Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.04.2012, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 12.04.2012, Qupperneq 22
22 12. apríl 2012 FIMMTUDAGUR Fyrrverandi og núverandi starfsfólk Húsasmiðjunnar frá 1956 - 1999 ætlar að koma til endurfunda 13. apríl næstkomandi á Spot í Kópavogi kl 19:00 Við hjá Húsasmiðjunni óskum okkar gamla starfsfólki góðrar skemmtunar og þökkum fyrir samstarfið á liðnum árum. Aðgangseyrir kr. 500 Húsasmiðjan hf 4451-5741 Stjórnmálahreyfingin Hægri grænir, flokkur fólksins vill fara bandarísku leiðina til þess að leiðrétta verðtryggð lán heimilanna. Mark- miðið með þessum aðgerðum er að fara að lögum nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti sem tóku gildi 1. nóvember 2007. Með þeim var innleidd í íslenskan rétt tilskipun Evrópusambandsins um markaði fyrir fjármálagerninga. Banda- ríska leiðin kallast „The Troubled Asset Relief Program“ (TARP). Bandaríski TARP sjóðurinn var magnbundin íhlutun (e. quantitative easing) Seðlabanka Bandaríkjanna sem notuð var til þess að bjarga bandaríska húsnæðislánakerfinu, leysa úr vanda undirmálshúsnæðislána á fjár- málamarkaði, og kaupa til baka yfirveðsett hús- næðislán einstaklinga af fjármálafyrirtækjum. 3. október 2008 var TARP leiðin samþykkt með sérstökum neyðarlögum Bandaríkjaþings. Þessi leið var sett saman af færustu hag fræðingum og sérfræðingum heims. Þessi leið bjargaði m.a. bandarísku húsnæðislánasjóðunum „Fannie Mae og Freddie Mac“, bönkum og lífeyris sjóðum, sem fengu reiðufé í staðinn fyrir húsnæðis- lánin. TARP leiðin lukkaðist einstaklega vel og leysti þennan gríðarlega vanda sem skapaðist eftir fall „Lehman Brothers“ og lítur nú út fyrir að bandaríski seðlabankinn hagnist verulega á þessum aðgerðum eftir allt saman. Eftir þessar aðgerðir komst fjármálastöðugleiki á, kreppan leystist, heimilum og fyrirtækjum var bjargað og í dag er ástandið í Bandaríkjunum mun betra en í Evrópu. Fasteignaverð í Bandaríkjunum hefur hækkað síðastliðið hálfa árið samhliða því sem nýbyggingum hefur fjölgað. Meirihluti íslenskra heimila er í vandræðum með afborganir af stökkbreyttum verð tryggðum húsnæðislánum og eru þau ekkert annað en undirmálslán. Öll verðtryggð húsnæðislán tekin eftir 1. nóv. 2007 eru afleiður og því líklega ólögleg. Með nýjum verðbréfaviðskiptalögum breyttust ýmsar mikilvægar reglur sem lutu að því hvernig standa átti að viðskiptum með verðbréf. MiFID-tilskipunin náði til allra ríkja á EES svæðinu. Markmið laganna var að setja samræmdar reglur um neytendavernd fjárfesta og skapa sameiginlegan innri markað með fjár- málaþjónustu. Lögð var áhersla á aukið eftirlit, faglega framkvæmd og upplýsingagjöf. Þá var löggjöfinni ætlað að tryggja að þeir viðskipta- vinir fjármálafyrirtækja, sem eiga í verðbréfa- viðskiptum, fengju ávallt viðeigandi upplýsingar og ráðgjöf. Samkvæmt MiFID reglunum bar fjár- málafyrir tækjum að skipta viðskiptavinum sínum í þrjá meginflokka: 1) viðurkennda gagn- aðila, 2) fagfjárfesta og 3) almenna fjárfesta. Síðastnefndi flokkurinn um almenna fjárfesta nýtur mestrar verndar, sem m.a. felst í því að þeim er óheimilt að taka