Fréttablaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 72
19. apríl 2012 FIMMTUDAGUR64 Sumardaginn fyrsta 19. apríl mun Hestamannafélagið Fákur bjóða til opins dags frá kl. 13:00 - 16:00 á félagssvæði Fáks. Borgarbúar er hvattir til að mæta og njóta dagsins með okkur. Reiðskóli Reykjavíkur og Reiðskólinn Faxaból munu bjóða börnum á hestbak og kynna starfsemi sína. Heppnir krakkar geta unnið frítt reiðnámskeið í sumar með þátttöku í léttum leik. Hesthús á svæðinu eru opin fyrir gestum og gangandi. Firmakeppni Fáks hefst klukkan 14.00. Keppt verður í öllum flokkum frá börnum upp í atvinnumenn. Í Félagsheimili Fáks verður boðið upp á frítt afmæliskaffi ásamt meðlæti. Opinn dagur hjá Fáki Sumardaginn fyrsta Guðjón hefur sagt það sjálfur að hann sé ekki að erfa eitthvað úr fortíðinni heldur horfi hann fram á veginn. HAFÞÓR ÆGIR VILHJÁLMSSON LEIKMAÐUR GRINDAVÍKUR FÓTBOLTI Hafþór Ægir Vilhjálms- son er byrjaður að æfa með liði Grindavíkur á nýjan leik en hann hefur ekki æft fótbolta síðan hann meiddist á hné í janúar á síðasta ári. Hafþór mætti á sína fyrstu æfingu með Grindavík á mánu- daginn. Þar æfði hann undir stjórn mannsins sem hann neitaði að spila hjá árið 2006. Þá setti Hafþór Ægir umdeildan viðauka í samning sinn við ÍA um að honum væri frjálst að fara frá félaginu ef Guðjón Þórðarson tæki við liðinu. Viðaukinn var settur inn nokkrum dögum áður en Guð- jón tók við liðinu og faðir Hafþórs sat þá í stjórn ÍA. Málið var afar umdeilt en ný stjórn knattspyrnudeildar ÍA neitaði að viðurkenna viðaukann. Málið fór alla leið hjá KSÍ og fór svo að lokum að Hafþóri var leyft að fara frá uppeldisfélaginu. Guðjón er alltaf til í að leiðbeina mér Leiðir hans og Guðjóns liggja nú aftur saman í Grindavík. Hafþór segir að gróið sé um heilt milli hans og þjálfarans. „Það er allt gott á milli mín og Guðjóns og við náum vel saman. Hann hefur sýnt minni stöðu mikinn skilning og kemur til mín á hverjum degi og spyr hvernig gangi hjá mér. Hann er alltaf til í að leiðbeina mér,“ sagði Haf- þór Ægir en er búið að gera þessi gömlu leiðindi upp? „Blessaður vertu, við erum orðnir fullorðnir. Hann hefur sagt það sjálfur að hann sé ekki að erfa eitthvað úr fortíðinni heldur horfi hann fram á veginn. Það þurfti því ekkert að setjast niður og hreinsa loftið eða álíka. Við tókumst í hendur á fyrstu æfingu og þurfti ekki einu sinni að tala um þetta mál. Það er ekkert vandamál hjá okkur.“ Hinn 25 ára gamli Hafþór segir að það sé bjart fram undan hjá sér og hann hlakkar til komast almennilega af stað. „Ég má æfa fótbolta annan hvern dag og lyfta hinn daginn. Ég er eðlilega langt á eftir hinum og nú þarf ég að koma mér í form.“ Hann meiddist á æfingu þegar það snerist upp á löppina á honum. Hefur ýmislegt verið gert til þess að koma honum í lag en fátt bar árangur. Meira að segja skurð- aðgerð breytti engu. Enginn vissi hvað væri nákvæm- lega að Enginn virtist nákvæmlega vita hvað væri að honum og það var eðlilega erfitt fyrir leikmanninn. „Það var ekki fyrr en ég fékk stera í hnéð sem ég gat farið að lyfta án þess að vera sárkvalinn. Svo hefur þetta verið að lagast hjá mér. Það var svo afar ánægjulegt að komast á grasæfingu á mánu- dag,“ sagði Hafþór Ægir en hvernig var nákvæmlega tilfinningin? „Ég er ekki alveg búinn að með- taka þetta. Þeir sem hafa lent í þessu vita hvernig mér líður. Þetta er ótrúlega ljúft,“ sagði Hafþór sem hefur helst ekki getað horft á fótbolta í meiðslunum. Það var ein- faldlega of erfitt fyrir hann. „Þetta er búið að taka meira á andlega en líkamlega. Ég var mjög kvalinn og gat stundum ekki sofið á nóttunni. Ég get alveg viður- kennt að ég hugsaði stundum hvort ég myndi jafna mig þegar ég var að vakna með verk á nóttunni. Verst af öllu var samt að enginn vissi nákvæmlega hvað væri að hjá mér. Þarna voru læknar ekki vissir um að ég myndi spila aftur og það tók sinn toll. Ég hafði samt alltaf trú á þessu.“ Hafþór gerir ekki ráð fyrir að spila með Grindavík fyrr en í júní í fyrsta lagi. „Það styttist í að ég geti farið að æfa á fullu og markmiðið núna er að spila fótbolta í sumar. Nú þarf ég að vinna í líkamlega þættinum sem er auðveldara þar sem ég er nánast verkjalaus orðinn. Það er afar góð tilfinning.“ henry@frettabladid.is Við Guðjón erum orðnir fullorðnir Hafþór Ægir Vilhjálmsson segir það ekki vera neitt mál að spila undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar. Hafþór neitaði að spila undir hans stjórn árið 2006. HAFÞÓR ÆGIR Kominn aftur af stað eftir tæplega 16 mánaða fjarveru vegna meiðsla. FRÉTTABLAÐIÐ/XX
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.