrirmyndar.
Góður árangur á
öllum vígstöðvum
Niðurstaða smökkunar álits-
gjafa Bændablaðsins á jóla-
bjórnum frá brugghúsunum
þremur var því sú að öllum
brugghúsunum hefði tek-
ist vel upp. Reyktur
Bock frá Ölvisholti
fékk misjöfnustu dóm-
ana. Um helmingur
álitsgjafa var í skýj-
unum með bjórinn sem
væri sérstakur og vildi
einn álitsgjafi hrein-
lega skipa honum í sér-
flokk, hann væri í raun
ekki samanburðarhæfur
við hina tvo. Aðrir álits-
gjafar voru ekki alveg
jafn hrifnir en skildu
hvert verið væri að fara.
Niðurstaðan: Sérstakur
og eftirminnilegur jóla-
bjór sem hægt er að kol-
falla fyrir en er þó ekki
allra.
Jóla-Jökull þótti al-
mennt vera bestur til
drykkjar einn og sér. Hann
væri léttur og ferskur auk þess
sem hann ynni með yfirburðum
samkeppnina um bestu umbúð-
irnar. Þá þótti hann líklegastur til
að þóknast öllum sem
á annað borð drekka
bjór. Niðurstaðan:
Ferskur og þægileg-
ur jólabjór sem allir
ættu að geta fellt sig
við.
Jóla-Kaldi töldu
álitsgjafar að væri
heilt yfir besti jóla-
bjórinn, hann væri
hægt að drekka
með mat og einn-
ig einan sér. Þrátt
fyrir það væri
hann tilþrifamik-
ill jólabjór sem
væri til fyr-
i r m y n d a r .
„Þessi bragð-
ast betur
og betur
með hverj-
um sopa.
Þeir ættu
hins vegar
að skipta
um umbúð-
ir að ári.“
Niðurstaðan:
Sérlega vel
h e p p n a ð u r
jólabjór sem
fer vel í glasi
við öll tæki-
færi.
fr
Bændablaðið tekur út jólabjórinn frá Ölvisholti, Árskógssandi og Stykkishólmi
„Þennan væri hægt að
drekka úti í húsum“
Litlu brugghúsin gefa ekkert eftir í samkeppninni