Fréttablaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 62
19. apríl 2012 FIMMTUDAGUR54
bio@frettabladid.is
Aðalfundur GFF
verður haldinn fimmtudaginn 26. apríl
kl 15 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins.
Allt áhugafólk um gróður
og umhverfisvernd
velkomið
Ævintýra- og gamanmyndin
Mirror Mirror var frum-
sýnd í gærkvöldi. Myndin
er byggð á hinu klassíska
ævintýri Grimms-bræðr-
anna um Mjallhvíti og
dvergana sjö, en í þetta
skipti mæta stjörnur á borð
við Juliu Roberts og Lil
Collins á svæðið.
Ævintýrið um Mjallhvíti og
dvergana sjö birtist kvikmynda-
húsagestum í nýrri mynd í
gaman- og ævintýramyndinni
Mirror Mirror. Leikstjórinn
Tarsem Singh stýrir þeim Juliu
Roberts, Lily Collins, Armie
Hammer og Sean Bean í þessari
litríku kvikmynd sem segir frá
baráttu Mjallhvítar við vondu
stjúpuna.
Flestir þekkja líklega söguþráð
kvikmyndarinnar sem segir á
gamansaman hátt frá ævin týrum
Mjallhvítar sem rekin er út í
skóg af afbrýðisamri stjúpu sinni
en er bjargað af sjö dvergum.
Það er Julia Roberts sem fer með
hlutverk illu drottningarinnar
á meðan Lily Collins fer með
hlutverk hinnar fögru og ljúfu
Mjallhvítar.
Singh á að baki kvikmyndir
á borð við The Cell, The Fall og
Immortals sem frumsýnd var í
fyrra. Myndir hans þykja mjög
myndrænar og hefur búninga-
hönnun Eiko Ishioka mikið um
það að segja, en Mirror Mirror
var jafnframt síðasta myndin
sem Ishioka vann við áður en hún
lést í janúar á þessu ári.
Myndin hefur fengið misjafna
dóma; sumir segja hana ófyndna
og leiðinlega á meðan aðrir gagn-
rýnendur segja hana fallega,
myndræna og skemmtilega. Vef-
síðan Rotten Tomatoes gefur
Mirror Mirror 49 rotin prósent
en gagnrýnandi The Telegraph
gefur myndinni fjórar stjörnur
af fimm mögulegum.
HVER Á LANDI FEGURST ER?
■ Aðalleikkona myndarinnar, Lily
Collins, er dóttir breska tónlistar-
mannsins Phil Collins. Stúlkan
hóf leikferil sinn aðeins tveggja
ára gömul er hún kom fram í
sjónvarpsþáttunum Growing
Pains á BBC.
■ Armie Hammer fer með hlutverk
prinsins í kvikmyndinni. Hann
er af auðugu fólki kominn og er
barnabarn olíuauðjöfursins Arm-
ands Hammer en eignir hans voru
metnar á 200 milljónir dollara
af Forbes Magazine árið 1986.
Armie Hammer vakti mikla athygli
þegar hann lék tvíburabræðurna
Cameron og Tyler Winklevoss í
kvikmyndinni The Social Network.
■ Leikstjórinn Tarsem Singh hóf
feril sinn í tónlistarbransanum
og leikstýrði meðal annars tón-
listarmyndböndunum við lögin
Hold On með stúlknasveitinni En
Vogue, Sweet Lullaby með Deep
Forest og Losing My Religion með
R.E.M.
EFNILEGIR AFKOMENDUR
MJALLHVÍT OG DVERGARNIR Lily Collins fer með hlutverk prinsessunnar Mjallhvítar
sem lendir í ýmsum ævintýrum.
Auk stórmyndarinnar Mirror Mirror
voru tvær myndir frumsýndar í kvik-
myndahúsum landsins í gær.
Jonah Hill og Channing Tatum
fara á kostum í myndinni 21 Jump
Street. Þar leika þeir félagana
Schmidt og Jenkt sem eru nýútskrif-
aðir lögreglumenn. Sökum unglegs
útlits þeirra lenda þeir í því að vera
valdir í sérstaka leynisveit og eru
sendir sem nemendur inn í fram-
haldsskóla til að upplýsa um glæpa-
starfsemi þar. Hvorugur þeirra er þó
undir það búinn að þurfa að takast á
við erfiðleika unglingsáranna algjör-
lega upp á nýtt.
Hryllingsgrínmyndin The Cabin in
the Woods var líka frumsýnd í gær.
