Fréttablaðið - 08.06.2012, Side 2
8. júní 2012 FÖSTUDAGUR2
SAMGÖNGUR Takmarkað viðhald
á vegakerfi landsins mun kosta
ríkið margfalt meira til langs tíma
litið en að sinna nauðsynlegu við-
haldi strax. Þetta er mat vega-
málastjóra.
„Ef farið er niður fyrir ákveð-
inn þröskuld í viðhaldi brotn-
ar burðarlag vegarins niður og
mjög dýrt er að byggja það upp
aftur,“ segir Hreinn Haraldsson
vegamálastjóri. „Það er mikið
í það sækjandi að halda þessu í
horfinu.“ Hreinn segir viðhald á
vegum hafa farið niður fyrir lág-
markskröfur. „Þá fara vegirnir
að grotna niður, verða hættuleg-
ir. Við getum ekki búið í mörg ár
við fjárveitingarnar eins og þær
eru núna.“
Ólafur Guðmundsson, fulltrúi
EuroRAP á Íslandi, hefur gert
úttekt á vegakerfinu á Íslandi í
ein sex ár. Hann segist aldrei hafa
séð vegakerfið í eins lélegu ásig-
komulagi. „Frá því að Íslendingar
komu sér upp vegakerfinu sem við
þekkjum í dag með bundnu slit-
lagi, þá held ég að ég hafi aldrei
séð það jafn slæmt.“
EuroRAP er verkefni regnhlíf-
arsamtaka bifreiðaeigendafélaga
í Evrópu og gengur út á að hafa
eftirlit með vegum og sjá til að
þeir séu í samræmi við evrópsk
viðmið. Ólafur segir íslenska
vegakerfið ekki fullnægja þess-
um kröfum. „Það eru staðlar um
yfirboðsmerkingar í Evrópu sam-
kvæmt samningum sem við eigum
að fara eftir en gerum ekki. Vega-
gerðin er einnig með reglur um
merkingar en það er ekki farið
eftir þeim í dag að ég best fæ séð.“
Spurður hvort lélegt viðhald
muni á endanum kosta meira segir
hann hikstalaust svo vera. „Við
erum á fjórða ári og við getum
ekki beðið lengur. Þetta er að
hrynja undan okkur.“
Ólafur segir aðferðina hætta að
vera sparnað. „Þetta er orðin eyði-
legging. Malbikið er að molna upp.
Bindiefnið er farið sem þýðir það
að eftir nokkur ár þurfum við að
gera allt upp á nýtt. Þetta er eins
og með sólpallinn þinn, þú átt að
bera á hann einu sinni á ári en
ef þú gerir það ekki fyrr en eftir
fjögur ár þá er pallurinn ónýt-
ur og þú þarft að skipta um allt
timbrið.“ birgirh@frettabladid.is
SPURNING DAGSINS
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Grillosturinn bráðnar betur en aðrir ostar og
hentar því einstaklega vel á hamborgara eða
annan grillaðan mat.
alveg grillaður!
Kostnaðurinn marg-
faldur eftir nokkur ár
Kostnaður ríkisins er margfalt meiri ef vegir fá að grotna niður. Vegamálastjóri
segir viðhald þjóðvega komið niður fyrir lágmarksþröskuld. Vegakerfið er að
hrynja undan okkur, segir Ólafur Guðmundsson, fulltrúi EuroRAP á Íslandi.
Ögmundur Jónasson ráðherra samgöngumála segir stjórnvöld nú vinna að
því að snúa vörn í sókn. Í endurskoðaðri samgönguáætlun er gert ráð fyrir
að látnir verði auknir fjármunir í samgöngubætur. „Ég vonast til þess að
ástandið muni fara batnandi á nýjan leik.“
„Að vísu erum við að hugsa til þess að viðbótin fari fyrstu árin að uppi-
stöðu í gangagerð,“ segir Ögmundur. „Norðfjarðargöng, Dýrafjarðargöng og
Dynjandisheiði eru allt stórframkvæmdir. En það er mjög mikilvægt að við
horfum ekki fram hjá þeirri brýnu nauðsyn að halda vegunum við.“
Hann segir öryggissjónarmið hafa forgang við endurnýjun ganga. „Það er
einnig á það að líta að endurnýjun, til dæmis Norðfjarðarganga, er brýn af
öryggisástæðum. Allt er þetta blanda af því að hugsa um öryggi byggða og
öryggi einstakra vega.“
Vonast til að ástandið fari batnandi
ENGAR MERKINGAR Yfirborðsmerkingar eru víða máðar eða alveg horfnar eins og
á veginum í Leirársveitinni. Myndin er tekin í maí. MYND/ÓLAFUR GUÐMUNDSSON
Einar, er betur heima setið en
af stað farið?
