Fréttablaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 70
12. apríl 2012 FIMMTUDAGUR54
MORGUNMATURINN
„Ég fæ mér gjarnan lýsi og
mulið hrökkbrauð í skál með
hrísgrjónamjólk út á. Svo er það
kaffi og sígó. Jú, og Fréttablaðið
og þátturinn hans KK á Rás 1
með.“
Sindri Kjartansson framleiðandi.
„Það er búið að vera svo rosalega mikið af lélegu aug-
lýsingarefni, sjónvarpsefni og útvarpsefni á boðstól-
um að undanförnu að okkur fannst við verða að heiðra
það,“ segir útvarpsmaðurinn Máni Pétursson um end-
urvakningu verðlaunahátíðarinnar Gullkindin.
Máni stjórnar útvarpsþættinum Harmageddon á
X977 ásamt Frosta Logasyni. Þeir félagar ætla nú að
endurvekja hin vafasömu verðlaun sem eru veitt fyrir
lélega frammistöðu í útvarpi og sjónvarpi, en þau
hafa legið í dvala frá árinu 2006. „Fólk áttar sig ekki
á að það þarf hæfileika til að gera efni virkilega lélegt
og það þarf að leggja sig fram til að gera efni nógu
lélegt til að hægt sé að hlæja að því. Þetta fólk þarf að
fá viðurkenningu fyrir störf sín,“ segir Máni. Hann
segir sérstaka baráttu vera um hver hlýtur Heiðurs-
gullkindina sem er veitt þeim sem aldrei hafa búið til
neitt gott efni.
Sigurjón Kjartansson var meðal þeirra sem upphaf-
lega byrjuðu með verðlaunin og eru strákarnir búnir
að fá samþykki frá honum til að taka þau yfir. Stefnt
er á að hafa verðlaunahátíðina í lok apríl. „Við erum
að bíða eftir samþykki frá Elítunni áður en tilnefning-
arnar verða gerðar opinberar,“ segir Máni sem ekki
vill gefa út hverjir sitji í Elítunni. „Þetta er eins og
með Óskarinn, það þarf að passa upp á að enginn geti
haft áhrif á val dómnefndar,“ segir hann. - trs
Endurvekja Gullkindina
VAFASÖM VERÐLAUN Þeir Máni og Frosti Harmageddon-
bræður standa fyrir endurvakningu verðlauna fyrir lélega
frammistöðu í útvarpi og sjónvarpi. Verðlaunaafhendingin fer
fram í lok apríl.
Platan My Head Is an Animal með hljóm-
sveitinni Of Monsters and Men fór beint í
sjötta sæti bandaríska Billboard-listans,
en listi sem nær yfir plötusölu í síðustu
viku var birtur síðdegis í gær. Þetta er
besti árangur sem íslensk hljómsveit
hefur náð á listanum, sem hefur haldið
utan um plötusölu í Bandaríkjunum frá
árinu 1945.
My Head Is an Animal kom út í Banda-
ríkjunum í síðustu viku og hefur selst
í meira en 55 þúsund eintökum, eins og
Fréttablaðið greindi frá í gær. Rapp-
kvendið Nicki Minaj náði efsta sæti
Billboard-listans með plötu sinni Pink
Friday: Roman Reloaded, en hún seldist í
253.000 eintökum.
Engin íslensk hljómsveit hefur komist
svo ofarlega á Billboard-listann. Björk
Guðmundsdóttir náði níunda sæti með
plötunni Volta, sem kom út árið 2007,
en það var besti árangur hennar
á listanum. Hljómsveitin Sigur
Rós náði besta árangri sínum
á Billboard ári síðar þegar
platan Með suð í eyrum við
spilum endalaust náði 15.
sæti. Þá er forvitnilegt að
skoða árangur plötunnar
Debut með Björk sem náði
hæst 61. sæti á Billboard.
Ágætis byrjun með Sigur
Rós komst ekki inn á
listann. - afb
Of Monsters and Men í sjötta sæti á Billboard
MAGNAÐUR ÁRANGUR Hljómsveitin Of Monsters
and Men skýtur Björk og Sigur Rós ref fyrir rass
með því að ná sjötta sæti Billboard-listans. Engin
íslensk hljómsveit hefur náð viðlíka árangri.
„Fyrsta árið lærir maður allar
greinar fagsins, þar á meðal að
gegla og loftfimleika, en hin þrjú
árin fara í það að sérhæfa sig,“
segir Eyrún Ævarsdóttir sem mun
hefja nám í sirkuslistum við Codart-
skólann í Rotterdam í haust.
Eyrún leiddist inn í sirkusinn í
gegnum leiklist og hefur verið með-
limur í Sirkus Íslands í þrjú ár. Hún
hefur sérhæft sig í loftfimleikunum
aerial silks, eða silki eins og hún
kýs að kalla það, og þrisvar sinnum
komið fram með Sirkusnum.
„Á fyrstu sýningunni var ég
trúður en síðan fór ég að einbeita
mér að loftfimleikum í auknum
mæli og það er nú orðið sér greinin
mín. Silki eru borðar sem hanga
úr loftinu og maður vefur sig í þá,
klifrar upp þá og gerir alls kyns
kúnstir,“ útskýrir Eyrún sem
útskrifast með BA-gráðu í Circus
Arts að náminu loknu.
Eyrún lauk námi af félagsfræði-
braut Menntaskólans í Hamra-
hlíð um jólin og sótti um inn-
göngu í Codart stuttu síðar. Hún
segir námsvalið ekki hafa komið
foreldrum hennar á óvart enda hafi
hún verið viðloðandi Sirkus Íslands
í nokkur ár. Eyrún var kölluð í inn-
tökupróf við skólann fyrir stuttu
sem hún segir hafa verið langt og
strangt. „Þetta voru í raun tveggja
daga vinnubúðir þar sem allir
umsækjendurnir unnu saman í
hópum. Þetta var flest mjög venju-
legt fólk og margir voru með bak-
grunn í dansi og leiklist.“
Aðspurð segist hún vilja flytja
aftur heim að náminu loknu
til að leggja sitt af mörkum til
að efla sirkuslistina á Íslandi.
„ Draumurinn er að geta nýtt námið
hér heima eftir að ég klára. Mig
langar að flétta saman sirkuslistum
og leiklist, kannski ekki svo ólíkt
því sem Vesturport hefur verið að
gera, en með áhersluna á sirkus og
leiklistina í aukahlutverki.“
sara@frettabladid.is
EYRÚN ÆVARSDÓTTIR: DRAUMURINN AÐ NÝTA NÁMIÐ HÉR HEIMA
Fer til Hollands og nælir
í BA-gráðu í sirkuslistum
KOMST INN Í SIRKUSSKÓLA Eyrún Ævarsdóttir fékk inngöngu í sirkusnám við Codart-
skólann í Rotterdam. Eyrún hefur verið meðlimur í Sirkus Íslands í þrjú ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN