Fréttablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 16
2. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR16
Umsjón: nánar á visir.is
Sjóður í umsjón Stefnis klauf sig
á mánudag út úr Búvallahópnum,
sem keypti kjölfestuhlut í smá-
sölurisanum Högum snemma
árs 2011. Eftir viðskiptin er hlut-
ur Búvalla, sem um tíma hélt á
44% hlut, orðinn 12,73%. Félagið
er því ekki lengur stærsti ein-
staki eigandi Haga heldur Eigna-
bjarg, dótturfélag Arion banka,
sem á um 20% hlut. Árni Hauks-
son, stjórnarmaður í Búvöllum og
stjórnarformaður Haga, segir hið
endanlega markmið vera að hver
og einn aðili sem stóð að Búvalla-
hópnum haldi beint á sínum eign-
arhlut. Sjóðurinn, sem heitir
Stefnir íslenski athafnasjóðurinn
1 (SÍA), er undir stjórn Stefnis,
sjóðstýringarfyrirtækis í eigu
Arion banka.
Búvellir keyptu 34% hlut í
Högum í febrúar 2011 og bætti
10% hlut við í nóvember sama
ár, skömmu áður en félagið var
skráð á markað. Fyrir þann eign-
arhlut greiddu Búvellir 5,4 millj-
arða króna. Miðað við gengið á
viðskiptunum í fyrradag er virði
hans nú rúmlega 8,8 milljarðar
króna. Það hefur því aukist um
3,4 milljarða króna á innan við
einu ári.
Upphaflega var Búvallahóp-
urinn settur saman af Stefni. Í
honum voru þá Hagamelur ehf.
(í eigu Árna Haukssonar, Hall-
björns Karlssonar, Sigurbjörns
Þorkelssonar og TM), nokkrir líf-
eyrissjóðir, SÍA og annar sjóður
sem lúta stjórn Stefnis, Miranda
ehf. (í eigu Berglindar Jónsdótt-
ur) og Draupnir fjárfestingafélag
(í eigu Jóns Diðriks Jónssonar).
Lífeyrissjóðirnir klufu sig út úr
Búvöllum um miðjan nóvember
og leystu beint til sín um helm-
ing þess eignarhlutar sem félagið
hélt á í Högum. Nú hefur SÍA
einnig klofið sig út úr hópnum og
mun í kjölfarið halda á um 8,2%
hlut í eigin nafni. Innan Búvalla
eru eftir Hagamelur, Miranda
og Draupnir sem samanlagt eiga
12,7% eignarhlut. Þar af á Haga-
melur 10,7% hlutabréfa í Högum.
Samkvæmt samkomulagi sem
Eignabjarg og Búvellir gerðu
með sér um gagnkvæmar sölu-
hömlur verður Eignabjarg að
halda á 19% hlut og Búvellir á
Enn kvarnast úr
Búvallahópnum
Dótturfélag Arion banka er aftur orðið stærsti einstaki eigandi Haga. SÍA og líf-
eyrissjóðir farnir út úr Búvallahópnum. Endanlegt markmið að hver aðili innan
hans haldi á hlut sínum í eigin nafni. Arion þarf að selja eftir mánuð.
MATVARA Hagar eiga meðal annars Bónus, langstærstu matvöruverslunarkeðju
landsins. Bónus er ein og sér með 40% markaðshlutdeild á dagvörumarkaði.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hagar skiluðu árshlutauppgjöri sínu fyrir helgi, því fyrsta síðan félagið
var sett á markað. Þar kom fram að samstæðan hefði hagnast um 1,9
milljarða króna frá 1. mars til loka nóvember 2011. Eigið fé hennar er 5,7
milljarðar króna. Félagið seldi vörur fyrir 49,9 milljarða króna á tímabilinu
og jókst salan um 4,9% á milli ára að teknu tilliti til brotthvarfs á rekstri
10-11 út úr samstæðunni.
Samkvæmt nýrri skýrslu Samkeppniseftirlitsins eru Hagar, sem reka m.a.
Bónus og Hagkaup, með 53% hlutdeild á dagvörumarkaði. Samstæðan
er því sú langstærsta innan hans á Íslandi. Þegar horft er einvörðungu til
höfuðborgarsvæðisins er markaðshlutdeild Haga um 60%. Félagið hefur
staðfesta markaðsráðandi stöðu í skilningi samkeppnislaga.
Hagar með rúmlega helmingshlutdeild
12% hlut út febrúarmánuð. Í
skráningarlýsingu Haga kom
fram að Fjármála- og Samkeppn-
iseftirlitið hefðu gert Eigna-
bjargi, eða Arion banka, skylt að
selja hlutafjáreign sína í Högum
í síðasta lagi 1. mars 2012.
