Fréttablaðið - 07.03.2012, Qupperneq 46
7. mars 2012 MIÐVIKUDAGUR30
MORGUNMATURINN
„Ég fæ mér yfirleitt hafragraut
eða ávexti, það fer allt eftir
því hversu hress ég er þegar ég
vakna á morgnana.“
Helga Margrét Reykdal, framkvæmda-
stjóri Truenorth.
siminn.is/vefverslun
25% afsláttur
af GSM aukahl
utum
í verslunum Sí
mans
og á siminn.is
„Við ákváðum að halda þetta kvöld
til að sýna fram á að það sé hægt
að hlusta á Motörhead og drekka
Motörhead rauðvín, án þess að
hljóta skaða af,“ segir Franz Gunn-
arsson, en hann og félagar hans á
Gamla Gauknum standa fyrir rokk-
arakvöldi þar sem hægt verður að
fá hið umdeilda Motörhead Shiraz
rauðvín og Black Death bjór.
ÁTVR hefur bannað sölu á þess-
um vörum, og ýmsum öðrum, og
segir Franz þær litlu útskýringar
sem fengist hafa á þeirri ákvörðun
vera grátbroslegar. „Það er alltaf
gott að hafa reglugerðir og eftirlit
með hlutunum, en þetta er alveg
fáránlegt,“ segir Franz.
Tilgangurinn með kvöldinu er
að halda umræðunni um þessa
ákvörðun gangandi. „Við erum
ekki beint í neinum mótmælenda-
hugleiðingum, heldur viljum við
bara benda á fáránleikann í þessu,
hlusta á góða tónlist og drekka í
friði,“ segir Franz og vísar þar til
áletrunarinnar Drink in Peace,
eða drekkist í friði, sem er að
finna á flöskum Black Death
bjórsins og er ástæðan fyrir því
að ÁTVR hefur bannað sölu á
honum.
Rokkarakvöldið verður hald-
ið á Gamla Gauknum í kvöld
og hefst klukkan 21.00. „Við
erum búnir að setja saman
í flotta rokkhljómsveit með
meðlimum úr HAM, Sól-
stöfum, Skálmöld og Dr.
Spock og ætlum að bjóða
upp á fría tónleika með
Motörhead-lögum þar sem
rokkarar geta keypt sér
sitt rauðvín og smakkað á
sínum bjór,“ segir Franz
og hvetur alla alvöru rokk-
ara til að klæða sig upp
fyrir kvöldið, þar sem veg-
leg verðlaun verða veitt
fyrir þann sem líkist mest
Lemmy Kilmister, söngvara
Motörhead. - trs
Rokkarar ætla að drekka í friði
FRIÐSÖM MÓTMÆLI Franz segir
kvöldið hugsað til að sýna fram
á að hægt sé að hlusta á rokk-
tónlist og drekka rokkaravín, en
samt komast heill heim.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Svona er það þegar maður eyðir
öllum vinnudeginum saman, þá
kvikna alls konar hugmyndir,“
segir Elsa Nielsen, grafískur
hönnuður, sem hannaði klukkuna
Lukku ásamt Þorbjörgu Helgu
Ólafsdóttur.
Hönnunin vann til verðlauna
í umbúðasamkeppni á vegum
prentsmiðjunnar Odda og Félags
íslenskra teiknara og hlutu þær
150.000 króna inneign í prent-
smiðjunni að launum.
Elsa og Þorbjörg starfa báðar
sem grafískir hönnuðir á auglýs-
ingastofunni Ennemm en þetta
er þeirra fyrsta samstarfsverk-
efni. Stöllurnar nefndu klukkuna
Lukku og er hún úr umhverfis-
vænum pappa og lítur út eins
og lítill pappakassi sem eigand-
inn setur sjálfur saman ásamt
klukkuverki og litaspjöldum í
mörgum litum.
