Fréttablaðið - 19.04.2012, Qupperneq 64
19. apríl 2012 FIMMTUDAGUR56
lifsstill@frettabladid.is
56
Úlfar Már Sófusson hefur
endurvakið hina vinsælu
Dúa-bíla sem eiga sögu sína
að rekja aftur til ársins
1985.
HEIMILI „Pabbi minn smíðaði þessa
bíla áður fyrr en þegar hann lést
árið 2002 lögðust þeir í smá dvala.
Það var svo fyrir svona tveimur
árum sem ég ákvað að byrja
að smíða þá aftur, þar sem mig
langaði að sonur minn fengi svona
bíl,“ segir iðnneminn Úlfar Már
Sófusson.
Úlfar hefur unnið sem smiður í
hátt í tíu ár og mun ljúka smíða-
námi nú í vor. Hann segist ekki
hafa auglýst bílana neitt enn þá,
en sé samt sem áður með um ellefu
pantanir sem bíða hans. „Ég vinn
þetta í frístundunum en það tekur
dágóðan tíma að smíða hvern bíl,
maður verður nú að vanda sig við
verkið, “ segir Úlfar. Að sögn hans
eru það helst menn sem áttu slíka
bíla á sínum yngri árum sem kaupi
þá handa börnum sínum eða barna-
börnum. Á árum áður var hægt að
fá nokkrar tegundir af bílnum en
Úlfar heldur sig aðeins við vinsæl-
ustu útgáfuna í sinni framleiðslu,
þeir koma þó í mismunandi litum.
Frá því að bílarnir komu fyrst á
markað árið 1985 hafa þeir alltaf
verið handsmíðaðir og þykja
einkar endingargóðir og vandaðir.
„Ég á sjálfur einn sem er orðinn
meira en 20 ára gamall og hann er
enn þá í heilu lagi. Það eru mörg
dæmi um að bílarnir gangi hrein-
lega í erfðir,“ segir Úlfar. Í gamla
daga var hægt að fá bílinn merktan
með nafni barnsins sem hann átti
að fá, einhverju ákveðnu bíl númeri
eða hvað svo sem börnin óskuðu
og þeim fylgdi skráningarvottorð.
Úlfar er ekki farinn að láta slíkt
fylgja með bílunum enn en segir
líklegt að hann taki það upp fljót-
lega. „Það væri gaman að fara með
þetta alla leið fyrst maður er að
þessu á annað borð,“ segir hann að
lokum. tinnaros@frettabladid.is
SMÍÐAR DÚA-BÍLA Í FRÍSTUNDUM
Dúa-bílarnir eiga sögu sína að rekja
aftur til ársins 1985 þegar nokkrir
frumkvöðlar úr Dýrafirði stofnuðu
leikfangasmiðjuna Ölduna og fram-
leiddu bílana. Hallgrímur Sveinsson
var einn af þessum mönnum og
segir hann markmið þeirra hafa
verið að framleiða leikföng úr timbri
í stað plasts.
Leikfangasmiðjan framleiddi alls
kyns vinsæl leikföng, þar á meðal
kúluspil og svokallaða dú-dú dúkku-
vagna, og öll vinna var unnin í hönd-
unum. „Við létum okkur nú dreyma
um að koma framleiðslunni á
færibandaprógramm, en það komst
aldrei svo langt,“ segir Hallgrímur.
Dúa-bílarnir draga nafn sitt af því
að í þeim var fjöðrun og þeir dúuðu
því. Þeir voru aðalvara Öldunnar
og þóttu afar vinsælir. „Það var
enginn maður með mönnum í
Dýrafirði ef hann átti ekki Dúa-bíl
og krökkunum þótti vænt um bílana
sína,“ bætir Hallgrímur við. Hann
telur óhætt að segja að þeir hafi selt
á milli tvö- og þrjú þúsund bíla á
sínum tíma, en þeir seldu þá um allt
land. „Við gerðum meira að segja út
mann á bíl sem fór með þá á milli
og seldi þá,“ segir Hallgrímur.
Kaupfélag Dýrfirðinga keypti
einkaleyfið að bílunum af Öldunni í
upphafi tíunda áratugs síðustu aldar
og foreldrar Úlfars Más keyptu svo
leyfið af þeim nokkrum árum síðar.
SAGAN Á BAKVIÐ DÚA-BÍLANA
Feykivinsælir Úlfar Már byrjaði að búa bílana til þegar Sófus Oddur, sonur hans fæddist þar sem hann vildi að sonur
sinn myndi eignast sinn eigin bíl. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HEILSA Ný rannsókn sýnir að þeir
sem borða hnetur eiga auð veldara
með að halda aukakílóunum í
skefjum.
Vísindamenn við Louisi-
ana-háskólann í Bandaríkjun-
um komust að því að þeir sem
borða hnetur séu með lægri
BMI- stuðul, minna mittismál og
almennt l éttari. Ráðlagður dags-
skammtur af hnetum er um þrjár
mats keiðar á dag, en mælt er
með því að tegundum sé blandað
saman, eins og möndlum, kasjú-
hnetum og heslihnetum.
Vísindamenn vilja meina að
hnetur séu góðar gegn offitu,
hjartasjúkdómum og sykursýki
svo eitthvað sé nefnt.
Þrjár hnetu-
skeiðar á dag
ALLRA MEINA BÓT Þrjár matskeiðar
á dag af hnetum halda kílóunum í
skefjum samkvæmt rannsóknum.
HEILSA Þeir sem skarta húðflúr-
um drekka meira en aðrir sam-
kvæmt rannsóknum Háskóla
Suður- Bretaníu í Frakklandi.
Rannsóknar menn við háskólann
komust að því að húðflúraðir ein-
staklingar eiga það til að drekka
meira magn af áfengi þegar þeir
bregða undir sig betri fætinum.
Yfir 3.000 manns tóku þátt í
rannsókninni sem fór þannig fram
að fólk var beðið um að blása í
áfengismæla á leið sinni út af
skemmtistöðum og sýndu niður-
stöður að húðflúraðir höfðu að
jafnaði drukkið meira yfir kvöldið.
Hins vegar var lítill munur á
fólki með engin húðflúr og þeim
sem skörtuðu bara einu. Sam-
kvæmt rannsókninni voru þeir
með fleiri en sjö húðflúr og göt
í eyrum, nefi eða annars staðar
á líkamanum líklegastir til að
drekka mesta magnið af áfengi.
Gataðir og húðflúr-
aðir drekka meira
MEIRA MAGN Rannsóknir frá háskóla í Frakklandi sýna að húðflúraðir einstaklingar
drekka meira magn af áfengi en aðrir. NORDICPHOTOS/GETTY
MORGUNMATUR Á KVÖLDIN Vilji maður sofa betur á nóttinni er
sniðugt að borða morgunmatinn að kvöldi til. Samkvæmt breska sjúkra-
þjálfaranum Sammy Margo, sem skrifaði bókina The Good Sleep Guide, eru
bananar, haframjöl og jógúrt maturinn sem aðstoðar við svefnleysi.