Fréttablaðið - 02.02.2012, Page 66
2. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR50
sport@frettabladid.is
UNDANÚRSLIT KVENNA í bikarkeppni kvenna í körfubolta fara ekki fram um helgina eins og áætlað var.
Ástæðan er sú að búið að er að kæra úrslit leiks Njarðvíkur og Keflavíkur í fjórðungsúrslitum. Úrslitin í karlaflokki fara
engu að síður fram og óljóst hvort að úrsiltaleikirnir í báðum flokkum geti farið fram sama daginn eins og venja er.
Janúar 2011 Dýrustu leikmannakaupin
Fernando Torres, Chelsea 50 milljónir punda / 9,7 milljarðar kr.
Andy Carroll, Liverpool 35 milljónir punda / 6,8 milljarðar kr.
Luis Suarez, Liverpool 23 milljónir punda / 4,5 milljarðar kr.
David Luiz, Chelsea 21 milljónir punda / 4 milljarðar kr.
Janúar 2012 Dýrustu leikmannakaupin
Papiss Cisse, Newcastle 12 milljónir punda / 2,3 milljarðar kr.
Gary Cahill, Chelsea 8,4 milljónir punda / 1,6 milljarðar kr.
Kevin de Bruyne, Chelsea 8 milljónir punda / 1,5 milljarður kr.
Nikica Jelavic. Everton 6,6 milljónir punda / 1,3 milljarður kr.
2,3
milljarðar
9,7
milljarðar
Papiss
Cisse
Fernando
Torres
FÓTBOLTI Eigendur enskra úrvals-
deildarliða í fótbolta voru ekki í
miklu „stuði“ á meðan leikmanna-
markaðurinn var opinn í janúar.
Lokað var fyrir félagaskipti á mið-
nætti þriðjudagsins 31. janúar. Met
var sett í janúar í fyrra þegar liðin
keyptu leikmenn fyrir 225 millj-
ónir punda eða 43 milljarða kr., en
þessi upphæð lækkaði um 70% í
janúarglugga þessa árs.
Í samantekt sem alþjóðlega
endur skoðunar- og ráðgjafarfyrir-
tækið Deloitte gaf út í gær kemur
í ljós að ensku úrvalsdeildarliðin
eyddu „aðeins“ 60 milljónum punda
eða sem nemur 11,6 milljörðum kr.
í janúar á þessu ári.
Þrjú félög, Chelsea, QPR og New-
castle, eru samtals með um helm-
ing af þeirri upphæð.
Til samanburðar voru fjögur
félög með um 80% af þessum
225 milljónum punda fyrir ári,
Chelsea, Liverpool, Aston Villa og
Liverpool. Þar léku framherjarnir
Fernando Torres og Andy Carroll
aðalhlutverkin.
Dan Jones, talsmaður Deloitte,
segir í viðtali við breska fjölmiðla
að skýringin á þessari lækkun
sé einföld. Félögin eru að undir-
búa sig fyrir reglugerð UEFA um
leyfis kerfi og fjárhagslega hátt-
vísi sem tekur gildi árið 2013. Þessi
reglugerð var kynnt til sögunnar
árið 2009 þegar helmingur af 630
knattspyrnuliðum Evrópu var rek-
inn með tapi.
Reglugerðinni er ætlað að
minnka möguleika ríkra eigenda
að eyða eins miklum peningum og
þeir vilja í leikmannakaup og laga
taprekstur með nýju „hlutafé“ úr
eigin vasa. Samkvæmt reglugerð
UEFA um fjàrhagslega háttvísi
þurfa félögin að miða útgjöld sín
við þær tekjur sem félagið getur
aflað sér með „venjulegum hætti“.
Ómar Smárason, leyfis – og
markaðsstjóri KSÍ, sagði í samtali
við Fréttablaðið að stærstu félög
Evrópu hefðu haft frumkvæðið
að þessari reglu á sínum tíma.
„Þetta er gert til þess að sporna
við áframhaldandi taprekstri
stórra félaga. Félögin vildu fá skýr-
ari reglur og jafna samkeppnisað-
stöðuna. Lið sem eru í eigu mjög
ríkra einstaklinga geta ekki haldið
áfram að reiða sig á að fá peninga
endalaust til þess að brúa taprekst-
ur. Þau verða að fara eftir reglu-
gerðinni um leyfiskerfi og fjár-
hagslega háttvísi.“
Það er áratugur frá því að sú
regla var tekin upp að opna fyrir
félagaskipti í janúar og frá þeim
tíma hafa ensk úrvalsdeildarlið
keypt leikmenn fyrir samtals 925
milljónir punda eða sem nemur 180
milljörðum kr. seth@frettabladid.is
Nýjar reglur settu svip
sinn á „janúargluggann“
Óvenjudauft var á leikmannamarkaðinum á Englandi í janúar. Nýjar reglur
UEFA um fjárhagslega háttvísi eru þegar farnar að hafa áhrif. Cisse dýrastur.
HANDBOLTI N1 deild karla í hand-
bolta fer aftur af stað í kvöld eftir
45 daga hlé vegna jólafrís og
Evrópumótsins í Serbíu. Öll átta
liðin verða í eldlínunni og allir
fjórir leikirnir verða í beinni á
boltavakt Vísis. Í textalýsingunni
má sjá jafnóðum upplýsingar um
hvert skot, hvert mark og hvert
varið skot í leikjunum.
Stórleikir kvöldsins eru annars
vegar á milli frændfélaganna
Vals og Hauka í Vodafone-höll-
inni á Hlíðarenda og hins vegar
leikur Akureyrar og HK í Höll-
inni á Akureyri. Fram fær síðan
botnlið Gróttu í heimsókn og
FH tekur á móti Aftureldingu í
Kaplakrika. Allir leikir hefjast
klukkan 19.30 nema sá á Akur-
eyri sem hefst hálftíma fyrr.
Haukar eru með fimm stiga
forskot á FH og HK sem koma
næst en Fram og Akureyri eru
síðan aðeins stigi á eftir. Vals-
menn eru þremur stigum frá sæti
í úrslitakeppninni og þurfa helst
tvö stig á móti toppliðinu í kvöld.
- óój
N1 deild karla í beinni á Vísi:
45 daga bið
endar í kvöld
HVERNIG FÓR FRÍIÐ Í HAUKA? Unnu 9 af
síðustu 10 deildarleikjum sínum fyrir jól.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STRÁKARNIR ERU MÆTTIR
M
ed
ia
G
ro
up
e
hf
|
H
SÍ
|
11
0
1
20
12
Valur - Haukar
Vodafonehöllin | Kl. 19.30
Fim. 2. feb. | N1-deild karla
Fram - Grótta
Framhús | Kl. 19.30
Fim. 2. feb. | N1-deild karla
FH - Afturelding
Kaplakriki | Kl. 19.30
Fim. 2. feb. | N1-deild karla
Fram - FH
Framhús | Kl. 20.00
Fös. 3. feb. | N1-deild kvenna
ÍBV - Haukar
Vestmannaeyjar | Kl. 13.00
Lau. 4. feb. | N1-deild kvenna kvenna
Grótta - Haukar
Seltjarnarnes | Kl. 14.00
Lau. 4. feb. | N1-deild kvenna
KA/Þór - HK
KA-heimilið | Kl. 16.00
Lau. 4. feb. | N1-deild kvenna
Akureyri - HK
Höllin, Ak. | Kl. 19.00
Fim. 2. feb. | N1-deild karla
N1-deild karla N1-deild kvenna
FÓTBOLTI Kristinn Freyr Sigurðs-
son, 22 ára leikmaður úr Fjölni,
gerði í gær fjögurra ára samn-
ing við Val og mun því spila með
liðinu á komandi leiktíð í Pepsi-
deild karla.