Spurður um hvort það komi til
greina að þeir þrír aðilar sem
eftir eru innan Búvalla taki hver
sinn hlut og leysi félagið end-
anlega upp segir Árni það ekki
liggja formlega fyrir. „Hið end-
anlega markmið er að hver og
einn haldi á sínum hlut og að
eignaraðildin sé sem allra dreifð-
ust. Markmiðið er að hafa eign-
arhaldið á Högum sem dreifðast.
Þetta á að vera alvöru almenn-
ingshlutafélag. Það er hið eina
rétta eignarhald á Högum.“
thordur@frettabladid.is
Af þeim 86 stjórnarmönnum fjár-
málafyrirtækja, vátryggingafélaga
og lífeyrissjóða sem ráðgjafarnefnd
Fjármálaeftirlitsins (FME) hefur
hæfismetið stóðust 27 ekki matið
í fyrstu tilraun. Í ellefu tilvikum
hefur það gerst að stjórnarmenn
hafa sagt sig úr stjórn áður en þeir
áttu að koma í hæfismat hjá eftir-
litinu. Þetta kemur fram í upplýs-
ingum frá FME.
Alls hafa 59 þeirra sem komið
hafa í hæfismat staðist það, eða tæp-
lega 69%. Af þeim 27 sem stóðust
það ekki hafa 17 endurtekið hæfis-
matið og fimm til viðbótar hafa
bókað viðtöl í febrúar. Tveir stóðust
ekki hæfismatið í annarri tilraun.
Raðgjafanefndina skipa Jón Sig-
urðsson, rekstarhagfræðingur
sem er formaður, Einar Guðbjarts-
son, dósent við viðskiptafræðideild
Háskóla Íslands, og Rúnar Guð-
mundsson frá FME. Hún var stofn-
uð í byrjun árs 2010 og á að stuðla
að bættu og hertu eftirliti með því
að hæfisskilyrði um stjórnarmenn
eftirlitsskyldra aðila séu uppfyllt.
Hlutverk hennar er ekki síður að
tryggja að stjórnarmenn séu vel
meðvitaðir um hvaða þekkingar sé
krafist og hvað felist í ábyrgð sem
fylgir stjórnarstörfum. - þsj
Ellefu stjórnarmenn hættu áður en þeir voru metnir:
Um þriðjungur stóðst
ekki hæfismat FME
RÁÐGJAFANEFND Jón Sigurðsson,
fyrrum seðlabankastjóri og formaður
Framsóknarflokksins, er formaður
nefndarinnar sem metur hæfi stjórnar-
manna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ársverðbólga á evrusvæðinu í janú-
ar var 2,7% og hélst óbreytt frá því
í desember. Þetta kemur fram í
nýjum verðbólgutölum sem Euro-
stat, hagstofa Evrópusambandsins,
birti í gær.
Ársverðbólga á Íslandi á sama
tíma mælist 6,5% og jókst umtals-
vert frá desembermánuði þegar
hún var 5,3%. Helstu ástæður
verðbólgu aukningarinnar voru
gjaldskrárhækkanir á opinberri
þjónustu og hækkandi verð á elds-
neyti, áfengi og tóbaki. Þróun verð-
bólgu hérlendis er að mestu í sam-
ræmi við þá spá sem Seðlabanki
Íslands setti fram í nóvemberútgáfu
Peningamála.
Verðbólga í Bandaríkjunum var
3% í desember 2011, sem eru nýj-
ustu aðgengilegu tölur. Í Bretlandi,
stærsta Evrópusambandslandinu
sem stendur utan við evrusamstarf-
ið, var verðbólgan 4% í janúar.
Verðbólga á evrusvæðinu stóð í stað mili mánaða:
Mun minni verðbólga
í Evrópu en á Íslandi
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
STÖÐUG Ársverðbólga
innan evrusvæðisins
er lægri en í Bandaríkj-
unum og Bretlandi.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Sparaðu með Miele
Care Collection uppþvottaduft, töflur, gljái
og vélahreinsir, sérstaklega framleitt fyrir
Miele uppþvottavélar
Með því að velja Miele uppþvottavélar
leggur þú grunn að langtímasparnaði.
Þrjár þvottagrindur
Þvær 18% meira magn í einu
Notar minna vatn og rafmagn
Fer betur með leirtauið
Verð frá kr. 179.995
Farðu alla leið með Miele
ER GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR en hún
hefur ekki mælst svo há síðan í júlí í fyrra. Því hærri sem
gengisvísitalan er, því veikara er gengi krónunnar.
222,05