Hún fjallar um fimm unga vini sem
ákveða að gista í kofa í óbyggðum og
sletta þar ærlega úr klaufunum. Þegar
ungmennin fara að forvitnast um það
sem leynist í kjallara kofans lenda þau
þó í hinum ýmsu hremmingum.
Söguþræði myndarinnar hefur að
mestu verið haldið leyndum en því
er lofað að hún muni koma á óvart
og ekki falla inn í staðalímynd hroll-
vekja.
Á morgun verður frumsýnd nýjasta
mynd Pawels Pawlikowski, Woman in
the Fifth. Myndin fjallar um banda-
rískan rithöfund sem flytur til Parísar
til að vera nálægt dóttur sinni. Líf
hans breytist þó til muna þegar hann
kynnist dularfullri ekkju. - trs
Leyniverkefni, leynikjallarar og leyndarmál
AFTUR Í SKÓLA Þeir Schmidt og Jenkt voru ekki
búnir undir það að upplifa unglingsárin upp á nýtt
þegar þeir eru sendir inn í framhaldsskóla í dular-
gervi nemenda.
> NÆSTUM HÆTT AÐ LEIKA
Leikkonan Salma Hayek viðurkennir að
hún hafi næstum verið búin að gefa feril
sinn upp á bátinn eftir að hún varð
móðir. Hayek á fimm ára gamla dóttur
með eigin manni sínum Francois-Henri
Pinault og segir í viðtali við Marie
Claire að það hafi verið erfið skref
aftur í vinnuna. Hayek er hins vegar
með nóg af verkefnum í bígerð en
þrjár myndir eru væntanlegar með leik-
konunni á árinu, The Pirates/Bands of
Misfit, Savages og Here Comes the
Boom.
Leikarinn Chris Hemsworth
leikur í nokkrum af stór-
myndum ársins, þar á meðal
Snow White and the Huntsman,
The Cabin in the Woods, The
Avengers og Red Dawn.
Hemsworth segir þetta
skrítna tilviljun, sér í lagi vegna
þess að Red Dawn og The Cabin
in the Woods voru teknar upp
fyrir nokkrum árum síðan.
„Mér líður svo lítið eins og
persónunni Benjamin Button.
Myndin sem tekin var upp fyrst
er frumsýnd síðust og því yngist
ég á skjánum eftir því sem
líður á árið,“ sagði leikarinn um
málið.
Ástæðan fyrir töfinni er sú að
MGM framleiðslufyrirtækið fór
á hausinn og því tafðist útgáfa
myndanna töluvert en Red Dawn
verður frumsýnd tveimur árum
eftir að tökum lauk.
„Ég lék í Cabin in the Woods
,svo Red Dawn, síðan Thor, sem
hefur þegar verið sýnd og loks í
The Avengers.“
Yngist með árunum
VINSÆLL Leikarinn Chris Hemsworth leikur í fjölda mynda er koma út á árinu.
NORDICPHTOS/GETTY
Vefsíðan Moviefone setti saman
lista yfir nokkur af verstu stefnu-
mótum kvikmyndasögunnar og
efst á þeim lista trónir kvik-
myndin Kissing Jessica Stein þar
sem aðalpersónan á stefnumót
með hverjum aulanum á fætur
öðrum.
Aðrar kvikmyndir sem komust
á listann voru When Harry Met
Sally með þeim Meg Ryan og
Billy Crystal í aðalhlutverkum,
There‘s Something About Mary
og Annie Hall, sem Woody Allen
leikstýrði og kom út árið 1977.
Verstu
stefnumótin
SLÆM STEFNUMÓT Vefsíðan Moviefone
tók saman nokkur af verstu stefnu-
mótum kvikmyndasögunnar.
NORDICPHOTOS/GETTY
FRÉTTIR
STÖÐVAR 2
Í BEINNI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
KVIKMYNDARÝNI
BATTLESHIP
★★★★★
„Fyndin og fjörug brelluveisla. Og
hávaðinn er ægilegur.“
AMERICAN REUNION
★★★★★
„Andrúmsloftið er til staðar en
grínið þarf að vera meira og
betra.“
CARNAGE
★★★★★
„Lofar góðu en missir dampinn
fljótt.“
TITANIC 3D
★★★★★
„Titanic stenst tímans tönn. Taktu
með þér tissjú og ekki skammast
þín fyrir neitt.“
THE HUNGER GAMES
★★★★★
„Vel heppnuð vísindaskáldsaga
sem flæðir vel.“ - hva
BATTLESHIP