Fréttablaðið - 12.04.2012, Side 52
12. apríl 2012 FIMMTUDAGUR36
Bækur ★★★ ★★
Snjókarlinn
Jo Nesbø. Þýðandi Bjarni Gunnarsson.
Uppheimar
Fram og aftur
morðgátuna
Harry Hole er töffari af guðs náð og þrátt
fyrir norskan upprunann sver hann sig mun
meira í ætt bandarískra einkaspæjara en
skandinavískra lögreglumanna spennu-
bókmenntahefðarinnar. Drykkfelldur einfari
með haug af fortíðarvandamálum á bakinu,
mislukkaður kvennamaður, upp á kant við
yfirmennina og allur sá pakki. Hæfilega
ómögulegur til að lesandinn samsami sig
honum og láti sig örlög hans varða.
Í Snjókarlinum, sem kom út í Noregi 2007, er hann á sæmilegu róli, til-
tölulega edrú og um það bil að sætta sig við nýleg sambandsslit. Hann fær
líka um nóg að hugsa þegar óhugnanleg morð á ungum mæðrum fara að
hrúgast upp og allt lítur út fyrir að sá langþráði draumur hans að klófesta
raðmorðingja gæti ræst, ef hann bara finnur út hver stendur að baki þessu
kvenfalli.
Ólíkt öðrum löggum sem leika aðalhlutverkið í spennubókaröðum á
Hole engan náinn aðstoðarmann, enda atvinnulóner. Hann hefur þó sér til
fulltingis tvo unga lögreglumenn sem hann ber traust til og í upphafi Snjó-
karlsins fær hann nýjan liðsmann í teymið sitt, unga konu sem virðist ekki
öll þar sem hún er séð og eykur spennugildi sögunnar til muna. Yfirhöfuð
eru persónur sögunnar vel skrifaðar og áhugaverðar og engan veginn aug-
ljóst hverjir eru góðu gæjarnir og hverjir þeir vondu. Hraðinn í frásögninni
er með ólíkindum og eiginlega hvergi dauður punktur á þessum fimm
hundruð síðum.
Nesbø er fantagóður sögumaður og kann betur að byggja upp spennu
en flestir aðrir krimmahöfundar. Lesandinn þykist reyndar hafa leyst gátuna
um miðja bók en fléttumeistaranum Nesbø tekst að snúa svo upp á
söguþráðinn, taka u-beygjur aftur og aftur og varpa grun á ýmsa aðila að
sú niðurstaða virðist á köflum fáránlega heimskuleg, þótt hún reynist svo
auðvitað rétt að leiðarlokum. Klisjan um svefnlausu nóttina við lesturinn á
hér fullkomlega við, lesandinn er vægðarlaust rekinn áfram kafla eftir kafla
í máttvana tilraunum til að raða saman brotakenndum upplýsingum og
verða á undan Hole sjálfum að ráða gátuna. Sem er náttúrulega borin von,
það skákar enginn Harry Hole.
Þýðing Bjarna Gunnarssonar er prýðilega af hendi leyst. Málfarið eðlilegt
og án þýðingarkeimsins alræmda. Eitt af aðalsmerkjum Nesbø eru vel
skrifuð og trúverðug samtöl og Bjarna hefur tekist firnavel að snara þeim á
eðlilegt íslenskt talmál.
Friðrika Benónýsdóttir
Niðurstaða: Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri
og vel skrifuðum persónum. Nesbø í fantaformi.
HULDA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR · GISSUR PÁLL GISSURARSON / ÞÓRA EINARSDÓTTIR · GARÐAR THÓR CORTES
ÁGÚST ÓLAFSSON · HRÓLFUR SÆMUNDSSON · JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON
HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR · BERGÞÓR PÁLSSON
HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON · LEIKSTJÓRI: JAMIE HAYES
LEIKMYND: WILL BOWEN · BÚNINGAR: FILIPPÍA ELÍSDÓTTIR · LÝSING: BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON
„Tímamótaviðburður í tónlistarlífinu“
- Jónas Sen, Fréttablaðið
„Frábær skemmtun og frammistaða“
- Ríkharður Örn Pálsson, Morgunblaðið
„Þarna verða til sannir töfrar...
