Bændablaðið - 03.05.2012, Page 10
Bændablaðið | fimmtudagur 3. maí 201210
Fréttir
Handverkshátíðin á Hrafnagili og Búnaðarsamband Eyjafjarðar stilla saman strengi:
Vegleg handverks- og landbúnaðar-
sýning haldin í sumar
- Handverkshátíðin haldin í 20. sinn og Búnaðarsamband Eyjafjarðar fagnar 80 ára afmæli
Handverkshátíðin við Hrafna-
gilsskóla verður haldin í 20.
sinn á komandi sumri og
Búnaðarsamband Eyjafjarðar
fagnar 80 ára afmæli sínu á
árinu. Handverkshátíðin og
Búnaðarsambandið ætla af þessu
tilefni að stilla saman strengi
sína og halda upp á samtals 100
ára afmæli og verður af því til-
efni mikið um dýrðir á Hrafnagili
dagana 10.-13. ágúst 2012.
Undirbúningur að handverks-
og landbúnaðarsýningu er þegar
hafinn og gengur vel, en auk sýn-
inganna verður í boði fjöldi atriða
af ýmsum toga, öll verða þau þó
tengd þema hátíðarinnar sem er
handverk og landbúnaður.
Búist við fleiri heimsóknum
Ester Stefánsdóttir er framkvæmda-
stjóri Handverkshátíðarinnar og
hefur jafnframt landbúnaðarsýningu
BSE á sinni könnu. Hún segir að
Handverkshátíðin hafi í áranna rás
vaxið og dafnað og sé nú í hópi þeirra
hátíða sem laði til sín hvað mestan
fjölda fólks, af þeim sem haldnar eru
á landinu yfir sumarið. Heimsóknir
á hátíðina í fyrra voru þannig um
eða yfir 15 þúsund talsins og segir
Ester að búist sé við að enn fleiri
sæki hátíðina á komandi sumri. „Við
höfum á liðnum árum slegið hvert
metið á fætur öðru, það á bæði við
um fjölda sýnenda og heimsókna.
Nú verður enn meira um að vera hjá
okkur, hátíðin á 20 ára afmæli og
Búnaðarsambandið slæst í hópinn og
lífgar enn frekar upp á hátíðahöldin
með sínu framlagi,“ segir Ester.
Aldrei fleiri umsóknir
Handverkssýningin sjálf fer að
stórum hluta fram innandyra, á
um 500 fermetra stóru svæði í
Hrafnagilsskóla og á svæði framan
við það, en þar hefur á liðnum árum
verið komið upp stóru og veglegu
torgi þar sem sýnendur hafa aðstöðu í
tjöldum. Nú verður svæðið stækkað,
enda mun meira umleikis en áður og
verða tún sunnan við Hrafnagilsskóla
einnig nýtt undir landbúnaðarsýn-
ingu BSE.
Sýnendur á Handverkshátíðinni
í fyrra voru um 100 talsins og segir
Ester að fjöldi umsókna nú hafi verið
vel á annað hundrað. „Umsóknir
hafa aldrei verið fleiri en nú, það
er greinilegt að handverksfólk vill
vera með á þessari hátíð, kynna sig
og sína vöru,“ segir Ester en yfirferð
umsókna stendur nú yfir.
Gamlar og nýjar vélar
Vignir Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar,
segir að á landbúnaðarsýningunni
muni kenna margra grasa en þar
verði m.a. til sýnis vélar og tæki.
„Við verðum með það allra nýjasta á
markaðnum og eins geta gestir feng-
ið að berja augum gamla traktora og
aðrar vélar sem komu við sögu fyrr
á tímum,“ segir hann. Hollvinafélag
Búnaðarsögusafns Eyjafjarðarsveitar
tekur þátt í sýningarhaldinu, en
félagið á þó nokkuð af gömlum land-
búnaðartækjum sem það leggur til.
Að auki munu afurðasölufyrirtæki
kynna vörur sínar og hvetur Vignir þá
sem vilja vera með til að hafa sam-
band við fyrsta tækifæri. Ýmislegt
verður einnig til skemmtunar yfir
sýningarhelgina, meðal annars fer
hin árlega Ungbændakeppni Félags
ungra bænda fram á Hrafnagili
og félagar í Félagi ungra bænda í
Eyjafirði munu standa fyrir skemmti-
legum uppákomum.
Um 400 sjálfboðaliðar að störfum
Sigríður Bjarnadóttir, ráðunautur
hjá Búnaðarsambandinu, hefur
einnig tekið þátt í undirbúningi
sýningarinnar en hún er jafnframt
íbúi í Eyjafjarðarsveit. Hún segir að
Handverkshátíðin skipi stóran sess
í hugum íbúa sveitarfélagsins og
fjölmargir sjálfboðaliðar taki þátt
í sýningarhaldinu með einum eða
öðrum hætti. Alls taki 7 félög innan
sveitar virkan þátt; kvenfélög, ung-
mennafélagið, hestamannafélagið,
Lionsfélagar og hjálparsveitarfólk.
