Fréttablaðið - 07.03.2012, Side 8
7. mars 2012 MIÐVIKUDAGUR8
Geir H. Haarde fyrir Landsdómi – dagur 2
Íslenska bankakerfið var
árið 2008 eins og dauðvona
krabbameinssjúklingur
sem deyr úr hjartaáfalli
sagði fyrrverandi aðalhag-
fræðingur Seðlabankans
í vitnastúku í landsdóms-
málinu í gær. Seðlabankinn
hefði getað sett bönkunum
strangari reglur um útlán
erlendis.
Arnór Sighvatsson var aðalhag-
fræðingur Seðlabankans fyrir
bankahrunið en starfar nú sem
aðstoðarseðlabankastjóri. Hann
bar vitni fyrir Landsdómi í Þjóð-
menningarhúsinu eftir hádegi í
gær.
Eftir á að hyggja rann síðasti
möguleikinn til að bjarga íslensku
bönkunum stjórnvöldum úr greip-
um árið 2005, sagði Arnór. Hann
sagði að þá, og á árunum fram að
hruni hafi hann og aðrir trúað því
að bankarnir stríddu við lausa-
fjárkreppu, þegar þeir hafi í raun
staðið frammi fyrir alvarlegri
eiginfjárkreppu.
„Lausafjárkreppa er eins og
hjartaáfall en eiginfjárkreppa
eins og krabbamein. Það kom í ljós
að þarna var dauðvona krabba-
meinssjúklingur að fá hjarta-
áfall,“ sagði Arnór, spurður um
ástand íslenska bankakerfisins.
Íslensku bankarnir stóðu
frammi fyrir raunverulegri hættu
á að fara í þrot strax árið 2006. Þá
hættu evrópskir bankar að lána
þeim og þeir lentu í erfiðleikum
með að endurfjármagna skuldir.
Þeim tókst að leysa úr þeim vanda
með því að fá lán frá Bandaríkj-
unum, og með því að stofna til
innlánsreikninga erlendis. Fræg-
ustu reikningarnir voru Icesave-
reikningar Landsbankans í Bret-
landi, og síðar Hollandi.
Arnór sagði að á þessum tíma
hafi verið talað um að evrópskir
bankar hafi verið að takmarka
áhættu sína með því að lána ekki
meira til Íslands þar sem þeir
hefðu þegar lánað svo mikið. Svo
virðist hins vegar sem þeir hafi
talið frekari lán til íslensku bank-
anna of áhættusöm vegna þess
hversu hratt þeir höfðu vaxið og
vegna efasemda um gæði eigna-
safna þeirra.
Bankadómínó
Þó að bankarnir hafi náð að kom-
ast í gegnum árið 2006 var farið
að þrengja verulega að þeim.
Arnór segist hafa verið þeirrar
skoðunar að veruleg hætta væri á
að ef einn banki félli myndu hinir
falla í kjölfarið.
Seðlabankinn hefði hugsanlega
geta sett strangar reglur um eign-
ir bankanna og skuldir erlendis
til að koma í veg fyrir innstæðu-
söfnun í útibúum erlendis, sagði
Arnór. Geir H. Haarde, fyrrver-
andi forsætisráðherra, er sakaður
um það fyrir Landsdómi að hafa
ekki gert nóg til að koma Icesave-
reikningunum í dótturfélag, sem
hefði komið tjóni af þeirra völd-
um af herðum íslenskra stjórn-
valda.
Þó að Seðlabankinn hefði þann-
ig átt möguleika á að takmarka
sókn bankanna í innstæður
erlendis hefði það mögulega getað
riðið þeim að fullu, sagði Arnór.
Þrot bankanna án innstæðna
erlendis hefði þó mögulega falið í
sér minni tilkostnað ríkisins.
Arnór var sammála Geir og
Björgvini G. Sigurðssyni, fyrrver-
andi efnahags- og viðskiptaráð-
herra, um að í raun hafi verið allt
of seint að bregðast við og bjarga
bönkunum árið 2008. Bankarnir
hafi verið feigir og spurningin
hafi verið hvenær þeir féllu, ekki
hvort. Allt tal um að minnka bank-
ana með sölu eigna árið 2008 var
tilgangslaust þar sem selja hefði
þurft eignirnar með svo miklum
afslætti að það hefði riðið bönk-
unum að fullu, sagði Arnór.
Hann var einnig sammála
Geir og Björgvin um að vonlaust
hefði verið að flytja höfuðstöðv-
ar íslensks banka úr landi árið
2008. Hann sagði að slíkt hefði
ef til vill verið möguleiki fram til
ársins 2005, en þá hafi íslensku
bankarnir engan hug haft á því.
Þoldi ekki dagsljósið
Eigendur bankanna hefðu líka haft
lítinn áhuga á því að erlendar fjár-
málaeftirlitsstofnanir gaumgæfðu
eignir þeirra og efnahagsreikn-
inga þar sem í ljós hefði komið
að þar hafi verið ýmislegt sem
ekki þoldi dagsljósið, sagði Arnór.
Sama atriði kom í veg fyrir sölu,
enda hefðu væntanlegir kaupendur
gaumgæft reikninga bankanna og
áttað sig á því að eitthvað var að.
Íslensku bankarnir virðast hafa
reitt sig á að þeir væru svo mikil-
vægir að þeim yrði bjargað ef þeir
féllu, sagði Arnór. Eignir þeirra
hafi hins vegar verið svo lélegar að
þeir hafi í raun varla haft nokkurt
eigið fé í alllangan tíma.
Bankarnir eins og dauðvona sjúklingar
Íslensk stjórnvöld trúðu því fram í
miðjan september 2008 að hægt
væri að færa Icesave-reikningana
í dótturfélag Landsbankans sagði
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi
efnahags- og viðskiptaráðherra fyrir
Landsdómi í Þjóðmenningarhúsinu
í gær.
Björgvin tók undir með sakborn-
ingnum í málinu, Geir H. Haarde,
fyrrverandi forsætisráðherra, og
sagði stjórnkerfið hafa unnið eins
hratt og unnt var að því að flytja
Icesave-reikningana í dótturfélög.
Ef það hefði tekist hefðu ábyrgðir
vegna reikninganna fallið á bresk
stjórnvöld en ekki íslensk þegar
bankinn féll.
Það var sérstakt markmið að ljúka
þessu máli á árinu 2008, og allt
benti til þess að það myndi takast,
sagði Björgvin úr vitnastúkunni í
gær. Þar stóð að hans mati ekki upp
á íslensk stjórnvöld, heldur tók hann
undir með Geir og sagði breska
fjármálaeftirlitið hafa sett sífellt
strangari skilyrði fyrir slíkri breytingu.
Að lokum hafi skilyrðin orðið óupp-
fyllanleg þar sem Landsbankinn
hefði þurft að færa allar bestu
eignirnar í slíkt dótturfélag á móti
skuldbindingum þess.
Björgvin sagði einnig að það hefði
verið fullkomlega óraunhæft að ætla
sér að minnka efnahagsreikning
bankanna á árinu 2008, sem og að
flytja höfuðstöðvar eins eða fleiri úr
landi. Það hafi einfaldlega verið of
seint. Sala á eignum á brunaútsölu
hefði sett bankana á hliðina, og
ekkert land hefði viljað taka við
bönkunum á þessum erfiðu tímum
á alþjóðlegu fjármálamörkuðum árið
2008.
Eins og Geir bar Björgvin samráðs-
hópi um fjármálastöðugleika vel
söguna, og sagði hann hafa gert allt
sem hann hafi átt að gera. Geir er
sakaður um að hafa ekki séð til þess
að vinna hópsins væri markviss og
skilaði árangri.
Björgvin benti á að hópurinn
hefði unnið drög að frumvarpi sem
síðar hafi orðið að neyðarlögunum,
og sett upp ýmsar aðrar sviðsmyndir
um það sem gæti gerst. Spurður af
Sigríði Friðjónsdóttur, saksóknara
Alþingis, gat hann þó ekki svarað því
hvaða aðrar aðgerðir hópurinn hafði
undirbúið til að takast á við annars
konar áföll.
Þetta var allt eins mikið
trúnaðarmál og hægt
getur orðið. Þetta var við-
kvæmasti málaflokkurinn af
þeim öllum, fjármálastöðugleiki
Íslands og hvernig væri hægt að
verja hann.
Björgvin G. Sigurðsson sagði eðlilegt
að mikil leynd hafi hvílt yfir störfum
samráðshóps um fjármálastöðugleika,
og að gögnum frá hópnum hafi ekki
verið dreift víða.
Lausafjárkreppa er eins
og hjartaáföll en eigin-
fjárkreppa eins og krabbamein.
Það sást þegar í ljós kom að
þarna var dauðvona krabba-
meinssjúklingur að fá hjartaáfall.
Arnór Sighvatsson var ómyrkur í máli
um ástand íslenska bankakerfisins
fyrir hrun.
Orðrétt
Á HÖFUÐIÐ Brunaútsala
á eignum bankanna
árið 2008 hefði sett þá
lóðbeint á höfuðið sagði
Björgvin G. Sigurðsson
fyrir Landsdómi í gær.
BAR VITNI Arnór Sighvats-
son sagði að of seint hafi
verið að bjarga bönkunum
árið 2008, síðasti möguleik-
inn hafi runnið úr greipum
árið 2005.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Trúðu fram á síðustu stundu að hægt væri að færa Icesave
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
siminn.is/vefverslun
Vantar þig GSM
hleðslutæki í b
ílinn?
Brjánn
Jónasson
brjann@frettabladid.is