Kristinn Freyr hefur lengst af
spilað með Fjölni og spilaði sinn
fyrsta deildarleik í meistara-
flokki árið 2007, þá á sextánda
aldursári. Alls á hann að baki 59
leiki og átta mörk í deild og bikar
með félaginu. - esá
Liðsstyrkur fyrir sumarið:
Kristinn Freyr
samdi við Val
Iceland Express-d. kvenna
Snæfell - Keflavík 91-83 (45-38)
Stigahæstar: Jordan Lee Murphree 31, Alda Leif
Jónsdóttir 17, Kieraah Marlow 16 – Pálína Gunn-
laugsdóttir 33, Jaleesa Butler 18 (14 fráköst).
Njarðvík - Fjölnir 95-62 (49-29)
Stigahæstar: Lele Hardy 24 (17 frák.), Shanae
Baker-Brice 20, Petrúnella Skúladóttir 14 –
Brittney Jones 13, Bergdís Ragnarsdóttir 12.
Hamar - Valur 86-83 (41-44)
Stigahæstar: Katherine Graham 26, Samantha
Murphy 24, Fanney Lind Guðmundsdóttir 14 –
Kristrún Sigurjónsdóttir 21, María Björnsdóttir 16,
María Ben Erlingsdóttir 16.
STAÐAN
Keflavík 20 16 4 1580-1402 32
Njarðvík 20 15 5 1684-1473 30
KR 20 12 8 1490-1372 24
Haukar 20 11 9 1487-1439 22
Snæfell 20 9 11 1375-1453 18
Valur 20 7 13 1414-1502 14
Hamar 20 5 15 1385-1532 10
Fjölnir 20 5 15 1394-1636 10
Enska úrvalsdeildin
Sunderland - Norwich 3-0
1-0 Frazier Campbell (20.), 2-0 Stéphane Ses-
segnon (27.), 3-0 Daniel Ayala, sjálfsmark (53.).
Aston Villa - QPR 2-2
0-1 Djibril Cissé (11.), 0-2 Stephen Warnock,
sjálfsmark (28.), 1-2 Darren Bent (45.), 2-2
Charles N’Zogbia (78.).
Blackburn - Newcastle 0-2
0-1 Scott Dann, sjálfsmark (11.), 0-2 Gabriel
Obertan (92.)
Fulham - West Brom 1-1
1-0 Clint Dempsey (68.), 1-1 Somen Tchoyi (81.).
Bolton - Arsenal 0-0
STAÐAN
Man. City 23 17 3 3 60-19 54
Man. United 23 17 3 3 56-21 54
Tottenham 23 15 4 4 44-25 49
Chelsea 23 12 6 5 41-26 42
Newcastle 23 11 6 6 34-30 39
Liverpool 23 10 8 5 28-21 38
Arsenal 23 11 4 8 39-33 37
Sunderland 23 8 6 9 32-24 30
Stoke City 23 8 6 9 23-35 30
Everton 23 8 5 10 23-26 29
Norwich 23 7 8 8 32-39 29
Aston Villa 23 6 10 7 28-31 28
Fulham 23 6 9 8 29-32 27
Swansea City 23 6 9 8 24-28 27
West Brom 23 7 5 11 23-32 26
QPR 23 5 6 12 24-39 21
Bolton 23 6 2 15 28-47 20
Blackburn 23 4 6 13 33-47 18
Wolves 23 4 6 13 25-43 18
Wigan 23 3 6 14 20-48 15
Spænska bikarkeppnin
Valencia - Barcelona 1-1
1-0 Jonas (27.), 1-1 Carles Puyol (35.). Þetta
var fyrri leikur liðanna í undanúrslitum. Síðari
leikurinn fer fram á Nou Camp í næstu viku.
ÚRSLIT