Fréttablaðið - 02.02.2012, Side 58
2. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR42
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 26. janúar- 1. febrúar 2012
LAGALISTINN
Vikuna 26. janúar - 1. febrúar 2012
Sæti Flytjandi Lag
1 Of Monsters And Men ..................................Lakehouse
2 Gotye / Kimbra ................Somebody I Used To Know
3 The Black Keys ............................................... Lonely Boy
4 Lana Del Ray ..................................................Born To Die
5 Amy Winehouse ............................ Our Day Will Come
6 Dikta ....................................What Are You Waiting For?
7 Foster The People .................... Call It What You Want
8 Retro Stefson ..........................................................Qween
9 Florence & The Machine ........................... Shake It Out
10 David Guetta........................................................ Titanum
Sæti Flytjandi Plata
1 Mugison ...................................................................Haglél
2 Valgeir Guðjónsson ...................Spilaðu lag fyrir mig
3 Of Monsters And Men ..........My Head Is An Animal
4 Adele................................................................................. 21
5 Sigurður Guðm. og Sigríður Thorl. ........ Ásamt Sinfó
6 Helgi Björnsson ....... Íslenskar dægurperlur í Hörpu
7 Friðrik Karlsson & María Ellingsen ...................... Jóga
8 Sólstafir ..................................................... Svartir sandar
9 Gus Gus ....................................................Arabian Horse
10 Hjálmar ........................................................................Órar
Blús- og sálarsöngkonan Etta James lést úr hvítblæði 20. janúar síðast-
liðinn, tæplega 73 ára að aldri. Hún átti að baki langan og farsælan
feril og var ein af áhrifamestu og dáðustu söngkonum síðustu áratuga.
Etta var fædd í Los Angeles árið 1938. Hún fékk sitt fyrsta tækifæri 14
ára þegar tónlistarmaðurinn Johnny Otis uppgötvaði hana og útvegaði
henni samning við plötufyrirtækið
Modern. Eftir nokkra minni háttar
smelli hjá Modern gerði hún samn-
ing við Chess-útgáfuna í Chicago árið
1960. Þar var hún í 18 ár og þar gerði
hún sín bestu lög, m.a. All I Could Do
Was Cry, I Just Want to Make Love to
You, At Last, Tell Mama og I‘d Rather
Go Blind.
Á áttunda áratugnum fór Etta út
í fönkaðri tónlist, en færði sig svo
að miklu leyti yfir í blúsinn á síðari
hluta ferilsins. Hennar síðasta plata
The Dreamer kom út í fyrra og fékk
ágæta dóma.
Etta James var dáð af mörgum yngri
tónlistarmönnum. Í ævisögu hennar
Rage to Survive sem kom út árið 1995
kom m.a. fram að Janis Joplin lærði
mikið af henni. Þar kom líka fram að
Etta barðist um langt árabil við heróínfíkn. Hún hvarf samt aldrei af
sviðinu og hélt áfram að hljóðrita og spila á tónleikum við góðar undir-
tektir. Etta fékk mikla viðurkenningu þegar Beyoncé lék hana í kvik-
myndinni Cadillac Records árið 2008. Eins og áður segir hafði Etta
James mikil áhrif á síðari tíma söngkonur. Amy Winehouse mat hana
t.d. mikils og Adele dáði hana umfram aðrar söngkonur.
Að lokum má geta þess að í fyrra kom út glæsilegt fjögurra diska
safn, Heart & Soul, sem er gott yfirlit yfir feril þessarar frábæru
söngkonu.
Stórsöngkona kveður
DÁÐ OG DÝRKUÐ Etta James féll frá
20. janúar
> PLATA VIKUNNAR
Stereo Hypnosis & Pulse
★★★
„Stemningsfull raftónlist frá feðg-
unum í Stereo Hypnosis“. - TJ
Söngkonan Florence Welch úr hljóm-
sveitinni Florence and the Machine
sagði frá því í viðtali við tímaritið
Q að hún hefði kveikt í í hótelher-
berginu sínu eftir mikið fyllerí
með rapparanum Kanye West og
sænsku söngkonunni Lykke Li.
„Ég var örugglega búin að
drekka sautján Dirty Mart-
ini-drykki. Ég týndi símanum
og reif kjólinn minn illa. Svo
kveikti ég óvart í The Bowery-
hótelinu vegna þess að ég
gleymdi að slökkva á teljós-
inu,“ sagði Welch í viðtalinu.
Einnig áttaði hún sig ekki á
því fyrr en daginn eftir að hún
hafði brotið eina tönn.
Hún svaf á meðan eldurinn kviknaði í her-
berginu og þegar hún vaknaði tók hún eftir
því að bókin henn-
ar á náttborðinu
hafði brunnið
og einn veggur
hótelherberg-
isins. Sjálf slapp
hún ómeidd frá
þessu óheppilega
atviki.
Kveikti í hótelherberginu
KVEIKTI Í Söng-
konan Florence
Welch kveikti í
hótelherberg-
inu sínu.