Maður tók andköf í glæsilegustu aríunum“
- Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is
„Bravo! Bravi! Bravissimo!“
- Ólafur Arnarson, pressan.is
LAUGARDAGINN 14. APRÍL KL. 20 - 5. SÝNING - UPPSELT
SUNNUDAGINN 15. APRÍL KL. 20 - AUKASÝNING - NOKKUR SÆTI LAUS
FÖSTUDAGINN 20. APRÍL KL. 20 - LOKASÝNING - UPPSELT
LAUGARDAGINN 21. APRÍL KL. 20 - ALLRA SÍÐASTA SÝNING
Minnum á kynningar á La Bohème
í boði Vinafélags Íslensku óperunnar í
Kaldalóni kl. 19 hvert sýningarkvöld
- Hugo Shirley, Daily Telegraph, London
„Rosaleg upplifun... Sjónarspilið var magnað...
Snilldarlega vel sett upp“
- Ingi Þór Jónsson og Kristjana Stefánsdóttir,
Listræninginn á Rás 1
„Stórkostleg sýning í öllu tilliti...
Sennilega besta uppfærsla sem ég hef séð
hjá Íslensku óperunni“
- Helgi Jónsson, Víðsjá á Rás 1
MIÐASALA Í HÖRPU OG Á WWW.HARPA.IS
NÝ AUKASÝNING LAUGARDAGINN 21. APRÍL KL. 20
ALLRA SÍÐASTA SINN
Björg Birgisdóttir, Jóhann
Kristinsson og Unnsteinn
Árnason, sem öll stunda nám
við háskóladeild Söngskólans í
Reykjavík, eru fyrstu styrkþegar
Minningarsjóðs Vi lhjálms
Vilhjálmssonar söngvara.
Styrkurinn mun standa straum af
skólagjöldum þeirra veturinn 2012
til 2013. Tilkynnt var um þetta í
Söngskólanum í gær. Markmið
sjóðsins er að styrkja árlega til
náms söngvara sem þykja skara
fram úr á sínu sviði.
Minningar sjóðurinn var
stofnaður í kjölfar minningar-
tónleika um Vilhjálm, sem lést
árið 1978, og haldnir voru í
október 2008. Í heild er veittur
1,1 milljóna króna styrkur til
nemanna þriggja. Í stjórn sjóðsins
sitja tónlistarmennirnir Jón
Ólafsson og Magnús Kjartansson,
Þóra Guðmundsdóttir, ekkja
Vilhjálms heitins, og Björn
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Senu. Þau þrjú fyrstnefndu,
stofnendur sjóðsins, veita fé í
stofnun sjóðsins og mun Þóra
ánafna sjóðnum höfundar- og
flytjandalaun Vilhjálms. Þá
hefur Sena gert samning við
minningarsjóðinn um öll verk
Vilhjálms um ókomna framtíð.
Styrkir úr minningarsjóði Vilhjálms
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 12. apríl 2012
➜ Fundir
13.30 Síðasti bókmenntafundur vetrar-
ins hjá FKE verður haldinn í Kennara-
húsinu. Viðfangsefni fundarins er þulur
og ljóð fyrir börn.
20.00 Aðalfundur Rangæingafélagsins
er haldinn í Seljakirkju.
➜ Kvikmyndir
17.00 Konfúsíusarstofnun sýnir
kvikmyndina Kona, byssa og núðlubúð
í stofu 101 í Odda. Um er að ræða
endurgerð á mynd Coen-bræðra, Blood
Simple. Aðgangur er ókeypis.
➜ Listamannaspjall
17.00 Gunnhildur Þórðardóttir tekur
þátt í listamannaspjalli um sýningu sína,
Fráhvarf, í gallerí SÍM Hafnarstræti 16.
➜ Tónlist
20.00 Styrktartónleikar fyrir ABC
hjálparstarf verða haldnir í CTF, Háteigs-
vegi 7. Miðaverð er kr. 1.500.
21.00 Tónleikaröðin gogoyoko,
gogoyoko wireless heldur áfram á
KEX Hostel. Fram kemur bandaríska
sveitin Low Roar, en upphitun verður
í höndum færeyska söngvaskáldsins
Guðrið Hansdóttur. Miðaverð er kr.
1.500.
21.00 Lára Rúnars og Myrra Rós halda
tónleika á Kaffi Bryggjunni í Grindavík.
Aðgangseyrir er kr. 1.500.
22.00 Gísli Helgason flautuleikari
verður gestur Bítladrengjanna blíðu
á Ob-La-Dí Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
Save the Children á Íslandi
FYRSTU STYRKÞEGARNIR Björg Birgisdóttir, Jóhann Kristinsson og Unnsteinn
Árnason tóku við styrkjunum í gær en þeir munu standa straum af skólagjöldum
þeirra við Söngskólann í Reykjavík næsta vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM