Fréttablaðið - 12.04.2012, Page 25

Fréttablaðið - 12.04.2012, Page 25
FIMMTUDAGUR 12. apríl 2012 25 Ég finn mig knúinn til að segja stutt-lega frá samskiptum mínum og félaga minna við Deloitte. Tilefni skrifanna er umræða um hvort álit frá fyrirtækinu fáist keypt. Því hefur Deloitte reyndar neitað. Sérstakur saksóknari kemur hér einnig við sögu. Snemma árs 2006 mættu tveir af stofn- endum Iceland Express á fund hjá Deloitte. Þar óskuðu þeir eftir skýringum Deloitte á hrikalegu misræmi í afkomutölum Ice- land Express. Haustið 2005 höfðu stofn- endur Iceland Express selt Pálma Haralds- syni og félaga hans síðustu 8% hluta sinna í félaginu. Umsamið verð grundvallaðist á verðmati sem sagt var frá Deloitte. Í verð- matinu var hagnaður Iceland Express áætl- aður aðeins 89 milljónir króna á árinu og því næsta miðað við stöðu félagsins. Aðeins fjórum mánuðum síðar kom hins vegar í ljós í tölum frá Deloitte að hagnaður ársins var í raun áætlaður 290 milljónir á því ári – þrefalt hærri. Hagnaður næsta árs á eftir var áætlaður 700 milljónir – ekki 89 eins og í „verðmatinu“. Skýringa leitað hjá Deloitte Það munar talsverðu á 89 milljónum og 290 til 700 milljónum og því vildum við fá skýringar hjá Deloitte. Ljóst var að miðað við 290 milljóna króna hagnað höfðum við verið blekktir til að semja um lægra verð- mat á Iceland Express en ella. Skemmst er frá því að segja að Deloitte neitaði að veita nokkrar skýringar og bar við trúnaði við Pálma og félaga. Við vorum síður en svo sáttir við þennan þagnarmúr og lögðum því aftur til atlögu við Deloitte eftir hrun bankanna. Loksins árið 2009 fékkst sú skýring frá Deloitte að fyrirtækið hafi ekki útbúið eiginlegt verðmat á Iceland Express haustið 2005. Þess í stað hafði Deloitte tekið blindandi við tölum frá fulltrúa Pálma Haraldssonar, sett inn í Excel-líkan og prentað út „verð- mat Deloitte“ á Iceland Express samkvæmt þeim. Deloitte sagði að fyrirtækið hefði á engan hátt sannreynt þessar tölur og því væri rangt að tala um „verðmat Deloitte“. Hæstiréttur líka blekktur Í millitíðinni, árið 2007, höfðum við farið í mál við Pálma Haraldsson og félaga hans fyrir að blekkja okkur til að selja síðustu hlutina í Iceland Express langt undir sann- virði. Dómkvaddir matsmenn áætluðu virði fyrirtækisins 70% til 120% hærra en um var samið. Héraðsdómur og Hæstiréttur höfnuðu kröfunni hins vegar á þeirri for- sendu að söluverðið hafi verið ásættan- legt miðað við „verðmat Deloitte“. Þá vissu hvorki við né dómstólar að „verðmatið“ væri tóm blekking. Dómsmálið kostaði okkur 8 milljónir króna og tapaða kröfu upp á tugmilljónir króna. En Deloitte valdi að þegja. Deloitte kaus að láta úrslit í dómsmáli ráðast af skjali sem kallað var „verðmat Deloitte“ jafnvel þó fyrirtækið teldi sig enga ábyrgð bera á innihaldi þess. Deloitte lét þannig nota sig til að blekkja í viðskiptum og sá ekki sóma sinn í að leggja spilin á borðið þó um væri beðið. Eins og hver annar gúmmístimpill Það þurfti rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra (sem síðan sam einaðist sérstökum saksóknara) til að toga sjálft skjalið með „verðmatinu“ út úr Deloitte. Það skjal hafði aðeins verið sýnt, en ekki afhent, á samningafundinum á sínum tíma. Þá höfðum við ekki minnstu ástæðu til að efast um sannleiksgildi „verðmats Deloitte“ enda var lógó fyrirtækisins framan á skjalinu. Hvernig átti okkur að detta í hug að virt endurskoðunarfyrirtæki afhenti nafn sitt eins og hvern annan gúmmístimpil til að blekkja við samningagerð? Sérstakur endurskoðandi Það er svo sér kafli í þessu máli, og ekki síður athyglisverður, hvernig unnið hefur verið úr kæru hjá lögreglu vegna þessara blekkinga. Í því samhengi þarf að koma fram að Stefán D. Franklín, þáverandi endurskoðandi hjá Deloitte, sá um að útbúa „verðmatið“ með 89 milljón króna hagnaðinum. Minna en fjórum mánuðum síðar sendi Stefán KB banka upp lýsingar um 290 milljón króna hagnað Iceland Express – raunverulega hagnaðinn. Tugmilljónir króna voru hafðar af okkur með þessum blekkingum, sem eru skýrt hegningarlagabrot. Blekkingarnar höfðu áhrif á úrslit dómsmáls, sem er einnig hegningarlagabrot. Nýlega afgreiddi sérstakur saksóknari málið frá sér. Hann sagði enga ástæðu til að rannsaka málið frekar né ákæra. Því síður sá sérstakur saksóknari neitt skrítið við að taka slíka ákvörðun í máli sem snerti Stefán D. Franklín, endurskoðanda hjá sérstökum saksóknara. Kannski hefur málið bara verið afgreitt á kaffistofunni, eða þá í einhverju góðu starfsmannapartíi. Af samskiptum við Deloitte og sérstakan saksóknara Viðskipti Ólafur Hauksson einn af stofnendum Iceland Express

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.