> Í SPILARANUM
Mark Lanegan Band - Blues Funeral
Prinzhorn Dance School - Clay Class
Lana del Rey - Born to Die
Wiley - Evolve or Be Extinct
Auglýsing um framlagningu
kjörskrár og framboðsfrest
vegna kosningar biskups Íslands 2012
Kjörstjórn við biskupskosningu hefur, í samræmi við starf-
sreglur um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa nr.
1108/2011, samið kjörskrá vegna kjörs biskups Íslands.
Á kjörskrá eru 492
Kjörskráin, sem miðast við 1. febrúar 2012, liggur frammi til
sýnis á Biskupsstofu, Laugavegi 31, Reykjavík, og hjá próföst-
um til fimmtudagsins 9. febrúar 2012.
Hún er enn fremur birt á vef þjóðkirkjunnar (kirkjan.is).
Kærur til breytinga á kjörskránni þurfa að hafa borist
kjörstjórn á Biskupsstofu fyrir kl. 16.00, fimmtudaginn 9.
febrúar nk., eða hafa verið póstlagðar í síðasta lagi þann dag.
Kjörstjórn úrskurðar kærur og gengur endanlega frá kjörskrá
innan viku frá lokum kærufrests. Niðurstöður kjörstjórnar
munu liggja frammi á Biskupsstofu og geta kærendur kynnt
sér þær þar.
Sá sem hyggst gefa kost á sér sem biskup Íslands skal tilkynna
það kjörstjórn. Tilkynningu þess efnis skal afhenda kjörstjórn
eigi síðar en fjórum vikum eftir að kjörskrá er lögð fram.
Tilkynning skal hafa borist kjörstjórn með sannanlegum hætti
fyrir kl. 16.00 á síðasta degi skilafrests, þ.e. 29. febrúar 2012
eða hafa verið póstlögð í síðasta lagi þann dag.
Reykjavík, 1. febrúar 2012
Kjörstjórn
Rokkararnir í Van Halen
eru ekki dauðir úr öllum
æðum því tólfta hljóðvers-
plata þeirra er væntanleg.
Upphaflegi söngvarinn
David Lee Roth er með í för.
Rokksveitin gamalgróna Van
Halen er ekki dauð úr öllum æðum
því hún er að gefa út sína tólftu
hljóðversplötu. Það sérstaka við
þessa plötu er að hún er sú fyrsta
í 28 ár sem kemur út með söngv-
arann David Lee Roth innanborðs.
Síðast söng hann inn á hina vin-
sælu plötu 1984 með lagið Jump
fremst í flokki.
Van Halen var stofnuð í Kali-
forníu árið 1974 af hollensku
bræðrunum Eddie Van Halen og
Alex Van Halen. Hljómsveitin hét
fyrst Mammoth og síðar Genesis
en varð að breyta nafninu í Van
Halen þegar kom í ljós að önnur
sveit frá Englandi bar sama nafn.
Eftir að hafa gert útgáfusamn-
ing við Warner Bros kom fyrsta
platan, sem nefndist einfaldlega
Van Halen, út árið 1978 við miklar
vinsældir, enda voru þar slagarar
á borð við Runnin’ with the Devil,
You Really Got Me og Ain’t Talkin’
’bout Love. Síðan þá hefur sveitin
gefið út fjölda platna, með góðum
hléum á milli, en frægðarsól henn-
ar hefur lækkað mikið síðan hún
var upp á sitt besta á níunda ára-
tugnum.
Því má samt ekki gleyma að Van
Halen hefur á ferli sínum selt rúm-
lega 75 milljón plötur og var vígð
inn í Frægðarhöll rokksins árið
2007.
Nýja platan nefnist A Diffe-
rent Kind of Truth og er hún sú
fyrsta sem er eingöngu með nýju
efni síðan Van Halen III kom út
árið 1998. Platan kemur í kjölfar
tónleikaferðar um heiminn sem
hljómsveitin fór í fyrir fimm árum
við fádæma góðar undirtektir. Sú
ferð markaði einmitt endurkomu
Davids Lee Roth í sveitina.
Mörg lög á plötunni eru byggð
á prufuupptökum og textum Van
Halen frá áttunda áratugnum, þar
á meðal She’s the Woman.
Hljómsveitin ætlar að fylgja
A Different Kind of Truth eftir
með annarri tónleikaferð þar sem
öll vinsælustu lögin verða spiluð,
þar á meðal Eruption, Running
with the Devil, Jamie’s Cryin, You
Really Got Me, You’re No Good,
Ain’t Talkin’ ’bout Love, Why Can’t
This Be Love og að sjálfsögðu
Jump. freyr@frettabladid.is
David Lee Roth snýr aftur
VAN HALEN Í DAG Frá vinstri: Alex Van Halen, David Lee Roth, Eddie Van Halen og
sonur hans Wolfgang Van Halen. NORDICPHOTOS/GETTY
ÞRÍR MISMUNANDI SÖNGVARAR VAN HALEN
David Lee Roth: 1974-1985, 1996, 2007-?
Sammy Hagar: 1985-1996
Gary Cherone (úr Extreme): 1996-1999