Fréttablaðið - 07.03.2012, Qupperneq 42
7. mars 2012 MIÐVIKUDAGUR26
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Það var sumarið 2003
sem moldríkur Rússi, Roman
Abramovich, að nafni keypti
enska knattspyrnufélagið Chel-
sea. Hann greiddi 60 milljón-
ir punda fyrir félagið sem þá
skuldaði 80 milljónir punda.
Það voru smáaurar í augum
Romans sem þurrkaði út skuld-
irnar og fór að eyða peningum
í leikmenn eins og þeir væru að
detta úr tísku. Hann eyddi heil-
um 110 milljónum punda í félagið
fyrsta árið og er talinn hafa sett
600 milljónir punda í Chelsea
síðan hann eignaðist það.
Markmið Romans voru afar
einföld – að gera Chel-
sea að einu besta
félagi heims og
vinna sjálfa Meist-
aradeildina.
Honum tókst á
skömmum tíma
að gera Chelsea að
einu besta liði Evr-
ópu en hinn heil-
agi kaleikur í augum
Romans, Meistara-
deildarbikarinn, hefur
látið bíða eftir sér.
Næst komst Chelsea því
að vinna bikarinn er það
mætti Man. Utd í úrslitum í
Moskvu árið 2008. Þá tap-
aði Chelsea í vítaspyrnu-
keppni.
Síðustu misseri hefur Chelsea
verið að gefa eftir og þolinmæði
eigandans í garð knattspyrnu-
stjóra félagsins er engin. Þeir
fá lítinn tíma til þess að byggja
upp lið.
Það hefur svo sannarlega ekki
verið neinn skortur á hæfileika-
ríkum þjálfurum hjá Chelsea í
gegnum tíðina en þeir hafa samt
undantekningalaust fengið að
fjúka.
Roman greiddi Ítalanum Carlo
Ancelotti 10 milljónir punda til
þess að hætta í lok síðasta sum-
ars. Hann ákvað í kjölfarið að
taka áhættu og ráða hinn 34 ára
gamla Portúgala, André Vil-
las-Boas. Portúgalinn var áður
aðstoðarmaður hjá sjálfum José
Mourinho og hafði verið að gera
frábæra hluti með Porto.
Svo mikla trú hafði Roman á
Villas-Boas að hann greiddi Porto
13,3 milljónir punda til þess að
fá hann. Trúin entist ekki lengi
því 36 vikum og 40 leikjum síðar
ákvað Roman að reka Portúgal-
ann unga. Það kostaði hann 11
milljónir punda og Villas-Boas
var þess utan búinn að
fá 3,5 milljónir punda
í laun á þessum 36
vikum.
Ævintýrið í kring-
um Villas-Boas kost-
aði Roman því að
minnsta kosti 27 millj-
ónir punda. Eftir stend-
ur ein rjúkandi rúst og
efnilegir þjálfarar eins
og Brendan Rodgers hjá
Swansea segjast ekki
hafa nokkurn áhuga á því
að fara til Chelsea. Það eitt
og sér segir sína sögu um það
hvernig menn líta stjórastöð-
una hjá félaginu.
Brasilíumaðurinn Luiz
Felipe Scolari hefur að
auki líkt því við helvíti að vera
knattspyrnustjóri Chelsea.
Rússinn mun þó örugglega
finna hæfan og reyndan mann
til þess að taka við liðinu er það
gerir enn eina tilraunina að því
ná heilaga kaleiknum. Takist það
ekki mun Roman líkast til sveifla
öxinni á nýjan leik og reyna aftur
enda segja kunnugir að það sé
orðin þráhyggja hjá honum að
vinna Meistaradeildina.
henry@frettabladid.is
HAMAR OG FJÖLNIR spila í kvöld hálfgerðan úrslitaleik í Hveragerði um hvort liðið heldur sæti sínu í Iceland Express-
deild kvenna í körfubolta. Fjölnir er með tveggja stiga forskot en Hamar er aftur á móti með betri stöðu í innbyrðisleikjum og
kemst því upp úr fallsæti með sigri. Fjölnir getur bjargað sér endanlega frá falli með því að vinna leikinn með 21 stigi eða meira
því þá getur Hamar ekki náð liðinu í tveimur síðustu umferðunum. Í kvöld mætast einnig Haukar-Keflavík og Njarðvík-Snæfell.
