Fréttablaðið - 17.05.2012, Qupperneq 20
17. maí 2012 FIMMTUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
„Ég vil gjarnan taka þátt í því að heiðra
minningu Róberts því hann var einn af
mínum mestu velgjörðarmönnum í líf-
inu. Ég minnist hans með slíku þakk-
læti og virðingu í starfi mínu og lífi,“
segir Þorgerður Ingólfsdóttir, tónlist-
armaður og kennari og stofnandi kórs
Menntaskólans í Hamrahlíð (MH)og
síðar Hamrahlíðarkórsins. Þessir kórar
minnast Dr. Róberts Abrahams Ottós-
sonar með dagskrá í hátíðarsal MH í
kvöld klukkan 20, en í dag er öld liðin
frá fæðingu Róberts.
Róbert Abraham,
sem fæddist í Berlín
en flúði hingað til
lands undan nas-
ismanum árið 1935,
starfaði meðal ann-
ars sem stjórn-
andi Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands og
Söngsveitarinnar
Fílharmóníu, söng-
málastjóri Þjóðkirkjunnar og kennari
við Háskóla Íslands og Tónlistarskól-
ann í Reykjavík. Þá var hann fyrsti
Íslendingurinn til að ljúka doktors-
prófi í tónvísindum með ritgerð sinni
um Þorlákstíðir.
Það er vel við hæfi að þessir kórar
heiðri minningu Róberts því fyrir hans
atbeina varð kórastarfið í Hamrahlíð
til, að sögn Þorgerðar, en hún var nem-
andi Róberts frá sjö ára aldri þar til
hann lést eftir skamma sjúkrahúsvist
árið 1974. „Róbert og fyrsti rektor MH,
Guðmundur Arnlaugsson, voru góð-
kunningjar frá Akureyri. Róbert sagði
Guðmundi að brýnt væri að stofnað-
ur yrði kór þar sem ungir strákar og
stelpur syngju saman, en um slíkt var
ekki að ræða á þessum tíma á Íslandi.
Róbert studdi mig af heilum hug í
þessu starfi frá upphafi. Hann var stór-
kostlegur kennari sem bjó yfir ótrúlega
mörgum eiginleikum. Hann var lista-
maður af guðs náð, vísindamaður og
mikil tilfinningavera sem kom með
andblæ evrópskrar heimsmenningar
til Íslands. Hann var útlendingur, en
um leið einn mesti Íslendingur sem ég
hef þekkt og fáir töluðu málið okkar
betur. Mér verður oft hugsað til þess
sem hann sagði oft: „Það er fljótt að
fenna í sporin á Íslandi“ og kannski er
hollt að hafa það í huga á okkar tímum
þegar öllum finnst þeir vera að finna
upp hjólið.“
Í dagskránni syngja Hamrahlíðar-
kórarnir, undir stjórn Þorgerðar,
útsetningar Róberts á íslenskum og
erlendum lögum, meðal annars radd-
setningar sem hann gerði sérstaklega
fyrir Kór Menntaskólans við Hamra-
hlíð. Einnig flytja kórarnir Miskunnar-
bæn fyrir kór og strengjasveit, sem er
eitt fárra frumsaminna tónverka sem
Róbert lét eftir sig. Þá mun Árni Heim-
ir Ingólfsson tónlistarfræðingur flytja
erindi um líf og starf Róberts. Aðgang-
ur er ókeypis og allir velkomnir.
kjartan@frettabladid.is
HAMRAHLÍÐARKÓRARNIR: MINNAST DR. RÓBERTS ABRAHAMS OTTÓSSONAR
LISTAMAÐUR AF GUÐS NÁÐ
FRUMKVÖÐULL Róbert Abraham Ottósson í Berlín árið 1929. Hann flúði undan nasismanum
til Íslands árið 1935 og kom víða við í tónlistarlífi landsins.
ÞORGERÐUR
INGÓLFSDÓTTIR
SUGAR RAY LEONARD, bandaríski boxarinn, á afmæli í dag.
„Fyrir hvern bardaga bið ég þess að enginn meiðist.“56
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, sonur,
bróðir, mágur og afi,
KJARTAN JÓNSSON
Kjartansgötu 8, Reykjavík,
lést sunnudaginn 13. maí. Útför hans fer
fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn
25. maí kl. 13.00.
