Fréttablaðið - 07.03.2012, Síða 10

Fréttablaðið - 07.03.2012, Síða 10
7. mars 2012 MIÐVIKUDAGUR 10 Heimir & Kolla vakna með þér í bítið Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00 Þráinn á tökkunum og Gissur með fréttirnar LÖGREGLUMÁL Guðgeir Guðmunds- son hefur játað að hafa ítrekað stungið framkvæmdastjóra lög- fræðistofunnar Lagastoðar með veiðihníf á mánudagsmorgun. Hann var í gær úrskurðaður í gæsluvarð- hald fram til föstudags. Honum hefur verið gert að gangast undir geðrannsókn. Friðrik Smári Björgvinsson, yfir- maður rannsóknardeildar lögregl- unnar, segir það nokkuð ljóst að málið verði flokkað sem tilraun til manndráps. Líklegt sé að gæslu- varðhald yfir Guðgeiri verði fram- lengt á föstudaginn, á grundvelli almannahagsmuna. Guðgeir er fæddur árið 1977 og búsettur í Reykjavík, ókvæntur og barnlaus. Hann kom á lögfræði- skrifstofuna Lagastoð á mánudags- morgun, þar sem hann sagðist vilja ræða skuldamál sín, en réðst svo á Skúla Eggert Sigurz, framkvæmda- stjóra stofunnar, og stakk hann ítrekað með veiðihníf. Guðni Bergs- son, lögmaður á stofunni, særðist einnig í árásinni en hann og fleiri starfsmenn á stofunni náðu að yfir- buga ódæðismanninn. Guðgeir var handtekinn og færð- ur á lögreglustöð. Hann afþakkaði aðstoð lögfræðings þegar hann var yfirheyrður, en Friðrik Smári segir hann þó engu að síður með verjanda á sínum snærum. Hann var leidd- ur fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í gærmorgun þar sem hann gerði enga tilraun til að hylja andlit sitt á leið inn. Þar var fallist á gæslu- varðhaldskröfu fram á föstudag og honum gert að sæta geðrannsókn, en talið er að niðurstöður úr henni fáist eftir sex til átta vikur. Guðgeir játaði verknaðinn skýlaust fyrir dómara héraðsdóms. Framkvæmdastjóri Lagastoðar, Skúli Eggert Sigurz, liggur sem fyrr á gjörgæsludeild Landspítalans og er haldið sofandi. sunna@frettabladid.is Tilraun til manndráps Guðgeir Guðmundsson var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hefur játað glæpinn og er gert að sæta geðrannsókn. Fórnarlambinu haldið sofandi. VIRTIST YFIRVEGAÐUR Í HÉRAÐSDÓMI Guðgeir gerði enga tilraun til að hylja andlit sitt þegar hann var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. MYND/STÖÐ 2 STJÓRNMÁL Ekki er undarlegt eða óskiljanlegt að ofbeldisverk eigi sér stað í því ástandi sem ríkir hér á landi, heldur er það eðlileg þróun. Þetta kemur fram í pistli sem Þór Saari, þingmaður Hreyfing- arinnar, birtir á heimasíðu sinni. Þór gerir morðtilraun gegn fram- kvæmdastjóra Lagastoða, sem meðal annars starfar í innheimtu, að umtalsefni í pistlinum. „Hér á landi hefur smátt og smátt verið að byggjast upp ákveðið ástand, ástand örvænt- ingar, vonleysi og reiði sem hjá þúsund- um manna er komið á hættu- legt stig,“ segir í pist l i num. Ef fram haldi sem horfi muni þetta ástand sennilega hafa áframhald- andi ofbeldi í för með sér. Fólk sem hafi verið „boxað af alveg út í horn“ muni slá til baka. Þór segir fráleitt að halda því fram að voðaverk eins og átti sér stað í fyrradag sé einhverjum öðrum að kenna en tilræðismann- inum. Voðaverk af þessu tagi eigi að fordæma og gerendur beri alla ábyrgð. Hins vegar eigi ofbeldisverk eins og þetta rætur einhvers stað- ar, „og ég held að það séu fleiri en ég sem vita hvar þær rætur liggja og hverjar afleiðingarnar muni verða ef áfram er haldið á sömu braut“. Gera verði meira til þess að stöðva bardaga yfirvalda og fjár- málafyrirtækja gegn skuldugu fólki. - þeb Þór Saari þingmaður segir hnífstungu eiga rætur í ástandi örvæntingar: Ofbeldisverk ekki óskiljanleg ÞÓR SAARI FANGELSISMÁL Fangelsismála- stofnun og Öryggismiðstöðin hafa samið um rafrænt eftirlit með föngum, að því er fram kemur á vef Fangelsismálastofnunar. Á næstu dögum fara fyrstu brotamennirnir undir slíkt eftir- lit og bera þá sérstök ökklabönd. Þeir fá takmarkaðan útivistar- tíma samkvæmt lögum um fulln- ustu refsinga. Rjúfi þeir útivistar- tímann er boð sent samstundis til stjórnstöðvar Öryggismiðstöðvar- innar „sem grípur til viðeigandi viðbragðsáætlunar“. - óká Samið um rafrænt eftirlit: Boð eru send við reglubrot www.hr.is HVAÐ ÞARF AÐ BREYTAST Í FJÁRMÁLASTJÓRN ÍSLENSKRA FYRIRTÆKJA? VIÐ BJÓÐUM ÞÉR TIL MÁLSTOFU UM STJÓRNUNARREIKNINGSSKIL OG SAMSPIL STJÓRNUNAR, REIKNINGSHALDS OG UPPLÝSINGATÆKNI Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík býður þér til málstofu um þær breytingar sem þurfa að verða á fjármáladeildum íslenskra fyrirtækja, eigi þær að halda í við sífellt flóknara rekstrarumhverfi. Fyrirlesarar á fundinum eru dr. David Schwarzkopf, Ph.D. stjórnandi MBA náms við McCallum Graduate School Bentley háskóla í Bandaríkjunum og gestaprófessor við HR, dr. Páll Ríkharðsson, forstöðumaður meistara- náms í stjórnunarreikningsskilum við HR og Auðbjörg Friðgeirsdóttir, MBA og verkefnastjóri innri endurskoðunar hjá PWC. Nánari upplýsingar um efni fundarins er að finna á www.hr.is Hvenær: Miðvikudaginn 7. mars kl. 9–11 Hvar: Háskólinn í Reykjavík, stofa M208 „Líka fyrir konur. Mottumars er líka fyrir konur. Þótt þær séu lengur að safna skeggi.” Safnaðu mottu og áheitum á www.mottumars.is Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á Goðalandi Fljótshlíð, föstudaginn 23. mars 2012 og hefst kl. 15:00. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins. 2. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Reykjavík, 5. mars 2012. Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. Telur þú hugsanlegt að Ólafur Ragnar Grímsson geti tapað í forsetakosningunum í sumar? JÁ 48,1% NEI 51,9% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætlar þú að fylgjast með Reykjavíkurskákmótinu með einum eða öðrum hætti? Segðu skoðun þína á visir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.