Fréttablaðið - 02.02.2012, Qupperneq 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup júlí - september 2011
Fimmtudagur
skoðun 18
SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
POPP
2. febrúar 2012
28. tölublað 12. árgangur
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Afturhvarf til fortíðar Áhrifa frá þriðja og
sjöunda áratugnum mun gæta í tískunni í ár. Á
sjöunda áratugnum voru kringlótt gleraugu og
bjartir litir áberandi en einkennandi fyrir þann
þriðja eru hnésíð pils og kjólar.
Lúka Art & Design er í hópi hönnuða sem valdir voru á sýninguna CPH Vision á tískuvikunni í Köben.
O kkur var boðið að taka þátt í CPH Vision en það er tískusýning innan tísku-vikunnar í Kaupmanna-höfn. Hönnuðir eru sérstaklega valdir inn á þá sýningu og frábært að vera í hópi þeirra sem boðið er að taka þátt,“ sagði Brynhildur Þórðardóttir fatahönnuður þegar Fréttablaðið náði af henni tali í vikunni.
Brynhildur rekur fyrirtækið Lúka Art & Design ásamt manni sínum Rúnari Leifssyni en hún stofnaði það fyrir nokkrum árum ásamt systur sinni, Gunnhildi, utan
um hönnun þeirra á munstruðum prjónafatnaði. Eftir að Gunnhildur
sneri sér að öðru á síðasta ári hefur
Brynhildur alfarið séð um hönnunina.
„Áherslur hafa breyst. Í línunni eru
ekki lengur bara peysur og yfirhafnir
heldur hef ég bætt við pilsum og kjól-
um, buxum og fleiru.
Frábært að komast að
2
40% afsláttur af völdum HOMEDICS vörumRýmingarsala
Verslaðu á vefnum Frí sending að 20 kg 1 árs skilaréttur
Opið kl. 9 -18 laugardaga kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 569 3100 eirberg.is
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.10-14 laugardaga
DÝRÐLEGUR AÐHALDSKJÓLL
Teg SLIMDRESS
- stærðir
B, C, D skálar
á kr. 12.850
TÓNLISTARBLAÐ • 2. FEBRÚAR 2012
Opið
til
21
í kvö
ld
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
0
19
5
Lokahelgin
Götumarkaður
og ótrúlegt verð!
Læknar sig sjálfur
Arnar Pétursson prufar
hráfæði til vinna bug á
Crohns-sjúkdómnum.
lífstíll 46
FÓLK Já hefur látið hanna og
framleiða límmiða til að líma á
forsíðu símaskrár síðasta árs.
Á forsíðunni er mynd af Agli
Einarssyni og fimleikastúlkum
í Gerplu. Tilgangur límmiðanna
er að gera fólki kleift að líma yfir
Egil Einarsson. „Við höfum útbú-
ið tvær tegundir af límmiðum
fyrir þá sem þess óska,“ staðfest-
ir Guðrún María Guðmundsdótt-
ir, ritstjóri og sviðsstjóri hjá Já.
Egill hefur verið kærður í
tvígang fyrir kynferðisbrot á
síðustu mánuðum en niðurstaða í
málunum liggur ekki fyrir.
- áp / sjá síðu 54
Límmiðar á forsíðu símaskrár:
Hægt að hylja
mynd af Agli
SÍMASKRÁIN Viðskiptavinir geta valið á
milli tvenns konar límmiða.
Daufur markaður
Stóru félögin í Englandi
höfðu hægt um sig í janúar
vegna nýrra reglna.
sport 50
STÍF SA-ÁTT Í dag má búast við
strekkingi eða allhvössum vindi S-
og V-til, horfur á rigningu sunn-
anlands og þykknar upp V-til og
SA-lands er líður á daginn. Hægur
vindur og úrkomulítið N-til.
VEÐUR 4
4
0
0
1
4
LÖGREGLUMÁL Lögregla hefur ekki
heimildir til að fylgjast með því
hvort menn séu að sanka að sér
efnivið í sprengju, svo sem áburði
eða eldsneyti. Til þess að unnt sé að
kanna slíkt þarf ábending að berast
um grunsamlegt athæfi.
Frumvarp um forvirkar rann-
sóknarheimildir til handa lögreglu
hefur verið kynnt í ríkisstjórn og
er nú til meðferðar í þingflokkum
stjórnarflokkanna. Ögmundur Jón-
asson sagðist á Alþingi í síðustu
viku leggja áherslu á að flýta fram-
lagningu þess.
Lögregla hefur margsinnis látið
í ljósi það mat sitt að slíkar heim-
ildir skorti til að unnt sé að taka af
festu á skipulagðri glæpastarfsemi
og kanna möguleika á hryðjuverk-
um hér á landi.
Reyndar hefur ekki verið fjallað
sérstaklega um hættuna af hryðju-
verkum á Íslandi opinberlega síðan
greiningardeild Ríkislögreglu-
stjóra birti hættumat sitt árið 2008.
Hættustigið var þá metið lágt, en
ítrekað að rannsóknarheimildir
skorti.
