Fréttablaðið - 12.04.2012, Síða 8
12. apríl 2012 FIMMTUDAGUR8
Aðalfundur Félags tæknifólks i rafiðnaði
verður haldinn miðvikudaginn 18. apríl 2012
kl. 17 að Stórhöfða 31, Grafarvogsmegin.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á ársfund Stafa.
Önnur mál.
Geta tölvur hugsað?
Fimmtudaginn 12. apríl
kl. 16:30 – 17:30
Stofa M101 í HR
Fyrirlesarar eru Yngvi Björnsson og Kristinn R. Þórisson
ALAN TURING:
Faðir tölvunarfræðinnar
Alan Turing var einn af helstu frumkvöðlum gervigreindar,
en hann fékk snemma áhuga á þeirri spurning hvort gæða
mætti tölvur mannlegri greind. Í þessum fyrirlestri verður
gefin yfirsýn yfir helstu framlög Turing til gervigreindar og
verður meðal annars fjallað um Turing-prófið sem hann
hannaði sérstaklega til að sannreyna hvort tölva sýndi
mannlega greind.
ICE-TCS og tölvunarfræðideild HR efna til fyrirlestraraðar í tilefni af 100 ára
fæðingarafmæli Alan Turing: http://icetcs.ru.is/turingyear2012RU.html
1. Hvað heitir fyrsta plata Of Mon-
sters and Men sem hefur selst vel í
Bandaríkjunum síðustu daga?
2. Hvenær rennur framboðsfrestur
vegna forsetakosninganna í sumar út?
3. Hvaða Hollywood-stjarna hyggst
halda upp á 50 ára afmæli sitt á Ís-
landi í sumar?
SVÖR
1. My head Is an Animal 2. 25. maí
3. Tom Cruise
BANDARÍKIN, AP Bandarísk sam-
keppnisyfirvöld hafa höfðað mál á
hendur tæknirisanum Apple fyrir
meint samkeppnisbrot við verð-
lagningu á rafbókum í vefverslun
fyrirtækisins.
Apple er sakað um að hafa
komið á samráði meðal útgefenda
til að samræma verð á rafbókum
og takmarka með því samkeppni
á rafbókamarkaði.
Verðlagning á rafbókum í vef-
verslun Apple stjórnast af öðrum
lögmálum en verð á bókum í bóka-
búðum. Bókaútgefendurnir ákveða
sjálfir verðið í vefverslun Apple,
og fyrirtækið fær 30 prósenta hlut
af útsöluverðinu.
Í hefðbundnum bókabúðum selja
útgefendur bækurnar fyrir fast
verð og það kemur í hlut bóka-
búðarinnar að ákveða hversu
mikið er lagt á heildsöluverðið, og
þar með hvert útsöluverðið er.
Verðlagning á rafbókum var
fyrst um sinn eins og í venju legum
bókabúðum, en Steve Jobs, fyrr-
verandi forstjóri Apple sem féll
frá í fyrra, beitti sér fyrir því að
taka upp nýtt kerfi.
Apple hafði ekki brugðist við
fréttum af lögsókninni í gær. - bj
Bandarísk samkeppnisyfirvöld segja verðlagningu Apple á rafbókum óeðlilega:
Saka Apple um samkeppnisbrot
BEITTI SÉR Steve Jobs, fyrrverandi for-
stjóri Apple, beitti sér fyrir því að taka
upp nýtt fyrirkomulag til að ákveða verð
á rafbókum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
H
va
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist
alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00
SAMFÉLAGSMÁL Alls 1.663 Íslendingar gerðu breyt-
ingar á eiginnafni sínu hjá Þjóðskrá á árunum 1992
til 2011. Samanlagður fjöldi nafnbreytinga var hins
vegar rétt rúmlega 40 þúsund á tímabilinu. Þetta er
meðal þess sem fram kemur í nýju gagnasafni sem
Þjóðskrá hefur birt á vefsíðu sinni.
Þjóðskrá hefur frá árinu 1992 tekið saman upp-
lýsingar um nafngjafir og nafnbreytingar. Tak-
markanir á mögulegum nafnbreytingum voru hins
vegar talsvert meiri en nú allt til ársins 1996 og
hefur nafnbreytingum því fjölgað nokkuð hin síðari
ár tímabilsins.
Eins og áður sagði breyttu 1.663 einstaklingar
eiginnafni sínu á tímabilinu. Þar af tóku 965 upp
eiginnafn til viðbótar öðru nafni. Alls 139 felldu
niður eiginnafn sitt og 559 skiptu um eiginnafn.
Alls 1.065 einstaklingar breyttu kenningu sinni
til föður frá móður en 14.792 breyttu kenningu sinni
frá móður til föður. Þessi háa tala stafar af því að
börn sem fæðast utan hjónabands og skráðrar sam-
búðar eru kennd við móður þar til faðernisviður-
kenning liggur fyrir og tilkynnt er að breytingar sé
óskað.
Þá tóku 5.344 einstaklingar upp ættarnafn en
1.418 felldu ættarnafn niður. Loks breyttu 318
einstaklingar kenningu sinni til beggja foreldra.
