Fréttablaðið - 02.02.2012, Side 25
FIMMTUDAGUR 2. febrúar 2012 25
Jón Egilsson hæstaréttarlög-maður hefur verið dæmdur
til greiðslu sektar til ríkissjóðs
á grundvelli e. og f. liðar 1. mgr.
135. gr. laga nr. 91/1991 um með-
ferð einkamála. Dómari taldi að
hann hefði hermt eftir meintum
brotaþola í málflutningsræðu
sinni, í máli sem meintur brota-
þoli hafði m.a. höfðað á hendur
umbjóðanda Jóns. Ég tel, eins og
síðar kemur fram, að mat hins
virðulega dóms hafi ekki verið
rétt og ekki hafi verið tilefni til
að gera lögmanninum réttarfars-
sekt.
Hlutverk lögmanna við aðal-
meðferð dómsmála er að benda
dómara á og draga fram þau
sönnunargögn og sjónarmið, sem
eru máli umbjóðanda hans til
stuðnings, og reyna að sannfæra
dóminn um að fallast eigi á rök
umbjóðanda síns í málinu. Starf-
andi lögmenn skipta hundruðum
og mikilvægt er að leyfa hverj-
um og einum að þróa sinn stíl og
halda honum.
Sumir lögmenn telja rök sín
best framsett með yfirveguðu
og rólegu tali, jafnvel í einni og
sömu tóntegundinni. Aðrir lög-
menn tala í ýktum ræðukeppn-
isstíl, svokölluðum Morfís-stíl.
Margir lögmenn lesa ræðu sína
beint upp af blaði. Þannig er
fjölbreytileikinn í fyrirrúmi og
mikilvægt er að ekki sé reynt að
steypa öllum í sama mótið.
Jón Egilsson er góður lögmað-
ur, hann er sáttafús en fylginn
sér, hann er afar sannfærandi og
hefur skemmtilegan frásagnar-
stíl. Málflutningsræður hans eru
oftar en ekki líflegar og nálgun
hans á dómsmálum er oft á tíðum
mjög áhugaverð.
Þess vegna sætir það furðu
minni þegar hann er úrskurð-
aður til sektar fyrir að „herma
eftir stefnanda [meintum brota-
þola] ..., er hann lék stefnanda
[meintan brotaþola] kjökrandi
að hringja í lögmann sinn vegna
málsins.“ Málið sem meintur
brotaþoli höfðaði m.a. á hend-
ur umbjóðanda Jóns fjallaði um
hvort umbjóðandi Jóns og máls-
aðili annar skyldu bera skaða-
bótaábyrgð á andlegri vanheilsu
meints brotaþola, sem hann átti
að hafa hlotið við líkams árás sem
átti sér stað árið 2006.
Við lestur viðkomandi dóms
vekur það athygli að meintur
brotaþoli hafði aldrei kvart-
að undan andlegri vanlíðan eða
borið sig illa við aðila sem að
málinu kom, þ.e. ekki kvartað eða
tjáð vanlíðan við lögreglu, lækna
eða hjúkrunarfólk heldur þvert á
móti borið sig ágætlega. Því var
þannig alls ekki haldið fram af
hálfu meints brotaþola að hann
hafi hringt kjökrandi í lögmann
sinn. Þannig getur það ekki stað-
ist að lögmaðurinn hafi verið að
herma eftir meintum brotaþola
enda hefur brotaþolinn aldrei
kvartað með þessum hætti. Ekki
verður séð hvernig er unnt að
herma eftir einhverju sem ekki
hefur gerst. Lögmaðurinn var
einmitt að benda á að hann hefði
ekki kjökrað eða kvartað, líkt og
einstaklingur sem orðið hefði
fyrir áfallaröskun.
Að hæstaréttarlögmaðurinn
skuli í málflutningsræðu sinni
lýsa því, með leikrænum tilburð-
um, hvernig ætla mætti að skelk-
aður eða sleginn maður myndi
hegða sér gagnvart lögreglu-
mönnum og heilbrigðisstarfsfólki
sem meðhöndlaði hann eftir lík-
amsárás, ætti ekki að virða sem
vanvirðingu í garð meints brota-
þola eða réttarins, heldur var
þetta, í þessu tilviki, mikilvæg-
ur hluti af málatilbúnaði umbjóð-
anda lögmannsins.
Málatilbúnaður umbjóðanda
Jóns í málinu byggði m.a. á því
að hin geðrænu einkenni meints
brotaþola, sem hann taldi umbjóð-
anda Jóns m.a. bera ábyrgð á, væri
ekki að rekja til líkamsárásarinn-
ar, sem átti sér stað árið 2006.
Lögmaðurinn benti á að frá þeim
tíma og þar til meintur brotaþoli
var metinn af matsmönnum til
örorku vegna geðrænna einkenna
hafði hann misst föður sinn, skilið
við eiginkonu og upplifað hótanir
af hálfu aðila sem viðriðnir voru
mansalsmál.
Í framhaldi af því bendir lög-
maðurinn á að enginn þeirra
sérfræðinga sem meðhöndluðu
meintan brotaþola eftir líkams-
árás urðu varir við að hann hafi
orðið fyrir áfallastreiturösk-
un en lögmaðurinn lýsti í ræðu
sinni, með leikrænum tilburðum,
hvernig einkenni áfallastreit-
uröskunar koma fram og ættu
ekki að dyljast sérfræðingum
sem að málinu koma, líkt og lög-
reglu eða heilbrigðisstarfsfólki.
Ekki verður séð að slíkt hafi ekki
tengst málinu eða ekki viðkomið
málsstað umbjóðanda Jóns, sem
var sýknaður.
Ætla verður lögmönnum svig-
rúm til að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri og sannfæra
dómarann um málstað umbjóð-
anda síns. Við lifum í þjóðfélagi
þar sem reynt er, á hinum ýmsu
sviðum, að steypa alla í sama
mótið. Því verðum við að berj-
ast gegn og fagna fjölbreytileik-
anum.
Fögnum fjölbreytileikanum - einnig meðal lögmanna
Dómsmál
Auður Björg
Jónsdóttir
héraðsdómslögmaður
Sumir lögmenn telja rök sín best fram-
sett með yfirveguðu og rólegu tali, jafn-
vel í einni og sömu tóntegundinni. Aðrir
lögmenn tala í ýktum ræðukeppnisstíl, svokölluðum
Morfís-stíl. Margir lögmenn lesa ræðu sína beint upp af
blaði. Þannig er fjölbreytileikinn í fyrirrúmi og mikil-
vægt er að ekki sé reynt að steypa öllum í sama mótið.
Grænn og góður
7 ára ábyrgð á öllum
nýjum Kia bílum.
NÝR PICANTO
Því fær nýr Picanto frítt í bílastæði í Reykjavík.
Verð frá 1.997.777 kr.
* Miðað við grænan, óverðtryggðan bílasamning Ergo til 84 mánaða
og 30% innborgun. Árleg hlutfallstala kostnaðar er 9,39%.
mánaðargreiðsla*
22.477 kr.
Kia Picanto er magnaður bíll sem eyðir aðeins 4,3 l/100 km og CO2 útblásturinn
er aðeins 99 g/km.
Komdu við í Öskju að Krókhálsi 11 eða hjá umboðsmönnum okkar og prófaðu
nýjan urrrrandi góðan Picanto. Grænt lán frá Ergo í boði. Hlökkum til að sjá þig!
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
www.kia.isÞú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook