Fréttablaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 40
KYNNING − AUGLÝSINGHeilsa FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 20128
MÁLÞING UM BYGGINGAR, INNILOFT OG HEILSU
Málþing um byggingar, inniloft og heilsu verður haldið í dag. Aðgangur er ókeypis
og eru allir velkomnir. Það eru Íslandsdeild ISIAQ, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og
fleiri hagsmunaaðilar sem standa að málþinginu. Vitundarvakning á mikilvægi
innilofts er helsti hvatinn að málþinginu en rannsóknir hafa sýnt að vellíðan okkar
og ýmsa kvilla megi rekja til óheilnæms innilofts. Málþingið skiptist í tvo hluta.
Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs HÍ, er fundarstjóri fyrri hluta
en Maríus Þór Jónasson frá VSÓ Ráðgjöf stýrir seinni hlutanum. Ýmsir innlendir og
erlendir fyrirlesarar halda erindi á málþinginu, þar á meðal Matthias Braubach frá
Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni, Michael Clausen, sérfræðingur í barna - og ofnæmis-
lækningum og Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir líffræðingur og meistaranemi í lýð-
heilsuvísindum við HÍ. Málþingið er jafnframt stofnfundur Íslandsdeildar ISIAQ en
tilgangur hennar er að vera leiðandi í kynningum á mikilvægi loftgæða innandyra.
Málþingið er í Norræna húsinu og stendur yfir frá kl. 13-18.
VÆNGIRNIR
PASSA ILLA VIÐ
SUMARKJÓLINN
Flestar konur eru síður en svo
kátar með að hafa „vængi“ á
upphandleggjum. Sérstaklega
þykir það óspennandi á sumrin,
þegar fötum er fækkað. Það er
aldrei of seint að æfa hand-
leggina þannig að þeir styrkist.
Til að fá sterkari upphandleggi
þarf að lyfta reglulega með
lóðum. Nauðsynlegt er að gera
æfingar undir leiðsögn íþrótta-
þjálfara. Lóðin þurfa að vera af
réttri þyngd en með því að lyfta
rétt er einnig hægt að koma í
veg fyrir vöðvabólgu
í öxlum og hálsi.
Í líkamsræktar-
sölum eru
nokkur tæki
sem einnig
styrkja
upp-
hand-
leggi.
Með reglubund-
inni hreyfingu
í tækjasal undir
leiðsögn þjálfara er hægt að
byggja upp og styrkja alla vöðva
líkamans. Æfingarnar hafa áhrif
á læri, rass og maga auk hand-
leggja. Það tekur um það bil tólf
vikur með reglulegri þjálfun að
finna og sjá mun á sér. Líkams-
ræktina verður þá að stunda
á hverjum degi og leggja hart
að sér.
Heilsubætandi rækt
Fyrstu vikurnar finnur sá sem
æfir fljótt hvernig líkaminn
verður styrkari og þolið eykst.
Þeir sem eru í kjörþyngd eru
mun fljótari að finna mun en
hinir sem eru of þungir. Ekki
gefast upp þótt tíma taki að
vinna upp þolið. Líkamsræktin
er ekki einungis til að byggja
upp þol og styrkari vöðva. Hún
hjálpar einnig andlega, er sjálf-
styrkjandi og heilsubætandi.
Þótt hægt sé að gera margar
þessara æfingar heima er líklegra
til árangurs að gera þær undir
stjórn líkamsræktar kennara auk
þess sem það er meira hvetjandi.
Ekki búast við að léttast mikið
fyrst eftir að þjálfunin hefst því
vöðvarnir þyngjast.
Átak í upphafi
Gætið að því að gera æfingar
rétt ella er hætta á meiðslum.
Þeir sem eru alveg óvanir
líkamsrækt ættu að koma sér af
stað með því að byrja á nám-
skeiði undir stjórn þjálfara. Nám-
skeiðinu fylgir yfirleitt kennsla í
tækjasal en ágætt er að blanda
þessu tvennu saman.