Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.02.2012, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 02.02.2012, Qupperneq 62
2. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR46 folk@frettabladid.is Gítarleikarinn Arnar Pét- ursson hefur snúið sér að hráfæði til að vinna bug á meltingarsjúkdómnum Crohn´s. Hann viðurkennir að umskiptin á mataræðinu séu ekki auðveld og að hann sjái einna helst eftir Bæjar- ins bestu. HEILSA „Þetta er bæði tímafrekt og þarfnast skipulagningar en ég finn að þetta hefur áhrif,“ segir Arnar Pétursson, gítarleikari í hljómsveit- inni Mammút og nemi í húsgagna- smíði, sem hefur snúið sér að hráfæði á síðustu mánuðum. Arnar þjáist af sjúk- dómnum Crohn´s eða bólgum í meltingar- færum og hefur verið háður lyfinu Remicade en það hefur ýmsar aukaverkanir í för með sér. Arnar hóf því að leita að náttúrulegri aðferð til segja sjúkdómnum stríð á hendur. Lausnina fann hann í bók- inni Self Healing Colitis and Crohn‘s eftir dr. David Klein og byrjaði hina miklu umbreytingu á mataræði sínu í sumar og hætti á lyfinu um ára- mótin. „Maður má ekki skipta of snöggt yfir í hráfæði og nauðsynlegt að gera þetta í skömmtum. Ég hætti því að borða kjöt í sumar og auka grænmetis- og ávaxtaneyslu,“ segir Arnar sem hætti alfarið að borða fisk og egg rétt eftir áramót. „Ég finn að mér líður betur og allt sem ég borða núna er gufusoðið græn- meti, léttpressaðir ávaxta- og græn- metissafar en aðalundirstaðan eru ávextir. Hluti af orsökum sjúkdóms- ins er stress svo ég er byrjaður að stunda jóga af miklum móð og er alveg heillaður.“ Arnar fer ekki leynt með að umskiptin í mataræðinu sínu hafi verið erfið en hann segist alltaf hafa verið matvandur. „Ég var ekki vanur að borða mikið grænmeti eða ávexti og þegar ég var lítill voru fiskibollur í dós uppáhaldsmatur- inn minn. Núna panta ég lífrænt grænmeti frá Akri í Biskupstung- um og tek með mér nesti í skólann. Ég sakna samt Bæjarins bestu enda var ég fastagestur þar áður en ég fór á hráfæði,“ segir Arnar og við- urkennir að grænmeti og ávextir séu vissulega dýrir hér á landi en á móti sparar hann í öðrum útgjöld- um. „Ég fer ekkert út að borða og hef tekið mér pásu í áfengisneyslu enda er sérstaklega mælt með því í bókinni.“ Arnar er studdur af lækni sínum í þessum matartilraunum og hing- að til hefur honum liðið betur. „Ég ætla að reyna þetta fram á vor og hugsanlega er þessi lífsstíll kominn til að vera. Mér líður allavega vel í dag.“ Hægt að fylgjast með Arnari og tilraunum hans með hráfæðið á bloggsíðunni veganmatur.blogspot. com. alfrun@frettabladid.is HYGGST LÆKNA SIG MEÐ HRÁFÆÐI LÍÐUR BETUR Arnar finnur mun á sér eftir að hann byrjaði á hráfæði en hann umturnaði mataræði sínu til að vinna bug á meltingarsjúkdómnum Crohn´s. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFAN Morgunmatur: Sætir og millisætir ávextir eins og bananar, döðlur, perur, vínber, melónur og mangó. Passa að borða ekki of mikið á morgnana því þá er líkaminn að hreinsa sig. Það sem eftir er dagsins borða ég eins mikið af ávöxtum og ég hef lyst á. Klukkutíma fyrir kvöldmat fæ ég mér pressaðan djús, til dæmis sellerí og epladjús eða gulróta- og epladjús. Kvöldmatur: Létt gufusoðnar sætar kartöflur, kúrbít eða eitthvað annað grænmeti í þá áttina. Ég reyni að borða kvöldmat þremur klukkutímum áður en ég fer að sofa, þannig nær