Fréttablaðið - 17.05.2012, Blaðsíða 4
17. maí 2012 FIMMTUDAGUR4
TÆKNI Fjarskiptabúnaður radíó-
áhugamanns er ekki talinn valda
skaðlegri geislun, samkvæmt
nýbirtri ákvörðun Póst- og fjar-
skiptastofnunar (PFS).
Nágranni taldi að rafsegulgeisl-
un frá búnaðinum hefði spillandi
áhrif á bæði andlegt og líkamlegt
heilsufar hans.
Mælingar Geislavarna ríkis-
ins sýndu að rafsegulgeislun inni
á heimili þess sem kvartaði og
í nánasta umhverfi væri langt
innan marka. Mælingar PFS voru
í samræmi við þá niðurstöðu. - óká
PFS fjallar um fjarskiptabúnað:
Engin hætta
talin af geislun
Bæjarbíl breytt fyrir metan
Umhverfis- og samgöngunefnd
Kópavogs leggur til við bæjarráð að
einum bíl í eigu bifreið bæjarins verði
breytt í metanbíl til prufu. Reynslan
af breytingunni verði síðan metin á
ársgrundvelli.
UMHVERFISMÁL
Fleiri bústaðir á Þingvöllum
Nýtt deiliskipulag fyrir frístundabyggð
á 36 hekturum úr landi Skálabrekku
við Þingvallavatn gerir ráð fyrir 24
nýjum frístundalóðum suðvestan
við núverandi sumarhúsabyggð í
Skálabrekku.
BLÁSKÓGABYGGÐ
GENGIÐ 16.05.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
224,0711
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,48 128,08
203,00 203,98
162,05 162,95
21,798 21,926
21,246 21,372
17,776 17,880
1,5847 1,5939
194,31 195,47
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Frá kr. 16.900
Allra síðustu sætin.
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt verð á völdum dagsetningum til og frá Alicante.
Nú er tækifæri til að bregðast skjótt við og næla sér sæti á frábærum kjörum!
Verð kr. 16.900. Netverð. Flugsæti á mann aðra leiðina með sköttum.
23. og 30. maí frá Alicante til Keflavíkur.
22. maí og 12. júní frá Keflavík til Alicante.
Alicante
SAMFÉLAGSMÁL Listahátíðin List
án landamæra fékk mannrétt-
indaverðlaun Reykjavíkurborgar.
Dagur B. Eggertsson, formaður
borgarráðs, afhenti fulltrúum
hátíðarinnar verðlaunin í Höfða
í gær.
Mannréttindaverðlaunin eru
veitt þeim einstaklingum, félaga-
samtökum eða stofnunum sem
hafa á eftirtektarverðan hátt
staðið vörð um mannréttindi til-
tekinna hópa. List án landamæra
var fyrst haldin á Evrópuári
fatlaðra árið 2003 og hefur verið
haldin árlega. - sv
Verðlaun fyrir mannréttindi:
Listahátíð fékk
viðurkenningu
VERÐLAUNAAFHENDING Listahátíðin List
án landamæra fékk mannréttindaverð-
laun Reykjavíkurborgar.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
25°
18°
12°
9°
15°
16°
9°
9°
25°
14°
23°
22°
30°
12°
16°
18°
13°Á MORGUN
Víða hæg
breytileg átt
LAUGARDAGUR
Fremur
hægur vindur
4
4 3
4
2
2
3
2
3
5
31
2
4 5
2
4
5
6
7
6
5
6
5
5
4
6
6
8
7
89
FREMUR RÓLEGT
næstu daga, hægur
eða fremur hægur
vindur víðast hvar.
Nokkuð bjart S-til í
dag en dregur fyrir
á morgun en þá
birtir til fyrir norðan
og austan. Skúrir
V-til á morgun og
bætir í úrkomu
fram á kvöldið.
Hlýnar meira um
helgina.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
LÖGREGLUMÁL Tvo vélsleðamenn
sakaði ekki þegar þeir lentu í
snjóflóði í suðurhlíðum Kerlingar
í Glerárdal í gær.
Lögreglunni á Akureyri barst
tilkynning um flóðið og ræsti
þegar út björgunarsveitir Lands-
bjargar þar sem óljóst var um
afdrif sleðamannanna. Beiðni
um aðstoð björgunarsveita var
svo afturkölluð þegar sleðamenn-
irnir höfðu samband við lögreglu,
en þeir komust af sjálfsdáðum úr
flóðinu. - óká
Tveir sleðamenn björguðust:
Komust sjálfir
úr snjóflóðinu
MENNTUN Það er ekki lengur hringt
inn úr frímínútum með rafknúinni
bjöllu í Austurbæjarskóla. Bjallan
var aftengd þegar í ljós kom laup-
ur, sem er hreiður hrafns, nálægt
henni yfir aðalinnganginum.
„Við sáum laupinn þegar við
komum úr páskafríi og við vildum
ekki að það kæmi styggð að hrafn-
inum. Þess vegna hringjum við inn
handvirkt,“ segir Guðmundur Sig-
hvatsson skólastjóri sem sjálfur
lætur bjölluna hljóma úti í portinu.
En það er ekki bara þegar
hringja þarf með bjöllunni sem
skólastjórinn er úti í porti. Hann
hefur í allan vetur sinnt þar gæslu-
störfum í frímínútum ásamt kenn-
urum og skólaliðum.
„Mig skorti fjármagn til þess
að borga nógu mörgum kennur-
um fyrir gæsluna. Ég gat fækkað
einum gæslumanni með því að fara
sjálfur út. Það má spara á því. Það
kostar ekkert að hafa mig úti.“
Guðmundur segist kynnast nem-
endum á annan hátt úti á skólalóð-
inni, heldur en innandyra. „Þegar
ég er úti fæ ég allt sem er að gerast
beint í æð. Krakkarnir hafa jafn-
framt tekið þessu vel. Þeim finnst
fínt að hafa karlinn úti.“ - ibs
Skólastjóri Austurbæjarskóla hringir sjálfur inn og sinnir útigæslu í sparnaðarskyni:
Laupur stöðvar skólabjölluna
LAUPURINN Nemendur og starfsmenn
bíða spenntir eftir því að heyra í ung-
unum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ICESAVE Bretland og Holland eru
einu EES-ríkin sem nýttu sér
tækifærið til að styðja málarekst-
ur Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA)
í Icesavemálinu, með skriflegum
athugasemdum, en málið er nú
rekið fyrir EFTA-dómstólnum.
Skilafrestur athugasemda rann
út á miðnætti í fyrrinótt, en þá
höfðu EFTA-ríkin Noregur og
Liechtenstein lagt fram athuga-
semdir til stuðnings málstað
Íslands.
Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisráðherra segir ánægjulegt
að Noregur og Liechtenstein taki
undir málflutning Íslands.
„Mér finnst líka merkilegt að í
athugasemdum sínum taka hvorki
Bretland né Holland undir með
ESA varðandi meinta mismunun
Íslendinga gagnvart innistæðu-
eigendum utan Íslands. Ég vil svo
sem ekki draga of miklar ályktan-
ir af því, en þessi meinta mismun-
un er annar af tveimur meginás-
unum í stefnu ESA gegn okkur.“
Hin meginstoðin í málarekstri
ESA lýtur að því hvort Ísland
hafi gerst brotlegt við innistæðu-
tryggingatilskipun ESB. Máls-
vörn Íslands lýtur að því að
annars vegar sé hvergi í tilskip-
uninni tiltekið að ríkisábyrgð sé
á innistæðutryggingakerfi, og
hins vegar er því borið við að við
bankahrunið hafi skapast óviðráð-
anlegar aðstæður á Íslandi, sem
ógildi innistæðutilskipunina.
Í athugasemdum sínum halda
Bretar og Hollendingar því fram
að markmið tilskipunarinnar sé að
tryggja innistæður og það hafi ein-
Aðeins Hollendingar
og Bretar styðja ESA
EFTA-réttinum bárust aðeins fjórar athugasemdir frá EES-ríkjum. Bretar og
Hollendingar styðja ESA, en Noregur og Liechtenstein styðja sjónarmið Íslands.
Utanríkisráðherra telur málflutning Íslands hafa skilað sér til annarra EES-ríkja.
Aðspurður hvort samningaleiðin í Icesave-deilunni
hafi verið misráðin í ljósi röksemda sem Noregur og
Liechtenstein leggja fram, segir utanríkisráðherra að
erfitt sé að leyfa sér að draga þá ályktun af gögnunum.
„Ég vinn auðvitað af fullum krafti fyrir hönd Íslands í
þessu máli og trúi á sigur þar til annað verður að veru-
leika. Ég tel að málstaður okkar sé giska góður
og tel að okkur hafi tekist að sýna fram á að
tilskipunin sé ekki gerð fyrir aðstæður eins og
voru hjá okkur þar sem varð hrun heils kerfis
og allir bankarnir féllu. Ég leyfi mér því að vera
hóflega bjartsýnn án þess að draga af þessu
ályktanir sem vekja of miklar væntingar.
Staðan í dag er sú að málið er í farvegi sem
þjóðin valdi. Við vinnum þar af kappi og
allri okkar atorku og spörum hvergi til.“
Var samningaleiðin misráðin?
faldlega ekki verið gert í umræddu
tilfelli.
Varðandi meintar óviðráðan-
legar aðstæður, segja bæði ríkin
að sönnunarbyrðin sé alfarið á
Íslandi og engar slíkar sannanir
liggi fyrir. Fjárhagslegir erfið-
leikar eigi ekki við, þar sem Bret-
land og Holland hafi boðið Íslandi
fjármuni að láni.
Noregur og Liechtenstein taka
hins vegar fram í sínum athuga-
semdum að hvergi í tilskipuninni
sé tekið skýrt fram að ríkisábyrgð
sé á innistæðutryggingakerfum.
Í ljósi þess hve miklar kvaðir á
aðildarríki fælust í ríkisábyrgð
þyrftu lögin að vera afar skýr að
því leyti. Auk þess sé í formála
laganna og vinnuskjölum frá setn-
ingu þeirra beinlínis tekið fram
að tilskipunin feli ekki í sér ríkis-
ábyrgð.
Össur segir einnig merkilegt að
Bretland og Holland hafi ein EES-
ríkja sent athugasemdir til stuðn-
ings ESA, því að hann hafi skynjað
svipaða afstöðu hjá sumum kollega
sinna.
„Það hljóta að vera vonbrigði
fyrir þá merku stofnun ESA, en
ég tel að það sýni að málflutningur
okkar fyrir öllum EES-ríkjunum
hefur borið árangur og okkur hafi
tekist að telja þeim hughvarf.“
thorgils@frettabladid.is
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
GRIKKLAND Grikkir hafa undan-
farna daga og vikur flykkst í hrað-
banka til að
taka út peninga,
af ótta við að
Grikkland yfir-
gefi evrusvæðið
og gamla drak-
man verði tekin
upp í staðinn.
Síðan um síð-
ustu helgi hafa
verið teknar út
að minnsta kosti
900 milljónir evra af reikning-
um landsmanna, að því er þýska
fréttastofan dpa-AFX hefur eftir
heimildarmönnum sínum.
Nýkjörið þing kom saman í
fyrsta sinn í gær og var ákveðið
að nýjar kosningar verði haldn-
ar 17. júní, þar sem ekki tókst að
mynda ríkisstjórn. Samkomulag
hefur tekist um að Panagiotis Pik-
rammenos, forseti gríska ríkis-
ráðsins, verði forsætisráðherra
bráðabirgðastjórnar, sem fer með
völdin þar til nýtt þing hefur verið
kosið. Þá var samþykkt að bráða-
birgðastjórnin hafi ekki heimild til
að taka skuldbindandi ákvarðanir
fyrir hönd gríska ríkisins. - gb
Efnahagskrísan í Grikklandi:
Grikkir tæma
bankareikninga
PANAGIOTIS
PIKRAMMENOS