Fréttablaðið - 17.05.2012, Side 22
FÓLK|
GETTÓTÍSKA
Sumartískan tekur
nýja stefnu.
TÍSKA
Sigrún Elsa Stefánsdóttir, kjólaklæðs-keri, hefur nóg að gera þessa dagana en hún hannar og saumar
brúðarkjóla.
„Núna er brúðkaupstímabilið að hefj-
ast og ég er með átta kjóla í vinnslu.
Kjólarnir eru mjög persónulegir og því
mjög mismunandi. Brúðirnar eru flestar um
þrítugt en ég hef líka gert kjóla á eldri
konur sem eru þá kannski að gifta sig í
annað sinn og vilja ekki vera í hefðbundnum
brúðarkjólum. Ég vinn mjög náið með brúðun-
um, sumar koma með fastmótaðar hugmyndir
en aðrar vita minna hvernig þær vilja hafa
kjólinn. Við teiknum kjólana upp saman og
veljum efnin í sameiningu þannig að þetta eru
mikil samvinnuverkefni,“ segir Sigrún.
Að sauma brúðarkjóla er ekki það eina sem
Sigrún fæst við því hún er líka með sína eigin
fatalínu. „Ég geri aðallega fatnað sem hægt er
að dressa upp og niður og nota við ýmis til-
efni. Ég er með kjóla, buxur, peysur, slár og
fleira. Mikið af vörunum eru úr prjónaefnum
sem eru öll sérprjónuð á Íslandi fyrir mig. Svo
nota ég líka hefðbundin efni eins og
teygjuefni og bómull. Mér finnst
skemmtilegast að sjá flíkina
verða til, að vera með flott
snið og sjá það verða að flík.
Svo er alltaf gaman að sjá
aðra í flíkunum mínum. Brúðirnar eru dug-
legar að senda mér myndir af sér í
kjólunum á stóra daginn og það er
mjög skemmtilegt að sjá þær
í þeim.“
Sigrún gerir líka fylgi-
hluti, svo sem töskur
og skartgripi sem hún
vinnur úr leðri og roði.
Sigrún stendur einnig
í ströngu við að opna nýja
verslun og vinnustofu. „Ég
er að stækka við mig.
Ég var í litlu vinnuher-
bergi heima og fann svo
þetta húsnæði sem er
helmingi stærra. Þetta er
allt meira og minna tilbúið,
ég er að leggja lokahönd á
þetta og gera huggulegt,“
segir Sigrún en vinnustofa
hennar er í bláu húsunum
í Skeifunni. Hægt er að sjá
hönnun hennar á heimasíð-
unni nurgis.is og á Facebook.
BRÚÐARKJÓL-
AR OG FLEIRA
BRÚÐKAUPSTÍMABIL Sigrún Elsa Stefánsdóttir
hefur nóg að gera við að hanna brúðarkjóla ásamt
því að opna nýja vinnustofu og verslun.
■ GULLKEÐJUR OG DERHÚF-
UR VERÐA ÁBERANDI
Í sumar má eiga von á því
að sjá margar stelpur skarta
hafnaboltaderhúfum og gull-
keðjum. Þessi tíska er ein-
staklega skemmtileg, sumarleg
og öðruvísi en hana má rekja
til vaxandi vinsælda tón-
listarmanna í rappgeiranum.
Röppurum á borð við Tyler the
Creator og A$AP Rocky hefur
skotið upp á stjörnuhimininn
á þessu ári og eru greinilega
orðnar tískufyrirmyndir unga
fólksins. Það er því tilvalið að
skella á sig hafnaboltaderhúf-
unni í sumar þegar veðrið er
gott, það poppar
strax upp
á dressið.
Hægt er að
finna ódýrar
gullkeðjur í
Kolaportinu og
húfurnar
eru seldar
í öllum
helstu
hjóla-
bretta-
versl-
unum.
LEÐUR OG ROÐ
Sigrún gerir fylgihluti, svo
sem töskur og skartgripi,
úr leðri og roði.
30% af öllu
Levi’s Kringlan
Tilboðið gildir til mánudags (21. 5. 2012)
Kjólar fyrir öll tækifæri
NÝ SENDING AF KJÓLUM Í ST. 36–48.
20% afsl.
af öllum vörum
Útskriftina, brúðkaupið eða vinnuna.
Nýtt kortatímabil
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432
DRESSAÐ UPP OG NIÐUR
Fötin sem Sigrún hannar er hægt
að nota við hin ýmsu tilefni.
MYND/GVA