Fréttablaðið - 07.03.2012, Side 20

Fréttablaðið - 07.03.2012, Side 20
 | 4 7. mars 2012 | miðvikudagur VIÐTAL Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is Í sland hefur verið að rétta úr kútnum á undanförnum mánuðum. Hér var hagvöxt- ur á seinni hluta síðasta árs eftir tveggja ára samfelld- an samdrátt. Julie Kozack, frá- farandi yfirmaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi, segir Íslendinga geta verið ánægða með þá þróun sem átt hefur sér stað þó að enn séu steðji að hættur sem gætu haft áhrif á langtíma efnahagsbata landsins. „Á seinni hluta ársins 2010 og fyrri hluta ársins 2011 náðist stöð- ugleiki á Íslandi. Á síðari hluta ársins 2011 átti sér stað raunveru- legur efnahagsbati. Hagvöxtur hefur vaxið og neysla hefur auk- ist, sem þýðir að heimilin í land- inu eru farin að eyða meiri pen- ingum. Það þýðir líka að fjárfest- ing sé farin að taka við sér, þó að sá vöxtur sé upp úr sögulega lágum lægðum. En það verður að byrja einhvers staðar. Staðan í dag er ekki fjarri því sem við bjuggumst við í ágúst þegar efnahagsáætlun sjóðs- ins lauk formlega. Auðvitað eru enn áskoranir sem verður að tak- ast á við en ég held að þær fram- farir sem áttu sér stað í íslensku efnahagslífi í fyrra muni halda áfram.“ MIKLAR ÁSKORANIR FRAM UNDAN Hún segir þær áskoranir og áhættur sem gætu haft áhrif á áframhaldandi efnahagsbata Ís- lands bæði utanaðkomandi og inn- lendar. „Varðandi utanaðkomandi áhættur þá höfum við áhyggjur af stöðunni í Evrópu almennt. Ef ástandið versnar þá myndi það hafa áhrif á alþjóðahagkerf- ið og um leið á Ísland. Áhrifin á Ísland gætu verið margs konar. Til dæmis gæti verð á mikilvæg- um útflutningsvörum eins og sjáv- arafurðum og áli lækkað, ferða- mönnum gæti fækkað og það gæti orðið enn erfiðara að fjármagna sig á alþjóðlegum mörkuðum. Innanlands höfum við áhyggjur af öllum töfum á frekari fjárfest- ingu. Það er viðvarandi áhætta. Við sjáum líka hættur á auk- inni verðbólgu. Þá myndum við hjá sjóðnum heldur ekki vilja sjá stefnubreytingar hjá stjórnvöld- um sem myndu grafa undan þeim mikla árangri sem Ísland hefur náð hingað til.“ VARAR VIÐ ALMENNUM AFSKRIFT- UM Aðspurð um hvers konar stefnu- breytingar það séu sem AGS hræðist segir hún það vera öll frá- vik frá þeim sterku stefnum sem innleiddar voru á síðustu árum og hafa stuðlað að hinum góða efna- hagsbata Íslands. Ein slík stefnu- breyting er krafa um almennar niðurfellingar á skuldum heimila. Kozack telur að stjórnmálamenn verði að standast þá freistingu að Það verður að horfa á heildarmyndina Efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og íslenskra stjórnvalda lauk í ágúst síðastliðnum. Sjóðurinn er þó enn með skrifstofu opna hér á landi og stefnt er að því að hún verði opin fram í mars 2013 hið minnsta. Julie Kozack, sem hefur verið yfir- maður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi um eins og hálfs árs skeið, hefur nú látið af því starfi. Í viðtali við Markaðinn fer hún yfir efnahagsbata Íslands, lærdóm sem hægt er að draga af íslensku áætluninni og þær hættur sem eru fram undan. Aðalfundur 2012 Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 22. mars 2012 kl. 9.00 árdegis í húsakynnum félagsins, Síðumúla 24, Reykjavík. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á síðastliðnu starfsári. 2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins eða hvernig mæta skuli halla. 4. Ákvörðun um tillögu stjórnar um starfskjarastefnu félagsins. 5. Tillaga um breytingu á 1. mgr. 4. gr. samþykkta félagsins varðandi fjölda hluta og upphæð einstakra hlutabréfa. 6. Ákvörðun um þóknun til stjórnar. 7. Kosning stjórnar félagsins. 8. Kjör endurskoðenda (endurskoðunarfélags). 9. Önnur mál löglega fram borin. Framboð til stjórnar, þ.m.t. varastjórnar, skal tilkynna skriflega til félagsstjórnar, Síðumúla 24, Reykjavík, skemmst fimm dögum fyrir aðalfundinn. Í tilkynningunni skal greina nafn frambjóðanda, kennitölu, heimilisfang, upp- lýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu, hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% í félaginu. Reikninga félagsins og tillögur má nálgast á aðalskrifstofu félagsins viku fyrir fundinn. Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf. TM Síðumúla 24 // Sími 515 2000 // tm@tm.is // www.tm.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.