þátt í flóknum fjármála- gjörningum á borð við verðtryggð húsnæðis lán þ.e. afleiðuviðskipti. Tilskipunin leggur bann við ósanngjörnum skilmálum í neytenda samningum sem stríða gegn góðum viðskiptaháttum og raska til muna jafnvægi milli réttinda og skyldna samningsaðila, neytendum í óhag. Verðtryggð húsnæðislán eru í rauninni svo flókin fjármálaafurð að jafnvel seljandi lánsins getur ekki gefið viðskiptavininum upp hverju skuldin stendur í eftir eitt ár, hvað þá 30 ár. Hækkun lánsins er afleiðing hækkandi neyslu- verðsvísitölu sem fjöldi afleiddra þátta verkar á, t.d. skattahækkanir, eldneytisverð, launakjör, hrávöruverð, hagstjórn, gengi krónunnar o.s.frv. Áhætta lánsins er að öllu leyti á lán takandanum en ekki seljandanum. Strangar reglur gilda um afleiðusamninga og fjármálafyrirtækjum er óheimilt að stofna til viðskipta með afleiður við almenning. Öll verðtryggð húsnæðislán sem gefin hafa verið út fyrir 1. nóvember 2007, verður einnig að innkalla, leiðrétta og setja í sértækt eignarhalds- félag (e. special purpose vehicle) vistað og fjár- magnað af Seðlabanka Íslands sem flokkurinn vill kalla Afskriftasjóð verðtryggðra húsnæð- islána. Hagsmunasamtök heimilanna segja að rúm 80% landsmanna séu hlynnt afnámi verð tryggingar samkvæmt Capacent könnun sem var gerð fyrir samtökin. Þrátt fyrir þetta standa stjórnvöld vörð um verðtrygginguna sem hefur lagst af fullum þunga á skuldsett heimili landsins, á meðan fjármagnseigendur eru varðir að fullu. Hagnaður bankanna er að miklu leyti vegna hækkunar verðtryggðra lána. Stað reyndin er sú að verðtryggð húsnæðislán til heimilanna hafa hækkað um meira en 40% frá 1. nóv. 2007 á meðan það eru eingöngu vextir og engin verð- trygging á húsnæðislánum annars staðar í heiminum. Setja verður sérstök neyðarlög fyrir heimilin og innkalla öll verðtryggð húsnæðislán og skuld- breyta þeim. Þessi kynslóðasátt veitir sann- gjarna leiðréttingu á verðtryggðum húnæðisl- ánum almennings og verður vísitalan færð niður á þessum lánum í 278,1 stig sem var vísitala neysluverðs til verðtryggingar 1. nóvember 2007. Öll önnur verðtryggð húsnæðislán sem tekin eru eftir 1. nóvember 2007, verða færð til þess vísitölustigs neysluverðs til verðtrygg- ingar til þess dags sem þau voru tekin á. Eftir að öll verðtryggð húsnæðislán verða innkölluð og leiðrétt, verður lántökum boðið upp á óverð- tryggð húsnæðislán til lengri tíma, í staðinn fyrir þau verðtryggðu. Í Bandaríkjunum bjóða fjármálafyrirtæki nú þegar upp á 50 til 100 ára húsnæðislán. Frá 1995 í Japan og Evrópu hafa húseigendur getað fengið 50 til 100 ára húsnæðislán. Má segja að það komist á virkur eignaleigu markaður með lengri lánunum, sem hefur sárlega vantað á Íslandi. Hægt er að fara milliveginn í þessum efnum og bjóða lengstu óverðtryggðu húsnæðislánin til 75 ára, sem gætu verið í boði hjá fyrirhuguðum Afskriftasjóði verðtryggðra húsnæðislána. Kynslóðasátt - Leiðréttingarsjóður verðtryggðra húsnæðislána Þetta er kirkjan okkar. Kirkjan er hluti af okkur. Við viljum halda í hana og hafa hana fal- lega.” Ég stóð við hliðina á sóknar nefndarformanni norður í landi og ræddi við hann um stöðu kirkjunnar, um kirkjuhúsið og þróun kirkjumála. Hann færði í orð viðhorf fólks um allt land. Við eldhúsborð og í stofum hef ég heyrt svipaðar sögur fólks um kirkjuna. Þjóðkirkjan skiptir þau máli, en það er kirkjan þeirra, sóknarkirkjan og líf hennar, sem þau tala um af mestri elskusemi. Kirkjuhús þjóna ýmsum hlut- verkum. Þau eru skoðunar staðir ferðafólks á leið um landið. Margir stoppa til að skoða kirkjur og garðana umhverfis þær vegna þess að þar eru menn- ingarminjar. Þær tjá með ýmsum hætti stöðu og getu samfélags. Þær tjá líka sjálfsviðhorf fólks í sókninni. Fólk vill að kirkju- húsin séu falleg og þykir ótækt að þau grotni niður þó erfitt sé að finna fé til að kosta viðgerðir. Svo eru þessi hús umgjörð um mikil- vægustu og helgustu athafnir í lífi fólks, staðir lifandi orðs og samfélags. Ytri ásýnd á því að hæfa tilefnum, umgjörð á að vera í samræmi við inntakið. Kirkjur eru tákn um sögu viðkomandi byggðar og sam- hengi þeirra kynslóða, sem eiga sér sameiginlegan helgidóm, jafnvel um aldir. Kirkjur eru tákn, sem vísa til gilda og guð- legrar verndar. Hvert sam félag þarfnast dýpri skír skotunar um sið, hlutverk og tilgang. Kirkjurnar hafa ekki aðeins þjónað því hlutverki að teikna línur í landslag, vera kennileiti í sveit eða augnhvílur fólks á ferð. Kirkjuhús eru tákn um að mann- félag eigi sér dýpri rök og guð- legt samhengi, sem ekki bregst þó flest sé í heiminum hverfult. Ég hef síðustu vikur heyrt margar kirkjulegar ástar- sögur. Ég er djúpt snortinn af ástar tjáningum fólks gagn- vart kirkjunum þeirra. Að baki játningu þeirra er heilinda afstaða, ekki aðeins til húss, heldur til menningar, sögu og trúar. Saga Jesú Krists er ástarsaga Guðs, sem gefur líf, nærir það og leysir úr viðjum. Við mannfólkið erum aðilar og persónur þeirrar sögu. Kristnin túlkar hana með margvíslegu móti. „Meðan kirkjan stendur mun þessi byggð standa,“ var sagt um kirkju á Suðurlandi. „Ég elska þessa kirkju,” sagði ein konan og átti bæði við húsið og erindi hennar. Góðar ástarsögur hrífa. Ástar- saga Guðs skapar líf kirkjunnar og varðar okkur öll. Ástarsögur Markmiðin að baki ramma-áætlun eru alveg skýr og þau má draga saman í tvö hugtök; SKYNSEMI og SÁTT. Eða eins og segir í lögunum um ramma áætlun nr. 48/2011; að tryggja að nýting landsvæða þar sem er að finna virkjunarkosti byggist á lang- tímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati þar sem tekið er tillit til verndargildis náttúru og menningarsögulegra minja, hag- kvæmni og arðsemi ólíkra nýt- ingarkosta og annarra gilda sem varða þjóðarhag, svo og hagsmuna þeirra sem nýta þessi sömu gæði, með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Í lögunum er kveðið á um að flokka beri virkjunarkosti í vernd- arflokk, orkunýtingarflokk eða þá biðflokk ef „fyrirliggjandi gögn og upplýsingar gefa ekki nægi- lega afgerandi til kynna í hvorn flokkinn virkjunarkostirnir ættu að falla“. Ákveðin varúðarsjónar- mið liggja að baki þessari hugsun laganna varðandi biðflokkinn. Ferlið við gerð rammáætlunar er skýrt afmarkað í lögum og var því að öllu leyti fylgt við gerð þeirrar þingsályktunartillögu sem