Fréttablaðið - 12.04.2012, Qupperneq 35
KYNNING − AUGLÝSING Heilsa12. APRÍL 2012 FIMMTUDAGUR 3
KONJAK grenningarvörurnar eru nýjar á markaðnum og eru ætlaðar full-orðnu fólki sem glímir við ofþyngd
og vill léttast. Þær innihalda náttúrulegar
trefjar sem eru þær fyrstu sem Matvæla-
öryggisstofnun Evrópu hefur viðurkennt
sem fæðubótarefni sem raunverulega flýtir
fyrir þyngdartapi. Þuríður Ottesen, fram-
kvæmdastjóri Gengur vel ehf., segir að lengi
hafi verið ljóst að trefjaríkt mataræði skiptir
miklu máli ef fólk vill halda þyngdinni í
skefjum. „Trefjarnar efla meltinguna veru-
lega og hjálpar fólki í leiðinni að stemma
stigu við meltingar- og magakvillum eins og
til dæmis hægðatregðu og niðurgangi.“
Tref ja r na r sem u m ræði r heita
glucomannan og eru unnar úr jurtinni
Amorphphallus konjac sem vex víða í Asíu.
Glucomannan-trefjarnar eru vatnsleysan-
legar og eru búnar þeim eiginleikum að geta
dregið til sín 2-300 falda þyngd sína af vatni.
Þegar töflurnar leysast upp í maga myndast
massi sem flýtir fyrir seddutilfinningu og
viðkomandi borðar minna sem er oftast
lykillinn að þyngdartapi.
Fyrr södd og borðum minna
Þuríður segir að samkvæmt rannsókn
megi auka þyngdartap um allt að 60%
þegar KONJAK er notað samhliða léttu
mataræði. ,,Þannig að fyrir hvert kíló sem
maður missir af eigin rammleik getur KON-
JAK hjálpað manni að missa allt að 1,6 kíló.
KONJAK hjálpar því til með því að viðhalda
hvatningunni til að ná árangri.”
Notkun KONJAK taflanna er einföld og
þægileg. Þær eru teknar 30 mínútum fyrir
hverja af þremur aðalmáltíðum dagsins
ásamt einu til tveimur glösum af vatni. Dag-
skammturinn er tvær töflur, þrisvar á dag.
,,Þegar KONJAK töflurnar leysast upp í vatni
þá fylla þær upp í magann. Þannig verðum
við fyrr södd og getum því ekki borðað sama
magn og áður. Þetta er staðreynd sem studd
er af rannsóknum.”
Til að ná hámarksárangri með hjálp
KONJAK er mikilvægt að borða reglulega að
sögn Þuríðar. Einnig eykur árangur að drekka
nóg af vatni sem eykur úthreinsun á ýmsu
sem hefur dvalið lengi í meltingar veginum.
Betra sé að borða margar léttar máltíðir en
færri og þyngri en frábærar leiðbeiningar
fylgja hverjum pakka ,,Ef við borðum ekki
reglulega getur blóðsykurinn lækkað og þá
tekur þörfin fyrir sætindi öll völd. KONJAK
inniheldur líka krómíum pikkólínat sem
hjálpar einmitt við að slá á sætuþörfina, blóð-
sykursjafnvægi er undirstaða þyngdartaps.“
Þyngdartap er langhlaup
Margir hafa haft samband við Þuríði
að hennar sögn og lýst yfir ánægju með
töflurnar. Hún segir þá sem nota töflurnar
léttast mest fyrst svo mikilvægt sé að gefast
ekki upp og halda áfram. ,,Þyngdartap er
langhlaup og það tekur tíma að snúa við
og losa kíló sem bæst hafa á kroppinn í
gegnum tíðina. Best er að gera áætlun yfir
sex mánaða tímabil með inntöku KONJAK
taflanna ef fólk vill missa yfir tíu kíló. Svo
þarf einnig að huga að hreyfingu, að minnsta
kosti fjórum sinnum í viku í minnst 30
mínútur í senn.“ Hún hvetur þá sem nota
vörurnar til að senda inn reynslusögur á
netfangið gengurvel@gengurvel.is eða að
kíkja á Facebook- síðu fyrirtækisins: Konjak
grenningar vara. Góðar upplýsingar er e-
innig að finna á www.gengurvel.is. KONJAK
vörurnar fást nú í flestum apótekum, heilsu-
búðum og í heilsuhillum stórmarkaða.
Trefjaríkar
grenningarvörur
sem virka
Nýju grenningarvörurnar frá KONJAK eru viðurkennt fæðubótarefni sem
raunverulega flýtir fyrir þyngdartapi.
KÍLÓIN FJÚKA OG MELTINGIN ALLT ÖNNUR
Dagbjört Jónsdóttir er 28 ára ráðgjafi og hefur notað KONJAK töflurnar í rúma tvo
mánuði. „KONJAK er búið að gera frábæra hluti fyrir mig og ég er nú þegar búin
að léttast um nokkur kíló. Eftir að ég byrjaði að taka inn töflurnar fór ég að borða
mun minna en áður og hver máltíð dugar mér fram að þeirri næstu. Sykur þörfin
er nánast horfin og ég borða ekki lengur milli mála. Áður en ég byrjaði að taka
KONJAK töflurnar langaði mig alltaf í sykur seint á kvöldin. Sykur þörfin var svo
sterk að ég hreinlega gafst alltaf upp og úðaði í mig sykri, sérstaklega seinni part
dags. En núna borða ég ekki eftir kvöldmat og sykurpúkinn er hættur að stjórna.
Það sem mér finnst mikill plús við KONJAK töflurnar er að þetta eru náttúrulegar
trefjar sem hafa mjög góð áhrif á hægðirnar.“
,,Trefjarnar efla meltinguna verulega
og hjálpa fólki í leiðinni að stemma
stigu við meltingar- og maga-
kvillum,“ segir Þuríður Ottesen,
framkvæmdastjóri Gengur vel ehf.
MYND/STEFÁN
Töflurnar koma í kassa sem inniheldur
180 töflur, lítið handhægt box og
handbók.