Bændablaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | fimmtudagur 3. maí 2012
1 2
8 3
5 4 2 6 8
4 7 8
9 8 6
3 6 7 5 9
5
1 2
4 9 6
9 4
8 1 7
9 7 2
4 3 8
7 6 4
2 5
5 3 1
2 3 5 9
8 1
7 6 8
5 7
8 6 4
2 8 6 4
2 1 4 5
9
8 3
53
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn ar.
Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar
í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki
innan hvers reits sem afmarkaður er
af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem
er lengst til vinstri er léttust og sú til
hægri þyngst en sú í miðjunni þar á
milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni www.
sudoku2.com og þar er einnig að finna
fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir
ekki.
1
Hildur Björg Jónsdóttir verður 11
ára gömul núna í maí og gengur í
skóla er nefnist Dorfmatt, sem er
í bænum Baar í Sviss. Þar er hún
búsett með fjölskyldu sinni vegna
starfa föður síns og líkar vel, en í
sumar ætla þau að koma í heimsókn
til Íslands.
Nafn: Hildur Björg Jónsdóttir.
Aldur: 10 ára, verð 11 ára í maí.
Stjörnumerki: Naut.
Búseta: Ég bý í litlum bæ sem heitir
Baar í Sviss.
Skóli: Dorfmatt.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Þýska.
Hvert er uppáhalds dýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Hamborgari.
Uppáhaldshljómsveit: Engin, en
Adele er uppáhaldssöngkonan mín.
Uppáhaldskvikmynd: Aleinn
Fyrsta minningin þín? Þegar ég
fór í fyrsta balletttímann minn
þriggja ára
Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi sund og byrja
að læra á fiðlu í haust.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Að vera í leikjum.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Myndlistarkona.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Að fara í rússíbana í
Legolandi, sem er í Þýskalandi.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Að gera ekki neitt.
Ætlar þú að gera eitthvað sér-
stakt í sumar? Já, við ætlum að
fara til Íslands.
/ehg
Slaufur
– fyrir dömur og herra
PRJÓNAHORNIÐ
Efni:
Whistler frá garn.is – 1 dokka af rauðu og 1
dokka af svörtu.
Whistler er til í 7 fallegum litum.
Prjónar
Sokkaprjónar nr. 4.
Dömuslaufa – í hárið eða sem hálsmen:
Fitjið upp 14L á sokkaprjóna nr. 4. Prjónið
fyrstu umf. brugðna. Prjónið svo slétt á rétt-
unni, brugðið á röngunni uns stykki mælist um
16 cm, fellið þá af. Leggið stykkið þá saman til
helminga og saumið endana saman.
Miðjuband: Fitjið upp 5L á prjóna nr. 4 og prjónið
fyrstu umf. brugðna. Prjónið svo slétt á réttunni,
brugðið á röngunni uns stykki mælist um 6 cm,
fellið þá af. Saumið þá bandið saman utan um
miðjuna á stóra stykkinu. Gott er að láta bandið
fela sauminn á stóra stykkinu. Lagið til og gangið
frá endum.
Hægt er að festa slaufuna á spöng eða prjóna
hárband eins og lýst er hér fyrir neðan. Einnig
er hægt að festa slaufuna á keðju og nota sem
hálsmen.
Hárband: Fitjið upp 4L á prjóna nr. 4 og prjónið
fyrstu umf. brugðna. Prjónið svo slétt á réttunni,
brugðið á röngunni uns stykki mælist um 43 cm
(eða sem passar höfuðstærð þess sem prjónað
er á), fellið þá af. Stingið svo bandinu í gegnum
miðjubandið á slaufunni, dragið í gegn til hálfs
og saumið endana á því saman.
Herraslaufa:
Fitjið upp 14L á prjóna nr. 4. Prjónið fyrstu umf.
brugðna. Prjónið svo slétt á réttunni, brugðið
á röngunni uns stykki mælist um 10 cm, fellið
þá af.
Miðjuband: Fitjið upp 3L á prjóna nr. 4 og prjónið
fyrstu umf. brugðna. Prjónið svo slétt á réttunni,
brugðið á röngunni uns stykki mælist um 3,5 cm,
fellið þá af. Saumið svo bandið utan um miðjuna
á stóra stykkinu. Lagið til og gangið frá endum.
Hálsband: Fitjið upp 4L á prjóna nr. 4 og prjónið
fyrstu umf. brugðna. Prjónið svo slétt á réttunni,
brugðið á röngunni uns stykki mælist um 31 cm
(eða sem passar við háls þess sem prjónað er á),
fellið svo af. Heklið svo lítið hnappagat á annan
endann og festið litla tölu á hinn.
Dýrfinna Guðmundsdóttir
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Fór í rosa rússíbana í Legolandi
9
Bókabás
Ljósmyndabókin Aðventa á
Fjöllum eftir Sigurjón Pétursson
og Þóru Hrönn Njálsdóttur kom út
nýverið en þar sækja höfundarnir
innblástur til Aðventu, hinnar
ódauðlegu skáldsögu Gunnars
Gunnarssonar, sem byggir á
eftirleitarferðum Benedikts
Sigurjónssonar, Fjalla-Bensa, á
þriðja áratug síðustu aldar.
Ljósmyndirnar sem prýða Aðventu
á Fjöllum eru afrakstur níu vetrar-
ferða Sigurjóns og Þóru Hrannar
um sögusviðið á Mývatnsöræfum
en þær eru teknar á tímabilinu sept-
ember 2010 til mars 2011. Svæðið
markast í vestri af Mývatni, í austri
af Grímsstöðum á Fjöllum, í norðri af
Dettifossi og í suðri af Grafarlandaá.
Um stóran hluta þessa svæðis fór
Fjalla-Bensi í sinni frægu eftirleit árið
1925, sem varð kveikjan að Aðventu
og hafði hann bækistöð í Sæluhúsinu
við Jökulsá á Fjöllum. Í bókinni er
fléttað saman íslenskum bókmennta-
arfi, vetrarnáttúru og heimildum um
sögulegar minjar þjóðarinnar. Bókin
kemur út á íslensku, ensku og þýsku.
Sótt í bókmenntaarfinn
og náttúruna
3