Fréttablaðið - 12.04.2012, Page 1
veðrið í dag
LÖGREGLUMÁL Mikil harka hefur
færst í undirheima Akureyrar á
undanförnum árum. Lögreglan
fæst við mun alvarlegri glæpi nú
en árin fyrir efnahagshrunið, að
sögn Gunnars Jóhannssonar, yfir-
manns rannsóknardeildar lög-
reglunnar í bænum. Flest afbrot
má rekja til fíkniefnaneyslu, sem
hefur færst mikið í aukana.
Fjögur vopnuð rán hafa verið
framin á Akureyri það sem af
er ári. Tvö voru framin af fólki í
fíkniefnaneyslu en hin af konu sem
á við andleg veikindi að stríða.
Lögreglan á Akureyri fylgist vel
með þróun skipulagðra glæpasam-
taka í bænum í samstarfi við lög-
regluna á höfuðborgarsvæðinu.
Gunnar segir þó lítið benda til
þess að þau séu að festa sig í sessi.
„Þó eru vissir einstaklingar að
reyna að tengja sig við þessa hópa,
til að sýnast stærri en aðrir,“ segir
hann. „Við rukkanir er algengt
að menn segist vera tengdir inni
mótor hjólahópa, án þess að hafa
nokkuð fyrir sér í því.“
Lögreglan hóf að finna merkjan-
legan mun á eðli afbrota í bænum
á árunum 2005 og 2006. Gunnar
segir að þó sá harði kjarni fíkni-
efnaneytenda sem stundaði
afbrot í mestum mæli hafi verið
fangelsaður, komi alltaf maður í
manns stað. „Þetta er eins og að
standa í flæðarmálinu; þó ein alda
fari þá kemur alltaf önnur.“
Eiríkur Björn Björgvinsson,
bæjarstjóri á Akureyri, hefur
áhyggjur af þróuninni. „Auðvitað
veldur það áhyggjum ef forvarnar-
starf skilar ekki meiri árangri en
þetta,“ segir hann. „Þá er spurning
hvort við þurfum eitthvað að
endur skoða þær aðgerðir.“
- sv / sjá síðu 8
í kvöld
Opið til
21
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup júlí - september 2011
Fimmtudagur
skoðun 18
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
Heilsa
12. apríl 2012
85. tölublað 12. árgangur
Við rukkanir er
algengt að menn
segist vera tengdir inni í
mótorhjólahópa, án þess að
hafa nokkuð fyrir sér í því.
GUNNAR JÓHANNSSON
RANNSÓKNARLÖGREGLUMAÐUR
HEILSAFIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012 KynningarblaðGrenningarlyf, heilsurækt, fótadekur, vöðvafíkn, umönnun ungbarna og góð ráð.
V ið opnuðum í Egilshöll 6. febrúar,“ segir Íris Huld Guðmundsdóttir, stöðvar-stjóri World Class í Egilshöll. Í stöðinni er tækjasalur, barna-horn, CrossFit-salur auk þess sem góð aðstaða er fyrir aðra hóptíma svo sem Hot Yoga, Tabata, Butt-lift og Zumba. „Hér í Egilshöll bjóðum við upp á heilsurækt fyrir 2.990 krónur á mánuði með engri bindingu, auk þess sem aðgangur að fjölbreyttum hóptímum fylgir með,“ segir Íris.
CrossFit og Hot Yoga vinsælast„Hér í Egilshöll er Crossfit Iceland með glæsilega CrossFit-aðstöðu og hafa CrossFit-námskeiðin verið mjög vinsæl hjá okkur. Hot Yoga nýtur mikilla vinsælda og er mikil
aðsókn í tímana,“ segir Íris. Hot Yoga eru tímar þar sem stundaðar eru jógaæfingar í 37 gráðu heitum sal og hefur það góð áhrif á andlega og líkamlega heilsu. CrossFit er al-hliða heilsuræktarkerfi sem nýtur mikilla vinsælda enda byggir það á fjölbreyttum, hnitmiðuðum og kraftmiklum æfingum.
