Fréttablaðið - 12.04.2012, Qupperneq 53
FIMMTUDAGUR 12. apríl 2012 37
Gefðu sparnað
í fermingargjöf
Fermingarkortið er inneignarkort sem hentar þeim vel sem vilja
gefa sparnað í fermingargjöf. Landsbankinn greiðir 5.000 króna
mótframlag þegar fermingarbörn leggja 30.000 krónur eða meira
inn á Framtíðargrunn.
Fermingarkortið er gjöf sem leggur grunn að árhag framtíðarinnar.
Kortið kemur í fallegum gjafaumbúðum og fæst án endurgjalds í útibúum Landsbankans.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Júlí Heiðar og Guðrún Gunnars-
dóttir eru meðal þeirra sem fram
koma á styrktartónleikum til
styrktar götubörnum í Kenía í
kvöld klukkan 19.30.
Það eru nemendur ABC-
skólans sem standa fyrir tón-
leikunum og verða þeir haldnir
í CTF Reykjavík, Kirkju kær-
leikans. Mörg heimilislaus börn
búa á götunni í Kenía og rennur
ágóði tónleikanna óskertur til
stuðnings þeim.
Aðrir sem koma fram eru Siggi
Kafteinn, Þollý, Ingveldur Ýr
Jónsdóttir, Stefán H. Stefánsson
og Davíð Ólafsson, Lindsay og
Eric Dugas og U.N.G bandið.
Miðaverð er 1.500 krónur. - trs
Styrkja
götubörn
STYRKTARTÓNLEIKAR Táningsstjarnan
Júlí Heiðar er meðal þeirra sem fram
koma á styrktartónleikum nemenda
ABC skólans.
„Leikurinn snýst í raun um það að vera
sniðugur og hugmyndaríkur, taka það upp
og senda inn,“ segir Einar Thor um leik sem
armbandaframleiðandinn Thorshammer
hefur nú efnt til í samstarfi við Tuborg og
X977.
Myndböndin mega vera frá tuttugu
sekúndna löngum og upp í tvær mínútur.
„Það er nú þegar búið að senda inn slatta
af myndböndum,“ segir Einar. „Þetta geta
verið alls konar fyndin og skemmtileg upp-
átæki. Til dæmis einhverjir hrekkir, óvæntir
atburðir eða börn að gera eitthvað fyndið.“
Til mikils er að vinna, en sigurvegarinn
fær ferð fyrir fjóra á Hróarskeldu-hátíðina
í Danmörku í sumar. Flogið verður til Kaup-
mannahafnar og gist á fimm stjörnu hóteli.
Vinningshafarnir verða svo fluttir á hátíðina
með þyrlu. Á hátíðinni sjálfri fær hópurinn
svo VIP-passa. „Það er hægt að græða mikið
á að vera til í að gera grín að sjálfum sér,“
segir Einar.
Hægt er að senda inn myndbönd til 22.
apríl, en þá fyrst hefst keppnin sjálf, og
leyfilegt er að senda inn fleiri en eitt mynd-
band. „Eftir að þátttökufresti lýkur verða
öll myndböndin sett inn á Facebook-síðu
Thorshammer. Þar geta allir séð þau og
kosið sér sinn sigurvegara með því að mæla
með myndbandinu,“ segir Einar. Facebook-
kosningin gildir 40 prósent og dómnefnd
gildir 60 prósent þar á móti. Nánar má lesa
sér til um leikinn á www.thorshammer.is/
leikur. - trs
Vinningshafar fara með þyrlu á Hróarskeldu
STUÐ Á HRÓARSKELDU Þeir sem taka upp sniðug
myndbönd geta unnið ferð á Hróarskeldu-hátíðina í
Danmörku, en þar er alltaf fjör.
Lúftgítarkeppni Beck‘s fer fram
á Gamla gauknum við Tryggva-
götu annað kvöld, föstudags-
kvöldið 13. apríl. Skráning í
keppnina er í fullum gangi og
fer hún fram á Facebook-síðu
Beck‘s á Íslandi eða með því að
senda póst á bokanir@ montana.
is.
Lúftgítarleikur felst í því að
þykjast spila á gítar með undir-
spili á sviði. Slíkar keppnir hafa
verið vinsælar víða um heim
og þá sérstaklega í Finnlandi
þar sem heimsmeistarakeppni í
lúftgítar í þágu heimsfriðar er
haldin árlega.
Dómnefnd skipa þeir Franz
Gunnarsson gítarleikari,
Krummi Björgvinsson söngvari
og Ómar Eyþórsson og Orri
Freyr Rúnarsson, útvarpsmenn
á X-inu.
Húsið opnar klukkan 21 og
hefst keppnin klukkan 22. Frítt
er inn og aldurstakmark er
tuttugu ár.
Keppt í
Lúftgítar-
frammistöðu
LÚFTGÍTAR Skráning í keppnina er í
fullum gangi.