Ólöf Júlía Kjartansdóttir
Árni Rúnar Inaba Kjartansson Anna Arnardóttir
Jón Ólafsson Ólöf E. Árnadóttir
Steingerður Jónsdóttir Örlygur Karlsson
Ólafur Jónsson
Skafti Jónsson Bente Nielsen
og afabörnin.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÚNAR ÞORSTEINSDÓTTUR
áður til heimilis í Hvassaleiti 18.
Færum Hjúkrunarheimilinu Eir sérstakar
þakkir fyrir einstaka umönnun og hlýhug
um árabil.
Þóra G. Gísladóttir Haukur Hafsteinsson
Margrét Gísladóttir Haraldur H. Helgason
Gísli Gíslason Ágústa Guðmarsdóttir
Ólafur S. Gíslason Hildur Bjarnadóttir
Guðrún Gísladóttir Magnús Orri Sæmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín, dóttir, systir okkar,
tengdamamma og amma,
ERNA BJÖRG BJARNADÓTTIR
Reynimel 74, Reykjavík,
andaðist á krabbameinsdeild Landspítalans
sunnudaginn 13. maí. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn
24. maí kl. 13.00.
Andri Freyr Halldórsson Alda Magnúsdóttir
Tara Gunnarsdóttir Ólafur Árni Bjarnason
Ásdís Freyja Andradóttir Markús Bjarnason
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
BERGSTEINN GARÐARSSON
trillukarl,
er lést 6. maí sl., verður jarðsunginn frá
Glerárkirkju föstudaginn 18. maí kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á
Orgelsjóð Glerárkirkju.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurveig
Jónas
Barbara
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUNNAR B. HÁKONARSON
Strikinu 4, Garðabæ,
lést laugardaginn 12. maí.
Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir
Hákon Gunnarsson Guðný Helgadóttir
Helga Gunnarsdóttir
Guðrún Gunnardóttir Unnar Reynisson
Hrefna Gunnarsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför
ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
KRISTJÁNS KARLS NORMAN
Hæðargarði 14.
Guð blessi ykkur öll.
Gréta Þórs
Einir Kristjánsson
Baldur Sigurðsson
Þór Björnsson
tengdadætur, afabörn og langafabörn og fjölskyldur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HALLDÓR IBSEN
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 18. maí kl. 13.00.
Brynjar Halldórsson Jutta Halldórsson
Eygló H. Ibsen
Tómas Ibsen Laufey Danivalsdóttir
Snorri Halldórsson Ólöf I. Davíðsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
GUNNHILDAR ÖBBU MAGNÚSDÓTTUR
frá Sauðárkróki,
sérstakar þakkir til Heilbrigðisstofnunarinnar
á Sauðárkróki og Hrafnistu í Reykjavík.
Hildur Svavarsdóttir Jón Þór Ólafsson
Ólöf Svavarsdóttir Wessman Wilhelm Wessman
Svavar Ásbjörnsson
Linda Wessman Knútur Rúnarsson
Róbert Wessman Ýr Jensdóttir
Gunnhildur Wessman Arnar Haraldsson
Arnþór Jónsson Alda Jónsdóttir
Ómar Andri Jónsson Arna Ragnarsdóttir
og langömmubörn.
Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS BERG BERGSTEINSSON
Dalbraut 27, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi aðfaranótt
mánudags 14. maí. Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gunnhildur Steinunn Magnúsdóttir
Sigrún Magnúsdóttir
Sigríður Bergdís Magnúsdóttir
Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
INDRIÐI RAGNAR SIGMUNDSSON
frá Miðvik,
lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk þann
5. maí. Útförin fer fram frá Laufási í Eyjafirði
föstudaginn 18. maí kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Grétar Indriðason, eiginkona,
barnabörn og barnabarnabörn.
GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR
hjúkrunarkona
Barónsstíg 65, Reykjavík,
lést 8. maí og hefur jarðarförin farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar
þakkir til starfsfólksins á 3. hæð á
Hjúkrunarheimilinu Skjóli fyrir hlýhug
og góða umönnun.
F.h. aðstandenda,
Guðrún S. Jakobsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN ÁSA MAGNÚSDÓTTIR
Gullsmára 11, Kópavogi,
lést á Landspítalanum Hringbraut að morgni
15. maí. Útförin verður auglýst síðar.
Auður Björk Ásmundsdóttir Sighvatur Karlsson
Stígrún Ása Ásmundsdóttir
Ólafur Ásmundsson Áslaug Óskarsdóttir
Jakob Ásmundsson Rebekka Cordova
Þorgerður Ásmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.