Fréttablaðið - 12.04.2012, Page 50
12. apríl 2012 FIMMTUDAGUR34 34
menning@frettabladid.is
Í bókinni Ábyrgðarkver sem kom út
á dögunum færir Gunnlaugur Jóns-
son rök fyrir því að lykillinn að far-
sæld á öllum stigum samfélagsins
sé fólginn í því að hver og einn sé
ábyrgur gjörða sinna.
Ábyrgðarkver nefnist bók sem kom út á
dögunum. Þar færir Gunnlaugur Jónsson
rök fyrir því að lykillinn að farsæld á öllum
stigum samfélagsins sé fólginn í því að hver
og einn sé ábyrgur gjörða sinna.
Útgangspunkturinn í bók Gunnlaugs
er sá að sú ógæfa sem dundi yfir Ísland
við fall bankanna megi rekja til ríkis-
ábyrgðar á einkafyrirtækjum. Hún hafi
skapað ábyrgðar leysi sem gerði að verkum
að bankar blésu út og tóku of mikla áhættu
í skjóli þess að þeir þyrftu ekki að súpa
seyðið af því. Það gerðu hins vegar skatt-
greiðendur. Gunn laugur heimfærir þennan
boðskap á smæstu einingar samfélagsins,
ein staklinginn og reifar hugmyndir sínar
um hvernig fólk geti breytt lífi sínu til hins
betra með því að axla ábyrgð á því sem það
fær breytt í stað þess að vera óvirkir þátt-
takendur í eigin lífi.
Algild lögmál
Gunnlaugur hefur unnið að bókinni undan-
farin þrjú ár og segir hugmyndina hafa
kviknað við bankahrunið.
„Ég hafði fylgst með bönkunum og séð
þá vaxa og hafði mikinn áhuga á ríkis-
ábyrgðinni, sem var ýmist bundin í lög eða
óljós, og hvaða áhrif hún hafði á kerfið;
hvernig það óx og það ábyrgðarleysi sem
fékk að viðgangast. Ég hef mikinn áhuga á
því hvernig þessi sömu lögmál gilda í öllu
okkar lífi og hvernig hlutir fara úrskeiðis
þegar vald og hagsmunir fara ekki saman,
til dæmis ef fámennur hópur hefur of mikið
vald yfir hagsmunum margra, til dæmis ef
bankakerfi hefur hagsmuni almennings í
hendi sér án þess að hann geti haft áhrif.
Þetta býður að mínu mati hættunni heim. Í
hagfræði er þetta kallað „moral hazard“, sem
ég þýði sem siðferðisháska, þar sem menn
verða blindir á hagsmuni annarra og ónæmir
fyrir því hvernig gjörðir þeirra geta bitnað
á öðrum. Ekki endilega vegna þess að þeim
gengur illt til heldur vegna þess að þeir eru
orðnir samdauna óheilbrigðu ástandi og sjá
ekki út fyrir eigin hagsmuni. Í tilfelli fjár-
málakerfisins myndi afnám ríkisábyrgðar-
innar færa ábyrgðina þangað sem hún ætti
heima og bankar þyrftu að standa reiknings-
skil gagnvart viðskiptavinum, sem hefðu kost
á að leita annað ef þeim hugnaðist svo.
Ég skrifaði grein fyrir nokkru síðan þar
sem ég hvatti bankana til að fella niður lán
hjá fólki sem gat ekki greitt þau af þeirri
einföldu ástæðu að það gat ekki greitt
þau, auk þess sem það væri það mannúð-
lega í stöðunni. Í kjölfarið hitti ég menn í
bönkunum sem tóku vel í þessar hug myndir
en ekkert gerðist. Mig grunar að bankarnir
séu að bíða eftir því að stjórnvöld skerist í
leikinn undir því yfirskyni að þau séu að
„bjarga heimilunum“, þegar í rauninni er
aðeins verið að skera lánardrottna sem
veittu óskynsamleg lán úr snörunni og
láta skattgreiðendur borga brúsann. Lánar-
drottnar ættu þess í stað að horfast í augu
við að þeir veittu lán sem gengu ekki upp
og þeir þurfi að bera ábyrgð á því. Það mun
til lengri tíma litið auka á ábyrga hegðun í
bankakerfinu.
Ábyrgð er móteitur græðginnar
Að mati Gunnlaugs gilda sömu lögmál
ábyrgðarinnar um einstaklinginn.
„Ég hef persónulega reynslu af því að
þegar ég hef litið í eigin barm af auðmýkt
og horfst í augu við eigin mistök gengur
mér betur, því þannig tekst ég á við orsök
vandans og hvað ég get sjálfur gert til að
bæta líf mitt, í stað þess að væla yfir því
hvað aðrir geta gert fyrir mig.“
Ábyrgð skiptir líka lykilmáli í sam-
félagsþátttöku fólks að dómi Gunnlaugs.
„ Enginn er eyland. Við búum í samfélagi
við annað fólk sem við þurfum að vinna
með og treysta. En það að treysta öðrum
fyrir einhverju afsalar okkur ekki ábyrgð
á því og þess vegna þurfum við að gæta
að því hverjum við treystum. Ég held að
grundvöllurinn fyrir trausti sé sá að búa
í samfélagi þar sem við finnum að fólk
styður hvert annað. Lykillinn að því er að
koma friðsamlega fram; ef við viljum að
aðrir virði okkar rétt verðum við að gera
það sama gagnvart öðrum.“
Kenningum sem ganga út á einstak-
lingshyggju hefur verið legið á hálsi fyrir
að líta á manninn sem eigingjarna skepnu
sem leitist alltaf við að hámarka eigin hag á
kostnað annarra og því jafnvel haldið fram
að græðgi sé hreyfiafl framfara. Gunn-
laugur tekur ekki undir þetta.