Nei, maður verður bara að vera vel
búinn til að takast á við fjöllin ef
enginn er til þess að ryðja þeim í
burtu fyrir mann.
Einar Magnús Magnússon upplýsingafulltrúi
Umferðarstofu hefur gagnrýnt viðhald vega
og sagt þá ógna öryggi vegfarenda.
DÓMSTÓLAR Húsnæðislán Íslands-
banka í erlendri mynt eru ekki
ólögmæt gengistryggð lán. Hæsti-
réttur staðfesti í gær niðurstöðu
Héraðsdóms Suðurlands þar að lút-
andi í máli hjóna sem tekið höfðu
slíkt lán hjá bankanum.
Bankinn hafði höfðað mál á
hendur hjónunum til greiðslu á
eftirstöðvum gjaldfallins skulda-
bréfs, en deilt var um hvort lánið
hefði verið í íslenskum krónum
og gengistryggt með ólögmætum
hætti, eða hvort það hafi verið í
erlendum myntum.
Fram kemur í dómnum að með
vísan til heitis skuldabréfsins,
tilgreiningar lánsfjárhæðarinn-
ar og vaxta auk fyrirsagnar skil-
málabreytingar hafi verið fallist
á með bankanum að lánið hefði
verið í erlendum myntum.
Upphafleg greiðslukrafa bank-
ans í mars 2010 hljóðaði upp á
tæpar 22 milljónir króna. Bank-
inn breytti svo þeirri kröfugerð
í þinghaldi fyrir Héraðsdómi
Suðurlands rétt tæpu ári síðar í
tæplega 12,4 milljónir króna. Um
þá upphæð var ekki ágreiningur
og hjónin því dæmd til að greiða
hana með vöxtum.
Íslandsbanki áréttaði í tilkynn-
ingu í gær að húsnæðislán bank-
ans í erlendum gjaldmiðlum og
erlend lán með veði í íbúðarhús-
næði hafi verið endurreiknuð og
þar með gengið lengra en lög frá
Alþingi kvæðu á um.
Að fenginni þessari niðurstöðu
Hæstaréttar nú væri ólíklegt að
dómur Hæstaréttar frá 15. febrú-
ar síðastliðnum í máli 600/2011
eigi við um húsnæðislán Íslands-
banka.
Í því máli hafði lán í erlendri
mynt ekki verið í vanskilum og
því talið að erlendir vextir láns-
ins ættu að gilda, en ekki vextir
Seðlabanka Íslands.
„Íslandsbanki mun halda við-
skiptavinum sínum vel upplýst-
um þegar búið er að yfirfara
dóminn,“ segir í tilkynningu
Íslandsbanka í gær. - óká
Hæstiréttur segir húsnæðislán Íslandsbanka í erlendri mynt hafa verið lögleg:
Lánið var í erlendum myntum
milljónir króna
var upp-
hafleg upp-
hæð kröfu Íslandsbanka
vegna eftirstöðva gjaldfallins
skuldabréfs í erlendri mynt.
Krafan var svo lækkuð í 12,4
milljónir.
DÓMUR HÆSTARÉTTAR
DÓMSTÓLAR Fjögurra ára fangels-
isdómur héraðsdóms yfir þeim
Arkadiusz Zdzislaw Pawlak og
Rafal Grajewski fyrir nauðgun
stendur óraskaður samkvæmt
dómi Hæstaréttar í gær. Þeir
þurfa líka að greiða fórnarlambi
sínu 1,2 milljónir króna í bætur.
Mennirnir voru ákærðir fyrir
nauðgun með því að hafa í bifreið
beitt ofbeldi til að hafa önnur
kynferðismök en samræði við
konu. Við ákvörðun refsingar var
litið til þess að mennirnir frömdu
brot sín sameiginlega, auk þess
sem þau hafi verið alvarleg og
háttsemi þeirra niðurlægjandi
fyrir fórnarlambið. Brotavilji
þeirra hafi verið einbeittur. - óká
Brotavilji sagður einbeittur:
Fangelsi í fjög-
ur ár staðfest
ÞÓ
R
A
A
R
N
Ó
R
SD
Ó
TT
IR
Ó
LA
FU
R
R
A
G
N
A
R
G
R
ÍM
SS
O
N
H
ER
D
ÍS
Þ
O
R
G
EI
R
SD
Ó
TT
IR
H
A
N
N
ES
B
JA
R
N
A
SO
N
A
R
I T
R
A
U
ST
I G
U
Ð
M
U
N
D
SS
O
N
A
N
D
R
EA
J
Ó
H
. Ó
LA
FS
D
Ó
TT
IR
2,1%
9,2%
1,1%
45,8%
39,3%
2,6%
50
40
30
20
10
0
FORSETAKJÖR Ólafur Ragnar
Grímsson og Þóra Arnórsdóttir
mælast sem fyrr með langmest
fylgi fyrir forsetakosningarnar
30. júní næstkomandi. Greint
var frá niðurstöðum nýrrar skoð-
anakönnunar Capacent Gallup í
kvöldfréttum RÚV í gær.