líkaminn að vinna úr matnum en samt fer ég ekki svangur að sofa. MATSEÐILL ARNARS HEILSA Til að halda hjartanu heil- brigðu er meðal annars mælt með að fólk borði eins og Ítali eða fylgi ströngu „vegan“ mataræði. Fréttamiðillinn Msn. com tók saman tíu bestu matarkúrana fyrir hjartað og miðað við þann lista virðast allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þeir sem kjósa að fylgja mataræði Miðjarðarhafsbúa eiga að halda sig við fiskmeti, grænmeti og mjúka fitu. Þeir sem kjósa hins vegar að fylgja „vegan“ mataræði eiga að leggja sér til munns grænmeti, ávexti og kornmeti en forðast saltan mat og dýraafurðir. Sé farið eftir þessum matarkúrum ætti hjartað að haldast heilbrigt og gott. Ítalir með gott hjarta EINS OG ÍTALI Fæða á borð við þá sem Ítalir borða er góð fyrir hjartað. NORDICPHOTOS/GETTY TÆKNI Hvort sem þér líkar það betur eða verr, þá mun Facebook skikka þig til að breyta síðunni þinni í svokallaða tímalínusíðu á næstu dögum eða vikum. Lítið hefur verið kvartað undan tíma- línunni sem virðist nokkuð kær- komin viðbót við þetta stærsta samskiptanet allra tíma. Nú hafa hugvitssamir Facebook-notendur tekið sig til og búið til smáfor- ritið, eða „appið“, Time- line Movie Maker, sem gerir myndband úr tíma- línunni þinni. Fyrir þá sem þekkja ekki til þá er hægt að setja inn atburði í lífi fólks allt frá fæð- ingu til dagsins í dag í tímalín- una. Hvort sem það eru mynd- ir, myndbönd eða atburðir. Timel- ine Movie Maker safnar saman þessum upplýsingum, setur upp í myndband og spilar væmna tón- list undir sem nær nánast örugg- lega að framkalla tár í augum not- endanna. Einfalt er að finna Timeline Movie Maker í gegnum leitar- möguleika Facebook. Notend- ur geta því hafist handa við að skrásetja líf sitt og breyta því í væmna kvikmynd á einfald- an hátt. Myndband um lífið Í RÉTTU LJÓSI Kvikmyndin The Social Network þótti ekki sýna Mark Zuckerberg, for- stjóra Facebook, í réttu ljósi. Nú getur hann fengið uppreisn æru í gegnum Timeline Movie Maker. HUNANG BESTA MEÐALIÐ Breskir vísindamenn hafa uppgötvað að nýsjálenska hunangið Manuka er svo öflugt að það nær að vinna gegn bakteríum á borð við streptókokka samkvæmt rannsókn sem birtist í blaðinu Microbiology. Við getum því haldið áfram að nota hunang út í te samviskulaust. KLÁM Á BÓKASAFNI Móðir nokkur brást ókvæða við þegar hún og tíu ára dóttir hennar sáu mann skoða svæsna klámsíðu í tölvu á almenningsbókasafninu í Seattle. Henni til mikillar undrunar komst hún að því að maðurinn var ekki að brjóta nein lög með athæfi sínu. Á síðunni Q13Fox.com kemur fram að starfsmenn bókasafnsins fái aðeins örfáar kvartanir á ári hverju yfir klámnotkun bókasafnsgesta. „Bókasafnið annast ekki ritskoðun. Okkar starfsemi snýst um að veita aðgang að upplýsingum,“ sagði yfirmaður hjá bókasafninu. KRABBAKRABBI Vísindamenn við háskólasjúkrahúsið í Singapúr hafa þróað lítið vélmenni með krabba- klær og krók sem á að fjarlægja magakrabbamein án þess að skilja eftir sig ör. Vélmennið fer inn í magann í gegnum munn sjúklingsins. Fyrirmynd þess er frægur krabbaréttur sem borð- aður er í Singapúr, samkvæmt fréttastofunni Reuters. TÆKNI lífsstíll lifsstill@frettabladid.is 46 MATUR Gulrætur Í gulrótum er B- og C-vítamín ásamt mikil vægum steinefn- um eins og kalí, kalki, járni og fosfór.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.