„Græðgi er ekki góð. Ég held að græðgi,
eins og fólk skilur orðið, sé of mikil ágóða-
von og gróðasækni – það sem gengur
út í öfgar. En þegar við sitjum sjálf uppi
með afleiðingar gjörða okkar heldur það
áhættusækninni í skefjum – persónuleg
ábyrgð virkar þannig sem móteitur gegn
græðgi og kemur veg fyrir að við leiðumst
út í gönur.“
En hvað um velferðarkerfið, hið opinbera
öryggisnet. Gengur það í berhögg við hug-
myndir Gunnlaugs?
„Ég hafna því ekki að hér sé ákveðið
öryggisnet en mín skoðun er sú að við
eigum að gera eins mikið og hægt er af
slíku á grundvelli frjáls samstarfs, án
nauðungar. Ég held að við ræktum náunga-
kærleik best með því að líta á það sem
okkar eigið verkefni að hjálpa þeim sem
þurfa á því að halda og það væri farsælla
að leggja meiri áherslu á einstaklinginn
en kerfið. Þess vegna finnst mér til dæmis
heilbrigt að fólk hugsi um eigin hag og
reyni að byggja sér gott líf því þegar við
erum sjálf í góðri stöðu erum við í betri
aðstöðu til að hjálpa öðrum.“
Boðskapur sem hægt er að sameinast um
Ábyrgðarkver kemur út rúmum þremur
árum eftir bankahrunið, sem flestir hafa
reynt að þvo hendur sínar af. Spurður hvort
það sé jarðvegur fyrir boðskap bókarinnar,
segist Gunnlaugur telja svo vera.
„Já, ég held það. Ég er ekki að reyna að
hengja tiltekna einstaklinga heldur fyrst
og fremst að segja að hrunið var afsprengi
þess kerfis sem var. Auðvitað er ýmislegt
sem þarf að rannsaka en það er erfitt að
benda á einhver afmörkuð mistök sem eiga
að hafa ráðið úrslitum innan þeirra aragrúa
mistaka sem hér voru gerð. En hvað sem
líður skiptum skoðunum fólks um Lands-
dóm, réttarhöld yfir bankamönnum og þar
fram eftir götunum, held ég að fólk geti
sameinast um þann meginboðskap að það
eigi ekki að vera á ríkisábyrgð á einkafyrir-
tækjum.
Með þannig veganesti getum við komist
út úr þessu ástandi og farið að horfa fram
á veginn. Sama á við um einkalíf manna.
Þess vegna reyni ég að hvetja lesandann til
að byrja á sjálfum sér og ekki alltaf vera að
svekkja sig á því sem aðrir gera.“
bergsteinn@frettabladid.is
Ábyrgð er lykillinn að betra lífi
GUNNLAUGUR JÓNSSON „Ég hef persónulega reynslu af því að þegar ég hef litið í eigin barm af auðmýkt
og horfst í augu við eigin mistök gengur mér betur, því þannig tekst ég á við orsök vandans og hvað ég get
sjálfur gert til að bæta líf mitt, í stað þess að væla yfir því hvað aðrir geta gert fyrir mig.” Fréttablaðið/Pjetur
HUNGURLEIKARNIR HALDA ÁFRAM Annað bindið í hinum ógnarvinsæla þríleik Suzanne Collins
um Hungurleikanna er væntanlegt í íslenskri þýðingu í maí. Bókin nefnist Catching Fire á frummálinu en mun að
líkindum heita Eldar kvikna í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. Lokabindið er síðan væntanlegt á íslensku í haust. Sú
heitir Mockingjay, hugtak sem þýtt var sem Hermiskaði í fyrsta bindinu.
Bjarni Eiríkur Sigurðsson heldur
sitt annað erindi um persónur Njálu
í bókasafninu í Hveragerði í dag
klukkan 17.30. Þar fjallar hann um
Brennu-Flosa en í síðasta mánuði
fjallaði hann um Hallgerði lang-
brók. Erindin tengjast sýningu á
myndverkum Þórhildar Jóns dóttur
af persónum í Njálu en síðasti
sýningar dagur er 12. apríl. Mynd-
irnar eru í eigu Bjarna Eiríks Sig-
urðssonar en þær eru unnar eftir
lýsingum hans gegnum síma á pers-
ónum Njálu eins og hann taldi að
þær hefðu getað litið út í lifanda lífi.
Bjarni Eiríkur er þekktur fyrir
Njáluerindi sín í Sögusetrinu á
Hvolsvelli og víðar. Þórhildur er
fædd að Breiðabólstað í Fljóts-
hlíð. Síðustu 25 ár hefur hún rekið
eigin vinnustofu. Myndirnar á
sýningunni eru unnar með hjálp
tölvutækni. Allir eru velkomnir
á bókasafnið til að hlýða á erindi
Bjarna. Boðið verður upp á kaffi og
spjall eftir erindið.
Erindi um Brennu-
Flosa í bókasafninu
BRENNU-FLOSI Svona sér Þórhildur Jóns-
dóttir hinn fræga Svínfelling fyrir sér.