Bændablaðið - 03.05.2012, Page 7
Bændablaðið | fimmtudagur 3. maí 2012 7
ins og tiltekið var í síðasta
vísnaþætti, verður nú fram-
haldið kveðskap frá hag-
yrðingakvöldi Karlakórs
Eyjafjarðar sem haldið var 4 apríl
sl. Þessi þáttur verður tileinkaður
vísum Einars Kolbeinssonar bónda
og framkv.stjóra í Bólstaðarhlíð.
Birgir Sveinbjörnsson, sem stýrði
samkomunni, var nýkominn úr
augnaðgerð mikilli, og var nokkuð
sjónskertur þetta kvöld. Einar kaus
þó að sjá kostina fremur en bágindi
Birgis:
Birgir karlinn blindur er,
sem bölvað talist getur,
en mildi Guðs í sjálfu sér
að sjá þó ekki Pétur.
Birgir hefur hætt að sjá,
sem honum telst að meini,
en hann þarf ekki að horfa á
hörmungina Reyni.
Og þegar Birgir spyr svo Einar hvað
hann hafi gert konu sinni til dags-
munar á konudaginn svarar Einar:
Stemmninguna stein- ég drap,
og stökk á ranga kosti,
er rétti ég henni af rausnarskap
ristað brauð með osti.
Fyrr í vetur höfðu tveir af
sonum Péturs Péturssonar og
Margrétar Kristjánsdóttur lokið
doktorsvörnum sínum í Svíþjóð.
Hófstilltur var fögnuður Einars
yfir þeim árangri:
Sýna dugnað synir tveir,
svona má verða fróður,
en augljóslega eiga þeir
ótrúlega móður.
Skáldagen úr móðurmjólk,
mótar sálu keika,
en það er sjaldan fallegt fólk
sem fær þann hæfileika.
Birgir spyr Einar út í kvikmyndina
um Bakka-Baldur, hvor hafi sýnt
meiri leikhæfni, stóðhesturinn
sjálfur eða Ármann dýralæknir
og fyrrverandi form. Karlakórs
Eyjafjarðar:
Samanburðinn síst ég skil,
þó sýndust brautir greiðar,
í hvorugum sá kosti til
kynbóta né reiðar.
Þegar Birgir spyr svo Einar um
mannlífið á Blönduósi, svarar
„masterinn“ af mikilli og eðlis-
lægri hógværð:
Mannlífið er mjög svo gott,
á meðan ég er nærri.
Mannlífið er miður gott,
á meðan ég er fjarri.
Þrátt fyrir ágætt andríki Einars, er
hann haldinn þeirri áráttuhegðun,
að huga lítið að undirbúningi fyrir
hagyrðingasamkomur þær sem
hann situr. Fer jafnan ekkert að
hugsa um yrkisefnin fyrr en haldið
er til samkomunnar. Tafsamt reyn-
ist honum að yrkja jafnframt því að
aka sjálfur bifreiðinni. Leiðin enda
ekki svo ýkja löng frá Bólstaðarhlíð
til Eyjafjarðar. Aðspurður kvaðst
Einar að kæmi sér betur ef ferða-
lagið væri ögn lengra:
Annaðhvort ég tek mér tak,
svo takist næsta glíma,
eða fer um Fjallabak
svo fái meiri tíma.
En skáldið áttar sig þó á, að tæp-
lega muni Fjallabak vænlegur
kostur á þessum árstíma, og hefur
því hratt á hæli:
Þó misjafnt sé hér mannaval,
og mætti það nú styrkja,
hendist ég um Hörgárdal
og hamast við að yrkja.
Umsjón: Árni Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Í umræðunni
MÆLT AF
MUNNI FRAM
E
Skeifudagur Grana:
Skagfirðingurinn Svala Guðmundsdóttir
sópaði að sér verðlaunum
Hinn árlegi Skeifudagur Grana
var haldinn hátíðlegur við
Landbúnaðarháskóla Íslands
sumardaginn fyrsta. Þessi dagur
er hátíðisdagur hestamanna þar
sem nemar skólans sýna árangur
vetrarins við tamningar og þjálfun.
Reiðkennararnir Haukur
Bjarnason og Randi Holaker á Skáney
hafa séð um kennsluna í vetur. Að
þessu sinni var það Skagfirðingurinn
Svala Guðmundsdóttir sem sópaði
að sér verðlaunum. Hlaut Svala
viðurkenningu Félags tamninga-
manna fyrir bestu ásetuna og
Morgunblaðsskeifuna fyrir saman-
lagðan árangur í þjálfun og tamn-
ingum auk Gunnarsbikarsins, en
hann er veittur í minningu Gunnars
Bjarnasonar þeim sem sigrar gang-
tegundakeppni nemenda.
Eiðfaxabikarinn fyrir bestan árang-
ur í bóklegum áfanga í hrossarækt
hlaut Hrafnhildur Tíbrá Halldórsdóttir
og Heiðrún Halldórsdóttir hlaut
Framfarabikarinn, sem veittur er í
minningu Reynis Aðalsteinssonar
fyrir bestu ástundun og framfarir í
reiðmennsku og þjálfun á námstím-
anum.
Að þessu sinni útskrifuðust einnig
um 60 nemar úr námskeiðsröðinni
Reiðmanninum. Útskriftarhóparnir
voru frá Sörlastöðum, Borgarnesi,
Akureyri, Iðavöllum og Flúðum. Þeir
sem kenndu verklega hluta námsins á
þessum stöðum í vetur voru Halldór
Guðjónsson, Heimir Gunnarsson,
Erlingur Ingvarsson, Reynir Örn
Pálmason og Ísleifur Jónasson.
Um bóklega kennslu sá Gunnar
Reynisson. Nemar í Reiðmanninum
taka þátt í Reynisbikarnum, sem
byggir á gæðingafimi og gangteg-
undakeppni. Um þrír frá hverjum hópi
taka þátt í undanúrslitum og loks er
riðið til úrslita á Skeifudegi. Að þessu
sinni var það Eyrún Jónasdóttir frá
Kálfholti II sem eftir mjög jafna og
spennandi keppni bar sigur úr býtum.
Við þetta tækifæri kom Kristinn
Bjarni Þorvaldsson frá Ásbirni
Ólafssyni ehf. og innflytjandi
Kerckhaert færandi hendi og gaf
Landbúnaðarháskólanum forláta
steðja, sem Ágúst Sigurðsson tók
á móti og þakkaði vel fyrir.
Dagurinn tókst í alla staði vel,
skinu bros af andlitum nema og
ekki síður áhorfenda, sem margir
hverjir höfðu haft heppnina með
sér og unnið folatolla í happdrætti
Hestamannafélagsins Grana. Óhætt
er að segja að góður árangur hafi
náðst á þessum bjarta og fallega
sumardegi.
Útskriftarnemar Reiðmannsins ásamt kennurum og umsjónaraðilum. Myndir / Kristín Jónsdóttir.
F.v. Hrafnhildur Tíbrá Halldórsdóttir, Svala Guðmundsdóttir og Heiðrún
Halldórsdóttir.
Svala Guðmundsdóttir með Gunnarsbikarinn.
Eyrún Jónasdóttir með Reynis-
bikarinn.
Hrossaræktarnemar ásamt kennurum, þeim Randi Holaker og Hauki Bjarnasyni.