Frábær staðsetning Egilshallarinnar
Í nágrenni Egilshallar eru góðar göngu- og hlaupaleiðir. Í húsinu er einnig að finna fjölbreytta af-þreyingu fyrir fjölskylduna svo sem skautasvell og bíó. Íris segir World Class í Egilshöll vera vel sótt af foreldrum sem nýta tæki-færið og rækta sig á meðan börninstunda sína íþ ó
eru íþróttafélögin Fjölnir og Björninn með aðstöðu.
Úrval hóptíma í boði fyrir viðskiptavini án endurgjaldsÍri
og annarra World Class-stöðva. „Í tímatöflunni eru fjölbreyttir tímar og allir ættu að finna eitthvað viðsitt hæfi,“ segir Íri
enda er nú bjartara á morgnana og fólki þyki auðveldara að komsér á f t
Hot Yoga og Cross Fit í EgilshöllWorld Class opnaði sína tíundu stöð í Egilshöll í febrúar. Úrval tíma er ríkulegt og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Í Egilshöll er tækjasalur, barnahorn, CrossFit salur og góð aðstaða fyrir aðra hóptíma.
Fjölbreyttir tímar eru í boði í Egils-höll en CrossFit og Hot Yoga er vinsælast.
Egilshöll er vel
sótt af for-
eldrum sem nýta tækifærið og rækta sig á meðan börnin
stunda sínar íþróttirr, en í hús-inu eru íþrótta-
félögin Fjölnir og Björninn með
aðstöðu.
FLOTTAR YFIR FERTUGT
Sagt er að ofurfyrirsætur tíunda áratugarins séu enn vin-sælastar hjá hönnuðum. Þær birtast oft á síðum heimstíma-ritanna, kynþokkafullar og flottar á fimmtugsaldri. Má þar nefna Claudiu Schiffer (41), Christy Turlington (42), Helenu Christensen (41), Lindu Evangelista (46), Cindy Crawford (45), Naomi Campbell (41) og Elle Macpherson (47).
GLÆSILEIKI
Fylgihlutir
Stöku eru fyrir
bæði kynin og
henta fólki á
öllum aldri.
Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is
Sundfatnaður
- ný sending komin
ALDEILIS FRÁBÆR !
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardagateg 8115 létt fylltur, mjúkur og yndislegur í B,C
skálum á kr. 5.500,- buxur í stíl á kr. 1.995,-
Ný sending
Túnikur,
síðir bolir,
undirkjólar...
HRÆÐSLA VIÐ FLÓÐBYLGJU Fólk í Aceh-héraði í Indónesíu varð skelfingu lostið eftir að öflugir jarðskjálftar riðu yfir í gær.
Margir reyndu að flýja upp í hæðir til að forðast flóðbylgju, sem varð þó ekki. NORDICPHOTOS/AFP
Harka eykst í undir-
heimum Akureyrar
Lögreglan á Akureyri hefur fengist við mjög alvarlega glæpi síðustu ár. Nær öll
afbrot eru tengd fíkniefnum. Fjögur vopnuð rán framin á þessu ári. Tengsl við
glæpasamtök notuð sem hótanir. Bæjarstjóri hefur áhyggjur af þróuninni.
NÝ KILJA EFTIR
JAMES PATTERSON
Dramatísk átök og óbærileg spenna www.forlagid.is
Veiddi urriða á banana
Ómar Smári Óttarsson er
fjórtán ára Hafnfirðingur
með veiðidellu.
veiði 50
TÓNLIST Platan My Head is an Ani-
mal með Nönnu Bryndísi Hilm-
arsdóttur og félögum í hljóm-
sveitinni Of Monsters and Men
fór beint í sjötta sæti bandaríska
Billboard-listans, en listi sem
nær yfir plötusölu í síðustu viku
var birtur síðdegis í gær. Þetta er
besti árangur sem íslensk hljóm-
sveit hefur náð á listanum, sem
hefur haldið utan um plötusölu í
Bandaríkjunum frá árinu 1945.
