Fréttablaðið - 02.02.2012, Page 12
2. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR12 12
hagur heimilanna
HEIMILI töldu sig eiga mjög erfitt með að ná endum saman fjárhagslega
í fyrra. Á árinu 2007 töldu forráðamenn 6.500 heimila það sama. Fjölgun
heimila í þessum flokki var þannig 148 prósent á fjórum árum.
16.100
Hárlitunarefni geta valdið
alvarlegum ofnæmisvið-
brögðum. Í Bretlandi lést
nýlega táningsstúlka 20
mínútum eftir að hún lit-
aði á sér hárið heima hjá
sér, að því er breskir fjöl-
miðlar hafa greint frá. Talið
er að hún hafi látist vegna
ofnæmisviðbragða við
efnum í litnum. Hér á landi
gilda sömu reglur og innan
Evrópusambandsins, ESB,
um efni í hárlit og á viðvör-
un að vera á umbúðum eða
í leiðbeiningum sem fylgja
litnum.
Dönsk rannsókn á 229 efnum í hár-
litunarvörum leiddi í ljós að 75 pró-
sent þeirra gátu valdið miklum eða
talsverðum ofnæmisviðbrögðum.
Þetta kom fram í umfjöllun sænska
blaðsins Råd & Rön sem jafnframt
greindi frá því að vísindanefnd um
snyrtivörur innan ESB hefði kom-
ist að því að tíu efni í hárlitunar-
vörum gætu valdið mjög miklum
ofnæmisviðbrögðum, þrettán mikl-
um ofnæmisviðbrögðum og fjögur
talsverðum ofnæmisviðbrögðum.
Meðal þeirra efna í hárlit sem
valda mestum ofnæmisviðbrögðum
er efnið paraphenyldiamin (PPD).
Samkvæmt fréttum í sænskum
fjölmiðlum var PPD bannað í Sví-
þjóð, Þýskalandi og Frakklandi en
var leyft á ný í Svíþjóð þegar Svíar
gengu í Evrópusambandið.
Sigríður Kristjánsdóttir, deild-
arstjóri á deild hollustuverndar
hjá Umhverfisstofnun, segir sömu
reglur gilda hér um efni í hárlit og
gilda innan ESB. Sérstök viðvör-
unarmerking á að vera á tilteknum
hárlitunarvörum um að hárlitunar-
efni geti valdið alvarlegum ofnæm-
isviðbrögðum. Einnig að varan sé
ekki ætluð fyrir fólk undir 16 ára
aldri. Varað er við því að skamm-
tíma „svart henna“ húðflúr geti
aukið hættu á ofnæmi.
Margir framleiðendur hárlitun-
arvara mæla með því að viðskipta-
vinurinn kanni sjálfur hvort hann
hafi ofnæmi fyrir vörunni með
því að setja hana á húðina áður en
hún er sett í hárið. Bíða eigi í 48
klukkustundir eftir mögulegum
viðbrögðum.
Råd & Rön vitnar í ummæli vís-
indanefndarinnar um að þar sem
ekki sé hægt að geyma blönduna
verði viðskiptavinirnir að kaupa
tvær pakkningar. Líklegt sé að
fæstir geri það. Vísindanefndin
segir einnig að neikvæð niður-
staða segi ekkert til um hættuna á
ofnæmisviðbrögðum við hárlitun. Í
besta falli komi í ljós hvort viðkom-
andi hafi þegar verið með ofnæmi.
Á vef breska blaðsins The
Guardian, sem fjallaði um and-
lát bresku unglingsstúlkunnar
Tabatha McCourt eftir hárlitun,
segir að PPD sé í yfir 99 prósent-
um allra fastra hárlitunarvara. Það
sé það efni sem best liti grá hár svo
vitað sé.
Fréttavefir The Guardian og
BBC greina einnig frá alvarlegum
veikindum Julie McCabe sem átti
í erfiðleikum með að anda eftir að
hafa litað á sér hárið með Ĺ Oreal
preference hárlit sem hún hafði
notað oft áður. Hjarta hennar hætti
að slá á leiðinni á sjúkrahús en hún
var endurlífguð. Samkvæmt frétt-
inni töldu læknar ekki miklar líkur
á að hún myndi ná sér að fullu.
ibs@frettabladid.is
Alvarleg ofnæmisviðbrögð
af hárlitunarvörum
HÁRLITUNAREFNI Sérstök viðvörunarmerking á að vera á tilteknum hárlitunarvörum
um að efnin geti valdið alvarlegum ofnæmisviðbrögðum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Öll apótek á landinu geta nú fengið upplýsingar rafrænt
um hvort einstaklingar hafi lyfjaskírteini auk annarra
réttinda. Hætt verður útgáfu skírteinanna á pappír 10.
febrúar nk. Á vef Sjúkratrygginga Íslands er bent á að
einstaklingar geti sjálfir séð upplýsingar um sitt lyfja-
skírteini í Réttindagátt (mínar síður á www.sjukra.is).
Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta haft samband
við lyfjadeild Sjúkratrygginga Íslands eða við sitt apótek.
Lyfjaskírteini auka greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga
Íslands í lyfjakostnaði umfram almennar reglur og eru
þau gefin út á grundvelli læknisfræðilegs mats.
■ Lyfjakaup
Öll apótek geta sótt
réttindastöðu við lyfjakaup
Þeir sem kveikja í sígarettu á strönd-
inni í Puerto de Mogán á Gran Can-
aria þurfa nú að greiða 450 evrur í
sekt sem samsvarar rétt rúmlega 70
þúsundum íslenskra króna. Greint
er frá reykbanninu í blaði staðarins,
La Provincia, að því er segir í frétt
á vef danska ríkisútvarpsins. Danir
hafa fjölmennt til Puerto de Mogán
en sölumenn sólarferða þangað ótt-
ast ekki að ferðum Dana til bæjarins
fækki. Reykbann hefur verið í mörg
ár á baðströndum í Kaliforníu í
Bandaríkjunum.
■ Ferðalög
Reykingar bannaðar á vinsælli sólarströnd
Aðstoðarbeiðnum til Félags
íslenskra bifreiðaeigenda vegna
eldsneytisleysis fjölgaði gríðarlega
í vetrarbyrjun, að því er segir á vef
félagsins. Bent er á að aldrei sé gott
að keyra tankinn út þar sem í hann
berist með tímanum margs konar
óhreinindi sem safnist upp á botn-
inum. Bæði sé um að ræða óhrein-
indi sem koma úr eldsneytinu
sjálfu og eins utan frá auk alls kyns
útfellinga. Um leið og viðvörunar-
ljósið um að fylla þurfi á tankinn
kviknar byrjar dælubúnaðurinn að
sjúga upp eldsneyti neðar en áður.
Þar með eykst hættan á að upp sogist vatn, sandur og annað óæskilegt. Það
getur borist inn í eldsneytiskerfið og skemmt. Einnig geta óhreinindin skemmt
ýmsa dýra hluti, eins og til dæmis spíssa. Fjölmörg dæmi eru um slíkt, að því er
segir á vefnum.
■ Akstur
Aldrei gott að keyra eldsneytistankinn út
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn félagsins eftir einstaklingsframboðum í stjórn
félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð.
Um er að ræða annars vegar einstaklingskosningu til sjö sæta í stjórn og þriggja til vara og
hins vegar listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð. Skrifleg meðmæli 15 félagsmanna þarf
vegna einstaklingsframboðs til stjórnar. Til að listi sem borinn er fram gegn lista Uppstillingar-
nefndar sé löglega fram borinn þarf skrifleg meðmæli 300 félagsmanna sem og skriflegt
samþykki frambjóðenda á listanum.
Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 16. febrúar 2012. Framboðum og
framboðslistum skal skila á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.
Frambjóðendum er bent á heimasíðu VR, www.vr.is, þar sem eyðublöð vegna framboða eru
aðgengileg og ítarlegari upplýsingar birtar um framboð bæði til stjórnar og trúnaðarráðs.
Kjörstjórn VR veitir einnig frekari upplýsingar í síma 510 1700 eða með tölvupósti til
kjorstjorn@vr.is.
2. febrúar 2012
Kjörstjórn VR
Hefur þú áhuga á að
starfa í forystu VR?
GÓÐ HÚSRÁÐ
Brunalykt
Laukur er til margs nýtur
Hver kannast ekki við að hafa
gleymt einhverju í potti, með
þeim afleiðingum að steiking
hefst á einhverju sem upphaflega
átti að sjóða. Í sannleika sagt er
steiking ekki rétta orðið yfir það
þegar eitthvað brennur við með
tilheyrandi ólykt (svo ekki sé talað
um líkurnar á að kveikja í húsinu)
en við því má bregðast.
Þeim sem í þessu lenda, og
þurfa ekki að kaupa nýja eld-
húsinnréttingu, hefur verið á það
bent á veraldarvefnum að losna
megi við ólykt með því einu að
skera niður lauk og láta hann
standa í nokkra
klukkutíma í
eldhúsinu.
Þetta
svínvirkar
víst.