nú ligg- ur fyrir. Þingsályktunartillagan byggir á tillögum verkefnisstjórnar um gerð rammaáætlunar sem skil- aði lokaskýrslu sinni til ráðherra þann 5. júlí 2011. Mikilvægt er að hafa í huga að í skýrslunni er ekki að finna flokkun þeirra virkjunar- kosta sem verkefnisstjórnin hafði til skoðunar. Var því farið í þá veg- ferð með formanni verkefnisstjórn- ar, formönnum þeirra faghópa sem stóðu að skýrslunni og fulltrúum iðnaðarráðuneytis og umhverfis- ráðuneytis að koma tillögum verk- efnisstjórnar í þingtækan búning. Þeirri vinnu lauk í ágúst 2011 og þann 19. ágúst voru drög að þingsályktunartillögunni send í hið lögbundna 12 vikna umsagnar- ferli. Yfir 200 umsagnir bárust og er þingsályktunartillagan sem nú er lögð fram að mestu samhljóða drögunum sem send voru í umsagn- arferlið og tóku alls til 69 virkjana- kosta. Gerðar eru þó breytingar í þá veru að virkjunarkostir á tveimur svæðum eru færðir úr nýtingarflokk í biðflokk, í ljósi nýrra upplýsinga sem borist höfðu í umsagnarferlinu. Allt er þetta ferli í samræmi við Árósarsamn- inginn sem innleiddur var í íslensk lög í lok síðasta árs og kveður m.a. á um aukna þátttöku almennings í ákvarðanatöku í umhverfismálum. Það kemur ekki á óvart að nokkurs óþols gæti hjá sumum vegna þeirrar ákvörðunar að færa umrædda virkjunarkosti í biðflokk. En rétt skal vera rétt – og það er mikilvægt að við freistumst ekki til að stytta okkur leið í jafn viða- miklu máli og rammaáætlun er. Ég vil hins vegar taka það skýrt fram að biðflokkur er ekki geymsla fyrir umdeilda virkjunarkosti og ný verkefnisstjórn ramma áætlunar skal skila áfangaskýrslu til ráð- herra fyrir 1. september 2013 um þær sértæku rannsóknir um áhrif virkjana á laxfiska sem lagt er til að verði gerðar í Þjórsá, hafi hún ekki þá þegar lagt fram nýja tillögu að flokkun. Í framhaldi af því mun ráðherra kynna Alþingi skýrsluna og, eftir atvikum, leggja fram nýja tillögu um flokkun viðkomandi virkjunarkosta. Í kjölfar samþykktar ramma- áætlunar verður öll stefnumótun hvað varðar orkunýtingu og land- vernd skýrari. Við vitum hvar skal virkja og leyfisferlið fyrir kosti í virkjunarflokki verður ein faldara en áður þar sem sveitarfélög skulu gera ráð fyrir virkjuninni í skipu- lagsáætlunum sínum. Og um þá kosti sem falla í verndarflokk skulu stjórnvöld hefja undirbúning að friðlýsingu þeirra gagnvart orku- vinnslu. Eftir að ég hef mælt fyrir þings- ályktunartillögunni tekur við vinna með hana í þingnefndum og endan- legt ákvörðunarvald um ramma- áætlun liggur að sjálfsögðu hjá Alþingi. Rammaáætlun markar sátt um nýtingu og verndunFjármál Guðmundur Franklín Jónsson viðskiptafræðingur og formaður Hægri grænna, flokks fólksins Fyrri grein Setja verður sérstök neyðarlög fyrir heimilin og innkalla öll verðtryggð húsnæðislán og skuld- breyta þeim. Þessi kynslóðasátt veitir sanngjarna leiðréttingu á verðtryggð- um húsnæðislánum almennings og verður vísitalan færð niður á þessum lánum í 278,1 stig sem var vísitala… Trúmál Sigurður Árni Þórðarson í framboði til biskups Íslands Orkumál Oddný Harðardóttir iðnaðarráðherra
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.