„Möguleikar lögreglunnar á
Íslandi til þess að fyrirbyggja
hryðjuverk eru því ekki þeir sömu
og á hinum Norðurlöndunum. Þessu
fylgir einnig að lögreglan hérlendis
hefur mun takmarkaðri upplýsing-
ar um mögulega ógn eða hættulega
einstaklinga, sem kunna að fremja
hryðjuverk,“ sagði í hættumatinu.
Slíkar heimildir duga þó ekki í
öllum tilvikum. Þannig gat norski
fjöldamorðinginn Anders Breivik
keypt mikið magn af áburði án
þess að það vekti grunsemdir þar-
lendra yfirvalda undir því yfir-
skini að hann stundaði búskap.
Þá hefur einnig verið bent á að
eftirliti með sprengiefni á borð við
dínamít sé ábótavant. Dæmi eru
um að því hafi verið stolið í stórum
stíl af verktökum án þess að það
uppgötvist strax.
Rannsókn lögreglu á sprengingu
í Hverfisgötu á miðvikudag stend-
ur enn. Í gærkvöldi hafði enn eng-
inn verið handtekinn vegna máls-
ins.
- sh / sjá síðu 6
Ekki hægt að fylgjast
með sprengjusmiðum
Lögregla getur erfiðlega fylgst með því hvort einhver sé að smíða sér sprengju.
Hefur ítrekað kallað eftir forvirkum rannsóknarheimildum. Frumvarp um þær
er til umræðu hjá stjórnarflokkum. Sprengjumaður gekk enn laus í gærkvöldi.
VIRKJANIR Orkustofnun getur nú
hafið á ný útgáfu rannsóknar-
leyfa vegna fyrirhugaðra vatns-
afls- og jarðvarmavirkjana á
svæðum sem verkefnisstjórn um
rammaáætlun hefur fjallað um.
Iðnaðarráðherra beindi þeim
fyrirmælum til stofnunarinnar í
júlí á síðasta ári að útgáfu slíkra
leyfa yrði frestað til 1. febrúar
2012.
Guðni A. Jóhannesson orku-
málastjóri segir að Orkustofnun
muni auðvitað taka allar umsókn-
ir til skoðunar nú þegar frestur-
inn sé liðinn.
Hann á hins
vegar ekki von
á því að hol-
skefla umsókna
berist í kjölfar-
ið.
„Við höfum
séð það af þeim
leyfum sem
við gáfum út
áður en þessi
fyrir mæli voru gefin. Þeir aðil-
ar hafa ekki viljað nýta þau fyrr
en rammaáætlunin liggur fyrir.
Það er því enginn þrýstingur á
okkur en við munum vitaskuld
sinna þeim umsóknum sem til
okkar berast á þeim hraða sem
málshraðaregla og annað býður,“
segir Guðni.
Þá bendir hann á að verði þings-
ályktunartillagan samþykkt feli
það um leið í sér samþykkt laga um
rammaáætlun. „Þá verður grund-
völlur rannsóknarleyfa í raun og
veru allt annar. Það verða þá til
staðar miklar takmarkanir á rann-
sóknum eftir því í hvaða flokki
svæði lenda,“ segir Guðni. - mþl
Útgáfa Orkustofnunar á rannsóknarleyfum vegna virkjana ekki lengur takmörkuð:
Rannsóknarleyfi til boða á ný
GUÐNI A.
JÓHANNESSON
NÝ GÖNGUBRÚ Í MOSFELLSBÆ Smíði á göngubrú í Mosfellsbæ gengur vel. Brúin mun
tengja saman Krikahverfi og miðbæinn. Framkvæmdirnar hófust í október og samkvæmt upplýsingum frá skrif-
stofum Mosfellsbæjar er áætlað að klára þær í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vöggugjöf
„Börn, strax frá fæðingu,
elska bækur, sögur, vísur og
rím. Lestur gefur börnum
kost á nærveru,“ segir
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir.
í dag 19
STJÓRNMÁL Slitnað hefur upp úr
meirihlutaviðræðum Sjálfstæðis-
flokks, Samfylkingar og Vinstri
grænna í Kópavogi. Varð þetta
niður staðan eftir fund oddvita
flokkanna í gærkvöldi. Guðríður
Arnardóttir, oddviti Samfylkingar-
innar, staðfesti þetta í gærkvöldi.
„Við erum búin að vera að þreifa
fyrir okkur í nokkuð marga daga
um mögulegan samstarfsflöt og
það varð fullreynt í dag [í gær],“
segir Guðríður og bætir við að þótt
talsvert beri í milli málefnalega
hafi það ekki verið óbrúanlegt.
Sjálfstæðisflokkur hafi hins vegar
mætt klofinn til viðræðnanna og
undir þeim kringumstæðum væri
ekki grundvöllur fyrir samstarfi.
Ekki náðist í Ármann Kr. Ólafs-
son, oddvita Sjálfstæðisflokksins,
og Ólaf Þór Gunnarsson, oddvita
Vinstri grænna, í gærkvöldi vegna
málsins. - mþl
Slitnað upp úr viðræðum:
Viðræðum lok-
ið í Kópavogi