„Okkur langaði að hanna
umbúðir sem væru jafnframt
varan sjálf en ég verð að gefa
manninum mínum Páli Ásgeiri
Guðmundssyni hrós en það var
hann sem stakk upp á því að við
hönnuðum klukku,“ segir Elsa
en klukkan hefur vakið mikla
athygli þrátt fyrir að vera ekki
komin í framleiðslu enn þá. „Við
höfum verið að fá fyrirspurnir
og margir sem vilja til dæmis
athuga með fermingargjafir. Við
erum mjög ánægðar með sigur-
inn og stoltar.“
Elsa Nielsen er helst þekkt
fyrir að hafa látið til sín taka á
badmintonvellinum þar sem hún
er margfaldur Íslandsmeistari en
hún er langt frá því að
vera búin að leggja spaðann á
hilluna. „Ég er enn þá að spila
með gamla genginu
enda hálf ofvirk og á
erfitt með að hætta. Ég
er með mikið keppnis-
skap og ætli það hafi
ekki skilað sér inn
í hönnunarheiminn
líka.“ - áp
Keppnisskapið skilaði sér í hönnunarheiminn
LUKKU KLUKKA Samstarfskon-
urnar Elsa Nielsen og Þorbjörg
Helga Ólafsdóttir hönnuðu
klukkuna Lukku sem bar sigur
úr býtum í umbúðakeppni
Odda og FÍT. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
- getur m.a. hjálpað ef þú finnur fyrir:
Sjúkraþjálfari framkvæmir göngugreiningu hjá Heilsulandi
Aumum hælum
Beinhimnubólgu
Verkjum í iljum
Þreytuverkjum og
pirring í fótum
Verkjum í hnjám
Verkjum í baki eða
mjöðmum
Hásinavandamálum
Sérfræðingar Heilsulands eru Ásmundur Arnarsson
og Jónas Grani Garðarsson sjúkraþjálfarar
GÖNGUGREINING
Fyrirtækið Exton hefur verið
önnum kafið í leit að hljómborð-
um að undanförnu vegna tónleika
Manfred Mann´s Earth Band 16.
maí. Leitin hefur náð alla leið til
Seyðisfjarðar og Akureyrar en tón-
leikarnir verða haldnir í Háskóla-
bíói.
„Það sem okkur fannst fyndið
er að þetta eru allt hljómborð frá
níunda áratugnum. Þau eru ekki
einu sinni gömul og ekki einu sinni
ný heldur bara einhvers staðar mitt
á milli,“ segir Ívar Ragnarsson hjá
Exton.
Forsprakki Manfred Mann´s
Earth Band er hljómborðsleikarinn
Manfred Mann, sem leggur mikla
áherslu á að vera með réttu hljóm-
borðin til taks, enda byggir prog-
tónlist sveitarinnar mjög á þéttum
hljómborðsleik.
Þessi sögu-
fræga hljóm-
sveit óskaði
eftir sjö til átta
hljómborðum
s em þu r f t u
öll að vera af
ákveðinni teg-
und og árgerð.
Exton var ráðið
til að útvega
þessi hljómborð
en átti þau ekki á skrá hjá sér, enda
mörg þeirra sjaldgæf hér á landi.
Fyrirtækið setti þá auglýsingu
á síðu íslenskra hljómborðsleik-
ara á Facbook þar sem óskað var
eftir aðstoð. Einn þeirra sem lagði
fram hjálparhönd var Eyþór Gunn-
arsson, hljómborðsleikari Messo-
forte, sem bauðst til að útvega eitt
hljóðfæri.
Ekki hefur þó enn tekist að hafa
uppi á öllum hljómborðunum.
Aðspurður segist Ívar ekki óttast
að hann finni ekki þau sem upp á
vantar. „Við höfum séð um flest
allar þessar hljómsveitir sem hafa
komið og við getum reddað nánast
öllu,“ segir hann.
Þrátt fyrir vandræðin með
hljómborðin vilja liðsmenn Man-
fred Manns´Earth Band sjálf-
ir ekki láta hafa mikið fyrir sér.
Engin svíta hefur verið tekin frá
fyrir þá og gista þeir allir í venju-
legum hótelherbergjum, Manfred
Mann jafnt sem tæknimennirnir.
Miðasala á tónleikana hefst á
Midi.is í dag. Meðal vinsælustu laga
sem Manfred Mann hefur sent frá
sér eru Do Wah Diddy Diddy, Pretty
Flamingo, Mighty Quinn og Blinded
By the Light. freyr@frettabladid.is
ÍVAR RAGNARSSON: ALLT HLJÓMBORÐ FRÁ NÍUNDA ÁRATUGNUM
Leita að hljómborðum úti
um allt land fyrir Manfred
VILJA MÖRG HLJÓMBORÐ Liðsmenn Manfred Mann´s Earth Band þurfa á mörgum hljómborðum að halda á tónleikum sínum í
Háskólabíói. Eyþór Gunnarsson bauðst til að útvega eitt hljómborð.
EYÞÓR
GUNNARSSON