„Við gerum ráð fyrir að um 400 sjálf-
boðaliðar úr þessum félögum leggi
sín lóð á vogarskálina við ýmis störf
sem til falla og við koma sýningar-
haldinu. Það þarf að setja sýninguna
upp, taka hana niður, sinna gæslu á
meðan á henni stendur og þannig má
lengi telja,“ segir Sigríður. „Þessi
sýning er mikil lyftistöng fyrir
Eyjafjarðarsveit og mikill metnaður
fyrir því meðal íbúanna að standa
myndarlega að málum.“
/MÞÞ
Sunnlenski sveitadagurinn 5. maí á Selfossi:
Íslandsmeistaramót
í baggakasti
Jötunn Vélar og Vélaverkstæði
Þóris standa að sunnlenska
sveitadeginum laugardaginn 5.
maí á athafnasvæði fyrirtækj-
anna við Austurveginn á Selfossi.
Þennan dag gefst sunnlenskum
fyrirtækjum tækifæri á að kynna
fyrir gestum eigin framleiðslu og
þjónustu og er mikill áhugi fyrir
þessum degi meðal þeirra.
Í ár hafa rúmlega 50 aðilar ákveð-
ið að taka þátt. Áhugafólk um mat
á ekki að láta þessa hátíð fram
hjá sér fara því á staðnum verður
heilgrillað naut, lambakjöt, svína-
kjöt, mjólkurvörur, ís, sultur, lax,
grænmeti, brjóstsykur, karamellur,
kartöfluréttir og bjór svo eitthvað
sé nefnt. Á staðnum verða til sýnis
m.a. hestar, kálfar, kindur með lömb,
geitur, kanínur, hundar, skrautfuglar,
bréfdúfur, landnámshænur og mink-
ar. Leikararnir Jói G. og Gunni Helga
munu halda utan um dagskrána og
skemmta gestum. Boðið verður upp
á þrautabrautir fyrir börn, kynningu
á glímu, andlitsmálun og sýningu á
traktorum og landbúnaðartækjum. Þá
munu félagar í hestamannafélaginu
Sleipni gefa gestum kost á að fara
á hestbak. Þá verður í fyrsta sinn á
Íslandi efnt til Íslandsmeistaramóts
í baggakasti. Keppt verður í karla-
og kvennaflokki. Þau sem áhuga
hafa á að taka þátt eru vinsamlegast
beðin um að tilkynna það á net-
fangið gudmundur@jotunn.is eða
í síma 896-4368. Talið er að á milli
10 og12 þúsund manns hafi mætt á
sunnlenska sveitadaginn í fyrra.
/MHH
Finnbogi Magnússon, framkvæmdastjóri Jötuns Véla (t.v.) og Guðmundur
Þór Guðjónsson, fjármálastjóri fyrirtækisins, sem standa í ströngu við að
undirbúa sunnlenska sveitadaginn 5. maí. Dagskráin mun standa frá kl.
13:00 til 17:00. Mynd / MHH
BSE hvetur sveitarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu:
Varanleg lausn verði fundin
á förgun dýraleifa
Sveitarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu
eru hvött til þess að finna varan-
lega lausn á förgun dýraleifa, þar
sem til stendur að hætta brennslu
á Húsavík næsta haust. Þangað
hafa dýraleifar úr Eyjafirði verið
fluttar til brennslu undanfarin
misseri. Það er Búnaðarsamband
Eyjafjarðar sem hvetur sveitar-
félögin til þessa, en ályktun þess
efnis var samþykkt á aðalfundi
sambandsins sem haldinn var í
apríl.
Þá samþykkti fundurinn ályktun
þar sem mótmælt er harðlega per-
sónulegum spurningum sem koma
fram við framkvæmd fóðureftirlits
og eins var því beint til MAST að
samræma fóðureftirlit, fjósaskoðanir
og búfjáreftirlit þannig að hægt sé að
sinna því öllu í einni ferð. Stjórnvöld
voru hvött til þess að lækka álögur
á eldsneyti, en hækkandi verð á því
er nú orðið verulega íþyngjandi
vegna flutnings- og ferðakostnaðar
í dreifbýli. „Skattlagningin er orðin
umtalsvert hærri en til stóð vegna
hækkunar á innkaupsverði,“ segir í
ályktun frá fundinum.
Þá má nefna að samþykkt
var ályktun þar sem stjórnendur
Landbúnaðarháskóla Íslands eru
hvattir til að sinna betur tilrauna-
og rannsóknastarfi í nautgriparækt.
„Ef ekki verður brugðist hratt við
er hætta á að margs konar fagþekk-
ing í greininni glatist og erfitt
verði að byggja þekkinguna upp
aftur. Jafnframt skorar fundurinn á
menntamálaráðherra og Alþingi að
leysa fjárhagsvanda skólans.“
Fundurinn beindi því til sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra að
fjölga markaðsdögum með greiðslu-
mark mjólkur og þá var því beint
til stjórnar Bændasamtaka Íslands
að tillögur um ráðgjafarþjónustu í
landbúnaði, sem samþykktar voru
á liðnu Búnaðarþingi, verði unnar í
góðu samstarfi við LbhÍ og stjórnir
og ráðunauta ráðgjafarmiðstöðv-
anna. „Grunnur ráðgjafarinnar er
það fagfólk sem við hana vinnur. Ef
störfin eiga að verða eftirsóknarverð
og skila þeim árangri sem krafa er
um, er mikilvægt að ekki skapist
tortryggni og vantraust við þá endur-
skipulagningu sem unnið er að,“
segir í ályktun.
/MÞÞ
af gerðinni Deutz, sem ætlunin er að sýna á handverkshátíðinni á Hrafnagili í sumar.
Guðmundur Örn Ólafsson eldsmiður að störfum á Handverkshátíðinni í
fyrrasumar.