Björk Guðmundsdóttir náði
níunda sæti með plötunni Volta,
sem kom út árið 2007, en það var
besti árangur hennar á listanum.
- afb / sjá síðu 54
Plata Of Monsters and Men:
Í sjötta sæti
Billboard-listans
STÖKU SKÚRIR eða él S- og A-til
í dag. Víða fremur hægur vindur
en hvassara með S-stöndinni og á
Vestfjörðum. Vægt frost NA-til en
hiti að 7 stigum SV-lands.
VEÐUR 4
4 4
-1
0
-1
Vaxandi vinsældir
80 stúlkur tóku þátt í
Íslandsmótinu í módelfitness
um helgina, sem er met.
lífsstíll 42
Níu leiðir til lífsorku
Ný bók eftir Þorbjörgu
Hafsteinsdóttur komin út.
tímamót 28
VELGENGNI Nanna Bryndís Hilmarsdóttir
og félagar í Of Monsters and Men njóta
mikillar hylli vestanhafs.
SÝRLAND, AP Sýrlensk stjórnvöld
lofuðu í gær að hefja vopnahlé í
dag, eins og friðaráætlun gerir
ráð fyrir.
Friðaráætlun Kofi Annans,
sérstaks erindreka í málefnum
landsins, gerði ráð fyrir því að
vopnuðum átökum yrði hætt í
dag. Vopnahlé að hluta áttu að
hefjast á þriðjudag en stjórn-
völd hunsuðu það og héldu áfram
árásum á mörgum stöðum í
landinu. Fréttir herma að minnst
ellefu hafi látist í gær.
Uppreisnarmenn í landinu voru
því efins um að stjórnvöld stæðu
við þessa yfirlýsingu. - þeb
Segjast uppfylla friðaráætlun:
Stjórnvöld hétu
vopnahléi í dag
INDÓNESÍA „Ég held að ég þurfi að
pakka öllu áður en ég fer að sofa til
öryggis ef ég skyldi vakna við sír-
enurnar í nótt,“ segir Gunnar Kári
Oddsson, sem er staddur í Taíl-
andi. Þar var gefin út flóðbylgju-
viðvörun í gær eftir að tveir sterk-
ir jarðskjálftar riðu yfir skammt
undan ströndum Indónesíu. Við-
vörun var gefin út í öllum lönd-
um sem liggja að Indlandshafi,
en neyðarástandi var svo aflýst
tveimur klukku stundum síðar.
Skjálftarnir fundust í Malas-
íu, Taílandi, Indlandi og Bangla-
dess, og voru byggingar rýmdar.
Gunnar Kári fann þó ekki fyrir
skjálftunum þar sem hann var
staddur um borð í bát. „Ég hafði
ekki hugmynd um eitt né neitt fyrr
en ég var kominn á gistiheimilið.“
Hann segist heppinn að vera
staddur þar sem hann er, á Koh
Lanta. „Hér eru mestmegnis inn-
fæddir og þeir vita alveg hvað á
að gera í svona aðstæðum.“ Hann
segir marga hafa ætlað að gista
uppi í fjöllum síðastliðna nótt til
að vera öruggari.
Mikil skelfing greip um sig í
Indónesíu þegar skjálftarnir urðu,
en þeir mældust 8,6 og 8,3 stig á
Richter. . - þeb, þj / sjá síðu 6
Íslenskur maður ætlaði að pakka öllu niður fyrir svefninn af ótta við eftirskjálfta:
Skelfing greip um sig í skjálfta
Ekki búið enn
Haukar slógu veisluhöldum
Njarðvíkurstúlkna á frest
með sigri í Ljónagryfjunni.
sport 46