Fréttablaðið - 07.03.2012, Síða 38

Fréttablaðið - 07.03.2012, Síða 38
7. mars 2012 MIÐVIKUDAGUR22 22 menning@frettabladid.is AÐEINS NOKKRIR DAGAR eru eftir af sýningu Bjargar Eiríksdóttur í Artóteki á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur í Grófarhúsi. Sýningin er sjötta einkasýning Bjargar, en hún sýnir málverk, myndband, textíl og svífandi skúlptúr. Síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 11. mars. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Miðvikudagur 07. mars 2012 Miðasala hefst í dag á tónleika spænsku söngkonunn- ar Buiku sem kemur fram á Listahátíð í vor. „Buika hefur magnaða sviðsframkomu og einstaklega blæ- brigðaríka túlkun. Tónlistin er blanda af blús, djassi, sálartónlist og spænskum tregasöngvum,“ segir í fréttatilkynningu en Buika kemur hingað til lands með hljómsveit skipaða framúrskarandi hljóðfæra- leikurum frá Bandaríkjunum og Evrópu. Buika er ættuð frá Gíneu á vesturströnd Afríku en fæddist og ólst upp í sígaunaþorpi á Mallorka. Hún er stórt nafn í heimstónlistargeiranum, en hefur einnig starfað með fjölda þekktra popptónlistarmanna. Hún syngur tvö lög í nýjustu kvikmynd spænska leikstjórans Pedros Almodóvar, The Skin I live in, sem nýverið hlaut BAFTA-verðlaunin sem besta erlenda kvikmyndin. Miðasala hefst á Buiku ➜ Sýningar 10.00 Sólrún Halldórsdóttir myndlistar- maður opnar málverkasýningu í Bókasafni Kópavogs, Hamraborg 6a. Þar sýnir hún olíumálverk sem minna á vorið. ➜ Tónlist 12.15 Tónleikaröðin Ljáðu okkur eyra heldur áfram undir stjórn Gerrits Schuil í Fríkirkjunni í Reykjavík. Dagskrá er ekki auglýst fyrir fram. Aðgangur er ókeypis. 21.00 Hljómsveitin ADHD kemur fram á næstu tónleikum Jazzklúbbsins Múlans í Norræna Húsinu, Sturlugötu 5. Aðgangs- eyrir er kr. 1.500. ➜ Upplestur 17.30 Þór Stefánsson mun lesa upp úr tveimur nýjustu ljóðabókum sínum á bókmenntadagskrá í Kórnum, sal Bóka- safns Kópavogs. Oddur Ingi syngur auk þess nokkur lög við ljóð úr eldri bókum Þórs. Ritlistarhópur Kópavogs stendur fyrir dagskránni og er aðgangur ókeypis og kaffiveitingar á boðstólnum. ➜ Málþing 09.00 Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir málstofu um stjórnunarreikningsskil og samspil stjórn- unar, reikningshalds og upplýsingatækni í stofu M208. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. ➜ Fyrirlestrar 12.15 Margrét Eggertsdóttir flytur erindið Langa Edda – Goð og gyðjur í máli og myndum í Þjóðmenningarhúsinu. Um er að ræða hádegisfyrirlestur í erindaröðinni Góssið hans Árna um valin handrit úr safni Árna Magnússonar. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. ➜ Handverkskaffi 20.00 Þorvaldur Jónasson kynnir gotneska skrautritun á handverkskaffi í Gerðubergi. Farið verður í hefðbundna stafagerð en einnig sýnd ýmis afbrigði og fléttað verður inn sögulegum þáttum. Aðgangur er ókeypis. ➜ Námskeið 20.15 Námskeiðið Reykjavík: Tæknin og sagan í umsjá Stefáns Pálssonar sagn- fræðings verður haldið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Á námskeiðinu verður stiklað á stóru í tæknisögu Reykjavíkur. ➜ Dans 14.00 Síðdegisdans verður hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík, Stangarhyl 4. Stjórnendur eru Hafsteinn Sigurðsson og Ágústa Hjálmtýsdóttir. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is. BUIKA Nokkrir af virtustu lista- mönnum Íslands koma fram á listamessunni The Armory Show sem hefst í New York í dag. Þar eru Norðurlöndin í forgrunni. Norðurlöndin verða í fókus á listamessunni The Armory Show sem hefst í New York í dag og stendur fram yfir helgi. Um er að ræða eina af tveimur stærstu listamessunum sem fram fara í Bandaríkjunum. Þangað mæta gallerí hvaðanæva að úr heim- inum, stilla upp fjölbreyttum básum og kynna listamenn fyrir mögulegum kaupendum og öðru áhugafólki um list. Gallerí i8 tekur þátt í mess- unni og sýnir þar ný verk eftir Ólaf Elíasson, sem unnin eru úr íslenskum rekaviði og gleri. Ragnar Kjartansson kemur einn- ig þar fram undir merkjum gall- erísins, en verki hans, ljósaskilt- inu Scandinavian Pain, hefur verið komið þar fyrir. Þá verða valin verk úr dánarbúi Birgis Andréssonar á staðnum, en Gall- erí i8 hefur haft umsjón með þeim. Meðan á listamessunni stendur verður mikið um viðburði af ýmsum toga. Á dagskránni má finna samræður Bjarkar og Ragnars Kjartanssonar, frammi fyrir áhorfendum, en þau munu meðal annars ræða hlutverk endur tekningar og ítrekunar í sköpun listamannsins. „Þetta hefur vakið talsverða athygli þarna úti. Það eru ekki nema 120 sæti í boði á viðburð og mér skilst að fólk sé farið að slást um þau,“ segir Þorlákur Einars- son hjá Gallerí i8. „Þetta verður örugglega mjög skemmtilegt og Björk er mjög elskuleg að taka þátt í þessu.“ Fleiri íslenskir listamenn taka þátt í listamessunni. Þar á meðal er Hrafnhildur Arnardóttir, sem þekkt er undir nafninu Shop lifter, en hún verður með daglega gjörn- inga. Nýlistasafnið verður líka á staðnum með valin verk íslenskra l i sta ma n na . Metro pol ita n Ensemble flytur tónverk eftir Örn Alexander Ámundason og mynd- listarkonan Katrín Sigurðardóttir verður með innsetningu í bóka- búð listamessunnar, Artbook. Einnig mun sænski sýningar- stjórinn Jonatan Habib Engqvist kynna verkefnið (I)ndependent People, samstarf um hundrað nor- rænna listamanna og listahópa, en afrakstur þess verður til sýnis á Listahátíð í Reykjavík í maí. Hægt er að fylgjast með The Armory Show á vefslóðinni blog. icelandicartcenter.is, þar sem fulltrúar Kynningarmiðstöðv- ar íslenskrar myndlistar munu blogga meðan á listamessunni stendur. holmfridur@frettabladid.is Norræn list í forgrunni á listamessu í New York SCANDINAVIAN PAIN Meðal þess sem sjá má á The Armory Show í New York er verk Ragnars Kjartanssonar, Scandinavian Pain. Myndin var tekin við uppsetningu verksins í gær, daginn fyrir opnun listamessunnar. MYND/GALLERÍ I8

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.