Rúblur Romans
Yfirlit yfir árangur Chelsea frá því að Abramovich keypti félagið og hvernig
reksturinn gekk á hverju tímabili.
2003-04: Enginn titill – taprekstur upp á 112 milljónir punda.
2004-05: Enskir meistarar og deildarbikarmeistarar – tap upp á 104 milljónir punda.
2005-06: Enskir meistarar – tap upp á 38 milljónir punda.
2006-07: Bikarmeistar og deildarbikarmeistarar – tap upp 29 milljónir punda.
2007-08: Enginn titill – tap upp á 11 milljónir punda.
2008-09: Bikarmeistarar – hagnaður upp á 9 milljónir punda.
2009-10: Enskir meistarar og bikarmeistarar – tap upp á 16 milljónir punda
2010-11: Enginn titill – tap upp á 72 milljónir punda.
2011-12: Er í fimmta sæti deildarinnar – tap komið upp í 47 milljónir punda.
Riddarar Romans
Abramovich keypti Chelsea árið 2003 og þá var Claudio Ranieri búinn að vera
stjóri liðsins í þrjú ár. Hann entist aðeins út eina leiktíð.
Claudio Ranieri Ráðinn í september 2000 – rekinn í maí 2005
José Mourinho Ráðinn í júní 2004 – rekinn í september 2007
Avram Grant Ráðinn í september 2007 – rekinn í maí 2008
Luiz Felipe Scolari Ráðinn í júlí 2008 – rekinn í febrúar 2009
Ray Wilkins Var tímabundið stjóri í febrúarmánuði 2009
Guus Hiddink Ráðinn tímabundið í febrúar 2009 og kláraði leiktíðina.
Carlo Ancelotti Ráðinn í júní 2009 – rekinn í maí 2011
André Villas-Boas Ráðinn í júní 2011 – rekinn í mars 2012
Robert Di Matteo Ráðinn til þess að klára tímabilið
LEITIN AÐ HEILAGA KALEIKNUM
Rússinn Roman Abramovich hefur eytt mörgum milljörðum í Chelsea í þeirri von að vinna hinn heilaga
kaleik evrópsku knattspyrnunnar – Meistaradeildina. Hann hefur ekki haft erindi sem erfiði hingað til.
Eftir að hafa komist nálægt því hefur gengi Chelsea legið niður á við og þolimæði Romans fer þverrandi.
VILL RÁÐA Abramovich var farinn að skipta sér af æfingum hjá Villas-Boas
skömmu áður en hann lét hann fjúka. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Mario Balotelli, fram-
herji Man. City, var ekki valinn í
ítalska landsliðshópinn fyrir vin-
áttuleikinn gegn Bandaríkjunum
í síðustu viku.
Cesare Prandelli landsliðsþjálf-
ari sagðist hafa áhyggjur af and-
legu ástandi leikmannsins.
„Mér leið illa yfir því að vera
ekki valinn því ég er alltaf mjög
stoltur af því að spila fyrir Ítalíu.
Það eru ákveðnar reglur í lands-
liðinu sem ég skil og ber virðingu
fyrir en mér fannst ég samt ekki
eiga skilið að vera skilinn eftir.“
- hbg
Mario Balotelli sár:
Vildi spila með
landsliðinu
SPAÐI Balotelli er alltaf áberandi utan
vallar. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Nánast engar líkur eru á
því að Hulk verði áfram hjá Porto
næsta vetur. Hann hefur skapað
sér nafn í Evrópuboltanum síðan
hann kom til félagsins frá Tokyo
Verde árið 2008.
Hulk hefur lengstum verið orð-
aður við Chelsea en einnig við
stóru félögin á Spáni.
„Mér þykir mjög vænt um
Porto en hver myndi ekki vilja
spila með Barcelona? Einnig Real
Madrid. Ég get ekki neitað því að
ég væri til í að spila með báðum
félögum,“ sagði maðurinn með
ofurhetjunafnið. - hbg
Brasilíumaðurinn Hulk:
Heitur fyrir
Real og Barca
FÉLAGAR MEÐ PREMIUM ICELANDAIR
AMERICAN EXPRESS® FRÁ
KREDITKORTI GREIÐA EKKERT
ÁRGJALD Í ICELANDAIR GOLFERS
Golfsettið ferðast frítt!
Þú nýtur þessara hlunninda:
+