Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.04.2012, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 12.04.2012, Qupperneq 4
12. apríl 2012 FIMMTUDAGUR4 Fjallað var sérstaklega um loftlínur og jarðstrengi á kynningarfundi sem Landsnet hélt skömmu fyrir mán- aðamót. Þar kom fram í máli Írisar Baldursdóttur, deildarstjóra kerfis- stjórnar og markaðar hjá Landsneti, að almennt séu háspennulínur yfir 100 kV spennu loftlínur, líkt og gert sé í nágrannalöndum okkar og raunar um heim allan. „Þó eru þess dæmi að flutnings- línur séu lagðar sem jarðstrengir og er það aðallega gert á svæðum þar sem háar loftlínur auka slysahættu og valda truflunum á samgöngum eða vegna sérstakra umhverfishags- muna,“ sagði hún, en í kynningu hennar kom jafnframt fram að þróun jarðstrengjanotkunar hér á landi sé nokkuð sambærileg við það sem víða gerist erlendis. Um leið benti hún á að aukin notkun jarðstrengja gæti valdið verulegri raforkuverðshækkun. „Í Noregi hefur til dæmis verið gefið út að strengvæðing 10 prósenta af 300 til 420 kV flutningskerfinu myndi leiða til 25 prósent hækkunar á tekjumörkum og sú hækkun skilar sér síðan út í gjaldskrá til notenda, en það er ekki talið forsvaranlegt,“ sagði hún og taldi mikilvægt að stíga varlega til jarðar hvað varði stefnumótun um lagningu jarð- strengja. Mikilvægt að stíga varlega til jarðar GENGIÐ 11.04.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 229,2953 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 126,91 127,51 202,07 203,05 166,79 167,73 22,421 22,553 21,967 22,097 18,746 18,856 1,5686 1,5778 195,65 196,81 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is NOREGUR Yfirvöld í Noregi hafa staðfest að líkið sem fannst í hafi utan við Tromsö er af Magnúsi Daníelssyni, skipstjóra Hall- gríms SI sem fórst á leið til Noregs í janúar. Sjómenn fundu líkið hinn 29. mars síðastliðinn en hann var þá enn klæddur í flotbúning. Ýmislegt benti til þess um hvern gæti verið að ræða og miðaði rannsókn málsins að því. Magnús lætur eftir sig eigin- konu og þrjú uppkomin börn. Tveir skipverjanna sem fórust þegar Hallgrímur sökk eru enn ófundnir, en Erlingur Ingi Jóhannsson komst einn lífs af. - þj Líkfundur í Norður-Noregi: Kennsl borin á lík Magnúsar MAGNÚS DANÍELSSON DANMÖRK Sonur hins svokallaða Amager-manns í Danmörku hefur verið ákærður fyrir að fela 86 silfurskartgripi sem faðir hans stal árið 1995. Amager-maðurinn var í des- ember síðastliðnum dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir tvö morð og sex nauðganir sem hann framdi á 23 ára tímabili. Skartgripunum 86 stal Amager- maðurinn úr húsi á Ingolfs Allé á Amager þar sem hann nauðgaði tveimur fjórtán ára stúlkum, einni 15 ára stúlku og 23 ára konu. Lögreglan fann skartgripina á heimili sonarins rétt áður en réttarhöldunum í desember lauk. - ibs Hjálpaði föður sínum: Með 86 skart- gripi í felum VIÐSKIPTI Eigandi Iceland Express, Pálmi Haraldsson, hefur lagt félaginu til um tvo milljarða króna frá síðasta hausti. Í tilkynningu frá félaginu segir að það hafi verið gert af því að rekstur árið 2011 hafi verið erfiður, en tekist hafi að snúa honum við með auknu fjármagni. „Alger viðsnúningur hefur orðið í rekstri félagsins frá því ný yfirstjórn tók til starfa síðast liðið haust,“ segir í tilkynningunni. Miðasala hafi tekið kipp og horf- urnar séu góðar fyrir sumarið. - sv Tveggja milljarða innspýting: Rekstri IE snúið við síðan í fyrra VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 18° 17° 14° 11° 13° 9° 12° 12° 21° 13° 19° 14° 26° 11° 14° 14° 7°Á MORGUN Víða hægviðri en að 10 m/s NV-til. LAUGARDAGUR Víða hægviðri en hvassara SV-til. 5 -2 3 -1 3 0 -2 -1 10 8 7 16 7 6 5 6 2 3 3 4 4 4 4 0 -4 -3 -2 3 3 0 -2 -3 FROST NA-TIL næstu daga en hiti að 5 stigum SV- og S-til. Skúrir eða él með S-ströndinni í dag og á morgun. Nokkuð bjart á landinu A- og N- verðu á morgun og áfram A-lands á laugardag. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður IÐNAÐUR Drög að stefnu um lagningu raflína í jörð eiga að liggja fyrir næsta haust. Á yfir- standandi þingi var samþykkt þingsályktunar tillaga þar sem iðnaðarráðherra, í samráði við umhverfisráðherra, var falið að skipa nefnd sem fari yfir málið og skal iðnaðarráðherra flytja Alþingi skýrslu um störf nefndar- innar fyrir fyrsta október næst- komandi. „Á undanförnum árum hefur orkuframleiðsla á Íslandi aukist mjög og jafnframt gagnrýni á neikvæð umhverfisáhrif henn- ar,“ segir í greinargerð með til- lögunni, sem umhverfis- og sam- göngunefnd lagði fram. Hún er samhljóða tillögu sem Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylk- ingarinnar, ásamt meðflutnings- mönnum úr öllum flokkum, lagði fram á Alþingi í desember 2007. „Einn þáttur þeirra áhrifa er sjónmengun af völdum háspennu- lína og hefur sú krafa orðið háværari að jarðstrengir séu nýttir í stað loftlína. Mikilvægt er að fyrir liggi pólitísk stefnu- mörkun um með hvaða hætti og á hvaða forsendum skuli stefnt að lagningu raflína í jörð og til hvaða þátta skuli sérstaklega taka tillit í þeim efnum,“ segir í ályktuninni. Fram kemur að mismunandi sé eftir svæðum hvort fremur henti loftlínur eða lagnir í jörð. Til dæmis fylgi mikið rask lagningu jarðlína og það kunni síður að henta þar sem gróðurfar er við- kvæmt eða gæta þarf að öðrum umhverfis þáttum. Þá kemur líka Hávær krafa um notkun jarðstrengja í stað loftlína Jarðstrengir fyrir háa spennu eru margfalt dýrari en loftlínur. Leggja á fyrir Alþingi næsta haust tillögu að stefnumörkun um jarðstrengi í raforkukerfinu. Nýjar raflínulagnir næstu ár tengjast iðnaði, ekki heimilum. Á HELLISHEIÐI Mörgum þykja háspennumöstur og línur lýti á landslagi, meðan aðrir kunna að sjá einhverja fegurð í mannvirkjunum, svo sem í samspili gufunnar frá Hellisheiðarvirkjun og raflínunum á Hellisheiði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA fram að við lága spennu séu jarð- strengir hagkvæmari kostur en loftlínur, en eftir því sem spenn- an aukist hækki kostnaður mikið við jarðstrengi. „Í fimm ára kerfisáætlun Landsnets 2009–2013 kemur fram að stofnkostnaður við 132 kV streng sé 1,5–3 sinnum hærri en fyrir loftlínu með sömu flutn- ingsgetu, stofnkostnaður 220 kV strengs sé 3–6 sinnum hærri og 440 kV sé 7–10 sinnum hærri.“ Um leið er bent á að nýjar raf- lagnir muni á næstu árum og áratugum fyrst og fremst tengj- ast iðnaðar- og atvinnustarfsemi, en ekki þörfum heimilanna. Vísað er til fyrri þingsálykt- unartillögu um að iðnaðar- og atvinnustarfsemi verði að vera nægilega ábatasöm til að standa undir umhverfis lausnum. Í mörgum ríkjum heims sé litið til umhverfiskostnaðar við mat og undirbúning verkefna og verð- gildi náttúru sem tapast við nýt- ingu fellt inn í ákvarðanatöku. „Vinna af þessu tagi hefur ekki verið framkvæmd hérlendis og umhverfiskostnaður því óþekkt stærð við ákvarðanatöku.“ olikr@frettabladid.is SKIPULAGSMÁL Hæstbjóðandi í söluútboði Orkuveitunnar á Perlunni fékk ekki hugmynd sína um breytt skipulag sam- þykkta á fundi skipulagsráðs Reykjavíkur í gær. Eins og öðrum málum sem komið hafa á borð skipulagsráðs að undan- förnu og varða Öskjuhlíðina var erindi bjóðendanna vísað til fyrirhugaðrar samkeppni um framtíðarskipulag svæðisins. Fram hefur komið að Garðar K. Vilhjálmsson og hópur fjárfesta að baki honum sem átti hæsta tilboðið í Perluna fékk forkaupsrétt fram til 1. apríl síðastliðins á meðan þeir væru að gera hagkvæmnisathugun. Forsendurnar sem þeir gefa sér eru meðal annars viðbyggingar fyrir baðstað og náttúrugripasafn. Að sögn Páls Hjaltasonar, formanns skipulagsráðs, er gert ráð fyrir að hugmyndasamkeppnin um Öskjuhlíð verði yfir- staðin á þessu ári. - gar Skipulagsráð samþykkir ekki tillögu hæstbjóðenda í Perluna að svo stöddu: Bíði eftir hugmyndasamkeppni „NÁTTÚRUPERLAN“ Engin flýtiafgreiðsla er hjá skipulagi Reykjavíkurborgar á fyrirspurn þeirra sem vilja kaupa Perluna og byggja við hana og kalla Náttúruperluna. MYND/THG ARKITEKTAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.