Fréttablaðið - 17.05.2012, Qupperneq 42
17. maí 2012 FIMMTUDAGUR26 26
menning@frettabladid.is
Listamennirnir og félagarn-
ir Darri Lorentzen, Þór Sig-
urþórsson og Örn Helgason
opna á morgun sýningu í sal
Heilsuverndarstöðvarinnar
við Barónsstíg. Sýningin
er haldin að undirlagi list-
fenga pylsugerðarmanns-
ins Johnnys, eða Jóns Þórs
Finnbogasonar.
„Okkur langaði til að vinna
saman,“ segir listamaðurinn
Darri Lorentzen sem, ásamt Þór
Sigurþórssyni og Erni Helgasyni,
opnar listasýningu í sal Heilsu-
verndarstöðvarinnar við Bar-
ónsstíg á morgun, föstudaginn
18. maí, klukkan 18. Sýningin er
kynnt sem fyrsti listviðburðurinn
í röð slíkra sem kenndir verða við
Johnny, eða Jón Þór Finnbogason,
listfengan pylsugerðarmann sem
þótti tímabært að verk listamann-
anna þriggja fengju viðeigandi
sýningarvettvang. Í framhald-
inu hyggst Johnny beita sér fyrir
fleiri óvæntum menningarvið-
burðum í höfuðborginni.
Darri, sem býr og starfar að
mestu í Berlín, stundaði fram-
haldsnám í Hollandi og félagar
hans í sýningunni leituðu einnig
listmenntunar út fyrir landstein-
ana, Þór til New York í Bandaríkj-
unum og Örn til Vínar í Austur-
ríki. Um verkin á sýningunni vill
Darri helst segja sem minnst, en
lætur þó uppi að um sé að ræða
ný verk frá öllum listamönnun-
um.
„Við erum að púsla saman hlut-
um sem við erum að vinna í þessa
dagana, einhverju flottu sem ég
gæti ímyndað mér að myndi fína
heild. Við erum líka mjög ánægð-
ir með sýningarstaðinn í Heilsu-
verndarstöðinni og það er frá-
bært að fá tækifæri til að vinna
þar. Þetta er ótrúlegt og marg-
slungið hús. Við ætlum að vinna
með rýmið, sem er listaverk út af
fyrir sig, en gólfið er sérstaklega
mikilvægt, rammar verkin inn og
er eiginlega eitt af verkunum,“
segir Darri, sem sjálfur stundaði
sitt grunnskólanám við Austur-
bæjarskóla og hafði því Heilsu-
verndarstöðina fyrir augunum
daginn út og inn á æskuárum.
Opnun sýningarinnar fer fram
á morgun klukkan 18 og stendur
hún yfir frá föstudegi til sunnu-
dags.
kjartan@frettabladid.is
Fyrsti í Johnny á
Barónsstígnum
ÚT Á GÓLFIÐ Þeir Darri, Örn og Þór eru uppnumdir af gólfinu í sýningarrýminu í
Heilsuverndarstöðinni. Darri segir það nánast hluta af verkunum á sýningunni, sem
verður opnuð á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Elsta lúðrasveit landsins, Lúðra-
sveit Reykjavíkur, fagnar 90 ára
starfsafmæli sínu með stórtón-
leikum í Hörpu í kvöld, 17. maí,
klukkan 20. Lúðrasveit Reykja-
víkur var stofnuð 7. júlí 1922
við sameiningu lúðrafélaganna
Gígju og Hörpu. Þá þegar hafði
Harpan hafið undirbúning að
byggingu æfinga- og tónleika-
húss í nánu samstarfi við Knud
Zimsen, bæjarstjóra Reykjavík-
ur. Hann hafði bent þeim á að
byggja á öskuhaugunum sem
blöstu við honum út um skrif-
stofugluggann. Hljómskálinn
var reistur á haugunum við
tjörnina í Reykjavík árið 1923
og var fyrsta húsið á Íslandi
sem byggt var sérstaklega yfir
tónlist.
Á dagskrá kvöldsins er blás-
arasveitartónlist eftir helstu
tónsmiði Íslands sem samið hafa
tónverk fyrir lúðrasveitir. Þeirra
á meðal eru Áki Ásgeirsson,
Árni Björnsson, Bára Sigurjóns-
dóttir, Karl O. Runólfsson, Lárus
H. Grímsson, Oddgeir Kristjáns-
son og Pál Pampichler Pálsson.
Elsta lagið sem flutt verður er
samið árið 1885 af Helga Helga-
syni, föður íslenskra lúðrasveita.
Blásið til 90 ára afmælisveislu
LÚÐRASVEIT REYKJAVÍKUR Fagnar 90 ára afmæli með stórtónleikum í Hörpu í kvöld.
Við erum líka mjög
ánægðir með sýn-
ingarstaðinn í Heilsuverndar-
stöðinni og það er frábært að
fá tækifæri til að vinna þar.
DARRI LORENTZEN
LISTAMAÐUR
www.gardabaer.is
FIMMTUDAGUR 17. MAÍ
KL. 20:30 URÐARBRUNNUR
Hátíðarsalur Fjölbrautaskólans í Garðabæ
STÓRSVEIT
SAMÚELS JÓNS SAMÚELSSONAR
18 manna stórsveit Samúels trukkar
út fönkblönduðum jazzi með krafti,
spilagleði og líflegri framkomu sem
á sér enga líka.
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ
KL. 14:00-15:00 JÓNSHÚS Strikið 6
KL. 15:30-16:00 GARÐATORG
Við Íslandsbanka
KL. 17:00-17:30 VIÐ LITLATÚN
REYKJAVÍK SWING SYNDICATE
Swingað fyrir eldri borgara, Garðbæinga á
förnum vegi og alla sem vilja.
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ
KL. 20:30 KIRKJUHVOLL
safnaðarheimili Vídalínskirkju
UNGMENNATÓNLEIKAR hátíðarinnar
Framtíðin stígur á stokk!
LAUGARDAGUR 19. MAÍ
KL. 20:30 KIRKJUHVOLL
safnaðarheimili Vídalínskirkju
ADHD
Hin vinsæla og marglofaða
hljómsveit Guðjónsson bræðra
og félaga galdrar fram einstaka
stemmningu á mörkum popp-
og jazztónlistar.
REYKJAVÍK
SWING SYNDICATE
UNGMENNATÓNLEIKAR
GARÐABÆJAR
ÓKEYPIS AÐGANGUR
17.-19. maí 2012
SAMÚELS JÓNS SAMÚELSSONAR
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
TÓNLEIKAR Í 12 TÓNUM Tónlistarmaðurinn Mikael Lind heldur síðdegistónleika í verslun 12 Tóna við Skólavörðustíg
klukkan 17.30 á morgun. Þar mun hann flytja lög af nýjum geisladisk sem nefnist Felines everywhere. Mikael spilar melód-
íska raftónlist með klassísku ívafi. Felines everywhere er önnur sólóútgáfa hans. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.