- mþl
Þjóðskrá hefur gert aðgengileg gögn um nafnbreytingar á árunum 1992 til 2011:
40 þúsund hafa breytt nafni sínu
Nafnabreytingar Íslendinga
1992 til 2011
Eiginnafnsbreytingar
Eiginnafn tekið upp til viðbótar öðru nafni 965
Eiginnafn fellt niður 139
Eiginnafn tekið upp og annað fellt niður 559
Millinafnsbreytingar
Ættarnafn gert að millinafni 1.806
Önnur nöfn gerð að millinafni 280
Kenninafnsbreytingar
Kenningu til föður breytt til móður 1.065
Kenningu til móður breytt til föður 14.792
þar af eldri en 2 ára 1.205
Kenning til beggja foreldra 318
Kenning til annars foreldris að viðbættu ættarnafni 2.346
Ættarnafn tekið upp að viðbættri kenningu til foreldris 1.418
Ættarnafn fellt niður, kenning til foreldris eða foreldra 1.176
Ættarnafn tekið upp 3.926
Ættarnafn maka fellt niður 242
Kærum og tilkynningum vegna kynferðisbrota hefur þó ekki fjölgað í takt
við önnur brot, að sögn Gunnars. Rannsóknardeildin sinnir rannsóknum á
kynferðisbrotum á öllu Norðurlandi, frá Blönduósi til Húsavíkur.
„Þó eru fleiri gömul mál að dúkka upp,“ segir hann. „Það eru þá þolendur
að kæra mál sem hafa komið upp fyrir mörgum árum, sennilega vegna
aukinnar umræðu um málaflokkinn og meiri fræðslu sem gerir fólk með-
vitaðra um rétt sinn.“
Gömul kynferðisbrot að koma upp
LÖGREGLUMÁL Fjögur vopnuð rán
hafa verið framin á Akureyri það
sem af er ári. Ekkert vopnað rán
var framið í bænum í fyrra. Tvö af
ránunum í ár voru framin af fíkni-
efnaneytendum til að fjármagna
skuldir og tvö voru framin af sama
einstaklingnum; ungri konu sem á
við andlega vanheilsu að stríða.
„Vonandi er þetta bylgja sem
mun ekki festa sig í sessi,“ segir
Gunnar Jóhannsson, yfirmaður
rannsóknardeildar lögreglunnar
á Akureyri.
Lögreglan í bænum hefur verið
að fást við mun grófari og alvar-
legri glæpi á undanförnum árum.
Gunnar segir merkjanlegan mun
á eðli glæpanna hafa komið í ljós á
árunum 2005 og 2006. Fíkniefna-
neysla hafi færst í aukana og lang-
flest afbrot séu tengd fíkniefnum.
Aðallega er lagt hald á kanna-
bis og amfetamín. Þá er ræktun
kannabisplantna einnig orðin mun
algengari.
Gunnar segir mannafla lög-
reglunnar ekki í samræmi við
það aukna álag sem stéttin sé að
fást við. „Við erum komnir niður
fyrir þolmörk í þeim efnum,“ segir
hann.
Nokkur mjög alvarleg líkams-
árásarmál hafa komið upp á
Akureyri á undanförnum árum.
Má þar nefna atvik sem þar sem
fingur var klipptur af manni með
greinaklippu við handrukkun árið
2007, hnífsstunguárás árið 2009 og
frelsissvipting og alvarleg líkams-
árás í Vaðlaheiði árið 2006.
Lögreglan fylgist vel með mögu-
legri þróun skipulagðra glæpasam-
taka í bænum í samstarfi við lög-
regluna á höfuðborgarsvæðinu.
Akureyrarlögreglan
ræður ekki við álagið
Fjögur vopnuð rán hafa verið framin á Akureyri á þessu ári. Fíkniefnaneysla
hefur aukist mikið. Lögreglan á erfitt með að mæta álaginu sökum manneklu.
Bæjarstjóri vill kalla eftir samanburðartölum um þróun glæpa á landinu öllu.
AKUREYRI Lögreglan á Akureyri hefur vart undan við að sinna málum sem koma
upp í bænum sökum aukins álags og alvarlegri glæpa undanfarin ár.
Gunnar segir þó lítið benda til
þess að þau séu að festa sig í sessi.
„Þó eru vissir einstaklingar að
reyna að tengja sig við þessa hópa.
til að sýnast stærri en aðrir,“ segir
hann.
Eiríkur Björn Björgvinsson,
bæjarstjóri Akureyrar, hefur
áhyggjur af þróuninni í bænum
sem og á landinu öllu. Hann vill
láta kalla eftir tölulegum upplýs-
ingum frá ríkinu til að sjá hvort
Akureyri standi verr að vígi en
sambærileg sveitarfélög í landinu
hvað þessa þróun varðar. Þá sé það
áhyggjuefni ef lögreglan hafi ekki
þann fjárstuðning sem þarf til að
takast á við þessa þróun.
Almannaheillanefnd hefur
verið starfandi í bænum frá árinu
2008 og er hennar hlutverk meðal
annars að vinna að fræðslu og for-
vörnum er varða afbrot.
sunna@frettabladid.is
SVEITARSTJÓRNIR Grímsness- og
Grafningshreppur vill að Þjóð-
skrá afturkalli lögheimilisskrán-
ingu manns í raðhús Íbúðarlána-
sjóðs. „Umræddur aðili býr ekki
og hefur ekki búið í umræddu
húsnæði,“ segir sveitarstjórnin.
Maðurinn á sumarhús í sveitar-
félaginu. Þjóðskrá vill að sveitar-
stjórnin upplýsi hvort maðurinn
hafi átt þar fasta búsetu en sveit-
arstjórnin segist ekki fylgjast
með því hvort fólk hafi búsetu
sem bannað sé að eiga lögheimili.
- gar
Vilja losna við gerfi-íbúa:
Aldrei búið á
eigin lögheimili
VEISTU SVARIÐ?