Í könnuninni mælist Ólafur
Ragnar Grímsson, sitjandi for-
seti, með 45,8% fylgi en Þóra
Arnórsdóttir með 39,3%. Alls
9,2% hyggjast kjósa Ara Trausta
Guðmundsson en aðrir frambjóð-
endur fá lítið fylgi.
Herdís Þorgeirsdóttir mælist
með 2,6% fylgi, Andrea Jóhanna
Ólafsdóttir með 2,1% fylgi og
loks Hannes Bjarnason með
1,1%.
Könnunin var framkvæmd á
netinu fyrstu vikuna í júní. Haft
var samband við 1.500 kjósendur
sem valdir voru af handahófi úr
Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Svarhlutfall var um 61% en
um 13% taka ekki afstöðu. Alls
4% segjast ætla að skila auðu
eða kjósa ekki og þá segist um
1% vilja kjósa einhvern annan í
embætti forseta Íslands.
- mþl
Ný skoðanakönnun Capacent Gallup:
Ólafur með mest fylgi
Könnun Capacent Gallup
KÍNA, AP Eitt af hverjum tíu
berklatilfellum í Kína er ekki
læknanlegt með þeim lyfjum,
sem algengast er að nota við
sjúkdómnum.
Þetta hlutfall er mun hærra en
í öðrum löndum. Ástæðan er sú
að lyf hafa verið ranglega notuð
eða ekki prófuð nægilega með
tilraunum.
Þetta eru niðurstöður nýrra
rannsóknar, sem skýrt er frá í
læknatímaritinu New England
Journal of Medicine.
- gb
Röng lyfjanotkun:
Torlæknanlegir
berklar í Kína
DÓMSTÓLAR Reykjavíkurborg þarf
ekki að greiða bifreiðaumboðinu
Brimborg tæpar 136 milljónir
króna með vöxtum eins og Héraðs-
dómur Reykjavíkur hafði dæmt
hana til að gera í fyrrasumar.
Brimborg vildi að borgin
greiddi fyrirtækinu til baka vegna
atvinnuhúsnæðislóðar sem borg-
in hafði úthlutað, en fyrirtækið
ætlaði að skila. „Ekki var fallist
á með [Brimborg] að samkvæmt
skilmálum [Reykjavíkurborgar]
hefði fyrirtækið átt einhliða rétt
á að skila lóðinni gegn endur-
greiðslu lóðagjalda,“ segir í dómi
Hæstaréttar. - óká
Lóðagjöldin ekki endurgreidd:
Einhliða skil
eru ekki í boði
BRIMBORG Fyrirtæki geta ekki tekið ein-
hliða ákveðið að skila lóðum gegn endur-
greiðslu lóðagjalda. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FERÐALÖG Frá og með næstu
mánaðamótum er ökumönnum í
Frakklandi skylt að hafa í bílum
sínum tæki til að mæla áfengi í
andardrætti. Vakin er á þessu
athygli á vef Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda (FÍB).
„Áfengismælirinn er viðbót við
annan búnað sem skylt er sam-
kvæmt frönskum umferðarlögum
að hafa í bílnum, en það er viðvör-
unarþríhyrningur og öryggisvesti
fyrir ökumann,“ segir á vef FÍB.
Sekt fyrir að vera án mælis er
sögð vera 11 evrur eða um 1.785
krónur. - óká
Byrja að sekta í nóvember:
Skylda að hafa
vínmæli með
MENNTUN Tölvuleikur um orku-
notkun og umhverfismál, sem
hópur tölvunarfræðinemenda í
Háskólanum í Reykjavík bjó til,
er kominn í 10 liða úrslit Imagine-
Cup keppninnar sem tæknirisinn
Microsoft heldur. Keppnin er sú
stærsta sinnar tegundar í heim-
inum.Í keppninni er verkefni þátt-
takenda að kynna hugmyndir að
tæknilausnum sem nota á til að
takast á við stór vandamál sem að
heiminum steðja.
Íslenski hópurinn, sem kallar sig
Radiant, bjó til tölvuleik að nafni
Robert‘s Quest sem á að auka með-
vitund ungs fólks um umhverfis-
mál og orkunotkun á skemmtilegan
og gagnvirkan hátt. - mþl
Tölvuleikur um umhverfismál:
Nemendur í
HR vekja lukku
Kviknaði í sumarbústað
Eldur kviknaði í sumarbústað
Norðlingaholtsmegin við Elliðvatn í
gærkvöldi. Slökkviliðið fór á vettvang
og var slökkvistarfi ekki lokið þegar
Fréttablaðið fór í pretun.
ELDSVOÐI
21,9