Fréttablaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 64
12. apríl 2012 FIMMTUDAGUR48 ÍSHOKKÍ Í dag hefst sterkasta íshokkímót sem haldið hefur verið hérlendis þegar keppni í A-riðli 2. deildar heimsmeistara keppninnar hefst. Ísland mætir Nýja-Sjálandi í fyrsta leik en þar fyrir utan eru Spánn, Króatía, Serbía og Eistland í riðli Íslands. Sigurvegari riðilsins kemst upp í B-riðil 1. deildarinnar en liðið sem hafnar í neðsta sæti fellur niður í B- riðil 2. deildarinnar. Leikir Íslands hefjast allir klukkan 20.00 og er aðgangseyrir 1.000 krón- ur. Frítt er inn á hina leikina í riðl- inum sem hefjast klukkan 13.00 og 16.30 þá daga sem spilað er. Íshokkííþróttinni hefur vaxið ásmegin hér á landi síðustu árin en Ísland tók fyrst þátt í HM árið 1999 og hafnaði þá í neðsta sæti neðsta riðilsins. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og Ísland er nú að keppa við sterkar þjóðir. „Okkar aðalmarkmið er að halda í við þessar þjóðir sem við erum að mæta,“ sagði fyrirliðinn Ingvar Þór Jónsson sem hefur verið með lands- liðinu allar götur síðan 1999. „Við viljum festa okkur í sessi í þessum riðli en við vitum að það verður erf- itt.“ Hann vonast til að þess að keppn- in sem nú fer fram á landinu verði til að auka áhugann á í þróttinni meðal almennings. En til þess að auka veg íþróttarinnar hér á landi þurfi fyrst og fremst að bæta aðstæðurnar. „Áður en hallirnar komu á sínum tíma gátum við bara æft utanhúss í 2-3 mánuði yfir árið. Koma þeirra var því mikil bylting. En nú hefur skapast flöskuháls því það er setið um þær þrjár hallir sem til eru. Við þurfum fleiri hallir til að fá bæði fleiri lið og fleiri iðkendur, sem er íþróttinni nauðsynlegt. Það er löngu orðið tímabært,“ sagði Ingvar. - esá A-riðill 2. deildar HM í íshokkí fer fram hér á landi næstu dagana: Sterkar þjóðir keppa hér á landi ÍSHOKKÍ Í fyrsta sinn verður sjón- varpað beint frá íshokkíleik hér á landi út fyrir landsteinana en allir leikir Króatíu í A-riðli 2. deildar HM verða sýndir beint ytra. Keppni í riðlinum fer fram hér á landi og fara allir fram í Skautahöllinni í Laugardal. Leiki Íslands verður einnig hægt að sjá á internetinu, til að mynda á heimasíðu Rúv. Ísland mætir Nýja-Sjálandi í fyrsta leik sínum klukkan 20.00 í kvöld. - esá Áhugi á HM í íshokkí: Bein útsending til Króatíu SUND Í dag hefst Íslandsmeistara- mótið í 50 m laug í Laugardals- lauginni. Þetta er stærsta mót ársins hér á landi og eitt fárra sem eru viðurkennd hjá FINA, Alþjóðasundsambandinu. Kepp- endur eiga því möguleika á að ná Ólympíulágmörkum á mótinu. Enn sem komið er hefur enginn íslenskur sundmaður náð lág- marki fyrir leikana en að sögn Ragnars Marteinssonar, stjórnar- manns í SSÍ, má gera ráð fyrir að allt að fjórtán sundmenn séu að stefna að því leynt og ljóst að ná lágmörkum. „Það má búast við að einhver muni ná lágmarki í sinni grein um helgina – ég reikna fastlega með því,“ sagði Ragnar en allt okkar besta sundfólk mun keppa á mótinu fyrir utan Hrafnhildi Lúthersdóttur. „Í raun má líkja þessu við úrtökumót hjá öðrum þjóðum því okkar sundfólk hefur verið að undirbúa sig fyrst og fremst fyrir þetta mót. En þó svo að lág- markið náist ekki nú fær sund- fólkið tækifæri á öðrum alþjóð- legum mótum síðar í vor,“ bætti hann við. Nánari upplýsingar um mótið má nálgast á sundsamband. is. - esá ÍM í 50 m laug hefst í dag: Geta tryggt sig á Ólympíuleika STEFNIR Á LONDON Anton Sveinn McKee er einn þeirra íslensku sund- manna sem stefna á að ná Ólympíulág- marki um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Leikir Íslands A-riðill 2. deildar HM: Ísland - Nýja-Sjáland í kvöld kl. 20.00 Ísland - Serbía á morgun kl. 20.00 Ísland - Eistland sunnudag kl. 20.00 Ísland - Spánn þriðjudag kl. 20.00 Ísland - Króatía miðvikudag kl. 20.00 LANDSLIÐSMENN Frá vinstri eru Birkir Árnason, Ingvar Þór Jónsson, Emil Alingard og Snorri Sigurbjörnsson ásamt þjálfaranum Olfa Eller. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.